Þjóðviljinn - 29.08.1989, Page 7

Þjóðviljinn - 29.08.1989, Page 7
IÞROTTIR Kampakátir Framarar að loknum sigri ( bikarkeppninni. Fótbolti-Bikarkeppnin Biðin ekki á enda Titlaþrá KR-inga dugði ekki gegn sprœkum Frömurum í fjörugum úrslitaleik Framarar áttu ekki í miklum vandræðum með að leggja KR-inga að velli í úrslitaleik bikarkeppninnar á sunnudag og verða Vesturbæingar að bíða lengur eftir bikarmeistaratitli. í fyrri hálfleik réðu Framarar algerlega ferðinni og kom á daginn að tveggja marka forysta þeirra í leikhléi dugði til sigurs. Guðmundur Steinsson og Pétur Ormslev unnu þarna sinn fímmta bikarmeistaratitil og skópu öðrum fremur sann- gjarnan sigur Framara. Guðmundur skoraði tvívegis eftir undirbúning Péturs sem sjálfur skoraði eitt mark í þessum 3-1 sigri. Leikurin var einstaklega fjör- ugur og skemmtilegur á að horfa og bauð upp á flest það sem slíkir leikir geta boðið upp á. KR-ingar virtust alls ekki ætla að sætta sig við ósigur í þessum langþráða úr- slitaleik. Pétur Pétursson jafnaði Staðan 1. deild FH...........14 7 5 2 20-11 26 Fram ........15 8 2 5 19-13 26 KA...........14 6 6 2 19-12 24 KR...........14 6 5 3 22-17 23 (A.......... 15 7 2 6 15-16 23 Valur....... 15 6 3 6 16-14 21 Víkingur....14 4 5 5 21-19 17 Þór..........15 3 6 6 16-23 15 Fylkir......15 4 1 10 15-28 13 ÍBK........... 15 2 5 8 15-25 11 Markahæstir HörðurMagnússon, FH...........9 Kjartan Einarsson, ÍBK........9 GuðmundurSteinsson, Fram......8 Pétur Pétursson, KR...........7 Anthony Karl Gregory, KA .....6 Goran Micic, Víkingi..........6 Ragnar Margeirsson, Fram .....6 2. deild Stjarnan 15 12 1 2 38-13 37 Víðir ......15 10 2 3 21-15 32 ÍBV............14 9 0 5 37-27 27 UBK............15 6 4 5 33-24 22 Selfoss........15 7 1 7 19-25 22 ÍR............ 15 4 5 6 17-20 17 Leiftur........15 4 5 6 13-16 17 Tindastóll .. 15 4 2 9 27-25 14 Völsungur ..15 3 2 10 20-37 11 Einherji.....14 3 2 9 17-40 11 Markahæstir EyjólfurSverrisson.Tindast....11 Jón Þórir Jónsson, UBK........11 Tómasl.Tómasson.ÍBV...........10 Árni Sveinsson, Stjörnunni.....9 GrétarEinarsson, Víði..........8 IngiBjörnAlbertsson, Selfossi,.8 Sigurlás Þorleifsson, ÍBV......8 leikinn, 1-1, aðeins skömmu eftir að Guðmundur hafði náð foryst- unni fyrir Fram. Rúnar Kristins- son sneri þá laglega á varnar- mann Fram og sendi á Pétur sem skallaði í netið. En þetta mark hafði lítil áhrif á sókndjarfa Framara. Á 17. mín- útu leiksins, aðeins þremur mín- útum eftir að Pétur jafnaði, náði Pétur Ormslev forystunni á ný þegar hann skoraði í autt markið eftir sendingu frá Kristni R. Jónssyni. Og á 28. mínútu skoraði Guðmundur Steinsson svo sigurmarkið eftir glæsilega sendingu Péturs og höfðu Fram- arar þar með gert út um leikinn strax í fyrri hálfleik. Leikurinn róaðist talsvert í síðari hálfleik. Framarar héldu fengnum hlut og var sigur þeirra aldrei í hættu, enda var engu lík- ara en að KR-ingar hefðu játað sig sigraða eftir markamikinn fyrri hálfleik. Lið Fram lék sennilega sinn besta leik í sumar og var varla veikan blett að finna í leik þess. Samleikur Framara var oft á tíð- um einstaklega skemmtilegur og ekki síður árangursríkur einsog mörkin í fyrri hálfleik sýna. Auk Péturs Ormslev og Guðmundar Steinssonar er vert að geta frammistöðu Kristins R. Jóns- sonar á miðjunni sem stjórnaði leik liðsins einstaklega vel og las leikinn fullkomlega. Hjá KR bar Rúnar Kristinsson af þótt minna hefði borið á hon- um í síðari hálfleik. Hrein unun er að sjá hvernig piltur fer með bolta og hlýtur að vera stutt í að erlend lið falist eftir honum í sínar raðir. Pá var Pétur sífellt ógnandi frammi, en fékk ekki þá aðstoð sem þurfti til að gera meiri usla í vörn Fram. Framarar eru vel að þessum sigri komnir, en geta nagað sig í handarbökin vegna stöðu sinnar í deildinni um þessar mundir. Ef liðið leikur einsog á sunnudag getur fátt stöðvað það til að endurheimta meistaratitilinn, en verið getur að það sé of seint að leika meistaratakta eftir tapið gegn Þór. KR-ingar segjast ekki af baki dottnir í deildarkeppninni en ólíklegt verður að teljast að liðið eigi enn möguleika á þeim vígstöðvum. Liðið leikur mjög mikilvægan leik gegn FH á morg- un því sigri Vestubæjarliðið jafn- ar það bæði FH og Fram sem nú eru á toppnum. Þau úrslit myndu einnig auka líkur Framara á sigri í deildinni en ef Fram ver titil sinn í deildinni kemst KR í Evrópu- keppni bikarhafa svo það er til mikils að vinna fyrir Vesturbæj- arljónin á morgun. -þóm 1. deild Fylkir á von Valur endanlega úr leik í keppninni um meistaratitilinn Fylkir bar sigurorð af Val á rennblautum Árbæjarvellinum í gærkvöld með þremur mörkum gegn engu. Rétt einsog í úrslita- leik bikarkeppninnar voru öll mörkin fjögur gerð I fyrri hálfleik og kunnu áhorfendur flestir vel að meta stöðuna í leikhléi. Það voru reyndar Valsmenn sem náðu forystunni í leiknum og leit út fyrir enn einn ósigur Fylkis í deildinni. Sævar Jónsson skoraði úr vítaspyrnu á 11. mín- útu eftir að brotið hafði verið á Þórði Bogasyni. Fyrri hálfleikur var rösklega hálfnaður þegar Baldur Bjarnason jafnaði og stuttu síðar náði Örn Valdimars- son forystunni úr vítaspyru. Þeg- ar um fimm mínútur voru til leikhlés skoraði Finnur Kolbeins- son svo þriðja mark Fylkis sem reyndist vera síðasta mark leiksins. Valsmenn reyndu ákaft að jafna metin í síðari hálfleik en höfðu ekki erindi sem erfiði. Sóknir þeirra voru of einhæfar og marklausar til að marktækifæri gætu skapast og Fylkir hlaut því þrjú mjög dýrmæt stig í fallbar- áttunni. Liðið á enn raunhæfa möguleika á að halda sér í deildinni en aðeins tvö stig skilja nú Þór og Fylki. Valur er hins- vegar úr leik í baráttunni um meistaratitilinn og eru mögu- leikar liðsins á að ná Evrópusæti einnig harla litlir. Allur vindur virðist úr liðinu eftir ágæta byrjun í sumar og hefur liðið aðeins hlotið fimm stig úr síðustu átta deildarleikjum. Keflvíkingar eru nánast fallnir eftir 0-1 ósigur á Skaganum á laugadag. Aðalsteinn Víglunds- son skoraði sigurmarkið og fyrir vikið eiga Akurnesingar enn möguleika á að hreppa Evrópu- sæti áttunda árið í röð. -þóm 1. deild kvenna Valur meistari Valsstúlur tryggðu sér íslands- meistaratitilinn með 4-0 sigri á KA á laugardag enda þótt þær eigi einum leik ólokið. Guðrún Sæmundsdóttir (2), Kristín Arnþórsdóttir og Bryndís Valsdóttir skoruðu mörk Vals í leiknum. Heildarupphæð vinninga 26.8 var 1.928.158 Enginn hafði 5 rétta sem var kr. 1.645.772 Bónusvinninginn fengu 2 og fær hvor kr. 143.006 Fyrir 4 tölur réttar fær hver 6.325 og fyrir 3 réttar tölur fær hver um sig 396. Sölustaðir loka 15 mínútum fyrir útdrátt í Sjónvarpinu. Upplýsingasímsvari 681511. Lukkulínan: 99 1002. Þriðjudagur 29. ágúst 1989 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.