Þjóðviljinn - 25.11.1989, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 25.11.1989, Blaðsíða 5
FRÉTTIR Æviráðningar Áskrifandi að launum Fyrrverandi bílstjóri Matthíasar Mathiesen áskrifandi að launum sínum. Fékk œviráðningu rétt áður en stjórn Þorsteins sprakk Ium það bil eitt ár hefur fyrrver- andi bflstjóri Matthíasar H. Mathiesen, verið áskrifandi af launum sínum í samgönguráðu- neytinu vegna þess að Matthías æviréði bflstjórann skömmu fyrir brottför sína úr ráðuneytinu. Ráðherrum fækkaði hins vegar Isumar urðu fjölmiðlaskrif í Færeyjum og hér heima um fjármál Islendingafélagsins íFær- eyjum og var fyrrum formaður þess, Bjarni Pétursson, sakaður um fjárdrátt í sambandi við hús- byggingarhappdrætti félagsins. Endurskoðun hefur nú leitt í Ijós að Bjarni er fullkomlega hreinsaður af ákærum um að hafa dregið sér fé - þvert á móti skuldar félagið honum fé, sem hann hefur lagt út vegna þess. Svo segir í greinargerð frá nú- verandi varaformanni íslend- ingafélagsins, Sigurbirni Guð- mundssyni. Þar er og greint frá aðdraganda málsins sem er þegar Steingrímur Hermannsson tók við stjórnartaumum úr hönd- um Þorsteins Pálssonar og því varð ekki þörf fyrir bflstjórann. Steingrímur J. Sigfússon sam- gönguráðherra segir að ekki hafi tekist að finna manninum önnur störf innan ráðuneytisins og stað- tengdur því, að nýr formaður fél- agsins, Einar Kristjánsson, hafi, þegar beðið var um upggjör vegna fyrrnefnds happdrættis og gögn reyndust á tvist og bast, flýtt sér að draga þá ályktun af öllu saman, að það fé sem ekki fannst við fyrstu sýn hefði Bjarni Péturs- son sölsað undir sig. Þessu hafi Einar komið í fréttamann ís- lenska útvarpsins í Færeyjum og fær útvarpið reyndar ádrepu í bréfi varaformanns fyrir að „bera út óstaðfestar lygasögur“. Þá kemur það einnig fram að á næsta aðalfundi íslendingafélagsins verði lögð fram tillaga um að reka Einar Kristjánsson úr félags- skapnum. festir að hann hafi í meira en ár þegið laun hjá ráðuneytinu án þess að inna þar verk af hendi. í samtali við Þjóðviljann sagði Steingrímur ákaflega óhöndug- legt að kerfið væri þannig, að ekki væri hægt að haga því þannig til að ráðherraskipaðir starfs- menn færu í önnur störf ef ekki væri þörf fyrir þeirra uppruna- lega starf áfram. Við slíkar að- stæður byggi kerfið ekki yfir neinum leiðum til að leysa málið. Menn yrðu að vera staðnir af van- rækslu í starfi eða brjóta eitthvað af sér til að hægt væri að losna við þá. Auðvitað væri líka hægt að leggja starfið niður en það kynni að virka ankannalega vegna þess að þær aðstæður gætu komið upp að þörf skapaðist fyrir bílstjórann með breyttri ráðherraskipan. Þetta sýndi að núverandi kerfi væri úrelt. Steingrímur sagði að íhuga mætti hvort ekki væri óeðlilegt að hafa allan bílstjóraflotann fast- skipaðan þegar það gæti komið upp að ráðherrar yrðu færri en bflstjórar eins og gerst hefði í þessu tilviki. Reynt hefði verið að finna manninum önnur verkefni um leið og ráðherrann hefði gert sér grein fyrir þessari stöðu. Einnig hefði verið reynt að semja við bílstjórann um að láta af störfum en enginn lausn hefði fengist á málinu. Steingrímur sagðist binda vonir við að nýleg fjölgun í ríkisstjórn skapaði bíl- stjóranum verkefni að nýju. -hmp Færeyjar Saklaus sakaður un fjárdrátt Fyrrumformaður íslendingafélagsins í Fœr- eyjum hreinsaður af áburði Listdans í gmnnskólum í gær mættu 5 dansarar úr íslenska dansflokknum og 9 nemendur úr Listdansskóla Þjóðleikhússins í Breiðholtsskóla og sýndu nemendum ýmis dæmi listdans. Þetta var fyrsta sýningin af þessu tagi en strax í næstu viku kemur rööin að Fellaskóla, Ölduselsskóla og Seljaskóla. Hér er á ferðinni kynning á listdansi fyrir grunnskóla sem þær Auður Bjarnadóttir listdansstjóri Þjóðleikhússins og Ingibjörg Björnsdóttir skólastjóri Listdansskólans hafa æft og sett saman. Á dagskránni er lýsing á þjálfun dansara og sýnishorn af barnadönsum, karakterdansi, nútímadansi og sígildum ballett. Mynd Jim Smart. Sagnfrœði 200 ára söguviðbót? Sagnfrœðingafélagið með opinnfund um kenningar dr. Margrétar Hermanns-A uðardóttur arf að bæta 200 árum framan við þá íslandssögu sem við þekkjum? í dag kl. 14:00 hefst í stofu 101 í Lögbergi á Háskólalóð opin ráðstefna Sagnfræðingafé- lags íslands til að bregða ljósi á þær niðurstöður dr. Margrétar Hermanns- Auðardóttur, forn- leifafræðings, að fyrsta byggð á Islandi nái allt aftur á 7. öld. Þetta kemur fram í doktorsritgerð Margrétar sem hún varði í Sví- þjóð á liðnu hausti. Stórir hlutar Islands hafa skv.því verið byggð- ir strax á 7.öld. Þessar niðurstöður hafa þegar vakið mikið umtal og deilur, enda um mikil tíðindi að ræða, ef sönn reynast, eins og dr. Gunnar Karlsson prófesor, formaður Sagnfræðingafélagsins segir. „Það er talsvert um endurmat í ýmsum fræðigreinum núna að ræða, einkum raunvísindum", segir dr.Gunnar, „en sagnfræðin er þar kannski dálítið seinni til. Það er náttúrlega dapurlegt fyrir okkur ef þeir gömlu hafa alltaf haft rétt fyrir sér. Menn eru hættir að reyna eingöngu að fullkomna sannleikann, enda oft ómögulegt, og í staðinn er þess freistað að sjá málin frá afstæðu sjónarmiði. Fornleifafræðin hér- lendis hefur hingað til einkum verið notuð til að þjóna undir sagnfræðina. Margrét Her- manns-Auðardóttir er fyrsti ís- lenski fornleifafræðingurinn sem gengur gegn viðtekinni sögu- skoðun.“ „Ég hélt fyrirlestur um dokt- orsritgerðina í heild og uppgröft- inn í Herjólfsdal í Vestmannaeyj- um á aðalfundi Fornleifafélagsins nú í vikunni," segir dr. Margrét, „og ætlaði ekki að leggja sérstaka áherslu á landnámslagið, en svo snerust umræður samt allar um það. Það er víða áhugi á þessu efni, t.d. hef ég verið beðin að rita inngang að umræðu í erlendu fagtímariti í framhaldi af þessum rannsóknaniðurstöðum mínum. „Það má segja að mín aðferð sé í samræmi við vinnubrögð sem tíðkast í norrænni fornleifafræði. Það besta í henni er ekki staðnað heldur í stöðugri þróun. Varð- andi niðurstöðurnar um byggð hér á 7.öld má geta þess að rann- sóknir í Færeyjum hafa leitt í ljós að þar hefur verið byggð fyrir hið hefðbundna landnámsártal Fær- eyinga, 825. Sjá má merki um norræna byggð fyrir víkingatí- mann á Orkneyjum og Hjalt- landi.“ Dr.Margrét Hermanns- Auðardóttir reifar kenningar sínar á ráðstefnunni, Margrét Hallsdóttir jarðfræðingur ræðir um aldur landnámslagsins, Sveinbjörn Rafnsson prófessor í sagnfræði fjallar um tímasetning- ar landnáms frá sjónarmiði sagn- fræði og fornleifafræði og Árný E. Sveinbjörnsdóttir sérfræðing- ur á Raunvísindastofnun ræðir um ummerki eldgosa í ískjörnum frá Grænlandi. Síðan verða frjálsar umræður og fyrirspurnir. Ráðstefnan hefst kl. 14:00 í Lög- bergi á Háskólalóð. ÓHT Laugardagur 25. nóvember 1989 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5 HELGARRÚNTURINN ÚFF, það er svo mikið um að vera um þessa helgi að maður verður þreyttur við tilhugsunina eina saman. Það erusex myndlistarsýningar opnaðar, Birna Kristjánsdóttir í Ásmundarsal, Svava Björnsdóttir með pappírsskúlptúra í Norræna, Björg Þorsteinsdóttir vestur í Slunkaríki með olíukrít, Hringur í Listasafni ASÍ með málverkin sín, Ingunn Eydal með grafík í Vogaseli 9 og á Mokka iðkar Kristján Hreinsson trúðslæti með vatnslitum... EÐA ÞÁ TÓNLISTIN, maður lifandi. Sinfónían spilar verk eftir Atla Heimi, HjálmarH. RagnarsogfleiriíBorgarleikhúsinuídagkl. 14, Lúðrasveit verkalýðsins, þessi eina og sanna, blæs af kappi í Lang- holtskirkju kl. 17 og á sama tíma verða tvær ungar stúlkur að leika á selló og píanó í Norræna á vegum Styrktarfélags Tónskóla Sigursveins. Um kvöldið er gott framboð á gömlum brýnum í Ármúlanum: Bad Manners í Hollywood og Raggi Bjarna á Hótel fslandi. Og þó manni finnist heldur seint að halda sveitaböll ætlar Síðan skein sól að halda eitt slíkt að Hlöðum á Hvalfj arðarströnd í kvöld. Á morgun, sunnu- dag, er svo ekki úr vegi að lauga þreytt höfuðið á Ijóðatónleikum í Selfosskirkjukl. 16en þá syngur DúfaS. Einarsdóttir messósópran við undirleik Guðbjargar Sigurjónsdóttur. Annað kvöld kemur svo fátt annað til greina en að hlýða á Tómas R. og félaga í Heita pottinum í Duus-húsi... OG LEIKLISTIN, jahérna. Einmana karlmenn drepnir af góð- mennsku á vegum Leikfélags Kópavogs á sunnudagskvöldið, Gorkí er enn á kreiki hjá Frú Emilíu báða dagana kl. 14, Bernharða Alba er að syngja sitt síðasta fyrir norðan í kvöld, Ljósvíkingurinn á báðum sviðum Borgarleikhúss í kvöld og annað kvöld en upp í Gerðuberg er hægt að fara með börnin að sjá Regnbogastrákinn kl. 17 í dag... JÓLABÓKAFLÓÐIÐ er greinilega að hefjast og farið að lesa úr bókum á öðru hvoru götuhorni. Suður í Firði verður lesið úr bókum sem tengjast hafinu, að sjálfsögðu í Sjóminjasafninu, kl. 15 á sunnu- dag, og í Borgarleikhúsinu svífur andi Jónasar Hallgrímssonar yfir vötnum á ljóða- og tónlistardagskrá sem verður flutt í dag og á morgun kl. 15.30... HIÐ ANDLEGA FÓÐRIÐ er ekki naumt skorið heldur. Það eru fund- ir, ráðstefnur og fyrirlestrar bókstaflega út um allt. íslenska málfræði- félagið í Odda allan laugardaginn, Sagnfræðingafélag íslands deilir um það hvenær fyrstu menn skriðu upp á skerið á háskólalóðinni í dag kl. 14, á Hótel Borg er lag hjá Kvenréttindafélaginu sem ræðir um konur í sveitarstjórnum kl. 13.30, Nordvision heldur upp á þrítugsafmæli sittí Norræna kl. 15 báða dagana með dagskrá, Páll Skúlason prófessor spjallar um heilbrigt mat á gæðum lífsins og hlutverk foreldra í Fóstur- skólanum við Laugalækídagkl. 14enámorgun,sunnudag,kl. 14.30 fjallar kollega Páls, Atli Harðarson um frelsi viljans í Lögbergi. Kl. 15 á morgun verður fundur í félaginu Ísland-Palestína í Lækj arbrekku þar sem Slaman Tamimi verður framsögumaður... LÍKAMINN er heldur ekki forsómaður því það er handbolti, körfu- bolti, blak, sund, júdó, badminton og frjálsar, svo eitthvað sé nefnt. Því segi ég enn og aftur: úff...

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.