Þjóðviljinn - 31.05.1989, Side 4
Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis og verkaiýðshreyfingar
Stjómarskrá
grunnskólans
Aöalnámskrá grunnskóla er samningur milli fræöslu-
yfirvalda og þjóðarinnar um menntun og starfiö í grunn-
skólum landsins. Hún er eins konar stjórnarskrá grunn-
skóla. í lögum er kveöið á um rétt einstaklings til
menntunar og skyldu ríkisins til að stuðla aö því aö allir
njóti jafnréttis til menntunar og fái jöfn tækifæri. Aðal-
námskráin er meðal annars stjórntæki til aö jafna aö-
stöðu og samræma menntun barna og unglinga á
grunnskólastigi. í aöalnámskrá er settur fram starfs-
rammi fyrir grunnskólana um skipulagningu, fram-
kvæmd og mat á skólastarfi.
í gær var kynnt á blaðamannafundi ný aðalnámskrá
grunnskóla sem tekur viö af námskránni frá 1976, en
samkvæmt lögum á að endurskoða aðalnámskrá á
fjögurra ára fresti. Námskráin er mikil bók og í sam-
ræmi við inntak hennar og tilgang er káputeikningin
litrík mynd af lífinu á skólavellinum eftir 9 ára listamann.
Endurskoðun námskrárinnar hófst ekki fyrr en 1980
og hún skilaði ekki árangri í tíð frjálshyggjustjórnar
Þorsteins Pálssonar vegna þess að menntamálaráð-
herrar áttu í stöðugu stríði við skólafólk í landinu, og
hvað eftir annað var námskrárvinnan stöðvuð.
Þegar Svavar Gestsson og samstarfsmenn hans
komu til starfa í menntamálaráðuneytinu var breytt um
stefnu. Starfsfólki skólaþróunardeildar ráðuneytisins
var þá einfaldlega treyst til að ráða málum til lykta án
eftirlits sérstakrar nefndar á borð við þá sem Birgir
ísleifurskipaðiundirforustuGuðmundarMagnússonar
aðstoðarmanns síns. í samræmi við lýðræðislegan
kjarna aðalnámskrárinnar var kallaður til samráðs hóp-
ur fagmanna, tilnefndur af þeim sem málið er skyldast:
kennarasamtökunum, kennaramenntunarstofnunum
og foreldrafélögum. Þessir aðilar ásamt skólaþróunar-
deild tóku af skarið um öll meginmál.
Þessi breiða samvinna gerir aðalnámskrána að
óvenjulegri reglugerð, eins og menntamálaráðherra
kemst að orði í inngangi hennar: „Þetta er gert til að
ítreka þau faglegu sjónarmið sem aðalnámskrá verður
að byggjast á og um leið að fjarlægja svo sem kostur er
hið pólitíska framkvæmdavald.“ "
Brýna nauðsyn ber til að þjóðarsamstaða sé um
skóla og skólamál. Við verðum að hugsa um heildina
en megum ekki festast í ófrjóu og þröngsýnu karpi um
smáatriði. Miklu máli skiptir að menntun verði for-
gangsatriði, ekki síst fjárhagslega, á henni byggist líf
okkar og velferð.
Menntamálaráðherra vill draga úr pólitísku valdi,
þess vegna vísaði hann ákvörðunum um málefni Öldu-
selsskóla til fólksins sem þarf að una við þær. Hann
hefur nú skipað Reyni Daníel Gunnarsson yfirkennara
þar skólastjóra, í trássi við flokksræði borgarstjórnar-
meirihlutans en í samræmi við vilja foreldrafélagsins
við skólann og kennaranna. Kennarafulltrúar í fræðslu-
ráði sem sitja þar fyrir hönd almennra grunnskólakenn-
ara í Reykjavík hafa líka lýst stuðningi við hann, og þar
að auki fræðslustjórinn í Reykjavík.
Það er við hæfi að Reynir Daníel skuli vera skipaður
skólastjóri Ölduselsskóla sama dag og grunnskólarnir
eignast nýja. stjórnarskrá. Við óskum báðum aðilum til
hamingju.
SA
KLIPPT OG SKORIÐ
torgi hins himneska friðar
Á þessu ári er haldiö upp á mörg
j merk afmæli. Tvö hundniö ár eru
j liðin frá frönsku sljómarbylting-
j unni, Sjálfstæðisflokkurinn er sex-
I tiu ára og ég sé ekki betur en aö
I byltingin í Kína geti haldiö upp á
| andlát sitt á þessu herrans ári. Nú
I er þaö kannske móögun viö bylt-
j ingarmenn aö nefna Sjálfstæöis-
I flokkinn í sömu andránni, eða þá
| aö sjálfstæðismenn taki það óstinnt
upp aö láta bendla sig viö bylting-
arafmæli. En bæði byltingar og
i flokkar eiga þaö sameiginlegt aö
ráöa litlu um tilurö sína, enda veró-
inguna aö bræður böröust og til-
viljun réö hvaö viö tók?
Með öörum oröum: bylting ein
og sér er afleiðing, gosið sem leitar
útrásar, eftir aö kraftur, óánægja
eöa múgsefjun hefur safnast saman
á löngum tíma. Hvaö viö tekur aö
henni lokinni er annað mál og ekki
alltaf i samræmi við óskimar sem
aö henni stóöu. Þannig hafa bylt-
ingar tilhneigingu til aö éta bömin
sín, snúast jafnvel upp í andhverf-
ur sínar og veröa vatn á myllu
þeirra sem síst skyldi. Eöa skyldi
Lenin hafa hugsaö sér aö bolsé-
amir hafa breyst í martröö. Þaö er
núna fyrst sem Kínveijar þora aö
segja það upphátt, þora aö bjóða
maoismanum og kommúnisman
um og frelsisskeröingunni birginn
og vflja hrista okið af sér. Og hvað
er þá oröiö um gömlu byltinguna,
sem þótti allra byltinga merkileg-
ust? Var hún til einskis eftir allt,
bölvun fyrir Kinverja, tíma-
skekkja, orsök eöa afleiðing?
Þaö er næsta auövelt aö segja:
Þama sjáiö þiö, Kínveijar hafa eytt
(Jömtiu ámm af ævi sinni til aö
þrauka misheppnaða byltingu. Þaö
Framtíð Sjálfstæðisflokksins er P
því aðeins í hættu aö hann tapi átt- |
um og losni úr tengslum viö almúg-
ann. Gleymi sér í hagsmunagæsl-
unni og hátíöahöldunum og þyki V
svo vænt um fortíð sina aö hann I
gleymi framtíðinni. Falli í sömu |
gryfju og byltingamar sem staöna |
í upphafi sínu og gripa til menning-
arbyltinga til aö sýnast. Endur- I
hæfing Sjálfstæðisflokksins þarf J
hvorki að felast í menningarbylt-
ingum né hugmyndaþlngum. End- .
nrhcnfíno of hví taoi pr.rútt PÍtK OP :
heiisubót á tyllidögumi Lífskraftur
mxétt i
njLífsi
Hin sextuga
framtíðarsýn
Sextugsafmæli eru svolítið
brothættir atburðir. Á þeim er yf-
irleitt mun virðulegri blær en fyrri
stórafmælum á mannsævinni, -
en sá virðuleiki markast oftar en
ekki af því að ekki er búist við
miklu fleiri stórafrekum af af-
mælisbarninu en þegar hafa verið
drýgð.
Einhvern veginn tókst
skrauthátíðinni á afmæli Sjálf-
stæðisflokksins í fyrri viku að
bera öll dauflegustu einkenni
sextugsafmæla úr mannsævinni.
Þar sveif virðuleikinn yfir
vötnum einn saman og hljómur-
inn íþeim framtíðarbumbum sem
forystumenn börðu í ræðustólum
og fjölmiðlum minnti mjög á þá
framtíðarsýn sem blasir við þeim
sem eru að komast á sjötugsald-
urinn í mannlífinu: starfslok,
tómstundaiðja og steinninn
helgi.
Yngri en
fimmáraáætlunin
Ellert Schram hefur stundum
verið að hlaupa útundan sér um
Sjálfstæðisflokkinn síðan hann
hætti vafstri á þingi og er sumt af
þeim blekburði með því besta
sem Ellert hefur unnið utan vall-
ar, kannski vegna þess að stíll og
efnismeðferð mótast af hugar-
ástandi sem stundum er kennt við
að vera í senn sleppt og haldið.
Þannig játar Ellert flokknum
ást sína í DV í fyrri viku með því
að saga hans sé „fánum prýdd",
hvað sem það nú þýðir á sextugu
dýpi líkingamálsins, og hérumbil
á sama stað finnur fyrrverandi
þingmaður Reykvíkinga Sjálf-
stæðisflokknum sínum til hróss
að hann sé „sextíu ára fjölda-
hreyfing. Hann er eldri en bylt-
ingin í Kína“.
Sjálfstæðisflokkurinn var orð-
inn tvítugur þegar Maó fór að
ganga, - og væri kannski nær að
setja flokkinn í samhengi við
næstmerkilegustu pólitíska við-
burði afmælisársins: Sjálfstæðis-
flokkurinn er nefnilega lítið eitt
yngri en fyrsta fimmára áætlunin í
Sovét, en einu heitu sumri eldri
en heimskreppan mikla. Er
hérmeð gerð sú viðeigandi tiilaga
að þessara þriggja viðburða í
mannkynssögunni verði héreftir
minnst undir einum hatti.
Fáir prúðbúnir
Tímarnir hafa breyst síðan í
kreppu og fimmára áætlun, og
Ellert stegir í DV-leiðara í fyrra-
dag að Sjálfstæðisflokkurinn eigi
sér ekki „sömu vígamennina,
sömu áköfu fylkinguna og áður.
Það kemur kannski best fram í
því að á hátíðarsamkomu sjálf-
stæðismanna í Háskólabíói í síð-
ustu viku mæta fáir og prúðbúnir
gestir en ekki óvígur her
óbreyttra liðsmanna".
Við þetta er fáu að bæta nema
því að gestirnir munu hafa verið
þeim mun færri sem þeir voru
prúðbúnari, og kannski því að í
nýbirtum skýrslum var einmitt
haft á orði eitthvað nálægt því að í
Valhöll flokksins ríki einmitt
meiri gleði yfir einum prúðbún-
um en níutíu og níu réttlátum. Að
því tilskildu að hann kunni á
skrifstofuumferðarmerkin hjá
bankastjóraígildunum í flokks-
forystunni.
Nýju fötin
keisarans
Annars á Ellert það ekki skilið
að vera beittur hinu tvíeggja
vopni útúrsnúninganna. Hann á
nefnilega til að orða hlutina með
einföldum hætti og skýrum þrátt-
fyrir Heimdallaruppeldið. Það er
til dæmis erfitt að komast öllu
nær kjarna málsins í umfjöllun
um sextugsafmæli Sjálfstæðis-
flokksins en Ellert gerir um síð-
ustu helgi:
„Það er hinsvegar táknrænt
fyrir þann króniska veikleika,
sem meðal annars lýsir sér í sjáif-
umglöðum byltingarforingjum
og flokksforingjum, að baða sig í
ljósi sinnar eigin dýrðar. Blása í
lúðra og slá sér á brjóst. Efna til
skrautsýninga og hátíðarsam-
kvæma og hrópa húrra fyrir sjálf-
um sér. Miklast af eigin verð-
leikum. Hér er ég, stór og sterk-
ur. Halda að lýðurinn hylli sig
með því að klæðast nýju fötum
keisarans."
Aumingja Þorsteinn og Frið-
rik. Salt í sárin eftir naflaskoðun-
arupprifjun Pressunar - sem
Mogginn hefur nú hugsað sér að
hefna fyrir með árásum á alsak-
lausa fréttastofu útvarps.
Stöðnun og
sjálfumgleði
Framhald á þessari lexíu Ell-
erts Schram fyrir gamla flokkinn
sinn getur svo að breyttu
breytanda átt við aðra flokka
. engu síður:
„Lífskraftur stjórnmálaflokks
er sífelld og þrotlaus gagnbylting
andans, endalaust uppgjör við
sjálfan sig og samtíðina, upp-
spretta frjórra hugmynda.
Stöðnun og sjálfumgleði eru
hættulegustu óvinir félagsmála-
hreyfingar. Þá hættir hún að vera
fjöldahreyfing og breytist í dauða
stofnun. Þá þyrpist fólkið útá
torg hins himneska friðar og bið-
ur um nýjan flokk og nýja bylt-
ingu.“
Gáum að því, - einsog góður
vinur klippara er vanur að segja
þegar hann hefur hugsað eitthvað
spaklegt á prenti.
-m
Þjóðviljinn
Síðumúla 6 -108 Reykjavík
Sími 681333
Kvöldsími 681348
Útgefandl: Útgáfufélag Þjóðviljans.
Rltstjórar: Árni Bergmann, MörðurÁrnason, SiljaAðalsteinsdóttir.
Fróttastjóri: Lúðvík Geirsson.
Aðrlr blaðamenn: Dagur Þorleifsson, Elías Mar (pr.), Elísabet
Brekkan, Guðmundur Rúnar Heiðarsson, Hildur Finnsdóttir (pr.), Jim
Smart (Ijósm.), KristóferSvavarsson, ólafurGíslason, Páll
Hannesson, SigurðurÁ. Friðþjófsson (umsjm. Nýs Helgarblaðs), Þor-
finnurómarsson (íþr.), ÞrösturHaraldsson.
^ Framkvœmdastjóri: Hallur Páll Jónsson.
Skrifstofustjóri: Jóhanna Leópoldsdóttir.
Skrifstofa: Guðrún Geirsdóttir, Kristín Pétursdóttir.
Auglýsingastjóri: Olga Clausen.
Auglýsingar: Guðmunda Kristinsdóttir, Unnur
Ágústsdóttir.
• Símavarsla: Sigríður Kristjánsdóttir, Þorgerður Sigurðardóttir.
Bílstjórl: Jóna Sigurdórsdóttir.
Húsmóðir: Erla Lárusdóttir
Útbreiðslu- og afgreiðslustjóri: Björn Ingi Rafnsson.
Afgreiðsla: Halla Pálsdóttir, Hrefna Magnúsdóttir.
Innheimtumaður: Katrín Bárðardóttir.
Útkeyrsla, afgreiðsla, ritstjórn:
Síðumúla 6, Reykjavík, símar: 681333 & 681663.
Auglýsingar: Síðumúla 6, símar 681331 og 681310.
Umbrotog setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf.
Prentun: Blaðaprent hf.
Verð I lausasölu: 80 kr.
Nýtt Holgarblað: 110 kr.
Áskr iftarverð ó mánuði: 900 kr.
4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miftvikudagur 31. maí 1989