Þjóðviljinn - 11.03.1989, Side 11
„Drykkfellt höikutól“ og
„íhugull leiðindagaur“
Ósigur Towers - ogþar með Bush - er jafnframt mikillpersónulegur
sigurfyrir Sam Nunn. Þegar erfarið að minnast á hann sem næsta
frambjóðanda demókrata til forsetaembœttis
FRETTIR
Tower og Nunn
Tower (t.v.) og oddviti andstæðinga hans, Sam Nunn, demókrati frá
Georgíu, formaður hermálanefndar öldungadeildar Bandaríkjaþings.
Með miklum og einstökum
ósigri Johns Goodwin Tower
í öldungadeild Bandaríkjaþings
má ætla að hann sé á förum úr
stjórnmálum. í þeim hefur hann
verið umsvifamikill um langt
skeið. Hann hefur setið í öldunga-
deildinni fyrir Texas í 24 ár, þar
af 19 ár í varnarmálanefnd
deildarinnar, þar sem atgangur-
inn gegn honum hófst. Og 1981-
85 var hann formaður þeirrar
nefndar sjálfur.
Tower, sem nú er 63 ára, er
borinn og barnfæddur í Texas,
sonur prests af kirkju meþódista
og sjálfur þeirrar trúar. Asýndar
er hann ekki beinlínis dæmigerð-
ur Texani, eins og mönnum er
tamt að hugsa sér þá, lítill vexti
og kringluleitur. Hinsvegar vant-
ar hann ekki hörkuna, sem sumir
vilja eigna Texönum öðrum
fremur. Hann þótti einkar
illvígur við andstæðinga, þegar
skoðanir urðu skiptar, og jafnvel
sumir flokksmanna hans kalla
hann grófan og hrokafullan.
Einnig hefur verið sagt að hann
legði meiri áherslu á að hafa bet-
ur í deilum en að setja sig ræki-
lega inn í málin, sem og að hann
þyldi illa að tapa.
Nú er gefið í skyn, að þessir
eiginleikar Towers hafi verið
búnir að baka honum ærnar
óvnsældir eftir langa setu hans í
öldungadeildinni og varnarmála-
nefnd hennar, og að það hafi
einkum verið þær óvinsældir sem
nú komu honum í koll, þótt ann-
að væri haft að yfirvarpi.
Tower er að sögn allharður
íhaldsmaður og var sem slíkur
einn af vildarmönnum Reagans.
Hann var jafnan ákaft fylgjandi
auknum útgjöldum til hersins og
sem formaður hermálanefndar
senatsins átti hann drjúgan þátt í
því að tillögur Reagans um stór-
aukin fjárframlög til vígbúnaðar
komust í gegnum þingið.
Þeir Sam Nunn, höfuðand-
stæðingur Towers í nýafstaðinni
þrætu, eiga ýmislegt sameigin-
legt. Báðir eru þeir suðurríkja-
menn, báðir meþódistar, báðir
hafa mikinn áhuga á hermálum
og báðir eru þeir íhaldsmenn í
stjórnmálum, Nunn þó að líkind-
um eitthvað hófsamari. Þar að
auki tók Nunn við formennsku
varnarmálanefndar öldunga-
deildarinnar af Tower 1985. En
ýmislegt er ólíkt með þeim. Þegar
ásakanir hófust á hendur Tower
um drykkjuskap og kvennafar
leituðu repúblíkanar dyrum og
dyngjum að einhverju af því tagi
til að nota á Nunn, en fundu ekk-
ert nema eina ákæru um ölvun
við akstur, 24 ára gamla, frá því
er Nunn var ungur lögfræðingur í
Georgíu. Það var of gömul og
ómerkileg saga til að koma að
nokkru gagni.
Nunn, sem nú er fimmtugur að
aldri, er lýst svo að hann hafi pók-
erandlit og fas og framkomu
endurskoðanda eða skólastjóra.
Hann er blátt áfram og gjarn á að
fara vafningalaust að hlutunum,
enda rauf hann vissa kurteisis-
hefð öldungadeildarinnar með
því að spyrja Tower, hvort hann
ætti við áfengisvandamál að
stríða. Nunn er ennfremur sagð-
ur góður hlustandi, íhugull, al-
vörugefinn og vanur að athuga
málin gaumgæfilega. Sjálfur seg-
ist hann vera leiðindagaur, sem
aldrei fari út á kvöldin. I öldunga-
deildinni hefur hann setið fyrir
Georgíu í 16 ár og komst þar
snemma í varnarmálanefndina.
Hann var þar alláhrifamikill á
stjórnartíð annars Georgíu-
manns, Jimmys Carter, og beitti
sér þá ákaft fyrir auknum fjár-
veitingum til vígbúnaðar.
Frá því að Carter féll úr forset-
astóli fyrir Reagan hafa demó-
kratar átt í allverulegri forustu-
krísu, en nú telja sumir að Nunn
hafi sýnt með frammistöðu sinni í
standinu kringum Tower að þar
sé foringi fundinn. Þegar hefur
verið minnst á georgíska senator-
inn sem líklegan frambjóðanda
til forsetaembættis. Allt er þó
auðvitað óráðið um það, og
kunningjar Nunns á þingi segjast
efast um að hann hafi nokkurn
áhuga á að komast í Hvíta húsið,
þar eð á þingi njóti hann sín best.
Reuter/-dþ.
Ástralskur
múslími hótar
Javed Chaudry, varaforseti
samtaka Pakistana í Ástralíu,
hafði í sjónvarpsviðtali f fyrradag
í hótunum við þá, sem flytja
Kölskavers, mikið umtalaða bók
indversk-breska rithöfundarins
Salmans Rushdie, inn til þess
lands.
„Ég er mjög ofsafenginn mað-
ur og hið sama er að segja um þá,
sem eru mér til aðstoðar,“ sagði
Chaudry, sem er ástralskur ríkis-
borgari. Þrjár bókaverslanakeðj-
ur þarlendis hafa þegar tilkynnt,
að þær muni ekki hafa bókina til
sölu. Bob Hawke, forsætisráð-
herra Ástralíu, sagði í gær að um-
mæli Chaudrys væru alvarleg
móðgun við stjórn og þing lands-
ins, en ekki væri hægt að lögsækja
hann fyrir þau. Reuter/-dþ.
Bandaríkjaþing
Tower hafnað
ífyrsta sinn sem öldungadeildin veitir
bandarískumforseta slíkan mótgang í
upphafi embættistíðar hans
Oldungadeild Bandaríkjaþings
hafnaði í fyrradag útnefningu
Johns Tower, sem Bush forseti
hafði skipað varnarmálaráð-
herra, með 53 atkvæðum gegn
47. Fór þetta mjög á þá leið, sem
búist hafði verið við. Allir demó-
kratar deildarinnar greiddu at-
kvæði gegn Tower, að tveimur
undanskildum. Á móti honum
var og einn repúblíkani, en aðrir
stjórnarflokkssenatorar studdu
forsetann í þessu máli.
Atkvæðagreiðslan fór fram að
undangengnum sex daga hörðum
umræðum í deildinni. Snerust
þær um ásakanir gegn Tower,
sem einkum gengu út á það að
hann væri of drykkfelldur og
kvensamur og háður stórfyrir-
tækjum, sem framleiða fyrir her-
inn. Fyrir Bush, sem nú hefur set-
ið á forsetastóli í sjö vikur, er
þetta fremur auðmýkjandf
snoppungur af hálfu demókrata
þingsins, þar sem þeir eru í meiri-
hluta, og áminning um hversu
mjög hann er upp á velvilja þeirra
kominn.
Þetta er í fyrsta sinn í Banda-
ríkjasögunni sem forseti, er tekur
við stjórn í fyrsta sinn, verður
fyrir því að öldungadeildin hafni
manni er hann hefur útnefnt í
stjórn sína. Búist er við að Bush
muni hafa hraðar hendur við að
útnefna nýjan frambjóðanda til
embættis varnarmálaráðherra,
enda ekki gott til afspurnar að
húsbóndalaust sé í Pentagon. Til
greina eru sagðir koma meðal
annarra þeir Brent Scowcroft,
þjóðaröryggisráðunautur, og
William Cohen, repúblíkanasen-
ator frá Maine.
Reuter/-dþ.
Ó faðir fyrirgef þeim ...
Tveir breskir hermenn biðu
bana í Londonderry á Norður-
írlandi á miðvikudag af völdum
jarðsprengju, sem írski lýðveid-
isherinn (IRA) hafði lagt. Annar
þeirra, Stephen Cummins, 24
ára, frá Hampshire, hafði
skömmu áður sent foreldrum sín-
um umslag með þeim fyrirmæl-
um, að það yrði ekki opnað nema
að honum látnum.
í umslaginu var bréf til foreldr-
anna, og biður hermaðurinn ungi
þau í því að fyrirgefa banamönn-
um sínum. í bréfinu var og ljóð,
m.a. línur á þessa leið:
V'ið gröfmína ei með gráti dvel.
Ég er genginn þaðan og laus úr
Hel.
Bréfið með ljóðinu var lesið
upp í írska útvarpið í Dublin, og
vegna fjölda áskorana frá hlust-
endum lesið upp að nýju í vinsæl-
asta þætti útvarpsins. Kynnir
þáttarins, Gay Byrne að nafni,
sagði á eftir: „Þetta sýnir að her-
maðurinn hafði til að bera meiri
göfugmennsku en þeir sálsjúku
morðingjar og slátrarar sem urðu
honum að bana. Ég vona að þeir
hafi hlustað.“ Reuter/-dþ.
Handtökur í Tíbet
Kínversk stjórnvöld hafa sent
þúsundir hermanna inn í Tíbet og
haft er eftir borgarbúum í höfuð-
borginni Lhasa að uppundir þús-
und manns hafi verið handteknir.
Herlög eru í gildi í borginni síðan
á miðvikudag, eftir mestu óeirðir
þarlendis frá uppreisninni gegn
Kínverjum 1959.
Reuter/-dþ.
Enn barist um Jalalabad
Bardagarnir um Jalalabad í
Austur-Afganistan, sem hófust
um s.l. helgi, stóðu enn yfir í gær.
Kabúlstjórnarmenn héldu þá enn
borginni og að líkindum einnig
flugvellinum við hana. Að sögn
talsmanna mujahideen hefur
flugher Kabúlstjórnar gert harð-
ar árásir á stöðvar þeirra þar í
grennd og þorp á þeirra valdi og
valdið verulegu manntjóni, bæði
meðal skæruliða og óbreyttra
borgara. Margir af þeim síðar-
nefndu eru nú sagðir flýja bar-
dagasvæðið til Pakistans.
Reuter/-dþ.
Rauðgræn sljóm í Vestur-Beriín
Jafnaðarmenn og umhverfis-
verndarsinnar í Vestur-Berlín
hafa eftir sex vikna harðar samn-
ingaviðræður komist að sam-
komulagi um myndun nýrrar
stjórnar þar. Verður Walter
Momper, leiðtogi jafnaðar-
manna í borginni, borgarstjóri.
Stjórnarflokkarnir nýju hafa 72
þingmenn vesturberlínska þings-
ins af 138 á bakvið sig. Kristilegir
demókratar og frjálsdemókratar,
sem áður fóru þar með stjórn,
stórtöpuðu báðir í kosningunum
29. jan. s.l. og misstu þingmeiri-
hluta. Reuter/-dþ.
\^7 Fóstrur
Fóstra óskast til starfa við Barnaheimili Siglu-
fjarðar nú þegar. Upplýsingar í símum 96-71700
og 96-71359.
Félagsmálastjóri
Jjj Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Gatna-
málastjórans í Reykjavík, óskar eftir tilboðum í
steypta kantsteina.
Um er að ræða steypu alls rúmlega 20 km af
kantsteinum víðsvegar um borgina. Verklok 1.
september 1989.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Frí-
kirkjuvegi 3, Reykjavík, frá og með þriðjudegin-
um 14. mars n.k. gegn kr. 2.000,- skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað, miðvikudag-
inn 29. mars 1989, kl. 11.00.
INNKAUPÁSTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
•Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Hita-
veitu Reykjavíkur óskar eftir tilboðum í að steypa
37 hitaveitubrunna. Verklok 1. ágúst 1989.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Frí-
kirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn kr. 5.000,- skila-
tryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað, þriðjudaginn
28. mars 1989, kl. 14.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 — Simi 25800
ÞJÓÐVILJINN - SfÐA 11