Þjóðviljinn - 27.07.1989, Síða 1
Fimmtudagur 27. júlí 1989 129. tölublað 54. árgangur
Akureyri
Atvinnuhorfur dökkar
SigurðurP. Sigmundsson: Fjárhagsstaðafyrirtœkja verri en ífyrra. Kvótinn hjá ÚtgerðarfélagiAkureyrar búinn íoktóber.
Unglingum sagt upp sumarvinnu
Sigurður P. Sigmundsson,
framkvæmdastjóri Iðnþróun-
arféiags Eyjafjarðar, segir
augljóst af könnun sem hann stóð
fyrir, að fjárhagsstaða fyrirtækja
á Akureyri sé yfirleitt verri en í
júní í fyrra. Helsta áhygjuefni
Akureyringa sé að kvóti skipa Út-
gerðarfélags Akureyrar verði að
öllum líkindum uppurinn í októ-
ber. Hjá ÚA vinna 400 manns
þannig að kvótaleysi gæti komið
illa við atvinnulíf á Akureyri. ÚA
hefur þegar sagt upp unglingum
sem ráðnir voru í sumarvinnu í
vor.
Könnun Iðnþróunarfélagsins
náði til 80 fyrirtækja á Akureyri
og var sambærileg könnun gerð í
júní í fyrra. Sigurður sagði Þjóð-
viljanum að ekki virtist bjart
framundan í atvinnumálunum í
haust. Ástandið væri misjafnt á
milli greina. Þótt flestir ætluðu
ekki að bæta við sig fólki, ætluðu
sumir að gera það. Oftast væri sú
leið farin að ráða ekki nýja starfs-
menn fyrir þá sem hætta en fyrir-
tækin reyndu að komast hjá upp-
sögnum. ÚA sendir þó allt sitt
starfsfólk í þriggja vikna sumarfrí
í næsta mánuði til að treina kvót-
ann og hefur slíkt ekki átt sér stað
hjá fyrirtækinu áður.
Að sögn Sigurðar hafa ekki
mörg fyrirtæki lent í gjaldþroti á
Akureyri. Fyrirtækin væru frekar
traust og þess vegna ætti sér ekki
stað bylgja gjaldþrota eins og
fyrir sunnan. Menn væru varkár-
ari í stofnun nýrra fyrirtækja og
þau sem fyrir væru stæðu á
traustum grunni. Af þessum
sökum sagði Sigurður skipta
miklu máli hvað væri að gerast
hjá þessum fyrirtækjum.
„Atvinnuástand annarsstaðar í
Eyjafirði er all þokkalegt,“ sagði
Sigurður. Ágætt ástand væri
t.a.m. á Dalvík og allt horfði til
betri vegar á Ólafsfirði eftir að
nýja frystihúsið, Frystihús Ól-
afsfjarðar, tók til starfa fyrir
skömmu. Viss vandi hefði verið á
Grenivík en nýr bátur til staðar-
ins hefði bætt úr því. Sigurður
sagði mun betra ástand ríkja al-
mennt á Eyjafjarðarsvæðinu en á
svæðunum austan- og vestan-
megin við það.
-hmp
Sjá síðu 5
Húsnœði öryrkja
Dauðagildra
Félagsmálastofnun
útvegar öryrkjum
húsnœði með
stórhœttulegri
verönd. Sannkölluð
dauðagildra
Ihúsnæði að Vatnsstíg 11 í
Reykjavík, sem borgin leigir og
framleigir svo til öryrkja, er ver-
önd á þriðju hæð sem er hreint
stórhættuleg. Handrið sem var á
veröndinni, var fyrir nokkrum
mánuðum brotið af og nú er ekk-
ert til varnar. Það myndi enginn
lifa af fall af þessari verönd.
íbúar í húsinu eru allir öryrkjar
og reyndar eiga allir nema einn
við andlega vanheilsu að stríða.
Sumir eru einnig drykkjumenn,
þannig að mikið af óreglufólki er
á þvælingi um húsið, og það þyrfti
ekki að spyrja að leikslokum ef
einhver þeirra færi út á verönd-
ina.
Einn íbúi hússins sem Þjóðvilj-
inn ræddi við, sagði að þegar
hann hefði flutt inn fyrir nokkr-
um árum, hefði læknir sinn sagt
sér að engin óregla og ekkert
ónæði væri í húsinu. Annað hefði
komið á daginn, því langflestir
íbúamir væm atvinnulausir og
ættu við alvarlega andlega sjúk-
dóma að stríða, auk þess sem
sumir væm drykkjumenn. Fyrir
slíkt fólk væri þessi verönd
dauðagildra. ns.
Ólafsfjörður
Fjánnagnið
streymir suður
ÞorsteinnÞorvaldsson: Sjómenn hérgreiddu
32 miljónir króna í iðgjöld til Lífeyrissjóðs
sjómanna á síðasta ári sem alltfór suður
Asíðasta ári greiddu sjómenn
hér hvorki meira né minna en
32 miljónir króna í iðgjöld til Líf-
Á myndinni sést af veröndinni og niður. Það myndi enginn lifa af fall af
þessari verönd. Mynd: Jim Smart.
eyrissjóðs sjómanna sem ávax-
taður er í Landsbankanum í
Reykjavík og á móti lánaði sjóð-
urinn hingað um 500 þúsund
krónur. Auk þess eru hér 2-3 ein-
staklingar sem fá lífeyri úr sjóðn-
um,“ sagði Þorsteinn Þorvalds-
son sparisjóðsstjóri á Ólafsfirði.
Megn óánægja er meðal íbúa á
ólafsfirði sem og á Dalvík yfir
gegndarlausum fjármagnsflutn-
ingum þaðan og suður til Reykja-
víkur án þess að þeir fái nokkuð
af því til baka. Á Dalvík hafa að
undanförnu gengið undirskrift-
arlistar til stuðnings því að stofn-
aður verði lífeyrissjóður í bænum
og hið sama átti sér stað á Ólafs-
firði fyrir ári. Þegar Húsnæðis-
stofnun ákvað lánveitingar til
byggingar félagslegra íbúða á
dögunum urðu Olafsfirðingar út-
undan og þá fékk hugmyndin um
stofnun lífeyrissjóðs byr undir
báða vængi á nýjan leik.
Að sögn Þorsteins Þorvalds-
sonar er sú nauðsyn alveg borð-
liggjandi að stofna sameiginlegan
lífeyrissjóð fyrir íbúa á Dalvík og
í Ólafsfirði því ekki verður unað
öllu lengur þessum gegndarlausu
fjármagnsflutningum suður á
höfuðborgarsvæðið til þess eins
að efla uppbyggingu þar á meðan
greiðendur nyrðra fá ekkert til
baka. Reynt hefur verið án ár-
angurs til þessa að fá stjórn Líf-
eyrissjóðs sjómanna til að ávaxta
lífeyrisiðgjöldin heima í héraði
en að sögn Þorsteins hefur við-
kvæðið ávallt verið hið sama: Við
skiptum bara við Landsbanka ís-
lands. -grh
Þórshöfn
Loðnuveiðar boðnar út?
JóhannA.Jónsson: Verðum að nýta þessa auðlind á sem hagkvœmastan
hátt en ekki að viðhalda rándýrri útgerð. Skiptir engu hvort loðna er
veidd með innlendum eða erlendum skipum
Eg sé ekki annað í stöðunni eins
og hún er í dag en að bjóða
hreinlega loðnuveiðarnar út og
þá verður þeim tilboðum tekið
sem hagkvæmust verða. Skiptir
þá engu hvort veiðiskipin verða
innlend eða erlend. Það sem
skiptir máli er að nýta þessa auð-
lind sem hagkvæmast en ekki að
viðhalda rándýrri útgerð þótt
innlend sé,“ sagði Jóhann A.
Jónsson framkvæmdastjóri
Hraðfrystihúss Þórshafnar.
Eins og fram hefur komið
treysta útgerðarmenn loðnuskipa
sér ekki til að hefja loðnuveiðar
um þessar mundir sökum þess
hve loðnan er langt frá landi og
eins þykir þeim það verð sem
verksmiðjumar bjóða svo lágt að
það svari ekki kostnaði að láta úr
höfn. í upphafi vertíðar er loðnu-
kvótinn um 900 þúsund tonn og
þar af mega íslendingar veiða um
600 þúsund tonn. Mismunurinn
kemur í hlut Norðmanna og
Grænlendinga. Þeir síðastnefndu
hafa selt veiðiréttinn til EB og
Færeyinga en höfnuðu tilboði ís-
lenskra útvegsmanna í græn-
lenska kvótann.
Loðnuverksmiðjan á Þórshöfn
er í eigu Hraðfrystihússins og
sveitarfélagsins og þykir heima-
mönnum það heldur súrt í broti
að hún skuli ekki vera komin í
gagnið eingöngu vegna sér-
hagsmuna útgerðarmanna. Fyrir
íbúana skiptir það hins vegar afar
miklu máli að loðnuvertíðin hefj-
ist sem fyrst með tilheyrandi
verðmætasköpun sem henni fylg-
ir í stað þess að bíða svo og svo
lengi eftir að einhverjum utanað-
komandi þyki sér henta að byrja.
En sjálfir eiga þeir ekki skip til
veiðanna. _grh
Vesturbœr
Grútarfýla
fyllti öll vit
Á mánudaginn kom gat á lifr-
argrútartank hjá Lýsi hf. á
Grandavegi með þeim afleiðing-
um að illa lyktandi innihaldið lak
út og megn óiykt gaus upp. íbúar í
nágrenni verksmiðjunnar fóru
ekki varhluta af loftmenguninni
og varð fólk að halda fyrir neflð
utandyra og loka öllum gluggum
hýbýla sinna seinni part mánu-
dagsins. í gærmorgun var lyktin
mun minni og að sögn Ágústs Ein-
arssonar framkvæmdarstjóra var
lokið við að hreinsa upp lifrar-
grútinn í gær og ætti því öll lykt
að vera horfln núna.
- Þetta hefur ekki komið fyrir
hjá okkur áður að svona tankur
hafi skemmst en um þessar
mundir hafa staðið yfir tilraunir
hjá okkur með varðveislu lifrar-
grúts með maurasýru. Það er al-
veg rétt að lyktin var hræðileg.
Ég varð að halda ilmvatni að vit-
um mér til að geta komist í gegn-
um verksmiðjuna, sagði Ágúst.
iÞ