Þjóðviljinn - 09.05.1989, Side 5
VIÐHORF
Mín kynslóð hefur næstum
aldrei notað sögnina „að kjósa“,
en ég hef greitt atkvæði í rúmlega
30 ár. Það var venjulega kallað að
„greiða atkvæði" en í hinu opin-
bera orðasafni var boðið upp á að
„gefa órofa sambandi kommún-
ista og óflokksbundinna atkvæði
sitt“. Þessar „kosningar" gengu
hratt og litlaust fyrir sig, engin
umræða átti sér stað hvorki fyrir
þær né á eftir, af þeirri ástæðu að
ekki var verið að kjósa á milli
manna, en atkvæðið fór til ein-
hvers ókunnugs manns eða konu.
Faðir minn er 77 ára, en hann
segir, að svona hafi þessu alltaf
verið varið, en þó hafi verið meiri
hátíðarbragur á hlutunum fyrri
árin. Hvers vegna hlutirnir fóru í
þennan farveg og hvers vegna
fólk sætti sig við þetta er að mínu
mati efni í miklar rannsóknir.
Þann 26. mars sl. - daginn, sem
kosið var samkvæmt nýju kosn-
ingalöggjöfinni til Þjóðarþings
Sovétríkjanna, hringdi dóttir mín
hingað frá Moskvu án þess að
hafa nokkrar áhyggjur af kostn-
aðinum, en því miður get ég ekki
talið hana til hóps virkasta æskuf-
ólksins í Sovétríkjunum.
Pabbi, við þurfum á ráðlegg-
ingu að halda, sagði hún. Finnst
þér, að ég og maðurinn minn
eigum að greiða Jeltsín atkvæði
okkar (gamla orðalagið), en fylg-
ismenn hans eru sífellt á ferðinni
hér í götunni, eða eigum við að
halla okkur að Sajkin borgar-
stjóra, þar sem við höfum heyrt,
að hann hafi marga góða hluti á
stefnuskrá sinni?
Ég verð að segja það, að ég
færðist undan því að gefa ráð-
leggingar. Tilfinningar mínar í
garð Jeltsíns eru ekki þær hlý-
justu eftir umbótastarfsemi hans,
er hann var fyrsti ritari í flokks-
nefnd Moskvuborgar. Markmið
hans var gott, en framkvæmdaað-
ferðirnar voru að mínu mati
hentistefnukenndar og stundum
ómannúðlegar. Þá get ég heldur
ekki talið, að forseti Borgarráðs
Moskvu hafi skapað eðlilegar
miðevrópskar aðstæður í borg-
inni, hvað þá gert hana að
„kommúnískri fyrirmyndarborg"
eins og menn dreymdi um. Það er
svo annað mál, að í dag er þetta
ekki á færi nokkurs manns.
Ég tók þá frekar ófrumlega af-
stöðu að ráðleggja krökkunum
Enska
knattspyrnan
Úrslit
1. deild
Charlton-Wimbledon................1-0
Middlesbrough-Aston Villa.........2-1
Newcastle-Millwall................1-1
Norwich-Everton...................1-0
Southampton-Man. Utd..............2-1
WestHam-Luton.....................1-0
2. deild
Barnsley-Portsmouth ..............1-0
Birmingham-Hull...................1-0
Blackburn-Walsall.................3-0
Brighton-lpswich..................0-1
Chelsea-Bradford..................3-1
Leeds-Oldham......................0-0
Leicester-Cr. Palace..............2-2
Man. City-Bournemouth.............3-3
Plymouth-Oxford...................3-1
Swindon-Stoke.....................3-0
Watford-Shrewsbury................0-0
WBA-Sunderland....................0-0
Staðan
1. deild
Arsenal 35 21 9 5 68-32 72
Liverpool... 33 18 10 5 55-24 64
Norwich .... 36 17 10 9 46-42 61
Nott.Forest 34 16 12 6 57-38 60
Tottenham 37 15 12 10 60-45 57
Derby 37 16 7 12 38-33 55
Coventry ... 36 14 11 11 44-39 53
Millwall 37 14 10 13 46-51 52
Kosningar og val
Vladimir Verbenko skrifar
„Endurnýjaður flokkurinn hefur áunnið sér
aukna virðingu og tiltrú, þó að langtsé íþað
að hannfái „englavœngi“... Það er annað mál
að þjóðin vill ekki aðfulltrúar hennar séu
aðilarsem hafa orðið sértil minnkunareða
óhæfir menn.“
að hlýða á „eigin innri rödd“, en
ég gat ekki varist þeirri hugsun að
hér hefðu málin þróast á áður
óþekktan hátt, þar sem þau
höfðu hrista svo upp í dóttur
minni, sem hefur verið óvirk
gegnum árin.
Eins og vitað er sigraði Jeltsín
örugglega í sínu kjördæmi, hlaut
89% atkvæða. Það virðist sem
Boris Jeltsín sé að verða þroskað-
ur baráttumaður, en þessi
„Jeltsín-ástríða“ hjá kjósendum
minnir á hina fornu rússnesku tál-
von um „góðan keisara". Sajkin
tapaði, þó að ég sé sannfærður
um að hann sé ekki verri borgar-
stjóri.
Um 20% „nomenklaturunnar"
töpuðu og í sumum tilfellum með
miklum mun, þar á meðal Solovj-
ov, frambjóðandi til framkvæmd-
anefndar miðstjórnar, fyrsti ritari
héraðsnefndar flokksins í Len-
íngrad (það heyrist enn á ný
ákveðin rödd frá vöggu byltingar-
innar), svo og félagar flokksins.
Ég verð að segja, að ég er ekki
sammála öfgafullum ummælum
þess efnis að „flokkurinn hafi
beðið afhroð", þó að hugleiða
megi margt: Ef Gorbatsjov sjálf-
ur hefur um fjögurra ára skeið
talað djarflega (að sumra mati
jafnvel um of), og hreinskilnis-
lega (sem stundum hefur valdið
sársauka), í öllum ræðum heima
fyrir og erlendis um að flokkur-
inn beri meginábyrgðina á því
hræðilega ástandi, sem skapast
hefur eftir 70 ára stjórn hans, þá
er engin furða þó beri á óánægju
og gremju. En það má ekki
gleyma því að það var einmitt
flokkurinn, sem hóf hina bylting-
arkenndu perestrojku eftir að
hafa kjörið nýjan aðalritara í
mars 1985 og tók róttæka nýja
stefnu á sviði innan- og utanríkis-
mála. Það kom í ljós, að um 85%
þingmanna eru flokksbundnir,
sem er meira en áður og kosning-
arnar hafa í heild sýnt, að virðing
KFS hefur vaxið.
Ég kem ekki auga á neina mót-
sögn: Endurnýjaður flokkurinn
hefur áunnið sér aukna virðingu
og tiltrú, þó að langt sé í það að
hann fái „englavængi“ eins og er
tilfellið með okkur öll! Það er
annað mál, að þjóðin vill ekki, að
fulltrúar hennar séu aðilar, sem
hafa orðið sér til minnkunnar,
eða óhæfir menn, sem hafa það
eitt sér til ágætis að ganga með
flokkskírteini upp á vasann. Það
má minna á það, að á 19. ráð-
stefnu KFS, sem haldin var síðast
liðið sumar, var rætt um nýja
kosningalöggjöf meðal annarra
málefna, er taka til perestrojku. í
heitum umræðum um hvort ráða-
menn innan flokksins ættu einnig
að gegna þingmannsstörfum,
sagði Gorbatsjov, að einmitt í
slíku tilfelli sýndu kosningarnar
hvort viðkomandi ráðamaður
innan flokksins nyti trausts, hvort
hann ætti að gegna báðum þess-
um skyldum. Mörgum, sem
gegndu störfum um stundarsakir,
varð órótt. Og nú hefur dómur-
inn verið kveðinn upp.
Ég ætla mér ekki að skilgreina
heildarniðurstöðu kosninganna,
þess heldur sem hún verður ekki
ljós fyrr en um miðjan maí, eftir
endurteknar kosningar í mörgum
kjördæmum, sem er einnig nokk-
uð, sem á sér ekkert fordæmi.
Mig langar bara að skýra frá inni-
legri gleði minni. Þetta voru okk-
ar kosningar, hversu ófullkomn-
ar sem þær voru og enn vitna ég í
frumkvöðulinn Gorbatsjov, sem
sagði við blaðamenn eftir að
hann hafði sett atkvæðaseðilinn
sinn í kassann, að í kosningalög-
gjöfinni væri margt sem þyrfti að
breyta og enn væri margt ógert á
þessu sviði. En þessar kosningar
mörkuðu meginval hins sovéska
þjóðfélags, val í þágu glasnost,
fjölhyggju og alhliða lýðræðis-
þróunar. Það þýðir val í þágu per-
estrojku.
Dr. Verbenko er yfirmaður frétta-
stofu APN á íslandi.
Eg hló í Sóknarsalnum
Eiríkur Brynjólfsson skrifar
Ég hló ekki að Sóknarkonum.
Ég hló ekki að bágum kjörum
Sóknarkvenna.
Ég hló að Ólafi Ragnari
Grímssyni.
Ég hló að Ólafi Ragnari
Grímssyni af því hann lagðist svo
lágt að hreykja sér af því að hafa
gert við Sóknarkonur kjarasamn-
ing sem færði þeim nánast ekki
neitt.
Ég hló að Ólafi Ragnari
Grímssyni af því hann lagðist svo
lágt að nota léleg laun og erfitt
hlutskipti margra Sóknarkvenna
sem rök gegn þeirri kjarabaráttu
sem ég tek þátt í.
Ég hló að Ólafi Ragnari
Grímssyni þegar hann sagði að
Sóknarkonur gerðu sig ánægðar
með lélegt kaup og litla
kauphækkun.
Ég hló að Ólafi Ragnari
Grímssyni fyrir að nota bága
stöðu margra einstæðra mæðra til
að berja á háskólamenntuðum
ríkisstarfsmönnum.
Ég hló ekki að einstæðum
mæðrum. Ég er sjálfur einstæður
faðir og þekki þau kjör sem ein-
stæðum foreldrum er boðið upp
á.
Ég hló að Ólafi Ragnari
Grímssyni þegar hann missti
grímuna og sýndi sitt rétta andllit
sem andstæðingur alls launafólks
í landinu.
Ég hló að Ólafi Ragnari
Grímssyni þegar hann sýndi af-
stöðu sína til launafólks með því
að reyna að etja saman hópum
launamanna.
Mér er hins vegar ekki hlátur í
huga þegar ég sé hve hættulega
nálægt hann var að ná takmarki
sínu.
Við eigum að gæta okkar á
Ólafi Ragnari Grímssyni eins og
öðrum þeim sem taka að sér að
gæta hagsmuna auðstéttarinnar í
landinu með því að halda niðri
kjörum launamanna.
Eiríkur er framhaldsskólakennari
IÞROTTIR
Fótbolti
Urslit í kvöld
Fyrsti stórleikur sumarsins fer
fram f kvöld þegar Fram og KR
leika til úrslita í Reykjavíkurmót-
inu i knattspyrnu kl. 20.30. Sömu
lið léku einnig til úrslita í fyrra en
þá sigruðu KR-ingar með
tveimur mörkum gegn engu.
Framarar koma eflaust
grimmir til leiks, ákveðnir að
hefna úrslitanna í fyrra. Annars
hafa bæði lið leikið sannfærandi í
mótinu og verða að líkindum í
toppbaráttunni í íslandsmótinu í
sumar.
Fylkir og Víkingur léku á
sunnudag um 3. sætið á mótinu
og sigruðu Árbæingar 4-3, eftir
framlengdan leik. Það vakti at-
hygli að tveimur leikmönnum
Víkings var vikið af leikvelli,
þeim Sveinbirni Jóhannssyni og
Atla Einarssyni.
Víkingar komust í 3-0 með
mörkum Andra Marteinssonar
(2) og Ámunda Sigurðssonar.
Fylkismenn gáfust ekki upp og
Framarar hyggjast hefnafyrir úrslitaleikinn ífyrra.
Fylkir hlaut bronsið. FH vann ÍA
skoraði Guðjón Reynisson tví- það á óvart að FH vann stórsigur
vegis og Örn Valdimarsson einu á ÍA, 4-0. Selfoss tapaði fyrir
sinni áður en flautað var til leiks- Stjörnunni, 0-1, Víðir vann
loka. Örn skoraði síðan sigur- Breiðablik, 1-0, og Haukar töp-
mark Fylkis en þá voru Víkingar
aðeins níu gegn ellefu.
í Litlu bikarkeppninni kom
uðu fyrir Keflvíkingum, 2-3.
-þóm
Enska knattspyrnan
Liverpool vann
Mersey-liðin mœtast á Wembley
Liverpool sigraði Nottingham Aldridge strax á 3. mínútu. Neil
Forest, 3-1, í undanúrslitum
enska bikarsins á sunnudag. Þar
með fengust loks úrslit í þessum
afdrifaríka leik sem stöðvaður
var á Hillsborough eins og öllum
er kunnugt.
Leikurinn fór fram á Old Traff-
ord í Manchester og skoraði John
Webb jafnaði á 33. mínútu en
Aldridge skoraði öðru sinni þeg-
ar 11 mínútur voru liðnar af síðari
hálfleik. Brian Laws varð síðan á
að skora sjálfsmark og tryggja Li-
verpool þannig sigurinn. Liðið
mætir grönnum sínum í Everton á
Wembley þann 20. maí. -þóm
Wimbledon.... . 36 14 8 14 47-42 50
Man. Utd .35 12 12 11 40-30 48
QPR .35 12 11 12 39-33 47
Everton . 35 11 12 12 44-43 45
Southampton 37 10 14 13 51-65 44
Aston Villa . 37 9 12 16 44-55 39
Charltor. .36 9 12 15 41-54 39
Middlesbro .... .37 9 12 16 44-60 39
Luton .37 9 11 17 41-52 38
Sheft.Wed. ... .35 9 11 15 31-47 38
WestHam . 34 8 8 18 31-53 32
Newcastle .37 7 10 20 32-61 31
2. deild
Chelsea .45 28 12 5 93-48 96
Man. City . 45 23 12 10 76-52 81
Blackburn .45 22 11 12 74-57 77
Wattord . 45 21 12 12 70-48 75
Cr. Palace . 44 21 12 11 66-48 75
Swindon .45 20 15 10 66-51 75
Barnsley .45 19 14 12 63-57 71
Ipswich . 45 21 7 17 69-60 70
WBA .45 17 18 10 64-41 69
Leeds . 45 17 15 13 56-47 66
Sunderland ... .45 16 14 15 58-58 62
Bournemouth 45 18 7 20 53-62 61
Stoke . 44 15 13 16 55-69 58
Bradford .45 13 16 16 51-58 55
Oxtord .45 14 12 19 62-66 54
Leicester .45 13 15 17 54-61 54
Oldham ..45 11 20 14 73-70 53
Plymouth ..45 14 11 20 55-66 51
Portsmouth .. ..45 13 12 20 51-59 51
Brighton .45 14 8 23 55-64 50
Hull .45 11 14 20 52-67 47
Shrewsbury.. .45 8 17 20 37-64 41
Birmingham . .45 8 11 26 30-72 35
Walsail ..45 5 16 24 40-77 31
Markahæstir í 1. deild
AlanSmith, Arsenal ...
John Aldridge, Liverpool .. ..22
Alan Mclnally, Aston Villa . .22
Nigel Clougfi, Nott. Forest .20
DeanSaunders, Derby .... ..19
B
Þriðjudagur 9. maí 1989 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5