Þjóðviljinn - 28.09.1989, Blaðsíða 9
IÞROTTIR
FLÓAMARKAÐURINN
SMÁAUGLÝSINGAR
Til sölu
Citroén Visa ’80. Ensk-íslensk oröa-
bók og Sturlunga. Auk þess bækur af
ýmsu tagi. Ennfremur Grundig út-
varpsfónn, vandað tæki. Á sama stað
óskast sófaborð og hillur. Uppl. í síma
18475.
Eldhúsborð og kollar
Hvítt eldhúsborð 80x120 cm (150) og
fjórir hvítlakkaðir eldhúskollar til sölu.
Selst allt á kr. 5.000.- Uppl. í síma
681648.
Framköllunargræjur
Durst c 35 stækkari, framköllunar-
dós, bakkar, tangir og Ijós til sölu. Allt
sem nýtt, selst á kr. 25.000.- Uppl. í
síma 681648.
Til sölu
Á vægu verði svefnsófi með tveimur
skúffum. Þarf lítilsháttar lagfæringar.
Uppl. í síma 32678.
Járn bylgjuklemmur
Á einhver eldri kona eða hárgreiðslu-
kona til þessar klemmur? Ef svo er þá
vinsamlegast hafið samband við Hár-
greiðslustofuna í Seljahlíð í síma
73633 eða 78806.
Herbergi
Til leigu í Vesturbæ, fallegt umhverfi.
Uppl. í síma 27050 eða 24235.
Til sölu
Orion sjónvarp með fjarstýringu.
Uppl. í síma 689788 eftir kl. 19.00.
Tll sölu
Cortina árg. '79, skoðaður '89. Verð
40 þús. staðgr. Einnig til sölu vara-
hlutir í Cortinu og Lödu. Uppl. í síma
78998.
Fræsari
Af sérstökum ástæðum er til sölu nýr
ónotaður Makita handfræsari 1500
w, carbitfræsitennur fylgja. Uppl. gef-
ur Jóhann í síma 36424 á kvöldin.
Halló!
Ég er að verða 5 ára og ég á dúkku-
hús sem afi minn smíðaði fyrir meir
en 30 árum. Átt þú einhver húsgögn í
húsið sem þú getur séð af? Ef svo er
viltu þá hringja í síma 612325 á kvöld-
in eða í Guðrúnu í síma 628181 að
deginum.
Þvottavél
Gömul nothæf þvottavél óskar fyrir
lítið. Uppl. í síma 40667 um helgina.
Ný svampdýna
Til sölu er ný svampdýna í hjónarúm,
selst á hálfvirði. Uppl. í síma 40667 á
föstudag eftir kl. 17.00.
Barnabílstólar
til sölu
Maxí Kósí barnabílstóll og barnabíl-
stóll fyrir 9 mánaða - fjögurra ára.
Uppl. í sima 22887.
íbúð óskast
Þriggja herbergja eða stærri á leigu í
lengri tíma. Helst í Kópavogi, Garða-
bæ eða Hafnarfirði. Öruggar
greiðslur og góð umgengni. Greiðs-
lugeta er 30.000.- á mánuði,. Uppl. í
síma 91-42199. Sigga eða Ásdís.
Svefnbekkur og fataskápur
Til sölu svefnbekkur með rúmfata-
skúffu og gamall lakkaður fataskápur
með hillum og slá. Uppl. í síma
688943 eftir kl. 17.00.
Fæst gefins
Símaborð með áföstum stól og gam-
alt snyrtiborð fæst gefins gegn því að
vera sótt. Uppl. í síma 14997 eftir kl.
17.00.
Til leigu
Herbergi með sérinngangi. Uppl. í
síma 39136.
Hillusamstæða
Dökk hillusamstæða, 3 einingar til
sölu. Selst ódýrt. Uppl. í síma 50342.
Til sölu
Dodge Aspen 1979, sjálfskiptur, til
niðurrifs. Uppl. í síma72072 eftir kl.
20.00.
Til sölu
Sturlunga á mjög góðu verði. Uppl. í
síma 79215.
Óska eftir
Gömlu litlu skrifborði. Uppl. í síma
27481.
Rafmagnsþjónustan og
dyrasímaþjónustan
Þarftu aö láta laga raflögnina eða
dyrasímann? Við höfum sérhæft okk-
ur í lagfæringum og breytingum á
gömlum raflögnum. Þú færð vandaða
vinnu á sanngjörnu verði. Gerum
kostnaðaráætlanir eða tilboð. Krist-
ján Sveinbjörnsson rafvirkjameistari,
sími 44430.
ísskápur
Nýlegur Zanussi ísskápur til sölu.
Uppl. gefur Sigga Rósa í síma 33438,
Til sölu
Stórt símaborð, fjórir borðstofustólar,
stór kommóða (góð geymsla), nýr
stuttur pels ca. nr. 42 og ný svört
kápa. Uppl. í síma 34931.
Til sölu
fyrir mjög lítið SAAB 99 með dráttar-
kúlu, útvarpi, pioneer hátölurum og
Ijósi í afturrúðu. Gott boddý. Enn-
fremur er bíllinn á mjög góðum dekkj-
um. Uppl. í síma 73664.
Til sölu
Nýskoðaður Trabant '86, sumar- og
vetrardekk. Ekinn aðeins 20.000 km.
Uppl. í síma 681331 á daginn og
40297 eftir kl. 17.00.
Óska eftir
Furukommóðu, kvenreiðhjóli og
barnastól á hjól. Helst mjög ódýrt.
Uppl. í síma 31135 eða 37933.
Citroén BX 16 TRX 1984
ekinn 105 þúsund km. Silfurgrár, ný-
skoðaður og nýyfirfarinn til sölu.
Verðtilboð. Uppl. í síma 681648.
ísskápur
Gamall ísskápur fæst gefins. Uppl. í
síma 13164.
Handband og viðgerðir
á nýjum og gömlum bókum. Fagmað-
ur. Upplýsingar í síma 23237.
Átt þú gamalt
baðkar á Ijónsfótum
sporöskjulagað, emelerað, sem þú
getur lánað í sjónvarpskvikmynd?
Ef svo er hringdu þá í okkur í síma
693860 eða 693867.
Sjóminjar
Áttu sjóminjar e.ða veistu um miniar
sem tengjast sögu sjávarútvegs á Is-
landi? Sjóminjasafn íslands tekur á
móti öllum slíkum munum, gömlum
og nýjum til varðveislu. Hafið sam-
■band í síma 91 -52502 á milli kl. 14 og
’18 alla daga. Sjóminjasafn íslands.
í Kolaportinu
geta allir selt nánast hvað sem er.
Pantið sölubása í símum 6211/0 (kl.
16-18) og 687063 (á kvöldin). Útveg-
um afgreiðslufólk ef óskað er. Selj-
endur notaðra muna fá núna sölu-
bása á aðeins kr. 1.500.
Kolaportið - a'lltaf á laugardögum.
Nýjung frá Banana Boat
Sólbrúnkufestir fyrir Ijósaböð. E-
vítamíngel, græðir exem, psoriasis,
ör. Hárnæringarúði, upplitar, lýsir.
Græðandi varasalvi. Aloe Vera gel úr
töfrajurtinni sem inniheldur yfir 50 ví-
tamín og steinefni. Heilsuval, Lauga-
vegi 92 (Stjörnubíóplaninu),
póstkröfusími 626275, 11275. Hödd,
Barónstíg, Árbæjar-, Borgar- og
Garðsapótek, Baulan, Borgarfirði,
Stúdíó Dan, Isafirði, Ferska, Sauðár-
króki, Hlíðarsól, Sigríður Hannes-
dóttir, Ólafsfirði, Heilsuhornið, Akur-
eyri, Snyrtist. Hilma, Húsavík, Bláa
lónið, Grindav., Heilsubúðin, Hafnar-
firði, Bergval, Kópav. Heilsuval er
einnig með: Megrun, svæðanudd,
vítamíngreiningu, orkumælingu, hár-
rækt með leiser, rafmagnsnuddi og
„akupunktur".
Styrkir til bifreiðakaupa
Tryggingastofnun ríkisins veitir hreytihömluö-
um styrki til bifreiðakaupa. Nauösyn bifreiðar
vegna hreyfihömlunar skal vera ótvíræö.
Umsóknir vegna úthlutunar 1990 fást hjá af-
greiðsludeild Tryggingastofnunar ríkisins
Laugavegi 114 og hjá umboösmönnum hennar
um land allt.
Umsóknarfrestur er til 1. nóvember
Tryggingastofnun ríkisins
Fótbolti
íslendingar
riðu ekki
feitum hesti
íslensku liðin úr leik í
Evópukeppninni.
Maradona mistókst í
vítaspyrnukeppni
Oll íslensku liðin í Evrópu-
keppnunum í knattspyrnu féllu
úr keppninni í gær. Fram tapaði
fyrir Steaua Búkarest á Laugar-
dalsveliinum, 0-1, Valur tapaði 1-
2 gegn Dínamó Berlín ytra og
Skagamenn töpuðu fyrir FC
Liege í Belgíu.
Leikur Framara var fremur tíð-
indalítill á að horfa. Framarar
vörðust ágætlega en máttu oft á
tíðum sín lítils gegn rútíneruðu
liði Rúmena. Steaua lék nokkuð
rólega, enda vann liðið fyrri
leikinn 4-0, og skapaði sér ekki
mörg marktækifæri. Framarar
áttu hinsvegar nokkrar ágætar
skyndisóknir. Guðmundur
Steinsson slapp tvívegis einn inn
fyrir vörn Steaua en tókst ekki að
notfæra sér það og Ómar Torfa-
son átti þrumuskot rétt framhjá
marki Steaua um miðbik síðari
hálfleiks. Skömmu síðar skoraði
Adrian Negrau eina mark
leiksins eftir nokkur klaufaleg
mistök í röð í vörn Framara. Eftir
það datt leikurinn enn frekar nið-
ur og var lítið fyrir augað.
Valur lék í Austur-Berlín og
tapaði 2-1 fyrir liði Dínamó frá
þeirri borg. Valur tapaði reyndar
með sama mun hér heima þannig
að útkoman hjá þeim er alls ekki
svo slæm. Þá féll ÍA einnig úr
keppni en liðið lék gegn FC Liege
í Belgíu.
Önnur athyglisverð úrslit í
Evópukeppnunum voru á þá leið
að Evrópumeistararnir AC Mil-
an unnu HJK Helsinki með einu
marki gegn engu. Stefano Borga-
nova skoraði markið en AC Mil-
an vann samanlagt 5-0.
Landar þeirra í Napolí lentu í
öllu meiri erfiðleikum gegn
Sporting Lissabon frá Portúgal.
Leik þeirra lauk með markalausu
jafntefli-einsog fyrri leiknum-og
því varð að grípa til vítaspyrnu-
keppni. Allt ætlaði um koll að
keyra þegar sjálfur Diego Mara-
dona klúðraði fjórðu vítaspyrnu
Napolí eftir að lið hans hafði
komist yfir 3-2. Þaö kom ekki að
sök því Fernardo Gomes tókst
ekki að skora úr síðustu spyrnu
Sporting.
Það þurfti einnig að grípa til
vítaspyrnukeppni í leik Fiorent-
ina og Atalanta. Renato Buso
skoraði eina mark leiksins fyrir
Fiorentina en Atalanta hafði
unnið fyrir leikinn með sömu
markatölu. Fiorentina vann vít-
akeppnina, 3-1.
Teitur og Ólafur Þórðarsynir
riðu ekki feitum hesti úr viður-
eign Brann við ítalska liðið Sam-
pdoria. Brann tapaði að vísu að-
eins 1-0 í Genóvu en hafði tapað
fyrri leiknum 0-2 og er því úr leik.
Sama má segja um okkar ástsæla
Sigfried Held en lið hans, Galat-
asaray, tapaði fyrir Rauðu
Stjörnunni í Belgrad, 2-0. Fyrri
leikurinn fór 1-1 og því eru Held
og félagar úr leik.
Sovéska liðið Spartak Moskva
vann Atalanta frá Italíu 2-0. Fyrri
leikurinn fór 0-0 og því eru Mos-
kvubúar komnir áfram. Sama má
segja um Dnjeproptrovsk sem
vann Linfield frá N-írlandi 1-0 og
fyrri leikinn 2-1. Einnig vann Dí-
namó Kíjev liðið MTK Búdapest
1-2 og því samanlagt 6-1.
-þóm
ÞJÓÐVILJINN - SIÐA 9
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagið I Kópavogi
Félagsfundur
verður haldinn mánudaginn 2. október kl. 20.30 í Þinghól.
Dagskrá:
1. Bæjarmálin.
2. Kosning í uppstillinganefnd fyrir aðalfund.
3. Önnur mál.
Stjórnin
Kjördæmisráðstefna
á Norðurlandi vestra
Aðalfundur kjördæmisráðs á Norðurlandi vestra verður haldinn í Vertshús-
inu á Hvammstanga sunnudaginn 1. október og hefst kl. 11.00.
Ólafur Ragnar Grímsson fjármálaráðherra verður gestur fundarins.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórn kjördæmisráðs
Almennur fundur
á Hvammstanga
Alþýðubandalagið boðar til al-
menns fundar í Vertshúsinu á
Hvammstanga sunnudaginn 1.
október nk. kl. 16.00.
Ólafur Ragnar Grímsson fjár-
málaráðherra og Ragnar Arnalds
alþingismaður hefja umræður og
svara fyrirspurnum.
Fundurinn er öllum opinn.
Aiþýðubandalagið
Ragnar
Arnalds
Ólafur
Ragnar
Félagsfundur á Sauðárkróki
Alþýðubandalagið boðar til almenns fundar í Villa Nova á Sauðárkróki
laugardaginn 30. september nk. kl. 16.30.
Ólafur Ragnar Grímsson fjármálaráðherra og Ragnar Arnalds alþingis-
maður verða á fundinum.
Fundurinn er opinn öllum.
Alþýðubandalagið
Alþýðubandalagid á Austurlandi
Aðalfundur kjördæmisráðs
Aðalfundur kjördæmisráös Alþýðubandalagsins á Austurlandi verður
haldinn laugardaginn 14. október frá klukkan 9 - 20 (Valaskjálf á Egilsstöð-
um.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnmálaviðhorfið. Hjörleifur Guttormsson alþingismaður og Ólafur
Ragnar Grímsson fjármálaráðherra.
3. Lagabreytingar. Fulltrúi laganefndar Alþýðubandalagsins.
4. Þróun atvinnulífs á Austurlandi.
l-ramsaga: Axel Beck, Elisabet Benediktsdóttir, Finnbogi Jónsson og Ás-
geir Magnússon.
5. Nefndastörf.
6. Kosningar.
7. Önnur mál.
Stjórnin
Alþýðubandalagið Suðurlandi
Aðalfundur kjördæmisráðs
Alþýðubandalagsins á Suðurlandi verður dagana 7. og 8. október 1989.
Fundurinn hefst á laugardag 7. október kl. 10.00 í Brydebúð við Víkurbraut,
Vík í Mýrdal.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Gestir fundarins verða Ólafur Ragnar Grímsson og Svanfríður Jónasdóttir.
Stjórn kjördæmisráðs
Auglýsið í
Nýju Helgarblaði
Eiginmaður minn, faðir og afi
Ágúst Jóhannesson
Faxabraut 32, Keflavík
verður jarðsettur frá Keflavíkurkirkju, fimmtudaginn 28.
september kl. 14.
Bergljót Ingólfsdóttir
Jóhannes Agústsson
Hrólfur Brynjar Ágústsson
Guðrún Ágústsdóttir
Dúa Berg
Útför
Þorvaldar Jónssonar
Miklubraut 64, Reykjavík
fer fram frá Sauðárkrókskirkju laugardaginn 30. septemb-
er kl. 16.
Kveðjuathöfn verður í Fossvogskirkju föstudaginn 29. 9.
kl. 10.30.
Oddný Þorvaldsdóttir Hólmar Magnússon
Jón Þorvaldsson Guðný Einarsdóttir
Ingibjörg Þorvaldsdóttir
barnabörn, barnabarnabörn og barnbarnabarnabörn.