Þjóðviljinn - 10.01.1989, Page 1
Þriðjudagur 10. janúar 1989 6. tölublað 54. órgangur
Verslunarmannafélag Suðurnesja
Aðför að verkfallsréttinum
Flugleiðir lögsœkja vegna„ofbeldisverkaí( verkfallsmanna og krefjastskaðabóta. Prófmál um hverjirmega
ganga ístörf verkfallsmanna og hvortfélagar verkalýðsfélaga geti átt von á dómum og háumfjársektum
fyrir verkfallsvörslu. Stórmálfyrir alla verkalýðshreyfinguna. Magnús Gíslason:„ Vinnum málið. “
Amorgun verður tekin fyrir
stefna Fiugleiða á hendur
Magnúsi Gíslasyni, formanni
Verslunarmannafélags Suður-
nejsa fyrir Bæjarþingi Keflavík-
ur. Málið er prófmál um það
hverjir megi ganga í störf verk-
fallsmanna og um hugsanlega
skaðabótaskyldu verkfalls-
manna, telji atvinnurekendur að
verkfall hafi valdið þeim fjár-
hagslegum skaða. „Þetta mál er
stefnumarkandi, ef niðurstaðan
verður Flugleiðum í hag sýnist
mér að mesta bitið sé farið úr
verkfallsvopninu,“ sagði Magnús
Gíslason, formaður Verslunar-
mannafélags Suðurnesja.
Forsaga málsins liggur í verk-
falli verslunarmanna sl. vor en þá
stóðu félagar í Verslunar-
mannafélagi Suðurnesja verk-
fallsvörslu í flugstöð Leifs Eiríks-
sonar. Nokkrir forráðamenn
Flugleiða, með Sigurð Helgason,
forstjóra í broddi fylkingar af-
greiddu þá nokkra farþega þrátt
fyrir að reynt væri að koma í veg
fyrir slíkt athæfi. Mótmæltu Flug-
leiðamenn þá aðgerðum verk-
fallsmanna og kærðu til lögregl-
Bandaríkin
Þorskblokk
getur hækkað
SH: Ekki hœgt að lofa
verðhœkkunum á öðrum
afurðum. Húsum fœkkar
ekki innan SH í ár
„Það er mjög erfitt að segja
hver verði þróun afurðaverðs á
Bandaríkjamarkaði í ár og alls
ekki hægt að lofa neinum hækk-
unum nema þá kannski á þorsk-
blokk“, segir Gylfi Þór Magnús-
son framkvæmdastjóri markaðs-
mála hjá Sölumiðstöð hraðfrysti-
húsanna.
Að sögn Gylfa Þórs hefur það
mikið að segja fyrir afkomu fisk-
vinnslufyrirtækja innan SH hver
birgðastaðan er hverju sinni og
hver þróun hennar yrði á árinu.
Mikil birgðastaða þýddi háan
fjármagnskostnað og yrði allt
gert til að forða fiskvinnslufyrir-
tækjum innan Sölumiðstöðvar-
innar frá því.
Aðspurður hvort stjórn SH
gerði ráð fyrir fækkun húsa innan
sölusamtaícanna vegna erfiðrar
stöðu innan atvinnugreinarinnar
um þessar mundir sagði Gylfi að
það yrði engin fækkun húsa innan
SH á þessu ári.
Á mörkuðum SH er ástandið
sýnu verst á Japansmarkaði fyrir
karfa og grálúðu vegna offram-
boðs á síðasta ári. Gylfi sagði að
vegna samdráttar í sölu og fram-
leiðslu á þessum tegundum auk
ufsa á Bandaríkjamarkaði 1988
um 6 þúsund tonn væri möguleiki
á að selja karfa og grálúðu þang-
að í staðinn.
-grh
unnar í Keflavík og höfðu þá lög-
fræðing VSÍ sér til aðstoðar.
Sagði Magnús að nokkrir menn
úr röðum launþega og atvinnu-
rekanda hefðu síðan haldið
möguleikanum á málsókn opn-
um, en þeir hafi komist að óform-
legu samkomulagi um að sleppa
hinni hefðbundnu klausu við
undirskrift kjarasamninga, þar
sem segir að aðilár að vinnudeilu
skulu undanskyldir „öllum kröf-
Forstjóri Flugleiða Sigurður Helga-
son t.h. sakar Magnús Gíslason for-
mann Verslunarmannafélags Suður-
nesja t.v. fyrir að hafa beitt ofbeldi í
verkfalli verslunarmanna sl. vor.
um um skaðabætur og máls-
höfðun," sem hugsanlega kynnu
að vera gerðar í kjölfar vinnu-
deilna.
Málatilbúnaður Flugleiða er
með þeim hætti að þar er gerð
tilraun til að rýra rétt verkalýðs-
hreyfingarinnar verulega, því í
raun er sett fram krafa um að at-
vinnurekendur geti kallað til í
verkfalli verfallsbrjóta, svo lengi
sem þeir eru ekki félagar í því
verkalýðsfélagi sem stendur að
verfallinu. Til vara er sett fram
krafa um að yfirmenn (Flugleiða)
megi óskert ganga í öll störf, þeg-
ar verkfall er í gangi. í þriðja lagi
á að girða fyrir, það sem kallað er
„ofbeldisverk“ verkfallsmanna.
Eins og þetta mál sýnir á að
flokka undir ofbeldisverk þegar
verkfallsverðir stóðu á verði við
afgreiðsluborð Flugleiða og urðu
fyrir áhlaupum einstakra far-
Valur Arnþórsson stjórnarformaður og Guðjón B. Ólafsson formaður horfast I augu á stjórnarfundi SÍS í gær. Mynd ÞÓM.
Skipulagsmál SÍS
Ný nefnd skipuð?
Líkur eru taldar á að ný skipulagsnefnd verði skipuð, án
þátttöku Vals Arnþórssonar og Axels Gíslasonar
Stjórnarfundur SÍS stóð enn í
gærkvöldi þegar þjóðviljinn
fór í prentun og var þá talið lík-
legt að honum lyki á hádegi í dag.
Heirnildir Þjóðviljans telja mest-
ar líkur á að lykildeilurnar um
framtíðarskipulag SIS verði ekki
útkljáðar á þessum fundi. Þess í
stað verði ný nefnd skipuð til að
skoða betur þær meginhugmynd-
ir sem þar hafa komið fram og að í
þeirri nefnd muni hvorki sitja
þeir Valur Arnþórsson, núver-
andi stjórnarformaður SIS né
Axel Gíslason, forstjóri Sam-
vinnutrygginga.
Verði þessi skipan ofan á er
það talið styrkja stöðu Guðjóns
B. Ólafssonar þar sem tveir
helstu talsmenn og hugmynda-
fræðingar meirihluta skipulags-
nefndarinnar hverfa þaðan. Val-
ur vegna þess að hann sest í
bankastjórastól og Axel vegna
þess að hann er hættur hjá SÍS, en
orðinn forstjóri Samvinnutrygg-
inga. Líkurnar á að hugmyndir
um framtíðarskipulag samvinnu-
hreyfingarinnar verði meira að
skapi Guðjóns B. Ólafssonar for-
þega. Síðast en ekki síst á að
brjóta ísinn með að vegna þessar-
ar „ólögmætu framkomu“ eigi at-
vinnurekendur heimtingu á
skaðabótum frá hendi einstakra
verkfallsmanna.
Sagðist Magnús þess fullviss að
Flugleiðir gætu ekki unnið þetta
mál, „hvorki lagalega né siðferði-
lega.“ Verslunarmannafélag
Suðurnesja hefði vissu fyrir því
að nokkrir félagar þeirra hefðu
unnið með stjórnendum Flug-
leiða að afgreiðslu flugmiða og
aðgerðir þeirra hefði stefnt að því
að koma í veg fyrir verkfallsbrot.
Sagði Magnús að félagar í verka-
lýðshreyfingunni gætu sýnt sam-
stöðu með ýmsum hætti, eins og
að hugsa sig tvisvar um með
hvaða félagi þeir ferðuðust á
meðan málið væri óútkljáð.
Magnús sagðist hafa heyrt ávæn-
ing af því að Landssamtök versl-
unarmanna og jafnvel BSRB
væru nú í samningaþreifingum
við Flugleiði um pakkaferðir til
sólarlanda, en sér þætti hart ef
þeim yrði haldið áfram meðan á
þessu mikilvæga máli yndi fram
fyrir dómsstólum. -phh
stjóra SÍS hafi þar með aukist
verulega.
Hugmyndir Vals Arnþórs-
sonar og meirihluta skipulags-
nefndar eru í stórum dráttum þær
að SÍS verði skipt upp í fjögur
sjálfstæð atvinnufyrirtæki, Sjáv-
arafurðasöluna sf., Búvörusöl-
una sf, Iðnað hf og Flutninga hf.
Því sem eftir stendur af SÍS verði
breytt í neytendasamvinnufélag
sem þjóni kaupfélögunum. Er
ljóst að staða forstjóra SÍS yrði
aðeins svipur hjá sjón, verði þess-
ar breytingar að veruleika.“-phh
Fjárlög
Hert
eftirlit
Fjármálaráðherra: Breytt
vinnubrögð og eftirlit með
ráðuneytum og
stofnunum til að tryggja
framkvœmdfjárlaga
- Eg sagði þegar frumvarpið
var lagt fram að í því fælist til-
raun t:l þess að snúa þróuninni
við og hætta að reka ríkissjóð
með tekjuhalla. Ég get auðvitað
ekki fullyrt á þessu stigi hvort
þessi tilraun tckst, en við höfum
verið með í undirbúningi I fjár-
málaráðuneytinu á undanförnum
vikum, ýmsar breytingar á starfs-
aðferðum og eftirliti sem á að
tryggja að framkvæmd fjárlaga-
frumvarpsins gangi upp og ég
mun kynna þær aðgerðir fljót-
lega, segir Ólafur Ragnar Gríms-
son fjármálaráðherra.
Ólafur segir að þó tekist hafi að
leggja traustan grundvöll í frum-
varpinu sjálfu þá sé ekki síður
mikilvægt að sú stefna sem mörk-
uð hefur verið haldist.
- Þetta verður ekki létt verk,
heldur viðvarandi verkefni allt
árið og við erum nú að undirbúa
margvíslegar breytingar á vinnu-
aðferðum fjármálaráðuneytisihs
og samskiptum við önnur ráðu-
neyti og almenning í landinu til
að tryggja að frumvarpið haldi og
ég mun innan fárra daga kynna
þær aðferðir nánar, segir fjár-
málaráðherra.
Sjá síðu 4