Þjóðviljinn - 25.11.1989, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 25.11.1989, Blaðsíða 15
í VIKULOK í DAG i gær voru ágæt veðurskilyrði til drullukökugerðar og þessir krakkar á Kópasteini nýttu sér það. Mynd -Kristinn. Kópavogur Kópasteinn 25 ára Metnaður ogfagmennska hefur lengi verið aðalsmerki barnaheimila í Kópavogi, segir Jóhanna Thorsteinsson forstöðukona á Kópasteini 25 ár eru liðin frá því að barna- heimilið Kópasteinn við Hábraut í Kópavogi var opnað en það var jafnframt fyrsta barnaheimilið í Kópavogi. Börn og starfsfólk leik- skólans halda upp á 25 ára af- mælið í dag með afmælisfagnaði sem haldinn verður í samkomu- sal Kársnesskóla í Kópavogi klukkan 15. í tilefni afmælisins verður Kópasteinn opinn öllum sem hafa áhuga á að kynna sér starfsemina vikuna 27.nóvember til l.desember. Á Kópasteini eru starfandi þrjár deildir sem bjóða upp á heildagsvistun og ein deild þar sem boðið er upp á hálfs dags vistun en alls eru 76 börn á Kópa- steini á aldrinum eins til sex ára. - Það hefur löngum farið gott orð af þeirri þjónustu sem Kópa- vogsbær veitir börnum og það má segja að metnaður og fag- mennska hafi lengi verið aðals- merki barnaheimila í bænum. Hér er einn af fáum stöðum sem maður getur verið stoltur af því að vera fóstra, sagði Jóhanna Thorsteinsson forstöðumaður Kópasteins. Kópasteinn var fyrsta barna- heimilið sem byggt var í Kópa- vogi. 25 árum síðar hefur tvívegis verið byggt við húsnæðið en sandkassinn hefur verið á sínum stað frá upphafi og nýtur alltaf sömu vinsælda. Mynd -Kristinn. Bygging Kópasteins hófst árið 1960 en á fundi leikvallanefndar Kópavogs 5. maí það ár var enda- nlega gengið frá lóðakaupum fyrir dagheimilið og ákveðið að hefja byrjunarframkvæmdir. - Þetta var áreiðanlega nokkuð umfangsmikið verkefni fyrir lítið bæjarfélag á þessum tíma en engu að síður var ákveðið að standa að byggingunni með myndarskap, sagði Jóhanna. í upphafi starfse- minnar var ákveðið að taka geymslur til bráðabirgða undir 14 barna deild. Litla deildin er hins vegar ennþá í notkun og þrátt fyrir nokkur þrengsli hefur þótt gott að vinna þar og ekki stendur til að breyta því fyrirkomulagi. Fyrsta forstöðukona Kópa- steins var frú Hólmfríður Jóns- dóttir sem síðar var formaður Fóstrufélags íslands. Á fundi leikvallanefndar 2. september 1964 var fyrsta gjaldskrá dag- heimilisins samþykkt. í>á kostaði heilsdagsvistun 1000 krónur en 600 krónur fyrir hálfan daginn, eftir hádegi. •Þ Dansað í kringum gullkálfinn Kaupgj aldogverðlager með þeim hætti hér á landi að ekki er mikil ástæða til að ætla að margir hafi efni á að dansa í kringum gullkálfinn að þessu sinni. Engu að síður er verslunarauðvaldið þegar farið að setja sig í sóknarstellingar og byrjað að blása í auglýsingaherlúðra sína til að gylla fyrir landsmönnum öll þau herlegheit sem þeim stendur nú til boða á bak við verslunargluggana ef þeir ætla sér á annað borð að verða menn með mönnum um þessi jól eins og endranær. Eins og kunnugt er hefur verslunin sem og aðrar atvinnugreinar fundið fyrir þeim samdrætti sem ein- kennt hefur allt efnahagslíf landsmanna eftir fjár- festingarfylleríið í góðærinu margumtalaða. Sér- staklega hefur þessa samdráttar í verslun og þjón- ustu orðið vart á höfuðborgarsvæðinu með til- heyrandi afleiðingum ss. gjaldþrotum, atvinnuleysi og sameiningu fyrirtækja. Hálmstrá þeirra sem enn tóra í bransanum af þrjósku fremur en mætti er að kaupgleði almennings bjargi þeim nú sem oft áður. Að þessu sinni er sú von frekar í ætt við óskhyggju en að einhver fótur sé fyrir henni. Eitt af þeim örþrifaráðum sem verslunareigendur grípa til á tímum sem þessum er að færa greiðslu- kortatímabilið fram um viku eða svo í desemberm- ánuði sem þýðir að viðkomandi korthafi sem nýtur sér þessa greiðasemi þarf ekki að standa skil á greiðslu fyrr en 1. febrúar á næsta ári. Með þessu telja búðareigendur sig koma til móts við blankan almenning en j afnframt að það verði til þess að auka veltuna hjá þeim sem er að sjálfsögðu aðalatriðið. Að hinu leytinu er þessi leikur kaupmanna sýnd veiði en ekki gefin. Hjá þeim sem og öðrum sem standa í fyrirtækjarekstri er helsta vandamálið skortur á lausafé. Sá vandi verður ekki leystur með því að binda svo og svo mikið af veltunni í greiðsluk- ortanótum og því er viðbúið að margur neyðist til að selja þessar nótur með afföllum á gráa markaðnum og fái því minna fyrir allt umstangið en upphaflega var gert ráð fyrir. Það hversu verslanir eru snemma á ferðinni í ár með sinn jólaundirbúning minnir á íþróttamanninn sem farinn var að missa kraft sinn og snerpu og þarf því æ lengri undirbúning undir sérhverja keppni. Þegar svo á hólminn er komið er lítið eftir af þrekinu sem fór svo til allt í undirbúninginn og engin inni- stæða fyrir endasprettinum. Það á því ekki að koma neinum á óvart að strax á fyrsta ársfjórðungi á næsta ári munu bætast fjölmargar verslanir í hóp þeirra sem fyrir eru sem auglýsa pláss sitt til leigu eða sölu þar sem þær hafa orðið undir í samkeppninni um hylli buddunnar. En bjartsýnin í þessum bransa ríður ekki við ein- teyming. Eftir því var tekið strax á haustmánuðum að samdrátturinn sem hafði orðið hjá auglýsinga- stofum fyrr á árinu hafði verið stöðvaður. Þá strax var byrjað að skipuleggja og hanna þær umbúðir sem taldar eru nauðsynlegar til að ginna almenning inní þau fjölmörgu musteri sem reist hafa verið Mammon til dýrðar í borg Davíðs sem og víða ann- ars staðar um land allt. -grh þlÓÐVILIINN FYRIR 50 ÁRUM Annaðhvort frelsi alþýðunnar eða einræðisvald braskara og bitlingalýðs. Valdaklíkan sinnir ekki sjálfsögðum kaupkröfum alls verkalýðs, en undirbýr hern- aðarlegt einræði sitt með ótak- mörkuðum fjáraustri og vald- beitingu til handa ríkislögreglu. Öll verkalýðssamtök verða ein- huga að rísa gegn einræðis- áformum. 25. nóvember Laugardagur. 329. dagur ársins, Katrínarmessa. 6. vika vetrar byrjar. Sólarupprás í Reykjavík kl. 10.28 - sólarlag kl. 16.01. Viðburðir Þjóðhátíðardagur Suriname. DAGBÓK APÓTEK Reykjavík. Helgar- og kvöldvarsla lyfj- abúöavlkuna 17.-23. nóv. er í Laugavegs Apóteki og HoltsApóteki. Fyrrnef nda apótekiö er opið um helgar og annast næturvörslu alla daga 22-9 (til 10 frídaga). Síöarnef nda apótekiö er , opiö á kvöldin f 8-22 virka daga og á laugardögum 9-22 samhliöa hinu fyrr- nefnda. LÖGGAN Reykjavík sími 1 11 66 Kópavogur...........sími 4 12 00 Seltj.nes...........sími f 84 55 Hafnarfj............sími 5 11 66 Garðabær............sími 5 11 66 Slökkvilið og sjúkrabílar: Reykjavik...........sími 1 11 00 Kópavogur...........sími 1 11 00 Seltj.nes...........sími 1 11 00 Hafnarfj............simi 5 11 00 Garðabær............sími 5 11 00 LÆKNAR Læknavakt fyrir Reykjavík, Sel- tjarnarnes og Kópavog er í Heilsu- verndarstöö Reykjavíkur alla virka daga frá kl. 17 til 08, á laugardögum og helgi- dögum allan sólarhringinn. Vitj- anabeiðnir, símaráöleggingar og tima- pantanir í síma 21230. Upplýsingar um lækna og lyfjaþjónustu eru gef nar í sím- svara 18888. Borgarspítalinn: Vakt virka daga kl. 6- 17 og fyrir þá sem ekki hafa heimilis- lækni eöa ná ekki til hans. Landspít- alinn: Göngudeildin er oþin 20-21. Slysadeild Borgarspítalans: opin allan sólahringinn sími 696600. Hafnarfjörður: Dagvakt, Heilsugæslan sími 53722. Næturvakt lækna sími 51100. Garðabær: Heilsugæslan Garöaflöts. 656066, upplýsingar um vaktlækna s. 51100. Akureyri: Dagvakt 8-17 á Læknamið- stööinni s. 23222, hjá slökkviliðinu s. 22222, hjá Akureyrarapóteki s. 22445. Farsími vaktlæknis 985-23221. Keflavik: Dagvakt. Upplýsingars. 3360. Vestmannaeyjar: Neyðarvakt lækna s. 1966. SJÚKRAHÚS Heimsóknartímar: Landspitalinn: alla daga 15-16,19-20. Bórgarspftalinn: virka daga 18.30-19.30, helgar 15-18, og eftir samkomulagi. Fæðingardeild Landspítalans: 15-16. Feðratími 19.30- 20.30. Öldrunarlækningadeild Land- spítalans Hátúni 10 B. Alla daga 14-20 og eftir samkomulagi. Grensásdeild Borgarspítala: virka daga 16-19, helgar 14-19.30. Heilsuverndarstöðin við Barónsstíg opin alla daga 15-16 og 18.30-19.30. Landakotsspítali: alla daga 15-16 og 18.30-19. Barnadeild: heimsóknir annarra en foreldra kl. 16-17 daglega. St. Jósefsspitali Hafnarfiröi: alla daga 15-16 og 19-19.30. Klepps- spitalinn: alla daga 15-16 og 18.30-19. Vestmannaeyjum: alla virka daga 15- 16 og 19-19.30. Sjúkrahús Akraness: alla daga 15.30-16 og 19-19.30. Sjúkra- húslð Húsavík: alla daga 15-16 og 19.30-20. ÝMISLEGT Hjálparstöð RKÍ. Neyöarathvarf fyrir ung- linga Tjarnargötu 35. Sími: 622266, opið allan sólarhringinn. Sálfræðistöðin. Ráögjöf i sálfræöilegum efnum. Sími 687075. MS-félagiðÁlaridi 13. Opið virkadagafrá kl. 8-17. Siminner 688620. * Kvennaraðgjótin Hlaðvarpanum vestur- götu 3. Opið þriðjudaga kl.20-22, fimmtudaga 13.30-15.30 og kl. 20-22, sími21500, simsvari. Sjálfshjálparhópar þeirra sem oröiö hafa fyrirsifjasþellum, s. 21500, símsvari. Upplýsingar um eyðni. Simi 622280, beint samband viö lækni/hjúkrunarf ræöing á miðvikudögum kl. 18-19, annars sím- svari. Samtök um kvennaathvarf, simi 21205. Húsaskjól og aöstoð fyrir konur sem beittar hafa veriö ofbeldi eöa orðið fyrir nauögun. Samtökin '78. Svarað er i upplýsinga- og ráðgjafarsíma félags lesbía og homma á mánudags-ogfimmtudagskvöldum kl. 21- 23. Simsvari á öörum timum. Síminn er 91-28539. Bilanavakt rafmagns- og hitaveitu: s. 27311. Raf magnsveita bilanavakt s. 686230. Vinnuhópur um sifjaspellamál. Simi 21260allavirkadagakl. 1-5. Lögf ræðiaðstoð Orators, félags laga- nema, er veitt í síma 11012 milli kl. 19.30 og 22.00 áfimmtudagskvöldum. „Opið hús" krabbameinssjúklinga Skógarhlíö 8 er „Opiö hús" fyrir alla krabb- ameinssjúklinga og aöstandendur þeirra á fimmtudögum kl. 17.00-19.00. Samtök áhugafólks um alnæmisvand- ann sem vilja styðja við smitaða og sjúka og aðstandendur þeirra. Hringið í síma91 - 22400 alla virka daga. GENGIÐ 24. nóv. 1989 kl. 9.15. Sala Bandarikjadollar.............. 62.83000 Sterlingspund................. 98.10900 Kanadadollar.................. 53.83900 Dönsk króna.................... 8.95650 Norskkróna..................... 9.16290 Sænskkróna..................... 9.80800 Finnsktmark................... 14.90630 Franskurfranki................ 10.20800 Beigískur franki............ 1.65690 Svissneskur franki............ 38.97640 Hollensktgyllini.............. 30.84360 Vesturþýskt mark.............. 34.79830 Itölsklíra..................... 0.04721 Austurrískur sch............... 4.93850 Portúg. Escudo.............. 0.40130 Spánskur peseti................ 0.54370 Japansktyen.................... 0.43700 (rsktpund..................... 91.64100 KROSSGÁTA Lárétt: 1 ragn 4 borð6 guði7skjót9lok12 trufla14henda15hár 16lykt19glyrna20 seðla21 úrgangsefniö Lóðrétt: 2 umdæmi 3 hreina 4 lagardýr 5 ó- sínki7lakastan8fá- tækling 10kaupiö 11 gjöld 13 eins 17 tindi 18 angur Lausnásfðustu krossgátu Lárétt: 1 gröf 4 sótt 6 ætt7skúr9lsak12 raman 14 arg 15 aaða 16 alger 19 dóni 20 gild 21 gnægð Lóðrétt: 2 rík 3 færa 4 stía 5 stía 7 skadda 10 snæriðH kladdi 13 mág17lin18egg Laugardagur 25. nóvember 1989 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.