Þjóðviljinn - 09.05.1989, Page 3
FRETTIR
Þorsteinn frá Hamri les upp á
Borginni í kvöld en ný Ijóðabók er
væntanleg frá honum í vikunni.
Besti vinur Ijóðsins
Ljóðahátíð
á Borginni
Besti vinur ljóðsins rís úr
vetrardvala í kvöld, 9. maí og
heldur Ijóðakvöld á Hótel Borg.
Vorið virðist vera tími Ijóðsins,
en þessa dagana eru að koma út
sex ljóðabækur og ein ljóðflaska.
Þeir sem lesa upp í kvöld, eru
Þorsteinn frá Hamri, en ný ljóða-
bók er væntanleg frá honum í
þessari viku, Vilborg Dagbjarts-
dóttir, Ásta Ólafsdóttir, en hún
gaf út bókina, „Þögnin sem
stefndi í nýja átt“, Ragna Sigurð-
ardóttir, sem hefur birt ljóð í
tímaritum og gaf út örsagnasafn-
ið, „Stefnumót“, Mike Pollock,
þekktari sem tónlistarmaður, les
ljóð sín - á ensku, Sigfús
Bjartmarsson, en hann verður á
ferðinni með nýja ljóðabók í
haust,7ón Gnarr, sem áðurhefur
gefið út ljóðabók, les kafla úr
skáldsögu sem út kemur í haust,
Elísabet Jökulsdóttir les úr fyrstu
og nýútkominni bók sinni, „Dans
í lokuðu herbergi“, og þá mun
hinn víðföruli útvarpsmaður, II-
lugi Jökulsson lesa eigið ljóð í ti-
lefni útkomu ljóðabókar systur
hans. Argentínska skáldið, Jorge
Luis Borges, mun skipa sitt rúm
hjá BVL, en Sigrún Eiríksdóttir
les þýðingar sínar á nokkrum
ljóða Borgesar.
Ljóðið er skylt tónlistinni en í
kvöld verður flutt tónverkið
TENGSL, eftir Hjálmar H.
Ragnarsson, sem hann samdi
fyrir söngrödd og strengjakvart-
ett, við ljóð Stefáns Harðar
Grímssonar. Flytjendur eru Jó-
hanna Þórhallsdóttir söngkona
og hljóðfæraleikararnir, Helga
Þórarinsdóttir, Hlíf Sigurjóns-
dóttir, Sean Bradlay og Nora
Kornblueh. Stjómandi verður
Hjálmar H. Ragnarsson. Kynnir
BESTA VINAR UÓÐSINS
verður Hrafn Jökulsson. Dag-
skráin hefst klukkan 9 og miða-
verð er kr. 400. Veitingar verða á
boðstólum. Gestum er vinsam-
lega bent á að koma tímanlega og
um leið gefst tækifæri til að upp-
lifa stemmningu BESTA VIN-
AR LJÓÐSINS, á Borginni,
áður en hótelið verður lagt undir
Alþingi.
Steingrímur
Farinn til Ungó
Forsætisráðherra, Steingrím-
ur Hermannsson, hélt utan til
Ungverjalands um síðustu helgi.
Hann er ekki væntanlegur aftur
til landsins fyrr en á fimmtudag,
en þingslit er áætluð á laugardag.
I frétt frá forsætisráðuneytinu
segir að Steingrímur hafi þegið
boð um að taka þátt í viðræðum
vestrænna stjórnmálamanna við
ungverska starfsbræður sína og'
fulltrúa atvinnulífs í Ungó, um
þær breytingar sem stefnt er að
þar í landi.
Umboðsmaður Alþingis
Fundið að meðferð
foiræðismála
Sonurinn hafði dvalið hjá föður sínum í hátt á þriðja ár og þótt hann
virðist una hag sínum vel þar kemst barnaverndarráð að þeirri niður-
stöðu að móðirin skuli hafa forsjá hans.
Gaukur Jörundsson umboðs-
maður Alþingis hefur sent
dómsmálaráðuneytinu álitsgerð
þar sem hann finnur að ýmsum
atriðum í meðferð barnaverndar-
yfirvalda og ráðuneytisins á
ákveðnu forsjármáli sem kvartað
hafði verið yfir til hans.
Málið snýst um forsjá þriggja
sona hjóna sem slitu samvistum í
ágúst 1985, einkum fjallar þó
málið um yngsta barn hjónanna.
Faðirinn er bóndi í sveit en
eiginkonan flutti frá honum í
ónafngreindan kaupstað. Konan
krafðist forsjár allra sonanna en
maðurinn lagði höfuðáherslu á
forsjá yngsta sonarins, enda bjó
hann hjá honum frá því í sept-
ember sama ár og þau skildu.
Jafnframt gerði hann fyrirvara
um rétt til forsjár allra drengj-
anna.
Málið gekk sinn vanagang í
kerfinu með umsögnum bama-
verndarnefnda í kaupstaðnum
þar sem móðirin bjó og hrepp-
num þar sem faðirinn bjó. Síðan
bar ráðuneytið málið undir Bam-
averndarráð íslands og í maí í
fyrra kom svo úrskurður
dómsmálaráðuneytisins þar sem
kveðið er á um að móðirin hafi
forsjá allra drengjanna.
Kvartanir föðurins
Faðirinn undi þeim málalokum
illa og kvartaði undan málsmeð-
ferðinni við umboðsmann Al-
þingis. Kvartanir hans beindust
annarsvegar að barnaverndar-
ráði og hinsvegar að dómsmála-
ráðuneytinu.
Faðirinn kvartar undan því að
barnaverndarráð hefi ekki tekið
tillit til þess að yngsti sonur þeirra
hjóna hafði búið í rúmlega tvö ár
hjá sér og að niðurstaða ráðsins
um að móðirin fengi forsjá allra
drengjanna hafi ekki verið rök-
studd. Þá kvartar hann undan því
að hann hafi ekki fengið að sjá öll
gögn sem lögð hafi verið til
grundvallar niðurstöðum barna-
verndarráðs, sérstaklega skýrslur
um viðtöl einstakra starfsmanna
ráðsins. Honum hafi ekki verið
greint frá tilgangi viðtalanna né
hafi hann fengið að staðfesta að
rétt hafi verið eftir honum haft.
Kvartanir föðurins út af með-
ferð dómsmálaráðuneytisins eru
að ráðuneytið hafi ekki tekið
sjálfstæða ákvörðun í málinu og
ekki athugað nægilega öll gögn
sem lágu fyrir þegar það úrskurð-
aði um fosjá drengjanna. Einnig
að úrskurðurinn um forsjána hafi
verið órökstuddur og að honum
hafi ekki verið gefinn kostur á að
sjá öll gögn í málinu.
Umsögn barna-
verndarráðs
í umsögn barnavemdarráðs
um forsjá yngsta sonarins segir að
aðstæður beggja foreldra hafi
verið kannaðar ítarlega og hefi
ráðið ekkert út á þær að setja. Þar
kemur fram að eldri drengjunum
líður vel hjá móður sinni og að
yngsti drengurinn virðist una hag
sínum vel hjá föður sínum. Þá
segir að við sálfræðiathuganir
hafi komið í ljós að yngsti sonur-
inn virðist téngdur báðum for-
eldrum sínum sterkum tilfinn-
ingaböndum en í niðurstöðum
bamavemdarráðs segir að við
sálfræðiathuganir hafi ýmislegt
komið í ljós sem bendir til þess að
allir drengirnir séu tilfinninga-
lega háðari móður sinni en föður,
þó að vissulega sé þeim hlýtt til
föður síns. A þessu byggir svo
ráðið þá niðurstöðu sína, að
móðirin skuli hafa forsjá allra
drengjanna, en mælt er með því
í BRENNIDEPLI
að þeir hafi mikil samskipti við
föður sinn og dvelji hjá honum að
sumri til.
Réttur málsaðila
í áliti umboðsmanns kemur
fram að til þess að réttur foreldris
til að gæta hagsmuna barns og
eigin réttar við úrlausn forsjár-
deilu komi að gagni verði foreldr-
ið að eiga kost á að kynna sér þau
gögn sem skipti máli. „Það er og í
samræmi við þær kröfur, sem al-
mennt verður að gera til
stjórnvalda, þegar þau skera úr
deilum um mikilvæg réttindi ein-
staklinga,“ segir svo orðrétt í álit-
inu.
Þetta ítrekar svo umboðsmað-
ur enn frekar og segir það skoðun
sína að stjórnvöldum sem fjalla
um forsjármál sé „að lögum skylt
að kynna foreldrum þau gögn
sem fyrir liggja hjá þessum
stjórnvöldum vegna slíkra mála
og beri stjórnvöldum að hafa
frumkvæði í því efni.“
Þá átelur umboðsmaður seina-
ganginn við að úrskurða í þessu
máli, einkum hjá barnavemdar-
yfirvöldum, og segir að bráðan
bug verði að vinda að úrbótum í
þeim efnum. Einnig finnur hann
að því að úrskurðir dómsmála-
ráðuneytis um skipan forsjár
barna séu ekki rökstuddir.
„Hér fer ráðuneytið með úr-
skurðarvald í vandasömum og
viðkvæmum deilumálum, sem
fjalla um mikilvæg réttindi og
hagsmuni deiluaðila og barna
þeirra. Umsagnir barnaverndar-
yfirvalda í þessum málum eiga að
vera rökstuddar, eins og áður
greinir. Er engan veginn eðlilegt
að gerðar séu minni kröfur til
þess aðila, sem fer með úrskurð-
arvald, en til aðila, er lætur í té
umsögn.“
Umsögn áfátt
Hvað kvartanir föðurins varð-
ar þá telur umboðsmaður þær
réttmætar því bamaverndar-
nefnd hafi verið skylt samkvæmt
lögum að kynna honum gögn sem
voru lögð fyrir ráðið í málinu og
gefa honum kost á að tjá sig um
þau en það hafi ekki verið gert,
auk þess sem upplýsingar sem
hafðar voru eftir föðurnum voru
ekki bornar undir hann.
Þá telur umboðsmaður að um-
sögn barnaverndarráðs um forsjá
yngsta drengsins hafi verið áfátt
að því leyti að ekki hafi verið gerð
sjálfstæð og skýr grein fyrir því
hvað mælti með og á móti því að
faðirinn fengi forsjá hans, en sér-
stök ástæða hafi verið til þess þar
sem sonurinn hafði dvalið hjá
föður sínum í hátt á þriðja ár er
ráðið skilaði umsögn sinni.
Að lokum gerir umboðsmaður
athugasemdir við þá niðurstöðu
barnaverndarráðs að við sál-
fræðiathuganir hafi komið í ljós
að allir synirnir væru tilfinninga-
lega háðari móður en föður, þar
sem vanti gögn sem rökstyðji
þetta.
Hvað kvartanir föðurins um
málsmeðferð og niðurstöðu
ráðuneytisins varðar telur um-
boðsmaður að tilhögun aðila við
að kynna sér gögn í málinu séu
ekki fullnægjandi. Þá telur um-
boðsmaður að ráðuneytið hefði
átt að ganga eftir því að í umsögn
barnaverndarráðs sé gerð rækileg
grein fyrir því hvað mælti með og
á móti einstökum kostum hvað
varðaði forsjána, en slíkt hafi
vantað í þessu máli. Einnig telur
umboðsmaður að ráðuneytið
hefði átt að kveða upp skriflegan
úrskurð í málinu.
„Það er niðurstaða mín, að
ástæða sé til að finna að ýmsum
atriðum í meðferð barnaverndar-
yfirvalda og dómsmálaráðuneytis
á máli því, sem álit þetta fjallar
um, en nánari grein hefur verið
gerð fyrir því að framan. Eru það
jafnframt tilmæli mín, að ráðu-
neyti og barnaverndaryfirvöld
hagi meðferð mála í framtíðinni í
samræmi við þau meginsjónar-
mið, sem hafa komið fram í þessu
áliti mínu, þar á meðal við síðari
ákvarðanir um forsjá bama A og
B, ef til þeirra kemur.“
Ólafur Walter Stefánsson
skrifstofustjóri í dómsmálaráðu-
neytinu sagði að þessi álitsgerð
væri til skoðunar í ráðuneytinu og
því gæti hann lítið tjáð sig um
hana að svo stöddu. hinsvegar
benti hann á að áður hefði komið
fram ábendingar frá umboðs-
manni Alþingis sem ráðuneytið
hefði tekið tillit til.
-Sáf
Umboðsmaður Alþingis finnur að ýms-
um þáttum í málsmeðferð forsjármála.
Telur að brotið hafi verið á málsaðila
þar sem honum hafi ekki verið leyft að
kynna sér öll gögn málsins. Telur niður-
stöður barnaverndarnefndar ekki nægi-
lega rökstuddar og kvartar undan seina-
gangi
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3