Þjóðviljinn - 20.04.1989, Qupperneq 2
FRETTIR
Greenpeace
Kafbáturínn tfmasprengja
Grœnfriðungar lögðu ekki síður áherslu á mengunarmál en hvali á
blaðamannafundi íReykjavík ígær. Rose Reeve: Island hentugra til
herferðargegn hvölum en Japan. Viðrœður viðforsœtisráðherra ídag
Fulltrúar Greenpeace lögðu
nokkurnveginn jafna áherslu
á mengunarmál og hvalavernd á
blaðamannafundi sínum í
Reykjavík í gær, og sögðu þar
meðal annars að svo mikil hætta
stafaði af sovéska kafbátnum á
hafsbotni við Bjarnarey að helst
væri líkjandi við tímasprengju.
Grænfriðungarnir tveir ræða við
við Steingrím Hermannsson for-
sætisráðherra í dag.
Þetta eru þau dr. Rose Reeve,
enskur talsmaöur samtakanna í
hvalamálum, og dr. Gerd
Leipold, framkvæmdastjóri
Greenpeace í Þýskalandi og
skipuleggjandi herferðar samtak-
anna fyrir „kjarnorkulausum út-
höfum.“ Á blaðamannafundi
þeirra á Holiday Inn í gær kom
fram að þau hefðu komið hingað
til lands til að útskýra betur starf
og stefnu samtakanna sem al-
hliða náttúruverndarsamtaka,
sem legðu mesta áherslu á bar-
áttu gegn mengun og kjarnorku-
vá þótt hvalavernd skipti vissu-
lega miklu máli.
Leipold hóf fundinn á fyrir-
lestri um hættuna af kjarnorku á
höfunum og taidi að menn skyldu
gjalda varhug við yfirlýsingum
um að engin geislunarhætta staf-
aði af rússneska kafbátnum við
Bjarnarey. Fyrr eða síðar komi
að því að geislavirk efni leki úr
kafbátnum og hafstraumar muni
síðan dreifa efninu hundruð kíló-
metra á hverju ári.
Aðspurðir neituðu
Greenpeace-fulltrúarnir að
hvala- og selaherferðir samtak-
anna hefðu verið notaðar í fjárö-
flunarskyni í Þýskalandi, en við-
kenndu að sú væri raunin í
Bandaríkjunum. Evrópubúar
væru betur að sér um umhver-
fismál en Bandaríkjamenn og því
þyrfti að beita einfaldari aðferð-
Gerd Leipold framkvæmdastjóri Greenpeace í Þýskalandi sýnir mynd-
ir úr starfi samtaka sinna á blaðamannafundinum í gær. Talsmaður
Greenpeace í hvaladeilunni, Rose Reeve, við hlið hans. (Mynd: þóm).
um til að vekja áhuga vestra.
Rose Reeve sagðist vera and-
snúin viðskiptabanni á íslendinga
eins og Greenpeace hefði beitt,
en þetta væri neyðarúrræði sam-
takanna. Þau viðurkenndu hins
vegar að það væri „taktískt“ val
samtakanna að beina spjótum
sínum að íslandi fremur en Jap-
an, enda hefði herferð samtak-
anna gegn Japan Airlines mis-
heppnast, en Island hefði einnig
kosið að standa í fylkingarbrjósti
fyrir vísindaveiðum. phh
List og gagnrýni
Andinn fer á flug
Við köllum þetta svmposium,
sagði Lisa von Scnmalensee,
einn af forsvarsmönnum mál-
þings um list og gagnrýni sem
verður sett í kvöld. „Symposium
þýðir samdrykkja, en í þeirri
merkingu að fólk drekki nógu
mikið til að andinn fari á flug og
fólk geti sagt það sem það segir
ekki undir venjulegum kringum-
stæðum, en ekki svo mikið að það
fari að hiksta!“
Málþingið sækja gestir frá
Norðurlöndum og Bretlandi og
má nefna Jörn Donner kvik-
myndagerðarmann og rithöfund,
Hilary Finch tónlistargagnrýn-
anda The Times í London, Atle
Kittang prófessor frá Bergen og
Per Olof Enquist rithöfund og
gagnrýnanda sem er eiginlega
heiðursgestur þingsins.
„Ég lít á það sem heiður að
Enquist skyldi fást til að koma,“
sagði Lisa. „Hann hefur lítinn
áhuga á að koma fram og tekur
ekki oft þátt í svona samkom-
um.“ Leikhúsið í Álaborg kemur
hingað af þessu tilefni með sýn-
ingu á leikriti hans, „Heima hjá
afa“ sem Enquist sér í fyrsta
skipti í Reykjavík. „Þessi upp-
færsla Stefáns Baldurssonar hef-
ur fengið mest lof allra sýninga á
þessu verki og það er gaman að
Enquist skuli sjá hana hér á landi.
Hingað kemur líka leikhússtjóri
Borgarleikhússins íÁlaborg, sem
nýlega keypti sýningarréttinn á
Degi vonar eftir Birgi Sigurðs-
son, sem Stefán á líka að setja
upp,“ sagði Lisa.
Aðstandendur þingsins leggja
áherslu á að þingið sé opið öllum
áhugamönnum um list og
gagnrýni. „Þarna á ekki að hittast
hópur fólks sem bara les hvert
annað heldur vonum við að al-
menningur sýni lifandi áhuga á
efninu," sagði Einar Jóhannes-
son sem er í undirbúningsnefnd.
„Það er mikil hætta á stöðnun
bæði í list og gagnrýni hér á landi,
en að fá svona góða gesti hleypir
nýju lofti inn til okkar.“ sa
Dagskrá:
Föstudagurinn 21. apríl:
Myndlist kl. 9.00-12.00. Else Marie
Bukdahl, Hans Jacob Bruun, Tryggvi
Ólafsson. Pallborðsumræður.
Leiklist kl. 13.30-16.00. Pallborðs-
umræður með þátttöku Per Olof
Enquist, Edvard Hoem, Thomas
Bredsdorff o.fl.
Laugardagurinn 22. apríl:
Bókmenntir kl. 9.00-12.00. Atle Kitt-
ang. Pallborðsumræður.
Um siðfræði dagblaða kl. 13.30: As-
ger Lund Sörensen.
Kvikmyndir kl. 14.30-17.30: Jörn
Donner. Pallborðsumræður.
Sunnudagurinn 23. apríl:
Tónlist kl. 9.30-13.00: Carl Gunnar
Áhlén, Jens Brincker. Pallborðsum-
ræður.
Ópera og ballett kl. 14.30-18.00: Hil-
ary Finch. Pallborðsumræður.
Lögreglumenn
Vilja verkfal Isráttinn aftur
Lögreglumenn
samninganefnd
funda me<5
ríkisins á
morgun, og er enn óljóst um
ganga mála. Lögreglumenn eru
ósáttir við þær bætur sem þeir
fengu fyrir verkfallsréttinn á sín-
um tíma, og vilja fá verkfallsrétt
aftur auk kjaraleiðréttinga.
„Við afsöluðum okkur verk-
fallsréttinum 1986 og fengum í
staðinn svokallaða viðmiðunar-
reglur, þar sem bera átti laun
okkar saman við sérstaka viðmið-
unarhópa tvisvar á ári og jafna
þann mismun sem kynni að
myndast. Við þetta var ekki stað-
ið og við erum að leita leiða til að
hægt verði að tryggja að þessar
viðmiðunarreglur virki eins og til
stóð. En við gerum jafnframt
kröfu til að fá verkfallsréttinn aft-
ur,“ sagði Þorgrímur Guðmunds-
son, formaður Landssambands
lögreglumanna í samtali við
Þjóðviljann í gær.
„í fyrsta lagi viljum við verk-
fallsréttinn aftur, því við afsöluð-
um okkur honum gegn þessum
viðmiðunarreglum, sem svo hef-
ur ekki verið staðið við. En ríkið
virðist ekki tilbúið að afhenda
okkur verkfallsréttinn aftur og þá
hljóta þeir að koma með ein-
hverja viðunandi lausn á að þessi
viðmiðun verði rétt reiknuð og á
réttum tíma,“ sagði Þorgrímur.
1,63% hækkun
lánskjara
Lánskjaravísitalan fyrir maí er
2433 og hefur hún hækkað um
1,63% frá fyrra mánuði. Um-
reiknuð til árshækkunar er hækk-
un vísitölunnar í mánuðinum
21,4% en miðað við síðustu 6
mánuði er hækkunin 14,7%.
Borgin undirbúi
nýja samninga
Félagsfundur Starfsmannafélags
Reykjavíkurborgar hefur skorað
á borgaryfirvöld að nýta það
samningstímabil sem nú er fram-
undan til endurskoðunar og sam-
ræmingar á kjörum starfsmanna
sinna. Borgarstarfsmenn telja að
laun sín séu í mörgum tilvikum
lægri en gerist hjá öðrum opin-
berum starfsmönnum og mun
lakari en þekkist á almennum
vinnumarkaði í borginni. Þá vilja
starfsmennirnir einnig að borgin
beiti öllum mætti sínum til að
tryggja eðlilegt atvinnuástand og
varar við öllum hugmyndum
ríkisvaldsins um niðurskurð á
framkvæmdum borgarinnar.
Engar
sérsýningar
Framkvæmdaráð Öryrkjabanda-
lagsins segir að allar hugmyndir
um sérstakar kvikmyndasýningar
fyrir fatlaða séu í algjöru ósam-
ræmi við þá samskipun sem fatl-
aðir eigi rétt á í nútíma samfélagi.
Hugmyndir um slíkar sérsýningar
fyrir fatlaða komu í framhaldi af
því að fötluðu barni og móður
Sykurmolarnir með kveðjutónleika áður en lagt verður í langt og
strangt hljómleikaferðalag um víða veröld.
Sykurmolarnir í Tunglinu
Sykurmolarnir héldu kveðjutónleika á Akureyri í gærkvöld og höfuð-
borgarbúar fá einnig að kveðja molana að sinni íTunglinu á föstudags-
og laugardagskvöld. Strax eftir mánaðamótin halda Sykurmolar í vík-
ing til Evrópu, Rússlands og Bandaríkjanna gagngert til tónleikahalds.
Ásamt Molunum koma fram á tónleikunum ýmsir listamenn og hljóm-
sveitir sem sýnt hafa Smekkleysu umburðaríyndi á undanfönum mán-
uðum, segir m.a. í tilkynningu frá Smekkleysu s.m.
þess var vísað af kvikmyndasýn-
ingu í einu af kvikmyndahúsum
borgarinnar á dögunum.
Stórgróði
Járnblendi-
félagsins
Hagnaður af rekstri íslenska
járnblendifélagsins hf. á síðasta
ári nam 487 miljónum króna.
Með þessari góðu afkomu hefur
unnist upp það tap sem orðið hef-
ur á rekstri fyrirtækisins, síðan
það var endurskipulagt fjárhags-
íega árið 1984. Eiginfjárhlutfall
fyrirtækisins er einnig mjög gott
eða tæpar 585 miljónir. Afkoman
það sem af er þessu ári lofar góðu
að sögn forráðamanna fyrirtækis-
ins. Arður til ríkisins af reksti
fyrra árs nam um 75 miljónum.
Friðun
Norðurhafa
eina lausnin
Eina raunhæfa svarið gegn þeirri
hættu sem stafar af sívaxandi víg-
búnaði í Norðurhöfum er að
vinna af alefli að friðun Norður-
hafa, segir í ályktun Miðnefndar
Samtaka herstöðvaandstæðinga
vegna kjarnorkuslyssins í Nor-
egshafi. Miðnefndin hvetur þing-
menn til að samþykkja tillögu þá
sem liggur fyrir alþingi, þess efnis
að íslendingar efni til alþjóð-
legrar ráðstefnu um afvopnun í
Norðurhöfum og heitir jafnframt
á stjórnvöld að vinna ötullega að
því að slík ráðstefna verði haldin
sem allra fyrst.
Friðarfundur
undirbúinn
Forsætisráðherra hefur skipað
sérstaka undirbúnings- og fram-
kvæmdanefnd vegna fyrirhugaðs
alþjóðafundar um friðar- og
ferðamál í Reykjavík. Formaður
nefndarinnar er Heimir Hannes-
son en aðrir nefndarmenn; Júlíus
Hafstein, Lúðvíg Hjálmtýsson og
Sigurður Helgason framkvæmda-
stjóri.
Stúdentar vilja
samninga strax
Aðalfundur Félags stúdenta í
heimspekideild HI hefur skorað
á ríkisvaldið að hefja þegar í stað
viðræður við Félag háskólakenn-
ara og „koma til móts við rétt-
látar launakröfur þeirra áður en
til verkfalls kemur“, eins og segir
í ályktun fundarins. Stúdentar
segjast kvíða afleiðingum verk-
falls, ef af verður, en geri sér jafn-
framt grein fyrirþví að leiðrétting
á kjörum háskólakennara sé
löngu tímabær.
HVAÐ GERÐIST
7
Isabella Leitner
Auschwitz á
afmæli Hitlers
í dag, 20. apríl, gefur Alþýðu-
leikhúsið út bókina „Hvað gerð-
ist í gær?“ eftir Isabellu Leitner í
íslenskri þýðingu Guðrúnar
Bachmann, en þann dag eru liðin
100 ár frá fæðingu Adolfs Hilters.
Bókin er endurminningar Isa-
bellu Leitner en hún er ungver-
skur gyðingur sem lifði af hörm-
ungarnar í Auschwitz. Leikrit
það sem Alþýðuleikhúsið sýnir
nú í Hlaðvarpanum og ber sama
nafn er byggt á þessari bók, en
leikverkið er einungis % hlutar
bókarinnar.
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 20. apríl 1989