Þjóðviljinn - 29.08.1989, Síða 2
FRETTIR
Heimsókn
Stytting vinnutímans mikilvægust
Oskar Lafontaine varaformaður vestur-þýskra jafnaðarmanna í heimsókn.
Villað Vestur- Pýskaland dragi sig út úr hernaðarsamstarfinu í Nató. Perestrojkan er komin
of langt til þess að við verði snúið______
Oskar Lafontaine svarar spurningum íslenskra fréttamanna: - Pað er
ekki nóg að látast vera græningi, stjórnmálamenn verða að finna
atvinnulífinu farveg sem tekur tillit til umhverfisins. Mynd: Kristinn.
Stytting vinnuvikunnar er
mikiivægasta verkefni evr-
ópskrar vinstrihreyfingar um
þessar mundir. Hún er liður í um-
hverfisvernd vegna þess að fram-
leiðslan minnkar, hún stuðiar að
félagslegu jafnrétti og eflir iýð-
ræðið vegna þess að fólk fær
meiri tíma til eigin ráðstöfunar,
sagði Oskar Lafontaine varafor-
maður vestur-þýska Jafnaðar-
mannaflokksins á fundi með ís-
lenskum biaðamönnum í gær.
Lafontaine sem er forsætisráð-
herra í fylkinu Saarland er í heim-
sókn hér á landi í boði Alþýðu-
flokksins. Hann hefur átt fundi
með flokkssystkinum sínum hér-
lendum, og einnig Steingrími
Hermannssyni forsætisráðherra
og Ólafi Ragnari Grímssyni fjár-
málaráðherra. í gær flutti hann
erindi og svaraði fyrirspurnum á
almennum fundi á Hótel Sögu.
Á fundi sem Lafontaine átti
með íslenskum blaðamönnum í
gær var hann spurður í þaula um
viðhorf hans til þeirra tíðinda
sem nú eru efst á baugi í Evrópu:
lýðræðisþróunina í álfunni
austanverðri. Hann treysti sér
ekki til að segja hvort þar væri á
ferð endurreisn kapítalismans,
þróun í átt til evrópskrar jafnað-
armennsku eða eitthvað annað.
„Áður fyrr var helsta mótsögn
samfélagsins andstæður launa-
vinnu og auðmagns en nú eru það
andstæður auðmagns og um-
hverfis. Þess vegna er ekki rétt að
nota sömu nöfn yfir hlutina og
áður. Sósíalisminn er tilraun til
að setja óheftu valdi auðmagns-
ins ákveðnar skorður. Hins vegar
eiga hin svokölluðu sósíalísku
ríki og auðvaldsríkin það sam-
eiginlegt að hagkerfi þeirra byg-
gjast á stöðugt aukinni vörufram-
leiðslu. Þau hafa því bæði gengið
nærri umhverfinu og sósíalísku
ríkin heldur lengra."
Hins vegar sagði Lafontaine að
ef útkoman úr hræringunum í
Austur-Evrópu yrði sú að þau
tækju upp fjölflokkalýðræði yrði
auðveldara að sameina Evrópu.
Sú þróun sem þar væri hafin gæti
vissulega farið úr böndunum, en
hún væri komin lengra en svo að
hægt væri að snúa við.
Umhverfismál eru mjög á dag-
skrá í Vestur-Þýskalandi og Laf-
ontaine sagði að mikilvægt væri
að finna nýja stefnu sem tæki tillit
til umhverfísins. Hann var spurð-
ur hvort við þyrftum þá ekki að
fórna einhverju af þeim lífskjör-
um sem við byggjum við. „Hreint
loft, ómenguð náttúra og aukinn
frítími er líka hluti af lífskjörum
okkar,“ svaraði hann.
Lafontaine var minntur á að
hann hefði löngum verið
gagnrýninn á Nató og svaraði
hann því til að hann hefði verið
og væri enn andvígur þátttöku
Vestur-Þýskalands í hernaðar-
samstarfinu innan Nató. „Frakk-
land tekur ekki þátt í því og
Spánn mjög lítinn. Þessi rflci rök-
styðja þá afstöðu með því að þau
séu sjálfstæðar þjóðir. Við þjóð-
verjar eigum einnig rétt á slíku
sjálfstæði. Við eigum td. ekki að
þola það þegar Bandaríkjamenn
nota hernaðarmannvirki Nató í
Vestur-Þýskalandi til hefndará-
rása á Líbýu. Þá neituðu Spán-
verjar og Frakkar þeim um afnot
af sínu landi. Við vorum ekki
spurðir.“
Hann sagðist hafa rætt málefni
Evrópubandalagsins og EFTA
við Steingrím Hermannsson, en
við Ólaf Ragnar ræddi hann
sömu málaflokka og á blaða-
mannafundinum, þe. afstöðu
sína og flokks síns til þeirra mála
sem efst eru á baugi í evrópskum
stjórnmálum.
Lafontaine sagðist vera orðinn
þreyttur á að svara spurningunni
um það hvort hann yrði næsti
kanslari Vestur-Þýskalands.
„Fyrst eru kosningar í Saarlandi í
janúar og það er ekki fyrr en um
mitt næsta ár sem kanslaraefni
flokksins verður valið. Síðan er
það á valdi þjóðarinnar að kjósa
nýjan kanslara. Svo það er ekki
tímabært að ræða hver það verð-
ur,“ sagði þessi líflegi evrópski
krataforingi.
-ÞH
Farandi í
Tékkó
Heimsmeistaramótið í hand-
knattleik verður haldið í Tékkó-
slóvakíu á næsta ári, og munu
vafalítið margir vilja fara þangað
til að fyigjast með Ieikjum.
Ferðaskrifstofan Farandi hefur
riðið á vaðið með að koma ís-
lenskum handknattleiksunnend-
um á staðinn. Farandi hefur þeg-
ar tryggt gistingu fyrir 50 manns
og verða gestir fluttir á milli staða
þannig að þeir geti fylgst með á
öllum vígstöðvum. Frá 22. febrú-
ar til 5. mars verða gestirnir í
Gotwald. f Bratislava 5. mars til
9. mars og í Prag frá 9. mars til 12.
mars.
íþróttafólk
heiðrað
íþróttafélag fatlaðra er 15 ára um
þessar mundir og heiðraði félagið
sitt besta afreksfólk á aðalfundi
nýlega. íþróttafólkið fékk fallega
styttu að gjöf fyrir frábæra
frammistöðu á Ólympíuleikun-
um í Seúl 1988. Þau voru Sóley
Axelsdóttir, Sigrún Pétursdóttir,
Reynir Kristófersson, Kristín
Rós Hákonardóttir, Halldór
Guðbergsson, Ólafur Eiríksson
og Haukur Gunnarsson. Mikil
áhersla hefur verið lögð á það hjá
íþróttafélaginu að koma upp
íþróttahúsi félagsins að Hátúni
12. Nú er verið að steypa annan
áfanga hússins og reiknað er með
að honum verði lokið í desember
á þessu ári. Enn vantar þó fé í
bygginguna og er þess vænst að
almenningur og opinberir aðilar
sýni málinu skilning með fjár-
framlögum. Fólk getur komið
framlögum á sérstakan gírór-
eikning byggingarsjóðs og er
númer reikningsins 50075-0339.
Manuela Wiesler.
Hundadögum
lýkur
Lokatónleikar Hundadaga verða
haldnir í kvöld í íslensku Óper-
unni. Aðalstjórnandi tónleik-
anna verður Frakkinn Pascal
Verrot, sem talinn er meðal
fremstu yngri stjórnenda í dag.
Verrot starfar ma. sem aðstoðar-
hljómsveitarstjóri Sinfóníu-
hljómsveitar Bostonar. Hákon
Leifsson verður gestahljóm-
Kynþáttaaðskilnaður
Israelsmanna
Félagið Ísland-Palestína skorar á
íslensk stjórnvöld að mótmæla
harðlega kynþáttastefnu ísra-
elskra stjórnvalda gagnvart Pal-
estínuaröbum. Ísland-Palestína
hvetur einnig alla áhugamenn um
mannréttindi til að láta sig varða
um hagi allra íbúanna í Landinu
helga. Þessi mótmæli eru sett
fram vegna nýrra ráðstafana ísra-
sveitarstjóri á tónleikunum og
stjórnar í einu verki. Manuela
Wiesler verður einleikari tónleik-
anna en efnisskráin er mjög fjöl-
breytt. Flutt verða verk eftir Bo-
ulez, Satie, Schubert, Þorkel Sig-
urbjörnsson ofl.. En Manuela
leikur einmitt einleik í verki
Þorkels, sem ekki hefur verið
flutt opinberlega hér á landi
áður, eins og öll hin verkin, að 3.
sinfóníu Schuberts undanskil-
inni. Hljómsveit tónleikanna
verður hljómsveit Hundadaga.
elsmanna sem Ísland-Palestína
segja auðmýkjandi gagnvart íbú-
um Gazasvæðisins, sem ísrael
hernam 1967. íbúarnir verða nú
að sýna ísraelsku lögreglunni
tölvutæk nafnskírteini þegar þeir
fara til vinnu utan svæðisins.
Þetta gildir einungis um þá íbúa
Gazasvæðisins sem ekki játa gyð-
ingatrú. En vegna eftirspurnar
eftir ódýru vinnuafli í ísrael, hef-
ur flóttamönnum verið heimilað
að vinna „óæðri störf“ fyrir gyð-
inga, jafnvel í fyrri heimkynnum
sínum. Þar mega flóttamennirnir
þó ekki dvelja yfir nótt og njóta
engra þeirra félagslegu réttinda
sem þykja sjálfsögð á Vestur-
löndum.
Brú yfir
Gilsfjörð
Ungmennasamband Dalamanna
og Norður Breiðfirðinga skorar á
samgönguráðherra, Steingrím J
Sigfússon og Vegagerð ríkisins,
að hraða ákvörðunartöku um
brúargerð yfir Gilsfjörð. í álykt-
un frá UDN segir að brúargerð
þessi myndi gjörbreyta allri sam-
vinnu á milli Dalasýslu og
Austur-Barðastrandarsýslu, ekki
hvað síst á sviði æskulýðs- og
íþróttamála. Hér sé um mikið
byggðamál að ræða. Með brú yfir
Gilsfjörð verði ungmennum í fá-
mennum byggðarlögum auðveld-
að að þjappa sér saman til að
njóta þeirra tómstunda sem
hverjum og einum séu nauðsyn-
legar.
Starfsmenntun
í atvinnulífi
Sérstakri nefnd á vegum félags-
málaráðherra hefur verið falið að
semja lagafrumvarp á grundvelli
niðurstaðna vinnuhóps sem Jó-
hanna Sigurðardóttir skipaði í
fyrra. Markmiðið með væntan-
legri löggjöf á að vera að bæta
verkemenntun og vinnuum-
hverfi, auka framleiðni fyrir-
tækja og treysta stöðu einstakl-
ingsins á vinnumarkaðnum, með
því að gera honum kleift að tak-
ast á við ný eða breytt verkefni.
Þá er stefnt að því að ná fram
virku atvinnulýðræði með því að
búa starfsmenn undir þátttöku og
ábyrgð í stjórnun og rekstri fyrir-
tæicja.
Barnsburðarleyfi
Réttur
aukinn
Ólafur Ragnar Grímsson, fjár-
málaráðherra, hefur gefið út
tvær nýjar reglugerðir í samræmi
við síðustu kjarasamninga við
BSRB, BHMR og Kennarasam-
band Islands. Viðmiðunartímabil
vegna yfirvinnu og vaktaálags er
lengt úr 6 mánuðum í 12. Laun
starfsmanna sem eru frá vegna
veikinda eða barnsburðar miðast
því hér eftir við meðaltal heildar-
launa á undangengnum 12 mán-
uðum í stað 6.
í tilkynningu frá fjármálaráðu-
neytinu segir, að með nýrri reglu-
gerð hafi konur í barnsburðar-
leyfi sama uppsagnarfrest og aðr-
ir starfsmenn ríkisins, eða 3 mán-
uði. En áður gilti sú regla að
starfsmaður sem ætlaði að segja
uppi vinnu í lok barnsburðar-
leyfís, þurfti að tilkynna það við
upphaf þess. Eftir að barnsburð-
arleyfið var lengt úr þremur mán-
uðum, þykir þessi regla ekki
lengur réttlætanleg.
Konur geta nú lengt leyfi sitt
við barnsburð í 12 mánuði, í stað
9 áður. Laun starfsmanns lækka
sem samsvarar lengingu leyfis en
starfsmaðurinn heldur öllum
réttindum sínum. Þá geta konur í
sérstökum aðstæðum skipt barns-
burðarleyfi sínu, td. ef barn þarf
að vera á sjúkrahúsi og konan vill
frekar taka hluta barnsburðar-
leyfis út eftir að barnið er komið
heim. Þá er ítrekað í reglugerð-
inni, að óheimilt sé að segja
barnshafandi konu upp starfi,
nema af gildum ástæðum og að
skylt sé að færa barnshafandi
konu til í starfi, krefjist heilsufar
hennar þess, en hún haldi samt
sömu launum og áður.
-hmp
Merki Krabba-
meinsfélagsins
Krabbameinsfélag íslands gengst
fyrir fjáröflun með merkjasölu
helgina 1.-3. september næst
komandi. í mörg ár aflaði félagið
fjár með merkjasölu í byrjun
september en sú venja var aflögð.
Nú er hún tekin upp aftur og
munu aðildadarfélög Krabba-
meinsfélagsins, sem eru 29 að
tölu, sjá um söluna. Félögin fá
helming afrakstursins til eigin
starfsemi en hinn helmingurinn
rennur til Krabbameinsfélags fs-
lands sem stundar umfangsmikla
starfsemi, svo sem leitarstarf og
rannsóknir. Sala merkjanna fer
fram í sjálfboðavinnu og vonast
Krabbameinsfélagið eftir að vel
verði tekið á móti sölufólki.
Skipulagðar
tannlækningar
Guðmundur Bjarnason, heil-
brigðisráðherra, hefur skipað
nefnd til að gera tillögur um
skipulagða tannlæknaþjónustu
og semja frumvarp þar að lút-
andi. í nefndinni eru Guðjón
Magnússon aðstoðarlandlæknir,
Magnús R. Gíslason í heilbrigðis-
og tryggingamálaráðuneytinu og
Ingimar Sigurðsson skrifstofu-
stjóri í heilbrigðis- og trygging-
amálaráðuneytinu, en hann er
formaður nefndarinnar.
Siglingartæki
kynnt
Á morgun fer Skiparadíó hf. af
stað með sérstakan sýningarbíl
hlaðinn nýjustu siglinga- og fisk-
leitartækjum frá FURUNO og
fleirum.
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 29. ágúst 1989