Þjóðviljinn - 20.04.1989, Síða 14
DAGSKRÁ ÚTVARPS OG SJÓNVARPS
VIÐ BENDUM Á
Sumar!
Rás 1, fimmtudaginn 20. aprfl
í dag er Sumardagurinn fyrstí
og við fögnum honum innilega
eftir harðan og langan vetur. í
skólum landsins eru settar upp
leiksýningar í tilefni dagsins þar
sem Vetur konungur kemur með
klakahröngl og heldur að hann sé
ósigrandi, en kátir krakkar í
grænum búningum hrekja hann á
flótta undir brosandi stjórn vors-
ins með töfrasprota sinn. Og allir
syngja Vorið er komið og Ó,
blessuð vertu sumarsól...
Rás 1 heldur upp á daginn frá
morgni til kvölds, allt frá því að
Inga Jóna Þórðardóttir formaður
útvarpsráðs heilsar sumri klukk-
an 8.00 um morguninn og Herdís
Þorvaldsdóttir leikkona les
Sumarkomuljóð eftir Matthías
Jochumsson.
Kl. 8.25 eru leikin sumarlög
undir samheitinu Vorgyðjan
kemur. Kristinn Hallsson, Guð-
mundur Jónsson, Kristján Jó-
hannsson og fleiri syngja.
Kl. 9.20 verður „Vorhljóm-
kviðan“ eftir Schumann leikin af
Fílharmoníusveit Vínarborgar,
undir stjórn Leonards Bernstein.
Kl. 13.30 er Sumarkveðja,
dagskrá um Pál Ólafsson skáld
sem í hugum margra er sumar-
skáld okkar íslendinga fyrir ljóð
eins og Ó, blessuð vertu sumar-
sól. í þættinum verður sagt frá
ævi hans og ljóð hans lesin, leikin
og sungin.Umsjón með þættiri-
um hafa Margrét Thorarensen
og Þorgeir Ólafsson.
Kl. 16.20 heldur Barnaútvarp-
ið upp á Sumardaginn fyrsta í um-
sjón Kristínar Helgadóttur.
Kl. 20.20 verður útvarpað
Landsmóti íslcnskra barnakóra
1989 í Háskólabíói. Slfk mót eru
haldin annað hvert ár og nú síðast
helgina 11-12. mars. Þá komu
saman 15 kórar, alls 550 söngvar-
ar, æfðu samsöng og slógu á létta
strengi. Lokatónleikana fáum við
að heyra í kvöld.
Líney Jóhannesdóttir
Æðar-
vaipið
Sjónvarpið, fimmtudag kl. 17.45
Sjónvarpið lætur heldur ekki
sitt eftir liggja og sýnir börnunum
nýja íslenska leikbrúðumynd
eftir sögu Líneyjar Jóhannesdótt-
ur um það sem gerist í æðarvarpi
eitt sumar. Líney er frá Laxamýri
í Aðaldal og náttúrulýsingar
hennar anga.
SJÓNVARPIÐ
Fimmtudagur
17.00 Á framabraut (Fame) Bandarískur
myndaflokkur. Lokaþáttur.
17.45 Æðarvarpið Ný íslensk leikbrúðu-
mynd gerð eftir sögu Líneyjar Jóhanns-
dóttur I flutnlngí brúöuleikhússins María
netta.
18.00 Stundin okkar - endursýning.
18.25 Heiða (43) Teiknimyndaflokkur
byggður á skáldsögu Jóhönnu Spyri.
18.50 Táknmálsfréttir.
19.00 Hver á að ráða? (Who’s the Boss?)
Bandarískur gamanmyndaflokkur.
19.25 Ambátt (Escrava Isaura). Brasilísk-
ur framhaldsmyndaflokkur gerður eftir
sögu Bernardo Guimaráes I leikstjórn
Hervals Rossano. Myndaflokkurinn
verður sýndur tvisvar í viku á mánu-
dögum og fimmtudögum kl. 19.25.
19.54 Ævintýri Tinna.
20.00 Fréttir og veður.
20.35 Úr fylgsnum fortíðar 1. þáttur -
Valþjófsstaðahurðin. Litið inn á
Þjóðminjasafnið undir leiðsögn Þórs
Magnússonar þjóðminjavarðar.
20.45 I tilefni dagsins Þáttur í sumarbyrj-
un.
21.10 Fremstur i flokki Áttundi þáttur.
Breskur framhaldsmyndaflokkur í liu
þáttum.
22.05 Island og umheimurinn Annar
þáttur - Herfræðin og hafið ( þessum
þætti er staða íslands flóttuð inn i þróun
heimsmála frá fyrri heimsstyrjöld til
dagsins i dag.
22.45 íþróttasyrpa Umsjón Ingólfur
Hannesson.
23.25 Útvarpsfréttir í dagskrárlok.
Föstudagur
18.00 Gosi (17) (Pinocchio)Teiknimynda-
flokkur um ævintýri Gosa.
18.25 Kátir krakkar (9) (The Vid Kids)
18.50 Táknmálsfréttir.
18.55 Austurbæingar (Eastenders)
Breskur myndaflokkur í léttum dúr.
19.25 Benny Hill Nýr breskur gaman-
myndaflokkur með hinum óviðjafnan-
lega Benny Hill og félögum.
19.54 Ævintýri Tinna.
20.0p Fréttir og veður.
20.35 Unglingaþáttur.
21.05 Derrick Þýskur sakamálaflokkur
með Derrick lögregluforingja sem Horst
Tappert leikur.
22.05 Meðan vonin lifir (Thursday’s
Child) Bresk sjónvarpsmynd frá 1983.
Aðalhlutverk Gena Rowlands, Don
Murray, Jessica Walter og Rob Lowe.
Myndin, sem er byggð á sannsögu-
legum atburðum, fjallar um 17 ára pilt
sem greinist með alvarlegan hjarta-
galla. Eina von hans er að fá nýtt hjarta
og hefst þá leit að hjartagjafa.
23.40 Útvarpsfréttir i dagskrárlok.
STÖD 2
Fimmtudagur
15.45 Santa Barbara.
16.30 Með afa.
18.05 Bylmingur Breski tónlistarheimur-
inn.
19.00 Myndrokk.
19.19 19.19
20.25 Landslagið I kvöld heyrum viz sjötta
þeirra tíu laga sem komust í úrslit í
Söngvakeppni íslands, Landslaginu.
20.30 Morðgáta Murder She Wrote. Sak-
amálaþáttur með hinni vinsælu Angelu
Lansbury í aðalhlutverki.
21.25 Forskot á Pepsí pokk.
21.35 Þríeykið Rude Health Breskur gam-
anmyndaflokkur um lækna sem gera
hvert axarskaftið á fætur öðru.
22.00 Spilling innan lögreglunnar
Prince of the City. Aöalhlutverk: Treat
Williams, Jerry Orbach, Richard For-
onjy og Don Billett. Alls ekki við hæfi
barna.
00.50 Dagskrárlok.
Föstudagur
15.45 Santa Barbara.
16.30 David Copperfield. David Cooperf-
ield er að koma heim eftir þriggja ára
útlegð og minnist liðinna tíma með
trega. Tilveran verður þó bjartari er
hann hittir Agnesi, æskuvinkonu sína
aftur. Aðalhlutverk: Robin Phillips, Pa-
mela Franklin, Edith Evans og Emlyn
Williams.
18.20 Pepsí popp íslenskur tónlistarþátt-
ur.
19.19 19.19.
20.25 Landslagið I kvöld heyrum við sjö-
unda þeirra tíu laga sem komust í úrslit í
Söngvakeppni íslands, Landslaginu.
20.30 Klassapíur Golden Girls Gaman-
myndaflokkur um hressar miðaldra kon-
ur sem búa saman I Flórída.
21.05 Ohara Spennumyndaflokkur um
litla, snarpa lögregluþjóninn og sér-
kennilegar starfsaðferðir hans.
21.55 Kastalinn Riviera. Kelly, fyrrum
stárfsmaður alríkislögreglunnar, skríður
úr fylgsni sínu til að bjarga kastala föður
slns í Suður-Frakklandi. Aðalhlutverk:
Ben Masters, Elyssa Davalos, Patrick
Bauchau og Richard Hamilton.
23.30 Betty Midler Divine Madness. Stór-
kostleg mynd sem tekin var af söng- og
leikkonunni Bette Midler á nokkrum tón-
leikum sem hún hélt I kringum 1980.
01.00 Heiður að veði Gentleman’s
Agreement. Gregory Peck fer með hlut-
verk blaðamanns sem faliö er að skrifa
grein um gyðingahatur. Aðalhlutverk:
Gregory Peck, Dorothy McGuire, John
Garfield, Celeste Holm og Anne Re-
vere. Lokasýning.
02.55 Dagskrárlok.
RÁS 1
FM, 92,4/93,5
Fimmtudagur
Sumardagurinn fyrsti
8.00 Sumri heilsað a. Ávarp formanns
útvarpsráðs, Ingu Jónu Þórðardóttur. b.
Sumarkomuljóð eftir Matthias Joc-
humsson Herdís Þorvaldsdóttir les.
8.10 Fréttir.
8.15 Veðurfréttir. Dagskrá.
8.25 Vorgyðjan kemur Kór Langholts-
kirkju, Kristinn Hallsson, Magnús Jóns-
son, Guðmundur Jónsson, Þorsteinn
Hannesson, Kristján Jóhannsson, Mar-
ía Markan o.fl. syngja vor- og sumarlög.
9.00 Fréttir.
9.03 Litli barnatíminn „Glerbrotið” eftir
Ólaf Jóhann Sigurðsson. Anna Kristín
Arngrímsdóttir lýkur lestri sögunnar.
9.20 Sinfónía nr. 1 í B-dúr op. 38. „Vor-
hljómkviðan", eftir Robert Schu-
mann Fílharmoníusveit Vlnarborgar
leikur; Leonard Bernstein stjórnar.
10.00 Fréttir. Tilkynningar.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 Ég man þá tíð Hermann Ragnar
Stefánsson kynnir lög frá liðnum árum.
11.00 Skátaguðsþjónusta í Hallgríms-
kirkju Kristín Bjarnadóttirskátahöfðingi
prédikar. Séra Sigurður Pálsson þjónar
fyrir altari.
12.10 Dagskrá.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar. Tónlist.
13.30 „Sumarkveðja” - Dagskrá um Pál
Ólafsson skáld. Umsión: Margrét Thor-
arensen og Þorgeir Ólafsson.
14.30 Jarðlög - Inga Eydal.
15.15 Leikrit vikunnar: „Næturgestur"
eftir Andrés Indriðason. Leikstjóri:
Þórhallur Sigurðsson. Leikendur: Jó-
hann Sigurðarson, Ragnheiður Arnar-
dóttir, Pálmi Gestsson og Róbert
Arnfinnsson.
16.00 Fréttir
16.03 Dagbókin Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið Sumardagurinn
fyrsti í Barnaútvarpinu. Umsjón: Kristín
Helgadóttir.
17.00 Fréttir.
17.03 Gewandhaus-hljómsveitin i
Leipzig leikur. „Fidelio”, forleik op.
72c. og Sinfónfu nr. 6, „Pastorale”, eftir
Ludwig van Beethoven. Kurt Masur
stjórnar.
18.00 Að utan
18.45 Veðurfregnir.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Tilynningar.
19.32 Kviksjá Umsjón: Halldóra Friðjóns-
dóttir.
20.00 Litli barnatíminn - „Glerbrotið”
eftir Ólaf Jóhann Sigurösson Anna
Kristín Arngrímsdóttir lýkur lestrinum.
20.20 Landsmót íslenskra barnakóra
1989 í Háskólabíói Útvarpað verður
tónleikum sem haldnir voru 12. mars sl.
Þar komu fram kórar frá 13 grunn-
skólum og tónlistarskólum víoa af
landinu, allt frá Hafnarfirði og Reykjavík
til Dalvíkur og Mývatnssveitar. Kynnir:
Anna Ingólfsdóttir.
22.00 Fréttir. Dagskrá morgundagsins.
Orð kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Glott framan í gleymskuna. Frið-
rik Rafnsson fjallar um mið-evrópskar
bókmenntir. Annar þáttur.
23.10 Fimmtudagsumræðan. Umsjón:
Einar Kristjánsson.
24.00 Fréttir.
00.10 Samhljómur Umsjón: Leifur Þórar-
insson.
01.00 Veðurfregnir. Næturútvarp á sam-
tengdum rásum til morguns.
Föstudagur
6.45 Veðurfregnir. Bæn, dr. Einar Sigur-
björnsson flvtur.
7.00 Fréttir.
7.03 í morgunsárlð. með Ingveldi Ól-
afsdóttur. Fréttayfirlit kl. 7.30 og 8.30,
fréttir kl. 8.00 og veðurfregnir kl. 8.15.
Tilkynningar laust fyrir kl. 7.30, 8.00,
8.30 og 9.00.
9.00 Fréttir.
9.03 Litli barnatíminn - „Úlfhildur” eftir
Ólaf Jóhann Sigurðsson Hólmfríður
Þórhallsdóttir les.
9.20 Morgunleikfimi Umsjón: Halldóra
Björnsdóttir.
9.30 Kviksjá -. Um ítalska listamanninn
Angelo Branduardi Annar þáttur. Um-
sjón: Halldóra Friðjónsdóttir.
10.00 Fréttir. Tilkynningar.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 Maðurinn á bak við bæjarfulltrú-
ann Umsjón: Erna Indriðadóttir.
11.00 Fréttir.
11.03 Samhljómur Umsjón: Anna Ing-
ólfsdóttir.
11.53 Dagskrá
12.00 Fréttayfirlit. Tilkynningar.
12.20 Hádegisfréttir
12.45 Veðurtregnir. Tilkynningar.
13.05 I dagsins önn - Starfsmenntun
unglinga. Umsjón: Ásgeir Friðgeirsson.
13.35 Miðdegissagan: „Riddarinn og
drekinn" eftir John Gardner Þorsteinn
Antonsson þýddi. Viðar Eggertsson les.
14.00 Fréttir. Tilkynningar.
14.05 Ljúflingslög Svanhildur Jakobs-
dóttir kynnir.
15.00 Fréttir.
15.03 Samantekt Umsjón: Guðrún
Eyjólfsdóttir.
15.45 Þingfréttir
16.00 Fréttir
16.03 Dagbókin Dagskrá
16.15 Veðurfregnir
16.20 Barnaútvarpið - Símatími Sigur-
laug Jónasdóttir.
17.00 Fréttir.
17.03 Tónlist á síödegi - Glinka, Smet-
ana, Brahms og Mussorgskí Vals fant-
asía eftir Michail Glinka. Tékkneskir
dansar eftir Bedrich Smetana. Ung-
verskir dansar eftir Johannes Brahms.
Forleikur og „Dans persnesku þræl-
anna” úróperunni „Kovanshchina” eftir
Modest Mussorgskí.
18.00 Fréttir
18.03 Þingmál Umsjón: Atli Rúnar Hall-
dórsson. Tónlist. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir.
19.00 Kvöldfréttir
19.30 Tilkynningar.
19.33 Kviksjá Umsjón: Friðrik Rafnsson
og Halldóra Friðjónsdóttir.
20.00 Litli barnatíminn - „Úlfhildur” eftir
Ólaf Jóhann Sigurðsson Hólmfrlður
Þorhallsdóttir les.
20.15 Hljómplöturabb Þorsteins Hann-
essonar.
21.00 Kvöldvaka a.Ættir og óðal Andrés
Björnsson les úr frásögnum Jóns Sig-
urðssonar á Reynistað. Einnig flutt
gamalt viðtal Stefáns Jónssonar við
Jón. b. Tónlist c. Úr sagnasjoði Árn-
astofnunar Hallfreður Orn Eiríksson
flytur þáttinn. Umsjón: Gunnar Stefáns-
son.
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Danslög
23.00 í kvöldkyrru Þáttur í umsjá Jónasar
Jónassonar.
24.00 Fréttir.
00.10 Tónlistarmaður vikunnar - Krist-
ján Jóhannsson óperusöngvari. Um-
sjón: Anna Ingólfsdóttir.
01.00 Veðurfregnir. Næturútvarp á sam-
tengdum rásum til morguns.
o
o
Heyrðu mig.
Hvað þykist
þú vera að
gera þarna á
bak við rúmið?
Ég er langtífrá svartsýnis
maður. En það er aldrei
sagt frá neinu nema
niðrávið. Efnahagsvandi,
stjórnarkreppa, kjarnorkuvá,
kjaraskerðing,
eyðnifaraldur,
byggðaröskun,
hormónakjöt, skattabyrði,
sumardagskrá sjónvarps...
tannlæknakostnaður,]
ósónlagseyðing, I
verðbólguholskefla... /
14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 20. apríl 1989