Þjóðviljinn - 21.02.1989, Síða 3
FRETTIR
Arnarflug
Viðræður við Flugleiðir
Sigurður Helgason: Flugfloti Arnarflugs hentar okkur ekki.
Förum í viðrœður að beiðni ríkisins. Þörfá stœrri
flugfélögum. British Airways á leiðinni hingað
Samgönguráðherra hefur
skipað nefnd til viðræðna við
Flugleiðir hf. vegna framtíðar
Arnarflugs og mun fyrsti fundur
væntanlega verða haldinn í dag.
Þó hefur dyrunum ekki endan-
lega verið lokað á Arnarflugs-
menn sem halda áfram tilraunum
sínum til að afla nægilegs fjár-
magns til að tryggja öruggan
rekstur félagsins. Lítið mun þó
hafa miðað í því máli að undan-
förnu. Sigurður Helgason, for-
stjóri Flugleiða, sagði í samtali
við Þjóðviljann að fyrirtækið
gengi til þessara viðræðna að
beiðni ríkisvaldins en gerði það
án skilyrða og með opnum hug.
Sigurður sagði að Flugleiðir
hefðu beðið um ákveðnar upplýs-
ingar frá samgönguráðherra í
desember um fjárhagsstöðu Arn-
arflugs. Þær upplýsingar hefðu
ekki fengist enn og því vissu Flug-
leiðamenn ekki „hvað dæmið er
stórt.“ „Við erum á fullri ferð við
að endurnýja flugflota félagsins
og höfum því ekki ótakmörkuð
fjárráð.“
„Ég tel ekki að það breyti
neinu um samkeppnisstöðu Flug-
leiða þó að Arnarflug hverfi af
markaðnum. Við erum háðir
samþykki yfirvalda um verð flug-
miða og hingað fljúga erlend
flugfélög eins og SAS, og British
Airways hafa boðað komu sína
hingað. Hins vegar skiptir stærð
máli í flugrekstri og við gætum
eflaust náð fram hagræði í rekstri
ef við yfirtækjum Arnarflug. En
við þekkjum ekki fjárhagsstöðu
Arnarflugs og flugvélar þess
passa ekki stefnu Flugleiða á
sviði endurnýjunar flugflotans.
Þeirra flugvélar eru eflaust báðar
um 20 ára gamlar og fullnægja
ekki þeim hávaðamörkum sem
verið er að setja í Evrópu, þannig
að það eru ekki vélar til frambúð-
ar," sagði Sigurður Helgason.
í viðræðunefnd Flugleiða
verða auk Sigurðar þeir Björn
Theodórsson, framkvæmdastjóri
þróunarsviðs, og Halldór Vil-
hjálmsson, framkvæmdarstjóri
fjármáiasvið. f nefnd samgöngu-
ráðherra verða þeir Halldór S.
Kristjánsson, samgönguráðu-
neytinu, Þorsteinn Ólafsson,
efnahagsráðgjafi forsætisráð-
herra, Þórhallur Arason, fjár-
málaráðuneytinu, og Stefán
Reynir Kristinsson, fulltrúi við-
skiptaráðherra. Þá hafa þeir
Hjörtur Torfason hrl. og Ragnar
Aðalsteinsson hrl. verið skipaðir
sérstakir trúnaðarmenn sam-
gönguráherra og munu þeir
starfa með nefndinni. ^
Vaxtaverkirnir
Húsnæðiskerfið
í hætlu
Hrafn Magnússon: Bjóði ríkið lífeyrissjóðum
skuldabréfmeð lægri vöxtum en það selurá
almennum markaði eruforsendur
húsnœðiskerfisins brostnar
Húsnæðiskerfíð hrynur hyggist stjórnvalda, banka ogsparisjóða.
fjármálaráðuneytið selja líf- Ekkert slíkt hefði gerst. ks.
eyrissjóðum ríkisskuldabréf með _________________________
lægri raunvöxtum en það seiur á
almennum fjármagnsmarkaði.
Fyrsti alíslenski sófinn! Nú ertil sýnis í Epalhúsinu fyrsti alíslenski sófinn. Það eru tveir ungir innanhúss-
arkitektar, þau Guðrún Margrét Ólafsdóttir og Oddgeir Þórðarson, sem áttu hugmyndina og teiknuðu
sófann en hann er jafnframt myndskreyttur þ.e. málaður af Þorláki Kristinssyni listmálara, Kjartan Einars-
son bólstrari hefur smíðað og bólstrað sófann og framleiðandi er Epal. Ætlunin er að framleiða í hæsta lagi
tíu mismunandi gerðir. Hver sófi kostar 290.000 krónur. Mynd Jim Smart.
Borgarstjórn
Flugleiðir
Munar ekki
um 5000
farþega
„Við misstum þetta flug út í
fyrra og það hefur ekkert skaðað
okkur fjárhagslega þó að af þess-
um samningum verði ekki nú.
Við höfum ekki áhyggjur af því
að þetta skaði okkur fjárhags-
lega,“ sagði Sigurður Helgason,
forstjóri Flugleiða, í samtali við
Þjóðviljann í gær.
Sem kunnugt er hafa verka-
lýðsfélög neitað að staðfesta
samninga við Flugleiðir vegna
málsóknar Flugleiða gegn Versl-
unarmannafélagi Suðurnesja og
er talið að farþegafjöldi í þessum
ferðum geti verið um 5000. Enda
hafa Flugleiðir talað um að
verkalýðsfélögin hafi reynt að
beita félagið viðskiptaþvingun-
um til að falla frá málsókn. Hins
vegar mætti spyrja hvort orðið
„viðskiptaþvinganir" eigi við,
þegar mat Flugleiðamanna
sjálfra er að missir orlofsflug-
samninganna skipti þá engu máli
fjárhagslega.
Sigurður sagði „að ekkert
hefði komið fram“ sem gæfi fé-
laginu ástæðu til að falla frá mál-
sókninni. Sagðist Sigurður ekki
telja að málsóknin hefði skert
orðstír Flugleiða og vísaði til
skoðanakönnunar sem gerð var
að frumkvæði félagsins, sem
hann sagði að hefði sýnt að „fólk“
teldi málsóknina mjög eðlilega.
Hvað má ráðhúsið kosta?
Guðni Jóhannesson: Hvar verða mörkin varðandi kostnað við
byggingu ráðhússins? Kostnaðaráœtlun borgarstjóra árið 1987heitir
nú kostnaðarskot. Borgarfulltrúar stjórnarandstöðunnar mótmæltu
harðlega framkvœmdum við ráðhúsið
Einsog fram hefur komið
stefnir í erfiða lotu samningavið-
ræðna lífeyrissjóðanna og ríkis-
valdsins um kaup hinna fyrr-
nefndu á skuldabréfum til að fjár-
magna húsnæðiskerfið. Fjár-
málaráðuneytið er staðráðið í því
að hvika hvergi frá 5% raun-
vaxtamarkinu en lífeyrissjóðirnir
hafa ekki í hyggju að ganga til
nauðungarsamninga um 5%
raunvexti af ríkisskuldabréfum ef
svo fer að enginn falast eftir þeim
á almennum markaði.
Verkalýðshreyfingin setti sem
skilyrði við mótun núverandi
húsnæðiskerfis að vextir af
skuldabréfum sem ríkið selur líf-
eyrissjóðunum vegna húsnæðis-
stjórnar skyldu vera sambærilegir
við lánskjör ríkisskuldabréfa á al-
mennum markaði. Þetta skilyrði
var leitt í lögin um Húsnæðis-
stofnun ríkisins. Að sögn Hrafns
Magnússonar hjá Sambandi al-
mennra lífeyrissjóða má vera að
það skilyrði sé gengið sér til húð-
ar hyggist ríkið selja sjóðunum
bréf með vöxtum sem allir fúlsi
við á almennum markaði. Því
kynni nú að koma til kasta aðilja
vinnumarkaðarins að ræða við
stjórnvöld.
Hrafn sagði sjóðina hafa samið
til þriggja mánaða í lok fyrra árs
vegna fyrirheita ríkisins um að í
mars hefðu raunvextir náðst nið-
ur með samræmdu átaki
Hvar verða mörk sett varðandi
hvað ráðhúsið má kosta?
spurði Guöni Jáhannesson borg-
arfulltrúi á fundi borgarstjórnar
á fímmtudaginn þegar nýjasta
kostnaðaráætlun verkefnis-
stjórnar ráðhússins kom þar til
umræðu.
Eins og Þjóðviljinn hefur
greint frá, er samkvæmt þeirri
kostnaðaráætlun gert ráð fyrir að
húsið muni kosta án innréttinga
um einn og hálfan miljarð kr.
Þegar ráðhússbyggingin var sam-
þykkt hljóðaði áætlunin, sem
borgarstjóri kallar nú kostnaðar-
skot, uppá 750 miljónir á verðlagi
ársins 1987. Kristín Á. Ólafsdótt-
ir borgarfulltrúi benti á í umræð-
unum, að þótt teknar væru með
inn í kostnaðaráætlunina þær
verðbreytingar sem orðið hefðu á
tímabilinu hefði kostnaðurinn
aukist um 610 miljónir kr. frá því
að ákveðið var að ráðast í þessa
umdeildu byggingarframkvæmd.
Miklar umræður urðu á fund-
inum um byggingu ráðhússins og
bókuðu allir fulltrúar stjórnar-
andstöðunnar mótmæli sín við
framgang máisins. Þannig sagði
Bjarni P. Magnússon í sinni
bókun að í nóvember 1987 hefði
húsið átt að kosta á núvirði 986
miljónir, og fermetrinn 73.582
kr. Nú 14 mánuðum síðar væri
fermetrinn kominn upp í 146.611
kr.
Borgarfulltrúar Alþýðubanda-
lagsins og Framsóknar mótmæltu
þeim gífurlegu fjármunum sem
eytt hefur verið úr sjóðum borg-
arbúa til að hanna húsið og bentu
á að hönnunarkostnaður hefði
hækkað um 100 miljónir frá því í
júlí sl. En þessi gífurlegi hönnun-
arkostnaður stafar að verulegu
leyti af þeim framkvæmdahraða
sem viðhafður er.
Davíð Oddsson sagði á fundin-
um að hann hefði skrifað Verð-
lagsstofnun bréf þar sem hann
hefði vakið athygli hennar á
hækkun taxta hönnuða. Sam-
kvæmt upplýsingum Verðlags-
stofnunar hefur bréf borgarstjór-
ans ekki enn borist þangað.
Guðni Jóhannesson benti á í
umræðunni, að hugmyndir væru
um að notast við tvöfalt gler í hús-
inu til að spara. Hann sagði að
hún bryti í bága við byggingar-
reglugerð en hún kveður á um að
byggingar skuli búnar þreföldu
gleri. —sg
Félag leikstjóra
Fordæma ummæli Helga
Stjórn Félags leikstjóra á ís-
landi hefur fordæmt ummæli
Helga Skúlasonar leikara um
Ingu Bjarnason leikstjóra, en
hann sagði í útvarpinu að Inga
væri ekki starfi sínu vaxin og
getulaus sem leikstjóri.
Þá mótmælir stjórn FLÍ {
harðlega að Arnór Benónýss
sé skráður eða kynntur sem le;
stjóri sýningarinnar á Virgir
Woolf og harmar að þetta h
hleypt af stað moldviðri út af m
sem á að leysa innan leikhússi
með aðstoð fagfélaganna.
Þriðjudagur 21. febrúar 1989 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3