Þjóðviljinn - 02.02.1989, Qupperneq 9
hefur aðbúnaðurinn um borð
batnað að mun þó svo að finna
megi svipaðar aðstæður í gömlum
vertíðarbátum.
Að nauðga
sjálfum sér
- Við höfum haft það hér fyrir
reglu að greiða starfsmönnum
laun og mjatla til þeirra sem við
erum í viðskiptum hjá til að hafa
þá góða, en síðust í röðinni erum
við sem rekum staðinn. Ég verð
nú að segja það hreint út: að reka
veitingastað í dag er nánast eins
og að maður sé að nauðga sjálf-
um sér dags daglega. Útkoman
verður sú að persónulega á mað-
ur það á hættu að verða boðinn
upp einhvern daginn.
- Þó ég reyni að blanda mér
eins lítið og ég get inn í pólitíkina
get ég ekki látið hjá líða að minn-
ast á eitt gott verk sem núverandi
fjármálaráðherra beitti sér fyrir
og það var að færa gjalddaga á
söluskatti fram í byrjun hvers
mánaðar í stað þess sem hann
var. Sérstaklega þegar þess er
gætt að 70% viðskiptanna fara
fram með greiðslukortum sem
ekki eru leyst út fyrr en í fyrstu
viku hvers mánaðar. í gamla
fyrirkomulaginu þurftum við að
slá víxil til að geta staðið í skilum
með söluskattinn með viðeigandi
fjármagnskostnaði sem ekki var á
bætandi. Þar fyrir utan þurfum
við að greiða prósentur til korta-
fyrirtækjanna fyrir það eitt að
taka við plastinu fyrir greiðslu.
Veitingahús
berjast
í bökkum
- Það er mikill munur á aðsókn
á veitingastaði nú og var á sama
tíma í fyrra. Hvort það er afleið-
ingin af hinni margumtöluðu
kreppu eða ekki skal ég ósagt
látið. Samdrátturinn hefur þegar
leitt til þess að einn
skemmtilegasti staðurinn í bæn-
um, Þrír Frakkar, varð að loka og
persónulega var mér mikil eftir-
sjá í honum sem og öðrum. Þetta
er eins og með listamennina. Þeir
verða hvað frægastir þegar þeir
eru allir og svo virðist einnig hafa
orðið raunin með Þrjá Frakka.
Það er ekki hið sama að vera góð-
ur staður og vinsæll og virðist
sjaldnast fara saman þó undan-
tekningar megi finna í því sem og
öðru.
- í sannleika sagt virðist ekk-
ert vera gert til að auðvelda rekst-
ur staða sem þessara og kannski
er það vegna þess að menn halda
að veitingamenn raki saman fé
upp úr engu. í raun er það svo að
maður er að borga reikninga af
nánast hverju sem er. Hvað held-
urðu að við þurfum að borga
mikið til dæmis í STEF-gjöld fyrir
það eitt að spila tónlist af segul-
bandi? Þær upphæðir skipta
tugum þúsunda, auk skatta og
launatengdra gjalda. Þannig á
heildina litið lepur maður nánast
dauðann úr skel og mundi ekki
vera að þessu nema af einskærum
áhuga.
í nágrenni
við ráðhúsið
Eins og nafnið ber með sér er
Veitingahúsið við Tjörnina í
næsta nágrenni við mjög svo um-
deilda byggingu, nefnilega við
Rúnar Marvinsson matargerðarmaður: Ég á þá ósk heitasta að íbúar jarðarinnar geti lifað í sátt og samlyndi. Mynd:ÞÓM.
lega vel vakandi fyrir hættunni
sem lífríkinu til lands og sjávar
stafar af menguninni.
Friðarsinni
- Ég tel mig vera friðarsinna
og á þá ósk heitasta að íbúar jarð-
arinnar gætu lifað í sátt og sam-
lyndi. Því miður virðist langt í
það að þessi ósk muni rætast á
næstunni þó ekki sé horft langt
fram í tímann. Lífsbaráttan er
orðin svo miskunnarlaus að
menn koma sér áfram á hörkunni
ef því er að skipta á kostnað kær-
leikans. Rúnar segir lífið vera
bardaga um allt og alla í streðinu
um að gera það gott. En auðvitað
vonast maður eftir betri tíð svo
lengi sem maður lifir.
-grh
Fiskfométtur að hætti
Rúnars Mannnssonar
Léttsteikt hvítlauksristuð þorskhrogn
Pökkuð inn í álpappír og sett ísjóðandi heitt vatn í5 mínútur. Skorin
niður í2ja sm þykkarsneiðar, krydduð með grœnmetissalti, innlendu
beitilyngskryddi og smurð upp úr hvítlauksolíu
ráðhúsið hans Davíðs. Rúnar
segir staðsetningu ráðhússins al-
veg fáránlega. Hann segist ekki
þræta fyrir að þörf sé á ráðhúsi
fyrir Reykjavíkurborg en þá
hefði átt að byggja það á ein-
hverjum öðrum stað í borginni
þar sem vítt væri til allra átta. En
að byggja það í Tjörninni væri
með öllu ofvaxið hans skilningi.
Mengun sjávar
Hingað til höfum við fslend-
ingar sloppið við meiriháttar
mengunarslys í hafinu í kringum
landið og getum enn státað af að
framleiða sjávarafurðir úr
hreinum sjó. Hversu lengi það
mun vara veit enginn en allir von-
ast þó til að það megi verða sem
lengst.
Hinu er heldur ekki að leyna að
margir óttast að aukin umferð
kjarnorkukafbáta í nágrenni ís-
lands muni fyrr eða síðar leiða til
mengunarslysa í einni eða ann-
arri mynd. Þá höfum við sjálfir
ekki verið barnanna bestir í um-
gengni okkar við hafið. Til
skamms tíma og er kannski enn,
var það lenska að hafið tæki við
öllu drasli sem í það væri hent.
Meira að segja hafa þær raddir
heyrst að úrgangsolíu væri hent í
sjóinn fyrir utan allt plastið sem
er eins og hráviði út um alla
strönd, öllum til ama.
Að sögn Rúnars er sem betur
fer ekkert um sýktan fisk hér við
land eins og fregnir berast um frá
grönnum okkar við Norðursjó-
inn. Hann segir að ef við gætum
ekki að okkur geti hið sama hent
hér. Sjálfum finnst honum að
hérlendis sem annars staðar í
heiminum séu menn ekki nægi-
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9
Á þessum árstíma er vin-
sæit aö borða hrogn og lifur
með fiski og kartöflum en til
þess að auka á fjölbreytnina
fór Sjávarútvegsblað Þjóðvilj-
ans í smiðju til Rúnars Marv-
inssonar matargerðarmanns í
Veitingahúsinu við Tjörnina.
Meðal þeirra forrétta sem
hann býður matargestum uppá
eru léttsteikt hvítlauksristuð
þorskhrogn. Fyrst er þeim pakk-
að inn í álpappír og sett í 5 mínút-
ur í sjóðandi heitt vatn þannig að
ysta lagið verði þétt. Síðan eru
hrognin skorin niður í 2ja sm
þykkar sneiðar og kryddaðar
með grænmetissalti. Þá eru þau
smurð með hvítlauksolíu og stráð
yfir þau innlendu beitilyngs-
kryddi.
Að hætti atvinnumanna í fag-
inu notar Rúnar gas við steiking-
una og þegar smjörið er orðið
heitt.eru hrognin sett á pönnuna.
Þegar hrognin fara að steikjast er
hellt smávegis af hvítvini út á
pönnuna og stuttu á eftir einnig
rjóma eftir smekk. Þegar búið er
að léttsteikja hrognin eru þau
borin fram með sítrónusneið sem
viðkomandi kreistir yfir þau eftir
smekk.
Fyrir þá íhaldssömu sem ekki
geta ímyndað sér hrogn öðruvísi
en soðin með lifur, fiski og kart-
öflum eru léttsteiktu hvítlauks-
ristuðu þorskhrognin herra-
mannsmatur og einföld í mat-
reiðslu. Því fengu tíðindamenn
Sjávarútvegsblaðsins að kynnast
af eigin raun og þora óhikað að
mæla me'ð þessum einfalda for-
rétti. -grh