Þjóðviljinn - 23.02.1989, Qupperneq 1
Fimmtudagur 23. febrúar 1989 38. tölublað 54. órgangur
Lífeyrissjóðirnir
Hag hverra verja þeii?
Lífeyrissjóðirnir vilja gerðardóm um vísitöluna. Jón Sigurðsson: Stjórnirlífeyrissjóðanna œttu að hugleiða
hvaða hagsmuniþœr eru að verja. Nýja vísitalan til hagsbóta fyrir sjóðfélaga.
Hrafn Magnússon um ályktun VMSI: Vextir okkar hafa ekki áhrifá almenna vexti
Lífeyrissjóðirnir ættu að hug-
leiða hvaða hagsmuni þeir eru
að verja, sagði Jón Sigurðsson
viðskiptaráðherra í samtali við
Þjóðviljann í gær, en lífeyrissjóð-
irnir vilja að gcrðardómur skeri
úr um lögmæti nýju
lánskjaravísitölunnar og auk þess
telja fulltrúar þeirra að vextir líf-
eyrissjóðanna hafi lftil áhrif á
vaxtastigið í landinu.
Jón sagði að til langframa
skaðaði hin nýja lánskjaravísitala
ekki hagsmuni fólksins í lífeyris-
sjóðunum heldur væri hún þvert
á móti til hagsbóta fyrir það.
Hrafn Magnússon, fram-
kvæmdastjóri SAL, sagði við
Þjóðviljann í gær, effir fund full-
trúa lífeyrissjóðanna með fjár-
málaráðherra og viðskiptaráð-
herra, að úrskurður gerðardóms
um lánskjaravísitöluna væri eina
raunhæfa leiðin til að fá úr lög-
mæti hennar skorið.
Lánskjaravísitalan hækkar nú
um mánaðamótin um 1,25% en
ef gamla vísitalan hefði verið við
lýði hefði hún hækkað um
1,72%. Einnar miljón króna lán
hækkar því um 12 þúsund krónur
í stað 17.200 króna eftir gamla
grunninum.
Ákveðið var í gær að annar
fundur yrði haldinn á morgun þar
sem áfram verður reynt að finna
lausn áþessu máli.
VMSI hefur farið fram á það að
lífeyrissjóðirnir kanni hvaða
áhrif það hefði á vextina í landinu
ef sjóðirnir gengju að kröfu ríkis-
ins um 5% vexti á skuldabréfa-
kaup byggingasjóðanna.
„Við höfum ekkert breytt
þeirri skoðun okkar að þeir vextir
sem ríkið greiðir okkur hefur
engin áhrif á vaxtamál almennt í
landinu," sagði Hrafn í gær.
„Ég get alls ekki tekið undir
þetta,“ sagði Jón Sigurðsson þeg-
ar Þjóðviljinn bar þessi ummæli
Hrafns undir hann. „Lífeyris-
sjóðirnir eru stærsti sparnaðar-
aðilinn í landinu og vextir þeirra
hljóta því að hafa áhrif á vaxta-
stigið í landinu almennt.“
Loðna
Kjaftfylli
miðunum
Loðnunefnd: Tœp30
þúsundtonn á tveimur
sólarhringum.
Skorturá
löndunarplássi ogfá
skip á veiðum
Mpg góð loðnuveiði hefur ver-
ið á miðunum út af suðurströnd-
inni síðustu sólarhringa en þá
veiddust tæp 30 þúsund tonn. í
gær var svo komið að aðeins 9
skip voru á veiðum af 46. Hin
voru ýmist að landa eða leita að
löndunarplássi.
Að sögn Ástráðar Ingvars-
sonar hjá loðnunefnd mun það
vera í fyrsta skipti á vertíðinni að
skortur er á löndunarplássi og
helgast það af loðnufrystingunni
sem er komin á fulla ferð í
Vestmannaeyjum og á Aust-
fjörðum. Húnaröstin kom til að
mynda til Reykjavíkur í gær með
rifna nót og ætlaði að nota tæki-
færið og landa um leið 500 tonn-
um en var vísað frá.
Frá áramótum er heildaraflinn
orðinn um 308 þúsund tonn en frá
vertíðarbyrjun í ágúst er hann
orðinn 619 þúsund tonn. Heildar-
kvótinn á vertíðinni er 923.500
tonn. Óvíst er hvort hann næst
allur en trúlega munu verksmiðj-
umar bræða fram í drep ef því
verður að skipta. _grh
í gær var verið að landa 1340 tonnum af loðnu úr Júpiter RE hjá loðnubræðslunni að Kletti í Reykjavík.
Loðnan fékkst á miðunum út af suðurströndinni. Mynd: ÞÓM.
Söluskattsvanskil
Kjötmiðstöóinni lokað
Tollstjóri: Þolinmœðin á þrotum
Kjötmiðstöðinni við Laugalæk
var lokað í gær vegna sölu-
skattsvanskila og óvíst hvenær
hún opnar aftur. Ekki er vitað
hvað fyrirtækið skuldar mikið en
nýir eigendur tóku við rekstri
þess á síðasta ári af Hrafni Bach-
mann.
Að sögn Björns Hermanns-
sonar tollstjóra mega forráða-
menn þeirra fyrirtækja sem
skuida söluskatt búast við hertum
innheimtuaðgerðum og lokunum
láti þeir sér ekki segjast. Björn
segir þolinmæði embættisins vera
á þrotum.
- Aðalatriðið er að innheimta
þann söluskatt sem er útistand-
andi en ekki að loka fyrirtækjum.
En við langvarandi söluskatts-
vanskil er auðvitað ekki annað
hægt en að loka viðkomandi fyr-
irtæki því slíkt gengur auðvitað
ekki til lengdar“, sagði Björn
Hermannsson.
-grh
.Pólitík.á .
laugaraegi
Þjóðviljinn/Alþýdubandalagið í Reykjavík
Svavar Gestsson menntamálaráðherra
Pólitískt hádegisspjall á
Hverfisgötu 105,4. hæðkl. 11-14
á laugardag.
skólakerfið
menningin
kjaramálin
varaflugvöllurinn
ríkisstjórnin
framtíðin
Allir vinstrimenn velkomnir
Þórarinn V. Þórarinsson fram-
kvæmdastjóri VSÍ og stjórnar-
maður í SÁL fagnaði þessari hug-
mynd VMSÍ en var vantrúaður á
að vextir lífeyrissjóðanna hefðu
áhrif á vaxtastigið í landinu. „En
það var löngu orðið tímabært að
þetta sé kannað til hlítar."
Búist er við að miðstjórnar-
fundur ASf í dag muni fjalla um
þetta mál og skipa fulltrúa í nefnd
sem á að kanna þetta en VSf hef-
ur þegar skipað Hannes G. Sig-
urðsson í nefndina. Stefnt er að
því að niðurstöður nefndarinnar
liggi fyrir um miðjan næsta mán-
uð þegar samningaviðræður hefj-
ast milli ríkisins og lífeyrissjóð-
anna um skuldabréfakaup.
-sg/Sáf
Sjá leiðara
Bjórverð
Frá 87 til
120 krónur
Sanitas pilsner ódýrastur
og veikastur en Kaiser sá
dýrasti. Sanitas lageröl
með mesta styrkleikann
5,6%. Bjórkassinn2240-
2880 krónur
Verð á bjór út úr verslunum
ÁTVR var ákveðið í gær en 6 dag-
ar eru þangað til nýju bjórlögin
taka gildi. Odýrasti bjórinn verð-
ur flaska af Sanitas pilsner á 87
krónur með 4,6% styrkleika en
Kaiser sá dýrasti á 120 krónur
með 5,4%. Skilagjald verður 5
krónur.
Til að byrja með mun Ölgerð
Egils Skallagrímssonar aðeins
hafa á boðstólum eina bjórteg-
und, Egilsgull með styrkleika
uppá 5% og kostar flaskan 95
krónur en dósin 100. Sanitas mun
framleiða 3 tegundir. Flaska af
Sanitas pilsner mun kosta 87
krónur en dós 93. Sanitas lageröl
verður með 5,6% styrkleika og
verður sá sterkasti. Dós af hon-
um kostar 110 krónur en flaskan
105. Dós af Löwenbráu kostar
105 og flaska 100 krónur. Styrk-
leiki hans verður 5,3%.
Af innfluttum bjórtegundum
verður Budweiser ódýrastur á
105 krónur með 5% styrkleika,
Tuborg hinn danski verður 5,1%
og kostar 112 og Kasier sá
austurríski með 5,4% styrkleika
kostar mest eða 120 krónur.
Eins og kunnugt er verður að-
eins hægt að kaupa hjá ÁTVR 6
dósir í kippum eða heilan kassa.
Samkvæmt verðákvörðuninni
kosta 6 dósir frá 560-720 krónur
og bjórkassinn frá 2240-2880
krónur.
-grh
>