Þjóðviljinn - 31.05.1989, Qupperneq 5
VIÐHORF
Tímasprengjan í hafinu
Guðbrandur Þorkell Guðbrandsson skrifar:
„Það er sorglegt hvernigflest okkar brugðust viðfréttinni um díoxínið
í lýsinu. Þarna erþófyrsta aðvörunarljósið að kvikna, ogþá grófum
við höfuðið ísandinn... “
Þegar bókin „Silent Spring",
sem kölluð var Raddir vorsins
þagna í ágætri íslenskir þýðingu,
kom út fyrir allmörgum árum í
Bandaríkjunum má segja, að hún
hafi rifið upp skjáina á fólki
gagnvart þeirri spillingu um-
hverfisins, sem virðist óhjá-
kvæmilegur fylgifiskur iðnaðar-
og neyslusamfélagsins. Fram til
þess tíma höfðu þær raddir, sem
bent höfðu á mengunina og hugs-
anlegar og sjáanlegar afleiðingar
hennar, verið fáar og hjáróma og
áttu satt að segja lítinn hljóm-
grunn hjá öllum almenningi. Eins
og fyrr segir, neyddi fyrrgreind
bók fólk til að horfast í augu við
hinn ömurlega veruleika; okkar
bíður ekkert annað en að
drukkna í eigin skít, og það fyrr
en varir, verði ekkert að gert. Að
sjálfsögðu reis stærsti mengunar-
valdurinn, efnaiðnaðurinn, upp á
afturfótunum og mótmælti efni
bókarinnar, en þá komu margir
vísindamenn fram í dagsljósið,
sem höfðu ýmist unnið að rann-
sóknum á þessu sviði í kyrrþey
eða verið þaggaðir niður, og
hröktu fullyrðingarnar jafnóðum
með gildum rökum. Þótt sem bet-
ur fer sjái ekki enn fyrir endann á
þeirri vakningu, sem af þessu
leiddi, hefur árangur af baráttu
fólks á þessu sviði orðið sorglega
lítill. Ef til vill er árangur þó verð-
mætastur í þeirri hugarfarsbreyt-
ingu, sem orðið hefur. Fólk gerir
sér í æ ríkara mæli ljóst, að hreint
drykkjarvatn er engan veginn
sjálfsagður hlutur, og til þess að
öðlast það, verða menn að um-
gangast vatnið af meiri virðingu,
en til þessa hefur verð gert, svo
dæmi sé tekið af umhverfisþætti,
sem er okkur öllum nálægur.
Það er hinsvegar sorgleg stað-
reynd, að yfirvöldum í flestum
löndum og í raun öllum almenn-
ingi stendur á sama um iðnaðar-
úrgang og sorp, svo framarlega
sem fólk hefur slíkt ekki fyrir
augunum. Er í raun dæmalaus sú
árátta mannskepnunnar að nota
aðferð strútsins í þessum efnum.
í þessu ssambandi komum við að
Íieim umhverfisþætti, sem okkur
slendinga skiptir væntanlega
mestu, hafinu.
Þau ókjör af iðnaðarúrgangi og
sorpi, sem búið er að varpa í Atl-
antshafið, bæði frá Ameríku og
Evrópu, veit sennilega enginn
um hve mikil eru eða hvernig
samansett. Ekkert opinbert eftir-
lit er til með því í hvaða umbúð-
um eiturefni eru, sem sökkt er í
hafið, né hvort þau geta valdið
vistfræðilegu stórslysi. Er víst
hægt að fullyrða án nokkurs
minnsta vafa, að þarna er í raun
tímasprengja, sem enginn veit
hvenær springur, eða hvort hún
er þegar sprungin. Hér á landi
hefur mestöll mengunarumræða
verið á því stigi, að við höfum
talið þetta annarra þjóða vanda,
sem snerti okkur ekki, við byggj-
um hér í nánast mengunarlausu
umhverfi. Það ersorglegt hvernig
flest okkar brugðust við fréttinni
um díoxínið í lýsinu. Þarna er þó
fyrsta aðvörunarljósið að kvikna,
og þá gröfum við höfuðið í sand-
inn eins og bandarísku efnaiðn-
aðarrisarnir og fordæmum Svía
fyrir að hampa svona tittlinga-
skít.
Staðreyndin er hinsvegar sú,
að eitrun Atlantshafsins fer dag-
vaxandi, og sú staðreynd blasir
við, að innan tiltölulega skamms
tíma verður hún komin á það stig,
að allar þær sjávarlífverur, sem
við höfum til þesa haft lífsfram-
færi okkar af, verða orðnar svo
eitraðar, að þær verða alls óhæfar
til neyslu. Lífsframfæri okkar er
því veruleg hætta búin, hvað
þetta snertir, og því miður verður
að segjast eins og er, að allar líkur
benda til þess að hér verði um
áþreifanlega staðreynd að ræða
innan ótrúlega skamms tíma. Því
miður er eiturefna- og úrgangs-
losunin í Atlantshafið orðin slík,
að hjá þessu verður ekki komist.
Spurningin er ekki lengur hvort,
heldur hvenær.
Það er því mikil nauðsyn fyrir
okkur íslendinga að huga að því í
tíma, að við höfum eitthvað ann-
að okkur til framfæris, þegar
þessa auðlind þrýtur með öllu.
Við þurfum því að gera ýmislegt,
ekki á morgun eða seinna, heldur
strax í dag. í fyrsta lagi þurfum
við að beina kröftum okkar að
því að stöðva þá miklu mengun,
sem á sér stað á landinu þegar, og
koma henni niður með öllum til-
tækum ráðum að því leyti, sem
við ráðum við slíkt sjálf. Við
þurfum líka að vinna markvisst
að því á alþjóðavettvangi að fá
aðrar þjóðir til að vinna að meng-
unarvörnum á skipulegan hátt. í
því sambandi er rétt að minna á
þau alþjóðlegu samtök, sem mest
hafa unnið á þessu sviði, en það
eru Greenpeace-samtökin, sem
óprúttnir hagsmunaðilar hér á
landi hafa talið fólki trú um að
séu nánast á sama plani og IRA
og PLO. Hið rétta er hinsvegar,
að þessi samtök hafa náð virð-
ingu almennings í þeim löndum,
sem nú þegar er harðast |eikin af
mengun. Eiturefnaauðvald
beggja vegna járntjalds hefur.
hinsvegar barist hart gegn þeim,
og er það nöturlegt fyrir okkur,
sem eigum svo mikið undir um-
hverfisvernd, að hafa skipað okk-
ur við hlið þeirra, sem berjast af
mestri óbilgirni fyrir þeim „rétti“
sínum, að mega óhreinka lönd og
höf að vild, til hámörkunar gróða
síns. - En svo vikið sé aftur að
nauðsynlegum framtíðarmark-
miðum okkar, þá þurfum við að
vinna að því hörðum höndum að
byggja upp nýjar atvinnugreinar,
sem byggja ekki á sjósókn, held-
ur t.d. ræktun nytjafiska í meng-
unarlitlu eða mengunarlausu um-
hverfi, sem okkur gæti tekist að
skapa með markvissu umhverfis-
verndarstarfi hér heima. Við
þurfum líka að gæta okkar í sam-
bandi við landbúnaðinn. Inn-
flutningsauðvaldið vill hann að
sjálfsögðu feigan, því það hefur
ekki þær tekjur af landbúnaðar-
vörum, sem það kysi. Með blekk-
ingavef hefur þeim tekist að telja
fólki trú um, að hann sé okkur
með öllu óþarfur og lang hag-
kvæmast væri að flytja allar land-
búnaðarvörur inn. Þetta er þjóð-
hættuleg stefna. Með þeirri rýrn-
un lífskjara, sem leiða mun af
fyrirsjáanlegri eitrun úthafanna,
myndi okkur verða nauðsynlegra
en nokkru sinni, að framíeiða af
inniendum aðföngum sem mest
af fæðu okkar. Gjaldeyrisöflun
okkar dugar ekki í dag til þessa
innflutnings, hvað þá eftir það
hrun útflutningstekna, sem kem-
ur til með að leiða af sjávar-
eitruninni.
Vafalaust telja flestir, sem
þetta nenna að lesa, það vera al-
gjört svartsýnishjal. Sá, sem
þetta ritar, yrði manna fegnastur,
ef svo reyndist. Því miður eru
hinsvegar mestar líkur á hinu
gagnstæða.
Guðbr. Þorkell Guðbrandsson
Sauðárkróki
r
Sölutjöld 17. júní 1989 í
Reykjavík
Þeir sem óska eftir leyfi til sölu úr tjöldum á þjóðhátiðardaginn
17. júní 1989 vinsamlegast vitjið umsóknareyðublaða
að Fríkirkjuvegi 11, opið kl. 08.20-16.15.
Athygli söluhafa er vakin á þvi að þeir þurfa að afla
viðurkenningar Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkursvæðis á
sölutjöldum og leyfi þess til sölu á viðkvæmum neysluvörum.
II!
Umsóknum sé skilað í síðasta lagi
mánudaginn 5. júní kl. 12.00.
m
Frá menntamála-
ráðuneytinu
Innritun nemenda í
framhaldsskóla í Reykjavík
fer fram í Miðbæjarskólanum í Reykjavík dagana 1. og 2. júní
n.k. frá kl. 9.00-18.00. Umsóknum fylgi Ijósrit af prófskír-
teini.
Þeim nemendum 9. bekkjar sem þess óska er gefinn kostur
á persónulegri námsráðgjöf fyrir og samhliða innrituriinni.
Námsráðgjöfin fer fram í Miðbæjarskólanum og hefst mánu-
daginn 29. maíkl. 9.00 og stendurtilkl. 16.00föstudaginn2.
júní.
Þeir sem óska eftir að tala við námsráðgjafa þurfa að skrá
sig í viðtal með nokkrum fyrirvara. Skráning í viðtöl ferfram á
sama tíma og sama stað, sími 16491.
tws
w
Utboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, fyrir hönd
Hitaveitu Reykjavíkur, óskar eftir tilboöum í
sjálfvirkt brunaviövörunarkerfi fyrir Nesjavalla-
virkjun. Útboösgögn veröa afhent á skrifstofu
vorri aö Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík. Tilboöin
veröa opnuö á sama staö miðvikudaginn 14.
júní kl. 14.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 - Sími 25800
Útboð
Styrking og malarslitlög í Húna- vatnssýslu 1989
m Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í ofangreint r verk. Magn 19.000 m3. Verki skal lokið 29. ágúst 1989. Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins á Sauðárkróki og í Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með 29. þ.m. Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00 þann 12. júní 1989.
Vegamálastjóri
Útboð
Norðfjarðarvegur,
Beljandi - Háhlíðarhorn
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í ofangreint
verk. Lengd vegarkafla 2,9 km, skeringar og fyllingar
86.000 m , burðarlag 23.000 m3.
Verki skal að fullu lokið 1. ágúst 1990.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins á
Reyðarfirði og í Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með
31. maí n.k. Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl.
14:00 þann 12. júní 1989.
Vegamálastjóri