Þjóðviljinn - 01.06.1989, Blaðsíða 12
GARÐAR OG GROÐUR
Sjá nú, hvað eg er beinaber
Svo yrkir Bólu-Hjálmar og
leggur landi sínu í munn.
Áhugamannafélagið Líf og
land hefur gert þessi orð hans
að sínum í baráttunni fyrir
gróðurvernd og landgræðslu.
Frá því í desember 1988 hefur
félagið staðið fyrir sölu
póstkorta, sem fólk á kost á að
undirrita og senda þingflokksfor-
manni að eigin vali, og taka þann-
ig þátt í barát.tunni.
Herdís Þorvaldsdóttir leik-
kona er formaður Lífs og lands og
sagði hún í samtali við Þjóðvilj-
ann að félagar væru nokkur
hundruð og áhugi á starfseminni
mikill.
Eitt af-aðalbaráttumálum fé-
lagsins er að lausaganga búfjár
verði afnumin með lögum. Þetta
'er mikið feimnismál hjá öðrum
félögum en Herdís segir að við
verðum að fara að eins og Nýsjá-
lendingargerðu, þ.e. girða af þau
svæði sem búfé má athafna sig á.
Líf og land er óformlegt félag
án starfsmanna og skrifstofu, en
það hefur haldið nokkrar ráð-
stefnur og gefið út í riti erindin
sem þar hafa verið flutt.
Fjáröflun félagsins hefur farið
fram með sölu ritanna og kort-
anna.
„Rollurnar eru að éta upp
landið. Þetta eru ekki öfgar og
áróður heldur staðreyndir sem
við verðum að horfast í augu við.
Friðuð landsvæði
„Gróður og jarðvegur á helstu
sandfoks- og uppblásturssvæðun-
um er mjög viðkvæmur og þolir
illa ágang búfjár. Aðgerðir til að
stöðva sandfok og jarðvegs-
eyðingu á slíkum svæðum hafa
frá upphafi einkum verið fólgnar
í friðun þeirra gegn búfjárbeit.
Melgresi var síðan sáð þar sem
um var að ræða sandfok, ýmist í
skjóli varnargarða eða í rákum
þvert á skaðlegustu vindáttina,
og styrkt með áburðargjöf eftir
þörfum. Melgresið er eina jurtin
sem reynst hefur nothæf til að
binda foksand enn sem komið er.
Með friðun og sáningu melfræs
og öðrum landgræðslufram-
kvæmdum hefur náðst mikils-
verður árangur í stöðvun upp-
blásturs og uppgræðslu örfoka
lands.“
Orð þessi eru tekin úr afmælis-
riti Landgræðslunnar, Græðum
ísland , sem út kom nú fyrr í þess-
um mánuði.
Forseti íslands frú Vigdís Finn-
bogadóttir, sem sýnt hefur mik-
inn áhuga á trj árækt á sínum ferli,
fylgir ritinu úr hlaði, og segir hún
þar m.a.: „Með því að lúta þörf-
um landsins leggjum við rækt við
það skásta í okkur sjálfum".
Bókin er fróðleg og aðgengileg
aflestrar, einkum eru athyglis-
ii. U
Þetta getur ekki verið feimnismál á haf,“ segir Herdís Þorvalds- hverjum skyldum höfum við lík-
lengurþegarlandiðeraðfjúkaút dóttir og bætir því við að ein- lega að gegna við afkomendurna.
eb
verðir kaflar um baráttuna við
sandinn. eb
LIFRÆNN ABURÐUR
GRÓDRAfíSTÖDlN
STJÖRNUGRÓF18 - SÍMI: 84288
Bjóðum sumariö velkomiö meö garöplöntum úr
Gróörarstööinni Mörk.
Garötré
Limgerðisplöntur
Fjölærar plöntur (150 tegundir)
Sumarblóm (ræktuö í pottum)
Biöjiö um plöntulista og leiöbeiningabækling
Sendum um landallt