Þjóðviljinn - 11.03.1989, Qupperneq 13
BOKIN SEM EG ER AÐ LESA
Að skálda
er að skrökva
Anne Tyler segir frá
Anne Tyler
Við bregðum út af venjunni
að þessu sinni og birtum grein
um það að skrifa bækur.
Bandaríski rithöfundurinn
Anne Tyler varð þekkt á Vest-
urlöndum fyrir bókina Dinner
atthe Homesick Restaurant
(hrár titill á íslensku gæti verið
Snætt á veitingahúsinu
Heimþrá). Þessi grein birtist
upphaflega í litlu bæjarblaði
þar sem hún býr.
Að skrifa skáldsögur er aðal-
lega að skrökva. Maður ætlar að
segja sögu sem er ekki sönn og
reynir að gera hana sannfærandi,
jafnvel svo að maður trúi henni
sjálfur. Og þá skipta smáatriðin
mestu eins og í öllum góðum
lygasögum.
Ein lygin fæðir af sér aðra;
flókinn vefurinn fer sjálfur að
mynda atburðarás ef allt gengur
vel. Ég veit að vel gengur þegar
orðin hlaupa fram úr sjálfum sér.
Ef ég hætti að skrifa til að fá mér
kaffi og persónurnar halda áfram
að tala í huga mínum. Eða ég
heyri fyrir mér fremur kynlausa,
sviplitla sögumannsrödd mína
spinna söguna áfram. Það sem
kemur kemur bara einu sinni svo
að ég verð að sætta mig við að
missa annaðhvort af því eða kaff-
inu. Ég vel kaffið oftar nú orðið.
Ég er búin að átta mig á að hug-
myndir eru óþrjótandi og halda
alltaf áfram að streyma að. Ég
var einu sinni hrædd um að
skammturinn á hvern einstakling
væri takmarkaður.
En hér er ég að tala um
auðvelda hlutann, miðjuna, þeg-
ar ég veit hvert ég er að fara.
Erfiðara er að byrja. Ég verð að
byrja upp á nýtt á hverjum degi.
Ég fer á fætur sex - hálf sjö til að
þrífa, gefa krökkunum að borða
og elda kvöldmatinn svo að ég sé
alveg laus um leið og krakkarnir
eru farnir í skólann, en svo þegar
þau eru farin vil ég gera allt ann-
að en fara inn í vinnustofuna
mína. Dyrnar eru svo háar og
dimmar, þær gapa við mér. Lykt-
in þar inni er eins og á smíða-
verkstæði af því að bókahillurnar
eru úr timbri. Venjulega finnst
mér það góð lykt en á morgnana
verður mér óglatt af henni. Ég
verð að rekast þangað inn eins og
af tilviljun með hugann allt ann-
ars staðar, annars kæmist ég
aldrei alla leið.
Ég skrifa sitjandi með kross-
lagða fætur á hörðum sófa. Ég
nota kúlupenna og passa að eiga
alltaf tvær tylftir af fyllingum
(með svörtu bleki og grönnum
oddi) ef Parker yrði allt í einu
gjaldþrota og skildi mig eftir í
rusii. Pað er einmitt út af svona
löguðu sem fólk heldur að rithöf-
undar séu taugasjúklingar. Ég
vélrita ekki því þá myndi ég ekki
heyra í persónunum mínum og
auk þess finnst mér stundum að
þetta flæði allt fram úr hægri
hendinni á mér. (Hvað nú ef ég
fengi liðagigt? Ég er næstum því
eins hrædd um það og að verða
blind, af því að það skiptir máli
hvernig orðin líta út á síðunni.)
Svo get ég bara unnið í einu
herbergi, meinlætalegum hvítum
klefa. Myndirnar á veggjunum
minna á einangrun: auð hús,
mannlaus réttarsalur, gamlir
karlar sem stara stjarfir út í busk-
ann. Mér er illa við ferðalög. Mér
er illa við að færa til húsgögn eða
byrja að skrifa á óvenjulegum
tíma. Öllum þessum álögum er ég
háð, og samt eyði ég alltaf fyrsta
hálftímanum í að ýta oddinum á
kúlupennanum út og inn með
smelli.
Til hvers er þetta eiginlega?
Mér finnst ég ekkert komin
lengra en þegar ég var þriggja ára
og sagði sjálfri mér sögur til að
sofna á kvöldin. Nema að núna
segi ég líka sögur á daginn. Þær
hafa tekið völdin í lífi mínu. Sjálf-
sagt er það fjarskalega óhollt.
En þá hengja hugsanirnar sig í
eitthvað - einhvevn sem ég sá
fyrir löngu eða flókin fjölskyldu-
sambönd sem ég hef einhvern
tíma velt fyrir mér. Síðan ég var
unglingur hef ég ekki notað lif-
andi mann í bókunum mínum, en
margar persónur hafa orðið til
við það að fylgjast með lifandi
manneskju. (Hvernig ætli það
væri að vera þessi kona? Éða
dóttir þessa manns? Og hvað
myndi gerast ef...?) Ég skrifa af
því að ég vil ekki lifa bara einu
Íífi. Ég heimta meira úrval! Þetta
er ekkert annað en græðgi. Þegar
persónurnar mínar fara í sirkus
fer ég í sirkus. Þó að ég búi í
ágætu hjónabandi eyði ég
heilmiklum tíma í huganum með
ómögulegum eiginmönnum.
Þegar hugsanirnar eru komnar
á réttan snaga er ekkert erfitt að
skrifa. Það sem er erfitt er að
stundum neita persónurnar að
hlýða manni. Þetta segja allir rit-
höfundar en enginn hefur komið
með fullnægjandi skýringu á því.
Hvar fengu þessar dúkkulísur
svona mikið vald? Ég hef á-
kveðna atburði í huga handa
þeim, ferðalag, brúðkaup,
lukkulegan endi.Ég skrifa mark-
visst að þessum atburði, en þeg-
ar að honum kemur er allt kjaft -
s topp.Ég kemst ekki lengra.Pers-
ónurnar hreyfa sig ekki fyrr en
þær fá sitt fram. Þegar ég læt
undan leysast málin af sjálfu sér.
Engin furða þó að mér finnist
stundum ansi þröngt á þingi í her-
berginu mínu.
í þessu starfi skiptir vinnan
sjálf meira máli en árangurinn.
Að minnsta kosti er árangurinn
ósköp rýr: ein þunn bók eftir allt
þetta puð, og á fyrstu síðunni sé
ég undir eins eitthvað sem mig
langar til að strika út. Bókin
verður strax fjarlæg af því ég er
byrjuð á öðru verki. Én þetta
annað verk er oft bara vörn. Ef ég
er upptekin af nýrri sögu tek ég
ritdómum með meira jafnaðar-
geði, bæði góðum og slæmum.
Reyndar les ég ritdóma oft eins
og þeir séu um allt aðra mann-
eskju. Stundum Ies ég þá líka til
að gá um hvað ég var að skrifa.
En ég hef aldrei lesið ritdóm sem
sagði mér það, enda væri það til
of mikils mælst.
Það væri ljúft að vera rík, þó
setja peningar að mér kvíða. Ög
ég hélt að mig langaði til að verða
fræg, en það var misskilningur.
Ég ímyndaði mér frægðina þann-
ig að þá gæti ég farið inn í líf
annarra, ekki að þeir færu inn í
mitt líf. Auk þess hef ég aldrei
getað áritað bók án þess að finn-
ast ég vera að villa á mér heimild-
ir.
Ég hefði ekki getað skrifað
þetta nema þykjast vera að
skrökva. Ég þykist vera kona sem
skrifar bækur. Ég lifi rólegu og
góðu lífi í sama þétta sagnavefn-
um og þegar ég var þriggja ára.
Stundum fæ ég meira að segja
borgað. En ég er ennþá að bíða
eftir að sjá hvað ég verð þegar ég
er orðin stór.
SA þýddi
A
iS&J
Útboð
Bæjarverkfræöingur Kópavogs f.h. bæjarsjóös
Kópavogs óskar eftir tilboöum í gatnagerö og
lagningu holræsa í Huldubraut.
Helstu magntölur eru:
Gröftur
Jarðvegsskipti
Fyllingar
Skolplagnir
Regnvatnslagnir
3.400 m3
20.000 m3
15.000 m3
833 m
1.161 m
Verkinu skal skila fullbúnu 20. júlí 1989.
Útboösgögn veröa afhent á tæknideild Kópa-
vogs, Fannborg 2 gegn 10.000 kr. skilatryggingu,
frá og meö mánudeginum 13. mars n.k.
Tilboðin veröa opnuö á sama staö þriöjudaginn
21. mars n.k. kl. 11:00 f.h.
Aðalfundur
Aöalfundur vörubílstjórafélagsins Þróttar verður
haldinn laugardaginn 18. mars og hefst kl. 14 í
húsi félagsins aö Borgartúni 33.
Dagskrá:
1. Venjuleg aöalfundarstörf samkvæmt lögum
félagsins.
2. Kjarasamningar og atvinnumál.
Reikningar félagsins liggja frammi á skrifstof-
unni.
Stjórnin
Húsverndarsjóður
Reykjavíkur
Á þessu vori veröa í þriöja sinn veitt lán úr Hús-
verndarsjóði Reykjavíkur. Hlutverksjóösinserað
veita lán til viðgerða og endurgeröar á húsnæði í
Reykjavík, sem sérstakt varðveislugildi hefur af
sögulegum og byggingarsögulegum ástæöum.
Umsóknum um lán úr sjóönum skulu fylgja
greinargóðar lýsingar á fyrirhuguöum fram-
kvæmdum, verklýsingar og teikningar eftir því
sem þurfa þykir.
Umsóknarfrestur er til 5. apríl 1989 og skal um-
sóknum, stíluöum á Umhverfismálaráð Reykja-
víkur, komiö á skrifstofu garöyrkjustjóra, Skúla-
túni 2, 105 Reykjavík.
Blikk-ljós á
lögreglubifreiðar
Tilboö óskast í 25 stk. forgangsbúnað (þver-ljós
m/tilheyrandi á þak bifreiöa).
Útboösgögn eru afhent á skrifstofu vorri.
Tilboöum skal skila á skrifstofu vora, eigi síðar en
kl. 11:00 f.h. fimmtudaginn 30. mars n.k. , þar
sem þau veröa opnuð í viðurvist viöstaddra bjóð-
enda.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
Borgartúni 7, sími 26844
Lausar stöður
Með skírskotun til 3. og 6. gr. laga nr. 18/1988, um Háskólann á
Akureyri, eru eftirtaldar stöður við skólann hér með auglýstar til
umsóknar:
1. Staða rektors.
2. Staða skrifstofustjóra.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir ásamt rækilegum upplýsingum um menntun og störf
skulu sendar menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 105 Reykja-
vík, fyrir 5. apríl n.k.
Menntamálaráðuneytið
7. mars 1989
Auglýsið í Þjóðviljanum
Laugardagur 11. mars 1989 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13