Þjóðviljinn - 06.09.1989, Side 6
ERLENDAR FRETTIR
Elsass-
Muammar Gaddafl Líbíuleið-
togi flutti í .gær ræðu á
leiðtogaráðstefnu Ríkja utan
hernaðarbandalaga, sem nú
stendur yfir í Beograd. Sagði
hann af og frá að gyðingar fengju
að búa áfram í Palestínu og lagði
til að Elsass-Lóthringen yrði gert
að þeirra fyrirheitna landi, eða
þá sovésku Eystrasaltslýðveldin
eða Alaska.
Gaddafi, sem í ræðustólnum
var klæddur þjóðbúningi, hvítum
síðstakk og með svartan hatt,
færði þau rök að þessari tillögu
sinni að Pjóðverjar og Frakkar
hefðu svo oft barist um Elsass-
Lóthringen að ganga mætti að því
sem vísu að þeir myndu gera svo
oftar. Væri því upplagt að setja
gyðinga þar niður til að stía
tveimur nefndum þjóðum í sund-
ur. Baltnesku löndin tilnefndi
hann sökum þess, að hann kvað
Úkraínska hefst
til virðingar
Stjórnvöld Úkraínu og æðstu
menn þarlends kommúnista-
flokks tilkynntu í gær, að fyrir-
hugað væri að gera úkraínsku að
helsta opinbera máli landsins,
sem er annað fjölmennasta lýð-
veldi Sovétríkjanna með um 50
miljónir íbúa. Hefur þessi til-
kynning vakið mikla athygli, ekki
síst af því að úkraínska forustan
hefur verið talin í íhaldssamara
lagi. Þjóðernishyggja og sjálf-
stjórnarstefna hafa undanfarið
vaxið að fylgi í Úkraínu sem í
mörgum öðrum sovétlýðveldum,
og er greinilegt að ráðamenn þar-
lendis hafa nú ákveðið að koma
til móts við þær hreyfingar.
Gaddafi
Lóthringen nýtt Israel
Rússa gera illa með því að leyfa
sovéskum gyðingum að flytjast til
ísraels, og þar sem Bandaríkja-
menn væru svo miklir vinir gyð-
inga, hversvegna vildu þeir þá
ekki setja þá niður í Alaska? Það
land hefðu þeir þar á ofan keypt
af Rússum.
Svo er að heyra að frekar erfitt
hafi stundum verið að fylgja
þræðinum í máli iíbíska leiðtog-
ans, sem talaði í 90 mínútur, enda
þótt júgóslavneskir gestgjafar
ráðstefnunnar hefðu takmarkað
ræðutíma við 20 mínútur. Kurr-
uðu Júgóslavar og fleiri því illa
undir tölu Gaddafis, en létu þar
við sitja. Á undan sér til Beograd
hafði Gaddafi sent sex úlfalda-
kýr, svo að hann gæti nærst á
mjólk þeirra meðan ráðstefnan
stæði yfir. Reuter/-dþ.
Gaddafi - mættur á leiðtogaráðstefnu með sex úlfaldakýr.
Kúrdar
Saka Iransstjóm um
morð á leiðtoga
Kúrdneski lýðræðisflokkurinn
í íran, sem hefur bækistöðvar
í írak, hefur hafnað boði írönsku
stjórnarinnar um að teknar séu
að nýju upp viðræður stjórnar-
innar og flokksins. Fyrri við-
ræðum þessara aðila, sem fóru
fram í Vín, lauk í júlí s.l. er vopn-
aðir menn réðust inn á fundar-
menn og skutu til bana Abdelra-
hman Qassemlu, aðalritara
áminnsts flokks Írans-Kúrda, og
tvo aðstoðarmenn hans.
I viðræðunum var fjallað um
kröfur flokksins um sjálfstjórn til
handa Kúrdum í íran, en þar eru
þeir að sumra mati um átta milj-
ónir. Rafsanjani fransforseti
bauðst fyrir nokkru til að taka
upp viðræður við flokkinn að
nýju, en flokkurinn telur að hans
menn í Vín hafi verið myrtir að
undirlagi íransstjórnar. Segist
flokkurinn ekki samþykkja við-
ræður að nýju, fyrr en full rann-
sókn hafi farið fram í morðmál-
inu og að morðingjunum hafi ver-
ið refsað. íransstjórn kveður sig
saklausa af glæpnum og ber hann
upp á fraksstjórn.
Frá því að íslamska byltingin
svokallaða var gerð í íran 1979
hefur Kúrdneski lýðræðisflokk-
urinn þarlendis háð vopnaða bar-
áttu gegn íransstjórn. Að sögn
talsmanns flokksins felldu skæru-
liðar hans yfir 40 íranska her-
menn í bardögum í norðvestur-
héruðum frans í s.I. viku.
Reuter/-dþ.
Bandaríkin
Krakkið veldur stríðsástandi
Þetta stórhættulega eiturlyfbreiðist óðum útþarlendis. Það er „eiturlyf fátœka mannsins “
sökumþess hve ódýrtþað er og auðvelt aðframleiða það
Lögreglumenn í Flórída leita á eiturlyfjasölum, sem þeir hafa hand
tekið - þrátt fyrir allar aðgerðir breiðist plágan út.
Eiturlyf sem nefnt er krakk
(crack) og unnið er úr kókaíni
á drjúgan þátt í því að í stórum
hlutum sumra bandarískra stór-
borga ríkir nú nánast stríðs-
ástand. Hingað til hefur krakkið
einkum verið plága í stærstu
borgunum og þá einkum þeim
sem eru í austurhluta landsins og
á vesturströndinni, en nú breiðist.
það óðum út til miðsvæða Banda-
ríkjanna og smærri þéttbýlis-
staða.
Krakkið er síður en svo eina
eiturlyfið, sem veldur stórtjóni í
Bandaríkjunum. Önnur eiturlyf
hafa einnig náð útbreiðslu um svo
að segja allt landið. En yfirvöld
óttast krakkið mest af því öllu,
sökum óaldarinnar sem það hef-
ur valdið í stórborgum. Ef marka
má yfirvöldin, eru ofbeldisglæpir
í höfuðborginni Washington fyrst
og fremst krakkinu að kenna. Að
tiltölu við fólksfjölda eru nú
framin þar fleiri morð en í nokk-
urri annarri borg landsins. Það
sem af er árinu hafa yfir 300
manns verið myrtir þar í borg.
Dómsmálaráðuneyti Banda-
ríkjanna upplýsti í s.l. mánuði að
áberandi væri orðið hve krakkið
hefði undanfarið breiðst ört út í
dreifbýli Suðurríkjanna. En ljóst
væri að það væri nú einnig komið
til svæða, sem hefðu verið ósnort-
in af því til skamms tíma, og voru
í því sambandi nefnd ríkin Ohio,
Oklahóma, Pennsylvanía, Texas,
Virginía og Vestur-Virginía.
Hættan sem stafar af krakkinu
er ekki einungis söjcum þess að
það er sterkt eiturlyf og að menn
ánetjast því fljótt, heldur og af
því hve ódýrt það er. Algengt er
að skammtar af því séu seldir á
götunni fyrir um þrjá dollara, en
minnsti skammtur af kókaíni
kostar vart undir 50 dollurum.
Þessvegna hefur svo að segja
hver sem er efni á því að kaupa
krakk. Það er því fyrst og fremst
eiturlyf fátæklinga og unglinga.
Krakicið er mjög vanabindandi,
einkum það afbrigði þess sem er
reykt. Fulltrúar heilbrigðisyfir-
valda segja það algengt, að menn
ánetjist því þótt þeir hafi reykt
það aðeins einu sinni.
Þeir sem forfallnir eru orðnir í
krakkið gera hvað sem er til að
verða sér úti um það, stela, ræna,
drepa, leggjast í vændi o.s.frv.
Margir þeirra gerast aðstoðar-
menn sölumanna þeirra, sem
hafa eiturlyf þetta til fals. Sér-
fræðingar um þetta efni segja að
það, hve auðvelt sé að framleiða
krakk og hve ódýrt það sé eigi
mikinn þátt í ofbeldinu samfara
því. Að standa fyrir framleiðslu,
smygli og dreifingu á heróíni og
kókaíni er vart á færi nema ræki-
lega skipulagðra glæpahringa,
stórlaxa í bransanum. En krakk
getur nánast hver sem er fram-
leitt, ef hann kemst yfir smávegis
af kókaíni. Þessvegna er mikið
um það í skuggahverfum banda-
rískra borga að fátæk ungmenni
freisti þess að verða rík með
þessu móti. Mikill fjöldi þeirra,
sem reyna að auðgast á þennan
hátt, leiðir svo aftur af sér geysi-
harða samkeppni um markaðinn.
Þar eigast við stærri og smærri
hópar krakkframleiðenda og
-sala, sem berjast af grimmd um
markaðssvæði, strádrepa hver
annan en ekki sjaldnar annað
fólk, sem lendir í skotlínunni.
Richard Gephart, leiðtogi
þingflokks demókrata í fulltrúa-
deild Bandaríkjaþings, segir
krakkverslunina hafa afhjúpað
ófagra hlið hins frjálsa markaðs-
kerfis og framtaks Bandaríkj-
anna. Hörð samkeppnin milli ót-
eljandi smárra bófahópa, sem
berjist um markaðinn í hinum
ýmsu hverfum, hafí hleypt af stað
ótal smástríðum milli þeirra í
stórborgunum, og að nú sé hætta
á að svoleiðis nokkuð fari einnig
að gerast í dreifðari byggðum.
Kókaínbarónar Kólombíu
leggja til hráefnið í krakkið, en í
sölu þess eiga þeir engan þátt, að
mati bandarískra embættis-
manna. Þeir sem framleiða þetta
stórhættulega eiturlyf og selja
það eru einkum ungir bandarískir
bófar, sem eru að reyna að verða
ríkir með tiltölulega auðveldu
móti.
Reuter/-dþ.
Bannað að
grínast með
konungsfjölskyldu
James Lovell leikara, sem fer
með hlutverk trúðs á sýningu í
Lundúnum, þar sem farið er yfir
sögu Bretakonunga, hefur verið
gefið það til kynna að hann megi
ekki grínast með núverandi kon-
ungsfjölskyldu. Stjórnendur sýn-
ingarinnar áminntu leikarann um
þetta allhöstuglega, eftir að hann
hafði sleppt út úr sér bröndurum
af tilefni skilnaðar Önnu prins-
essu og Marks Phillips höfuðs-
manns. Framkvæmdastjóri sýn-
ingarinnar komst svo að orði, að
annaðhvort yrði Lovell að láta sér
nægja að skrípast með Hinrik átt-
unda (þann sem átti drottning-
arnar sex) og annað kóngafólk í
fortíð, eða að láta af starfi.
„Rambó, hvað
dvelur þig?“
Um 400 kristnir Líbanar söfn-
uðust í gær saman við sendiráð
Bandaríkjanna í Beirút og
kröfðust hjálpar þeirra í stríði sínu
við Sýrlendinga. „Rambó, hvað
dvelur þig?“ hrópaði fólkið.
Kristnir Líbanar eru margir reiðir
trúbræðrum sínum á Vestur-
löndum, sem lítt hafa sinnt hjálp-
arbeiðnum þeirra í borgara-
stríðinu. Kröfufundur þessi stóð
ekki lengi við rammlega víggirt
sendiráðið, því að fundarmenn
urðu innan skamms að leita
skjóls vegna stórskotahríðar frá
íslamska vesturbænum.
Herferð gegn
veiðiþjófum
Sambískir villidýraverðir hafa
handsamað um 200 veiðiþjófa
og gert upptækt fyrir þeim mikið
af vopnum í leit, sem undanfarið
hefur staðið yfir í tveimur hér-
uðum í austurhluta landsins.
Veiðiþjófar, sem selja fílabeinið
fyrir drjúgan skilding á svörtum
markaði, hafa strádrepið fílastofn
Sambíu síðustu árin, svo að frá
1981 hefur fílum þarlendis fækk-
að úr um 160.000 í um 45.000.
51 fórst
í Thames
Lík sem fannst í Thamesfljóti
fyrir skömmu er talið vera af Ant-
onio de Vasconcellos, banka-
stjóra af portúgölskum ættum. Er
þá talið að fundin séu lík allra
þeirra, sem fórust er dýpkunar-
prammi sigldi á skemmtibát í s.l.
mánuði. Þykir nú sannað að 51
maður hafi þá farist, og er þetta
mesta slys sem orðið hefur á
Thames í meira en öld. Verið var
að halda upp á 26 ára afmæli
Vasconcellos er slysið varð.
Heroínfundur
í Hongkong
Lögreglan í Hongkong fann
fyrir skömmu birgðir af nærri
hreinu heróíni, sem metnar eru á
420 miljónir dollara. Er talið að
þetta sé annar mesti heróínfund-
urinn hingaðtil íheiminum. Fjórar
manneskjur, allar Hongkongbú-
ar, hafa verið handteknar í þessu
sambandi. Tvær af þeim eru karl-
menn, bílstjóri og lífvörður að at-
vinnu, og tvær húsmæður. Lög-
reglan telur að til hafi staðið að
smygla heróíninu til Bandaríkj-
anna eða Ástralíu.
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 6. september 1989