Þjóðviljinn - 21.02.1989, Síða 1
Þriðjudagur 21. febrúar 1989 36. tölublað 54. árgangur
Forsœtisráðherra
Engan herflugvöll í tíð
þessarar nkisstjómar
Steingrímur Hermannsson: Stjórnarsáttmálinn stöðvar öll aform um lagningu Nato-
flugvallar. Hverjireru ófriðartímaroghverjirfriðartímaraðskilgreiningu Wörners?
Steingrímur Hermannsson for-
sætisráðherra tók af skarið í
varaflugvallarmálinu á alþingi í
gær, lýsti því yfir að ekki yrði
ráðist í að leggja varaflugvöll á
kostnað Mannvirkjasjóðs Nató.
Ástæða þessa væri einföld; innan
ríkisstjórnar sinnar væru skoð-
anir skiptar um það hvort slíkur
völlur væri hernaðarmannvirki
eður ei og samkvæmt stjórnar-
sáttmála skyldi ekki ráðist í
neinar hernaðarframkvæmdir.
Forsætisráðherra sagði ófull-
nægjandi að segja sem svo að var-
aflugvöllur Nató yrði aldrei tek-
inn til hernaðargagns nema á
ófriðartímum. Hverjir væru frið-
artímar? í varnarsamningi ís-
lendinga og Bandaríkjamanna
stæði að hér skyldi ekki vera her á
friðartímum. Og herinn kom
1951 vegna ófriðar í Kóreu! Ann-
að mál væri svo að heimila for-
könnun. En hann efaðist um að
Nató legði í kostnað vegna henn-
ar ef búið væri að útiloka fram-
kvæmdina. Og vegna ágreinings
um verksvið ráðherra tók hann
það fram að samgöngumál væru á
forræði samgönguráðherra.
Umræðurnar um „varaflug-
vallarmálið" voru utan dagskrár í
sameinuðu þingi. Fram kom að
Jón Baldvin Hannibalsson utan-
ríkisráðherra hyggst þrátt fyrir
allt heimila forkönnun Nató á
hagkvæmni við flugvallargerð.
Flutti hann langt mál um nauðsyn
þess að „tryggja öryggi“ í
flugsamgöngum með lagningu
risaflugvallar á kostnað Nató.
Steingrímur J. Sigfússon sam-
gönguráðherra vísaði á bug að ör-
yggi væri ábótavant. Hvort menn
teldu að ísl. og erl. flugfélög sem
flygju á íslensku flugstjórnar-
svæði bæru öryggi farþega sinna
fyrir borð? Hann sagði engar ósk-
ir hafa borist frá alþjóðlegum
flugmálayfirvöldum um varaflug-
völl á íslandi því hann væri til
staðar. Fullkominn í Keflavík og
allgóðir í Reykjavík og á Akur-
eyri.
Landeigendafélag Laxár og
Mývatns hefur mótmælt hug-
myndum um að leggja Natóflug-
völl í Aðaldal. í fundarályktun
félagsins frá því á föstudag segir
ma. :„Við minnum á að þessi
flugvöllur yrði mjög nærri
bökkum Laxár og ógnaði tví-
mælalaust lífríki árinnar og um-
hverfi hennar, td. Skjálfandafl-
óa.“
Vigfús Jónsson, bóndi á Laxa-
mýri og varaþingmaður Sjálf-
stæðisflokksins, sagði við Þjóð-
viljann að landeigendum hefði
ekki verið sýnd sú lágmarks-
kurteisi að rætt væri við þá um
þetta flugvallarmál. En þar eð
mikill og óbilgjarn þrýstingur
væri kominn á málið hefði Land-
eigendafélagið séð ástæðu til að
minna á sig.
ks/-ólg
Umhleypingar áfram. Ekkert lát virðist ætla að verða á umhleyping-
unum sem hrjáð hafa landann að undanförnu. (gær gekk á með éljum
í Reykjavík síðdegis. Það bitnaði þó ekki á fluginu einsog oft áður.
Þess á milli var bjart og sá til sólar lengur en samanlagðar sólskins-
stundir í janúar, en þær voru aðeins tvær. Fyrir norðan kyngdi niður
snjó. Á Siglufirði var varað við snjóflóðahættu og var höfð snjóflóða-
vakt í nótt. í dag er búist við svipaðri veðráttu og í gær um land allt.
Mynd Jim Smart.
Heilsuhœlið Hveragerði
Fiskur einusinni í viku
Frá og með 1. mars verðurfiskmeti vikulega á borðum á Heilsuhœli
Náttúrulœkningafélagsins
Stjórn Náttúrulækningafélags-
ins hefur ákveðið að frá og
með 1. mars verði fískur á borð-
um einusinni í viku á Heilsuhæl-
inu í Hveragerði.
Eiríkur Ragnarsson, fram-
kvæmdastjóri Heilsuhælisins,
sagði við Þjóðviljann í gær að
þetta væri ekki í fyrsta skipti sem
boðið væri upp á sjávarafurðir á
Heilsuhælinu því frá upphafi
hefði verið boðið upp á lýsi og
undanfarin ár upp á hrogn og
lifur þegar það hefði fengist, auk
þess sem hangikjöt hefði meira
að segja verið á borðum á jólum.
„Dr. Laufey Steingrímsdóttir
gerði úttekt á næringargildi fæð-
unnar á síðasta ár og þá kom í ljós
að þótt maturinn hér sé ákaflega
hollur þá eru ákveðnar veikar
hliðar á samsetningunni, einkum
gagnvart fólki sem þarf t.d. að
byggja upp orkubúskap sinn eftir
erfiða sjúkdóma. Slíkt fólk þarf
orkumikinn mat og það er
auðveldlega hægt að bæta með
fiskneyslu. Það hefur alltaf verið
markmið okkar að hafa hollan
mat á boðstólum og fáir efast um
hollustu fisks.“
Þótt fiskmeti verði á boðstól-
um einusinni í viku verður jafn-
framt hægt að fá grænmetisrétti.
Fiskurinn verður gufusoðinn
þannig að hann missi ekki nær-
ingarefni. Auk þess verður boðið
upp á brauð með síðdegis en fram
til þessa hefur einungis verið boð-
ið upp á kökur.
Ýmislegt fleira er á dagskrá um
þessar mundir hjá Náttúrulækn-
ingafélaginu að sögn Eiríks. Nú
er t.d. í undirbúningi endurhæf-
ingarprógramm fyrir krabba-
meinssjúklinga og hefst það trú-
lega í haust.
-Sáf
Sigurður Sveinsson átti stjörnu-
leik á móti V-Þjóðverjum.
B-keppnin
EB lagt
*
Island sigraði V-
Þýskaland 23:21
íslenska handboltalandsliðið
sýndi styrk sinn í gær þcgar það
sigraði landslið V - Þjóðverja í
jöfnum og spennandi leik með
23:21 þrátt fyrir að frönsku dóm-
ararnir hjálpuðu Þjóðverjum
dyggilega.
Jafnt var á öllum tölum í fyrri
hálfleik en í byrjun þess síðari
náði íslenska liðið frábærum
leikkafla og 4ja marka forskoti
15:11. Þá gripu frönsku dómar-
arnir til sinna ráða og útilokuðu
Kristján Arason frá frekari þátt-
töku í leiknum. Þegar staðan var
16:15 fyrir íslenska liðið var Al-
freð Gíslasyni vikið af leikvelli
fyrir fullt og allt og við það tvíefl-
dust strákarnir og sigu fram úr
með þrumufleygum Sigurðar
Sveinsonar og Héðins Gilssonar.
í dag verður leikið við Sviss og
verður bein útsending frá
leiknum í Ríkissjónvarpinu auk
þess sem honum verður lýst á Rás
2.
Sjá síðu 7
Seyðisfjarðarkirkja
Miljonatjon
í eldsvoða
Miljónatjón varð á Scyðisfirði
þegar kviknaði í kirkju bæjarins
á 9. tímanum í gærmorgun.
Greiðlega gekk að slökkva eldinn
en kirkjan er stórskemmd og talið
að það muni taka nokkra mánuði
að koma henni í samt lag að nýju.
Að sögn sóknarprestsins Krist-
jáns Róbertssonar var verið að
vinna að endurbótum á kirkjunni
og talið að eldurinn hafi kviknað
út frá neista frá gastæki sem iðn-
aðarmenn voru að vinna með við
dúklagningu uppi á svölum kirkj-
unnar. Komst hann í einangrun
og klæðningu og breiddist fljótt
út. Við slökkvistarfið varð að rífa
klæðningu utan á kirkjunni til að
komast að eldinum og er hún
ákaflega illa farin að innan.
-grh