Þjóðviljinn - 31.05.1989, Page 7
MENNING
Helga Steffensen og Sigríður Hannesdóttir með nokkra vini barnanna í Brúðubílnum. Þar má til dæmis sjá
bæði Ljónið og frú Mímí. Mynd:-þóm
„Hvar er pabbi minn?“
Nýr söngleikur frumsýndur hjá Brúðubílnum
Brúðubfllinn er að fara í enn
eina ferðina, þá tíundu, svo börn-
in geta farið að hlakka til. Frum-
sýning sumarsins er í Haliargarð-
inum í Reykjavík á morgun,
fímmtudag, kl. 14, og það er
söngleikurinn „Hvar er pabbi
minn?“ eftir Helgu Steffensen
sem þar verður sýndur.
„Hvar er pabbi minn?“ er um
það þegar dýrin í Afríku koma í
heimsókn í Brúðubflinn: ljónið,
slangan, strúturinn Mímí og
sonur hennar. Auk þeirra kemur
lítill óvæntur gestur sem er búinn
að týna pabba sínum og þarf á
hjálp barnanna að halda við að
finna hann.
Helga Steffensen samdi söng-
leikinn, bjó til brúðurnar og leik-
stýrir verkinu. Vísurnar eru eftir
Óskar Ingimarsson. Magnús
Kjartansson útsetti tónlistina og
flytur hana. Leiktjöld eru eftir
Snorra Svein Friðriksson. Unt
raddir brúðanna sjá Arnar Jóns-
son, Árni Blandon, Edda
Heiðrún Backmann, Sigríður
Hannesdóttir og Helga Steffen-
sen. Þær Sigríður og Helga sjá
einnig um hreyfingar brúðanna.
Sýningar eru tvær á dag, klukk-
an 10 og 14.
Mynd og Ijóð eru blá
Einar Melax
Óskiljanleg kúla.
Myndir: Kristbergur Pétursson.
Smekkleysa 1988
Petta er ekki fyrsta bók Einars
og vonandi ekki sú síðasta.
Undarleg kúla er málmslegin,
kápan úr blikki, fóðruð að innan
með svörtu flaueli. Bókin er bæði
hörð og mjúk og mynd fylgir
hverju ljóði og er hvort tveggja
prentað í sama lit, ljóð og mynd.
Textar Einars bera með sér
suðlægan blæ og miðjarðarhita,
þrátt fyrir kuldalegt útlit bókar-
innar. Lítum á Miðjarðarhaf,
mynd og ljóð eru blá. Takið eftir
samspili titilsins og ljóðsins, eink-
um niðurlagsins.
Miðjarðarhaf
Grikkjastrákur
stúlkan þín er falleg.
Grikkjastelpa
þú ert bjútiful.
Má ég strjúka tungu yðar
með löngutöng
lauga yljar þínar
með þumlum mínum
Affródíta
nú ríð ég þér neðansjávar
með baugfingri.
í þessu íturvaxna ljóði er ekki
skafið utanaf ástaratlotum og un-
aði kynlífsins. Stúlka á götu
breytist í ástar og siglingagyðjuna
Afródítu. Ástin er víðar á ferð-
MAGNÚS
GESTSSON
inni í þessari heitu bók og eitt
ljóðið nefnist einfaldlega Ást-
arljóð.
Ástarljóð
Yfirleitt er of mikið
að sjá fólk.
Stundum má líta
á það
ef til vill eiga við það
eitt orð
en sjaldnar drekka með því
kaffibolla.
Þú ástin mín viltu
njótast með mér
að eilífu.
Amen.
Þarna er skorið á öll tengsl við
alla aðra en þann sem elskaður
er.
Vín, barir og drykkja eru áber-
andi þættir í ljóðum Einars.
Fyrsta ljóð bókarinnar heitir
Límonaðibar og fast á eftir koma
Eyðimerkurkrá og Fjallasýn.
Eyðimerkurkrá minnir mig á Dag
Sigurðarson í orðfæri. Lítum á
dæmi: Þar/þrákarl á spákerlingu/ i
lá ská við að fá.
Fjallasýn hefst með tequila að
morgni og mávar fljúga kerfis-
bundið yfir dauðu fólki. Þetta er
sérstætt ljóð vegna þess að meg-
intextinn fjallar alls ekki um
fjallasýn. Það er titillinn sem
opnar okkur sýn inn í víðáttur
fjallanna.
Fjallasýn
Ég set salt
í morgunsárið
og sötra tequila.
Stéttin er grá
og framliðið
fólk á förnum vegi.
í dag
hnitar mávurinn
marga hringi
og kvöldið
það er agúrka.
Ég get ekki stillt mig um að
nefna eitt ljóð til viðbótar. Það
heitir Sálmur og er hógvær og
hlýleg ábending til ungs fólks.
Sámur
Að skrifa er ekki fyrir
ungt fólk.
Ungt fólk œtti ekki
að skrifa
nema
ástarbréf
eða undir
skuldabréf.
Ungt fólk á að
leika sér.
Leika sér
sem lömbin.
Þegar á heildina er litið geta
þeir félagar verið stoltir af bók-
inni því heildarsvipur er góður og
myndirnar vinna vel með ljóðun-
um.
Haydn-tónleikar
í dag eru 180 ár síðan tón-
skáldið Josef Haydn lést. Af því
tilefni verða haldnir tónleikar í
hliðarsal Hallgrímskirkju kl.
20.30 í kvöld. Þar verða flutt tvö
næturljóð fyrir litla kammersveit,
tríó fyrir tvær flautur og selló og
divertimento í C dúr Hob II nr.
17. Haydn samdi þessi verk á ár-
unum 1760-1790 og hafa fæst
þeirra heyrst áður hér á landi.
Flytjendur á tónleikunum eru
Guðrún S. Birgisdóttir og Marti-
a.1 Nardeau á flautur, Kristján Þ.
Stephensen á óbó, Kjartan Ósk-
arsson og Óskar Ingólfsson á
klarinett, Þórhallur Birgisson og
Kathleen Bearden á fiðlur, Helga
Þórarinsdóttir og Anna Maguire
á víólur, Þorkell Jóelsson og
Anna Sigurbjörnsdóttir á horn,
Nóra Kornblueh á selló og Ric-
hard Korn á kontrabassa.
Bylting Sandinista
Út er komin bókin Byltingin í
Nicaragua með raeðum og ritum
Sandinista. Útgefandi er Sigur-
laug S. Gunnlaugsdóttir.
Árið 1979 gerði alþýðan í Nic-
aragua uppreisn og steypti ein-
ræðisherranum Somoza af stóli í
júlí það ár. Landið var fátækasta
land Mið-Ameríku ásamt Hond-
úras, þó var því ójafnt skipt sem
til skiptanna var, á móti fjöl-
mennri bláfátækri alþýðu, eink-
um til sveita, voru fáir stórauðug-
ir menn. Spænskir nýlenduherrar
kúguðu Nicaragua-búa fram
undir lok 19. aldar, en í meira en
öld hafa Bandaríkin ráðið lögum
og lofum í landinu. Handbendi
þeirra var fyrrnefndur Somoza,
einn illræmdasti harðstjóri í þess-
um heimshluta, og er þá langt til
jafnað.
í bókinni er m.a.inngangur um
landið og byltinguna eftir Gylfa
Pál Hersi sem dvaldi um skeið í
Nicaragua og grein eftir Daníel
Ortega forseta um kontrastríðið:
„Fyrir friði með reisn“.
SA
ALÞÝDUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagið -
Fundur um utanríkismál:
Störf Alþingis
og stefna ríkisstjórnarinnar
Alþýðubandalagið boðar til fundar um utanríkismál þriðjudaginn 6. júní
kl. 20:30 í Miðgarði, Hverfisgötu 105.
Dagskrá:
1. Stjórnarsáttmálin og framkvæmd utanríkisstefnu.
Ólafur Ragnar Grímsson, formaður Alþýðubandalagsins og fjár-
málaráðherra.
2- Alþingi og utanríkismál.
Hjörleifur Guttormsson alþingismaður.
3 Hver er stefna Alþýðubandalagsins?
Vigfús Geirdal sagnfræðingur.
4 Umræður.
Starfshópur um utanríkismál
Alþýðubandalagið í Reykjavík
Aðalfundur ABR
Aðalfundur Alþýðubandalagsins í Reykjavík verður haldinn miðvikudaginn
31. maí kl. 20.30 að Hverfisgötu 105.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Skýrsla formanns.
Reikningar og tillaga um árgjald 1989.
Lagabreytingar.
Kosning stjórnar
önnur mál.
Félagar fjölmennið og munið félagsgjöldin. Stjórn ABR
ABR
Tilkynningar vegna aðalfundar ABR
Vegna aðalfundar ABR 31. maí nk. tilkynnist eftirfarandi:
1) Frestur til að skila inn tillögum vegna lagabreytinga rann út 24. maí.
Framkomnar tillögur liggja frammi á skrifstofu félagsins frá og með
deginum í dag.
2) Tillaga uppstillingarnefndar vegna stjórnarkjörs mun liggja frammi á
skrifstofu félagsins frá og með sunnudeginum 28. maí. Skrifstofan
verður opin frá kl. 16-18 þann dag.
Frestur félagsmanna til að leggja fram aðrar tillögur rennur út þriðjudaginn
30. maí kl. 20.30
Félagar munið að greiða félagsgjöldin. Opið alla virka daga frá kl. 16-18
fram að aðalfundi.
Ath: Breyttan skrifstofutíma
Stjórn ABR
Fundir á Austurlandi
Hjörleifur Guttormsson alþingismaður verður á
opnum fundum á Austurlandi á næstunni sem hór
segir:
Neskaupstað, Egilsbúð, miðvikudaginn 31. maí kl.
20.30.
Egllsstöðum, Valaskjálf, fimmtudaginn 1. júní kl.
20.30.
Breiödal, Staðarborg, föstudaginn 2. júní kl. 20.30.
Höfn í Homafirði, í Miðgarði, laugardaginn 3. júní kl.
13.
Fundarefni: Störf Alþingis og hagsmunamál byggðarlaganna - Fyrirspurnir
og umræður. Allir velkomnir. Alþýðubandalagið
Hjörleifur
Aðalfundur
SAMBANDS ÍSLENSKRA SAM-
VINNUFÉLAGA
verðurhaldinndagana
5. og 6. júní 1989
íSambandshúsinu, Kirkjusandi.
Fundurinn hefst kl. 9 árdegis
$ SAMBAND ÍSLENSKRA SAMVINNUFÉLAGA
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7