Þjóðviljinn - 12.10.1989, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 12.10.1989, Blaðsíða 16
■"SPURNINGIN™ Á að fækka eða fjölga þingmönnum? Árni Már Árnason. húsasmiður: Hafa það einsog er, - þeir mættu þó gera betur. Fjármagnið er á alltof fárra höndum. Guðmundur Gunnlaugsson. ellilífeyrisþegi: Fækka þeim snarlega og ráð- herrunum líka, nóg að hafa sjö þar, - þetta er ekki nema fimm manna vinna og tæplega það. Guðmundur Snæbjörnsson. verkamaður: Það á að fækka þeim hiklaust. Það er yfirdrifið nóg af þessu liði, - alveg yfirdrifið. Lísa Matthíasdóttir. nemi: Hvernig í ósköpunum á éa. það, - ég veit ekki hvað p margir. að vita eir eru Guðríður Guðmundsdóttir. starfsstúlka á sjúkrahúsi: Það fer náttúrulega eftir því hvernig þeir standa sig. Þetta er spurning um hvort þeir sinna því sem þarf og þeir eiga að sinna. þiómnuiNN Flmmtudagur 12. október 1989 170. tölublað 54. órgangur SIMI 681333 Á KVÖLDIN 681348 SÍMFAX 681935 vskf? Hvemig er frádráttarheimildin í viröisaukaskatti? Cj.. •# m&Mr' X\fé '&=sax\éÞ /f/l mí Endurgreiðsla ef innskattur er hærrí en útskattur nnskattur á ákveðnu uppgjörstímabili kann að verða hærri en útskattur sama tímabils. Þetta getur t.d. gerst vegna fjárfestingar (bygging eða viðhald fasteignar fyrir reksturinn eða kaup á dýrum tækjum) 'eða ef fyrirtækið safnar birgðum. Einnig ef fyrirtæki selur undanþegna vöru eða þjónustu (t.d. útflutningur). í þessum tilvikum endurgreiðir ríkissjóður mismun innskatts og útskatts. Skilyrði frádráttar Innskattur dregst frá útskattí irðisaukaskattur sem fyrirtæki greiðir af vöru og þjónustu sem það kaupirtil nota í rekstrinum er nefndur innskattur. Virðisaukaskattur sem fyrirtæki innheimtir af sölu sinni er hins vegar nefndur útskattur. Við uppgjör til ríkissjóðs dregur fyrirtækið þann innskatt sem það greiðir á hverju uppgjörstímabili frá útskattinum sem það hefur innheimt á sama tímabili, þ.e. fyrirtækið greiðir aðeins mismuninn á útskatti og innskatti. Innskattur af flestum aðföngum er frádráttarbær ilyrði fyrir frádrætti eru: • Að fyrirtækið stundi skattskylda starfsemi. • Að keypt vara eða þjónusta sé til nota í rekstrinum. • Að innskatturinn sé bókfærður á grundvelli löglegs fylgiskjals (reiknings eða tollskýrslu). Endurgreiðsla er heimil þótt varan sé óseld ^TÍnnskattinn má draga frá á því uppgjörstímabili sem vara eða þjónusta er keypt. Ekki skiptir máli hvort aðföngin eru staðgreidd eða keypt með greiðslufresti. Innskatt af vöru sem keypt er til endursölu eða úrvinnslu má draga frá þótt hún sé óseld í lok uppgjörstímabils. Uppgjörstímabilin eru mislöng rádráttarheimildin nærtil innskatts af svo til öllum aðföngum fyrirtækja sem varða skattskylda sölu þeirra. Það er ekki aðeins innskattur af endursölu- vörum og hráefnum sem kemurtil frádráttar, heldur einnig innskattur af fjárfestingu og rekstrarvörum sem notaðar eru fyrir reksturinn. í nokkrum tilvikum erfrádráttarheimildin takmörkuð. Innskattur af hlunnindagreiðslum, risnu og gjöfum er ekki frádráttarbær. Sama gildir almennt um innskatt vegna fólksbifreiða. [Imennt uppgjörstímabil er tveir mánuðir, en ef útskattureraðjafnaði lægri en innskattur, þannig að fyrirtækið eigi yfirleitt rétt á endurgreiðslu, getur fyrirtæki fengið heimild skattstjóra fyrir skemmra uppgjörstímabili. Uppgjörstímabil bændaersex mánuðir. /JíCd -v* -3 — ■ RSK RfKISSKATTSTJÓRI

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.