Þjóðviljinn - 11.11.1989, Page 1
Laugardagur 11. nóvember 1989 192. tölublað 54. órgangur.
Borgarljósin
Mynd: Jim Smart.
A ustur-Þýskaland
Hlið opnuð á Berlínarmúr
Litið áþetta sem tákn " þess aö Berlínarmúrinn sem hindrun sé úr sögunni. Flestirþeirra
sem fara vestur um hliðin snúa aftur eftir skamma dvöl
Mikill fögnuður ríkir í þýsku
ríkjunum báðum eftir að
stjórnvöld Austur-Þýskalands til-
kynntu á fimmtudagskvöld að
þau hefðu ákveðið að opna land-
amæri sín að Vestur-Þýskalandi
þegar í stað. Fréttaskýrendur
kalla ráðstöfun þessa þá djörf-
ustu, sem austurþýskir ráðamenn
hafi hingað til gert til að lægja
óánægjuöldurnar heimafyrir og
telja jafnframt að tilslökun þessi
muni borga sig fyrir þá.
Opnuð voru hlið bæði í Berlín-
armúrnum og gaddavírsgirð-
ingunni sem aðskilur ríkin og síð-
an á fimmtudagskvöld hafa tug-
þúsundir fagnandi Austur-
Þjóðverja streymt í gegnum þau.
Litið er á þessa ráðstöfun sem
tákn þess, að Berlínarmúrinn sé
úr sögunni sem hindrun. Raunar
var þýðing hans sem hindrunar
orðin næsta takmörkuð áður, eða
frá því fyrir nokkru er Austur-
Þjóðverjum voru leyfðar frjálsar
ferðir suður í Tékkóslóvakíu.
Síðan hafa þeir, sem flytja vilja
vestur, einfaldlega farið suður í
Tékkóslóvakíu og þaðan til
Vestur-Þýskalands.
Að sögn fréttamanns Reuters
láta flestir þeirra, sem vestur fara
um nýopnuðu hliðin, duga að
skreppa í verslanir og skoða sig
um, en snúa síðan heim aftur.
Sumir bera lof á ríkisflokkinn
fyrir ráðstöfun þessa. Er þetta
breyting frá því sem verið hefur
hingað til, er ráðstöfunum
austurþýskra ráðamanna til að
draga úr óánægjunni hefur verið
tekið tómlega af almenningi.
í Berlín er hátíðarstemmningin
sérstaklega áberandi, enda fagna
menn þar endalokum þess óeðli-
lega ástands er varað hefur í 28
ár, er borg þeirra hefur verið
klofin í tvennt og borgarbúum
óheimilt að skiptast á heimsókn-
um yfir múrinn. Þar liggur
straumurinn ekki einungis
vesturyfir, heldur og bregða nú
margir Vestur-Berlínarbúar við
til að skoða sig um í austurborg-
inni og heimsækja ættingja og
kunningja þar. Svo á að heita að
þeim sem fara vestur um hliðin sé
skylt að fá vegabréfsáritun fyrst,
en austurþýsk yfirvöld hættu fjótt
að framfylgja því ákvæði, enda
óhægt um vik sökum þess hve
margir notfærðu sér leyfið til að
fara um hlið, sem þeim hafa verið
lokuð uppundir þrjá áratugi.
Opnun múrsins og þýska hlut-
ans af járntjaldinu hefur vakið
feikna athygli víða um heim. Á
vesturþýska þinginu lá hátíðleiki
í loftinu er fjallað var um málið
og sungu menn þýska þjóðsöng-
inn að umræðu iokinni. Vestræn-
ir stjórnmálaleiðtogar lýsa yfir-
leitt yfir fögnuði af þessu tilefni,
þannig sagði Michel Rocard, for-
sætisráðherra Frakklands, að
sameinað Þýskaland yrði friði f
Evrópu til tryggingar. Grunnt er
þó að líkindum á áhyggjum
undirniðri, einnig hjá vestur-
þýskum ráðamönnum. Kohl
sambandskanslari, sem staddur
var í Póllandi í opinberri heim-
sókn, hraðaði sér heimleiðis er
honum bárust fréttirnar og
kvaðst vilja ræða hið allra fýrsta
við Egon Krenz, hinn nýja leið-
toga ríkisflokks og ríkis í Austur-
Þýskalandi. Talsmaður tékkósló-
vakískra stjórnvalda fagnaði
opnuninni og kvað þau hafa hvatt
til hennar, sennilega vegna þess
að þau vilja losna við þýska fólks-
strauminn í gegn hjá sér. í öðrum
austantjaldsríkjum hafa ráða-
menn látið heldur fátt eftir sér
hafa um þetta. Gennadíj Gera-
símov, talsmaður sovéska utan-
ríkisráðuneytisins, lýsti að vísu
yfir ánægju stjórnar sinnar með
opnunina, en fram kom hjá hon-
um að Sovétmönnum litist ekki á
blikuna ef hún leiddi til endur-
sameiningar Þýskalands.
Reuter/dþ
Loðna
Sjórinn of heitur
Loðnunefnd: 4.500 tonn komin á land. Af47 loðnuskipum eru
20 - 25 ýmist komin á miðin eða að leggja úr höfn
Það sem af er loðnuvertíðinni
hafa borist á land um 4.500 tonn.
í fyrradag landaði Sunnubergið
aðeins 40 tonnum og í gær kom
Höfrungur með 380 tonn til Sigl-
ufjarðar af miðunum suður af
Kolbeinsey.
Ástráður Ingvarsson hjá
Loðnunefnd sagði að loðnan væri
dreifð sökum þess hversu sjórinn
væri heitur miðað við árstíma og
þessvegna er hún meira við botn-
inn en ella. Það skýrir að hluta
hversu mögur loðnan er, en hún
er uppsjávarfiskur; að öðru leyti
er hún sæmilega stór. Það er helst
á nóttinni sem loðnan er veiðan-
leg en þá leitar hún upp frá botn-
inum.
Af þeim 47 loðnuskipum sem
leyfi hafa til veiðanna eru um 20-
25 skip ýmist komin á miðinn eða
í þann veginn að leggja úr höfn. í
sumar náðist þríhliða samkomu-
lag milli íslands, Noregs og
Grænlands um skiptingu loðnu-
stofnsins og þá var úthlutað 662
þúsund lestum til íslenskra
loðnuskipa af 900 þúsund lesta
heildarkvóta landanna þriggja
sem aðild eiga að samningnum
um skiptingu loðnustofnsins.
^grh