Þjóðviljinn - 24.05.1989, Blaðsíða 12
SPURNINGIN
Ætlar þú að ferðast í
sumarfríinu?
Jenný Hannesdóttir
14 ára:
Ég ætla til Svíþjóðar meö móður
minni.
Kári Breiðfjörð
túmmítæknir:
g ætla bara að skreppa í versl-
unarferð til Amsterdam í eina
viku. Ég og konan mín ætluðum í
sólarlandaferð en þetta er orðið
svo dýrt að við ákváðum að fara
bara í stutta ferð, það skilur líka
meira eftir sig.
Halldór Guðjónsson
verkstjóri gúmmívinnustofu:
Ég á eftir að heimsækja Skafta-
fell, Eskifjörð, Jökulsárgljúfur og
Húsavík og hyggst fara þangað í
sumar.
Ásgeir R. Helgason
ráðunautur:
Nei, ég er að byggja hús þannig
að ég ætla að læra á hamar og
pensil í sumar.
Björk Kristjánsdóttir
skrifstofutæknir:
Ég fer í sumarhús á Austurlandi
og verð þar í vikutíma. Varðandi
utanlandsferðir er hugsanlegt að
ég skreppi kannski í helgarferð.
Gerður
Hólmfríður
Laufey
blÓÐVILIINN
Miðvikudagur 24. maí 1989 92. tölublað 54. örgangur
SIMI 681333
Á KVÖLDIN
681348
ÁLAUGARDÖGUM
681663
Fíknivarnir
Þú vinnur lífsins
glímu - án vímu!
Verðlaun veitt ísamkeppni skólanna um einkunnarorð og handritað
myndbandi vegna fíknivarna
Íjanúar og febrúar efndu
menntamálaráðuneytið og
Nefnd um átak í áfengisvörnum
til samkcppni um einkunnarorð
og handrit að myndbandi til notk-
unar við fíknivarnir mcðal ungs
fólks.
Rétt til þátttöku í kcppninni
höfðu nemendur í 6.-9. bekkjum
grunnskóla og allir nemendur í
framhaldsskólum.
Pú vinnur lífsins
glímu - án vímu!
Þessi einkunnarorð samdi
Hólmfríður Ýr Gunnlaugsdóttir
nemandi í Lækjarskóla í Hafnar-
firði og hlaut fyrir fyrstu viður-
kenningu.
- Ég sá þessa keppni einmitt
auglýsta í Þjóðviljanum og þá
datt mér þetta bara í hug, sagði
Hólmfríður Ýr sem er nemandi í
9. bekk.
Að sögn Hólmfríðar er talsvert
farið að bera á því að krakkarnir í
skólanum séu farin að drekka, en
önnur fíkniefni eru óþekkt.
Mér finnst ansi fjarri raunveru-
leikanum að fsland verði vímu-
efnalaust árið 2000 eins og sumir
segja, en við verðum þó að reyna
allt forvarnarstarf, sagði Hólm-
fríður Ýr.
Handrit
að myndbandi
Besta handrit að myndbandi í
framhaldsskóla og jafnframt það
sem lenti í fyrsta sæti í keppninni
kom frá Gerði Gestsdóttur í
Menntaskólanum við Hamra-
hlíð. í handritinu er á táknrænan
hátt bent á að betra sé að hafna
fíkniefnum en neyta þeirra; að sú
gleði sem fólk hyggst sækja í vím-
una geti hæglega snúist í and-
hverfu sína og svipt lífið því ljósi
sem allir sækjast eftir.
Ég pældi aðeins í því hvernig
hægt væri að hafa áhrif á ung-
linga, því þeir nota gjarnan vímu-
efni til þess að öðlast sjálfstraust
og styrkja sjálfsmynd sína. Ég
vildi leita að annarri aðferð, eins
og t.d. að gera sér grein fyrir þvi
að maður er ekki meiri mann-
eskja þó maður noti vímuefni,
sagði Gerður Gestsdóttir sem
hlaut myndbandsupptökutæki að
launum fyrir handritið sitt.
Allur bekkurinn
sendi handrit
í grunnskóla Vestmannaeyja
var ekki setið auðum höndum í
vetur. Þaðan kom mikill fjöldi
handrita og bar handrit
Laufeyjar Jörgensdóttur sigur úr
býtum í yngri flokki. Laufey er 14
ára. Allir krakkarnir úr hennar
bekk sendu handrit í keppnina.
Við áttum að skrifa ritgerð,
eða svona handrit, og ég valdi
handritið og var fljót með það,
sagði Laufey sem kom fljúgandi
frá Vestmannaeyjum til þess að
taka við viðurkenningu og verð-
launum.
Gífurleg
þátttaka
Að sögn starfsmanna
menntamálaráðuneytis var þátt-
takan gífurleg. U.þ.b. 150 til-
lögur bárust. Ætlunin er að
gera merki með bestu einkunnar-
orðunum og sömuleiðis er í bí-
gerð að framleiða boli með áletr-
uninni. Nemendur í grunnskól-
anum í Ólafsvík eru nú þegar
búnir að panta sér peysur með
þessari áletrun.
Myndböndin sem gerð verða
eftir handritum stúlknanna verða
framleidd í fullri samvinnu við
þær og áætlað er að hafa sem
flesta unglinga með í ráðum.
Gert er ráð fyrir því að nota
myndbandið sem innskot í sjón-
varp og e.t.v. til sýningar á undan
myndum í kvikmyndahúsum.
í dómnefnd sátu fimm aðilar
sem hafa mikið látið til sín taka í
baráttunni við fíkniefnin. Þau
Aldís Yngvadóttir námsstjóri í
fíknivörnum, Anna Karlsdóttir
menntaskólakennari, Guðni Ol-
geirsson námsstjóri í íslensku,
Ómar H. Kristmundsson þjóðfé-
lagsfræðingur og Sonja B. Jóns-
dóttir blaðamaður.
eb