Þjóðviljinn - 25.11.1989, Side 9
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 25. nóvember 1989
SKÁK
Jóhann ætti þó að geta haldið jafntefli í biðskák þeirra úr 8. umferð
Nýr tónn í íslenskri hljóm-
plötuútgáfu leit dagsins Ijós
nú í vikunni. Nýr tónn var
sleginn í sögu jassins því fram
í sviðsljósiö steig nýtt full-
skapað jasstónskáld með
hljómplötuna Nýr tónn, ís-
lenska jassplötu sem ein-
göngu inniheldur íslenskar
tónsmíðar. Tónskáldið er
kontrabassaleikarinn Tómas
R. Einarsson, en hann leikur
jafnframt á bassa á hljómplöt-
unni.
Með Tómasi R. eru engir
aukvisar. PéturÖstlund trommar
en þetta er í fyrsta skipti sem
þessi frægasti jasslandi okkar ber
húðir á ísienskri jassplötu.
Trompet- og flygilhornleikarinn
Jens Winther kom frá Kaup-
mannahöfn til þess að blása með
Tómasi. Þá eru ónefndir tveir ís-
lenskir snillingar, píanóleikarinn
Eyþór Gunnarsson og saxófón-
blásarinn Sigurður Flosason.
Lukkulegur
með útkomuna
„Ég er bara skrambi lukku-
legur með útkomuna," sagði
Tómas í viðtali við Þjóðviljann.
„Ég gekk með plötuna í magan-
um í eitt og hálft ár. Elsta lagið,
Ortega, samdi ég í upphafi ársins
1988 fyrir Stórsveit Ríkisútvarps-
ins. Ég fékk svo styrk úr tón-
menntasjóði Rásar 2 til að semja
6 lög fyrir píanó, bassa, trommur
og þrjá blásara. Sú hugmynd tók
svo breytingum einsog gengur og
gerist og að lokum ákvað ég að
fækka blásurunum um einn. Sjálf
plötuhugmyndin fæddist ekki
fyrr en um síðustu áramót.
Þegar lögin voru tilbúin þurfti
að velja flytjendur og má eigin-
lega segja að engir aðrir en þessir
fjórir hafi komið til greina. Við
Sigurður höfum leikið saman í
áratug og Eyþór er minn
Ieiðbeinandi varðandi hljóma og
ýmislegt annað, auk þess sem við
höfum leikið saman á þremur
plötum, Þessum ófétis jassi,
Hinsegin blús og þessari. Jens lék
með okkur á Hinsegin blús og ég
hafði spilað með Pétri norður á
Akureyri og einusinni hér í
Reykjavík sumarið 1988 og náði
þá ágætu sambandi við hann og
því kviknaði hugmynd um hvort
hægt væri að fá hann hingað frá
Stokkhólmi til þess að leika með
okkur.“
Upptaka plötunnar var all sér-
stæð miðað við upptökur í dag
því, hljómsveitin lék tónverkin
beint inn á tveggja rása segul-
band og stundum voru fyrstu
tökurnar notaðar. Þetta verður
til þess að tónn plötunnar er mjög
hreinn því allar yfirtökur bitna á
hljómgæðum. Þá höfðu tónlistar-
mennirnir mjög skamman tíma til
æfinga, bara tvo sólarhringa áður
en tónlistin var frumflutt á tón-
leikum í Norræna húsinu sl.
sumar. Þaðan var svo haldið
beint í hljómver og platan tekin
upp á tveimur sólarhringum.
„Þegar svona törn með nýrri
tónlist er skipulögð verða flytj-
endur að þekkja til hvers annars
svo þetta sé mögulegt. Ég hafði
farið yfir tónlistina með þeim Sig-
urði og Eyþóri áður en þeir Pétur
og Jens komu til Iandsins og Pét-
ur hafði fengið hluta af lögunum
á segulbandi. Jens vildi hinsvegar
ekki vita hvað hann ætti að spila
fyrr en á hólminn væri komið.
Hann vinnur þannig. Það má
segja að það sé aðal jassins. Hann
hellti mér út í hana. Ég hef alltaf
sökkt mér ofan í það sem ég hef
áhuga á og þetta varð að ástríðu
hjá mér. Ég átti alls ekki von á að
verða atvinnumaður í tónlist en
varð það engu að síður.
Það má segja að jassinn sé að
mörgu leyti öðru vísi en aðrar á-
stríður, kannski vegna þess að
það tekur töluverðan tíma að
komast inn í þessa tónlist. En
þegar menn eru komnir inn eru
engar leiðir út. Jassinn heltekur
menn. Þarna eru miklar ástríður,
frjáls sköpun og fínasta lyrík. í
jassinum einsog í öðrum listum
lifir fólk fyrir andann. Jassinn er
handan efnisins og því hverfur
fólk inn í þennan heim.“
En hver er staða jassins á ís-
landi í dag?
„Hann lifir þokkalegu lífi. Það
heyrast alltaf af og til raddir um
gamla gullaldartíma. Menn
dreymir alltaf um slíka tíma en
gleyma þá að njóta samtímans.
Ég held að jassinn sé við ágæta
heilsu.“
Það vekur athygli að þótt lögin
á plötunni séu samin af bassa-
leikara, þá er bassinn alls ekki
áberandi hljóðfæri á plötunni. Þú
virðist ekki skrifa tónlist til þess
að fá að brillera sjálfur.
„Það er bara eitt lag með bass-
asólói á plötunni, Bleikir fílar.
Bassinn getur eðli sínu sam-
kvæmt ekki stöðugt verið í fram-
línunni. Hans eðli er að vera bak-
sviðs. Sjálfur sem ég allt á píanó
og skil ekki menn sem geta samið
eitthvað að marki á annað hljóð-
færi en píanó. Tónskáldið verður
að heyra afstöðuna milli laglín-
unnar og hljómanna. Það er að
minnsta kosti grundvallaratriði
fyrir mig. Þar feta ég í fótspor
Mingusar sem samdi aldrei neitt á
bassa. Það hlýtur að vera mjög
takmarkaður sjóndeildarhringur
hjá þeim sem hugsa tónsmíðar
ekki út frá hljómborði.“
Kröftum safnaö
Hvert stefnir svo jassinn í dag?
„Sjöundi og áttundi áratugarn-
ir voru tímar stórra byltinga og
ýmissa tilrauna. Sá tími er liðinn.
Nú eru menn að safna saman
brotum héðan og þaðan. Tón-
listarmenn sækja sitt lítið af
hverju úr ýmsum áttum, í bopp-
ið, fönkið og frjálsjassinn og það
má benda á það að sú kynslóð
sem ólst upp með bítlum og rokki
er að uppgötva svingið aftur.
Ekki sjálfan svingtímann sem
slfkan, heldur sveifluna í öllum
jassi. Það er verið að vinna úr
jassklassíkinni. Menn eru m.a.
að hverfa frá daðri við þjóðlagak-
ennda tónlist og einbeita sér í
staðinn að því að finna hvað jas-
sinn hefur upp á að bjóða.
Kynslóðin sem er að taka við
núna er að safna kröftum til
stærri átaka. Ungir jassarar í dag
viðurkenna að þeir muni ekki
gera neitt stórt nema þeir séu vel
að sér í því sem áður hefur verið
gert á þessu sviði.“
Að lokum má geta þess að ann-
aðkvöld mun Tómas kynna
plötuna í Heita pottinum í Duus-
húsi. Hljómsveitin er að vísu ekki
skipuð sömu mönnum og á
hljómplötunni nema að hluta til.
Sigurður og Eyþór verða með í
Heita pottinum en auk þeirra
mun Matthías Hemstock leika á
trommur og Hilmar Jensson á gít-
ar. Þá mun söngkonan Ellen
Kristjánsdóttir syngja nýtt lag
eftir Tómas við ljóð Guðbergs
Bergssonar, Vorregn í Njarðvík-
um. Tónleikarnir hefjast kl.
21.30.
-Sáf
Garri Kasparov stefnir á enn einn
stórsigurinn á mótinu í Belgrad sem
stendur yfir þessa dagana. Skák hans
og Johanns Hjartarsonar úr 8. um-
ferð fór í bið á fimmtudagskvöldið
eftir rösklega 6 klst. taflmennsku og
mikla baráttu. Það verður að teljast
vel af sér vikið hjá Jóhanni að halda
Kasparov í skefjum í þessari skák.
Jóhann átti lengst af erfiða stöðu en
ekki verður annað séð en að hann geti
verið nokkuð öruggur með jafntefli.
Hann hefur verið í mikill lægð að und-
anförnu en hefur náð sér vel á strik í
Belgrad, vann Júgóslavann Kozul í
fimmtu umferð og síðan Simen Agde-
stein í fyrsta sinn á skákferlinum og
komst þá í annað sæti einn. Hann tap-
aði hinsvegar fyrir Nigel Short í 7.
umferð. Norðmaðurinn Simen Agde-
stein hefur sótt sig mjög og deilir, í
þessum rituðum orðum, 3. sætinu
með góðkunningjum okkar, Jusupov
og Ehlvest.
Eins og fram hefur komið þá sló
Kasparov stigamet Bobby Fischers,
2785 Elo-stig, á mótinu í Tilburg á
dögunum, og ef svo heldur sem horfir
bætir hann enn við stigum í Belgrad
og gæti rofið 2800 stiga múrinn. Eng-
inn skákmaður er líklegur til að veita
honum keppni á lokasprettinum, Jan
Timman er of langt á eftir til að eiga
einhverja möguleika. Staðan eftir
átta umferðir:
1. Kasparov 6 v. + biðskák. 2. Tim-
man 5 v. 3.-5. Agdestein, Jusupov og
Ehlvest 4Vi v. 6. Jóhann Hjartarson 4
v. + biðskák. 7. Short 4 v. 8-.9. Lju-
bojevic og Nikolic 3Vi v. 10.
Damljanovic 3 v. 11. Popovix 2Vi v.
12. Kozul 2 v.
Skák Kasparovs og Jóhanns fylgir
hér. Jóhann gaf heimsmeistaranum
kost á að beita Petyrosjan-afbrigðinu
í drottningarindverskri vörn, 5. a3 en
fékk engu að síður vel teflanlega
stöðu. Eftir 25. .. f5 varð staða hans
afar viðkvæm en þrátt fyrir ítrekaðar
tilraunir tókst Kasparov aldrei að
koma lagi á stöðu hans:
Garrí Kasparov -
Jóhann Hjartarson
Drottningarindversk vörn
1. d4 Rf6
2. c4 e6
3. Rf3 b6
4. Rc3 Bb7
5. a3 d5
6. cxd5 Rxd5
7. e3 Be7
8. Bb5+ c6
9. Bd3 0-0
10. Dc2
(Kasparov hefur unnið ófáa skák-
menn í þessu afbrigði. Engu að síður
velur hann fremur sjaldséða leið nú,
10. e4 er skarpara).
10. ^.. h6
11. 0-0 c5
12. Rxd5 Dxd5 32. Hdl Rd5
13. e4 Dh5 33. Be5 Kh7
30. Rg3 Rf4
31. Bxb7 Hxb7
14. dxc5 BxcS
15. b4 Bd6
16. Bb2 Rc6
17. De2 Had8
18. e5 Bb8
19. Hfdl Re7
20. Be4 Rd5
21. h3 Hd7
22. Hd4 Rf4
23. De3 Hxd4
24. Bxd4 Rd5
25. Del f5
26. exf6 gxf6
27. Rh2 f5
28. Bf3 Dg6
29. Rfl Hf7
34. Rfl f4
35. Bxb8 Hxb8
36. De2 Hg8
37. Df3 Hg7
38. Hel Df5
39. Rd2 Rf6
40. Rc4 Rd5
41. Rd6 Dg6
42. Rb5 Re7
43. Rd4 Rf5
44. Rxe6 Rh4
45. De4 Dxe4
46. Hxe4 Hxg2+
47. Kfl Hh2
48. Rxf4 Hhl +
49. Ke2 Rg6!
Tónlist Nýs hljóms skiptir
mjög í tvö horn, annarsvegar eru
ljóðrænar laglínur á lágu nótun-
um en hinsvegar kraftmeiri tón-
list, jafnvel brugðið á leik með
þekkt lag einsog Bleika pardus-
inn.
„Það er alveg óþarfi að taka sig
100% hátíðlega. Þarna er annars-
vegar þessi þunglynda íslenska
melódía sem ég held svo mikið
upp á og hinsvegar kraftmeiri og
fjörlegri tónlist. Hvað Bleika fíla
varðar þá tileinka ég það lag
Mingusi og Henry Mancini, höf-
undi Bleika pardusins. Það er rétt
að þar minna ákveðnir hlutir á
laglínu pardusins enda er ég ekk-
ert að fela það.“
Mingus
Þegar hlustað er á Nýjan tón
kemur manni ósjálfrátt til hugar
annar meistari bassans og af-
kastamikið tónskáld, Charles
Mingus, og því eðlilegt að spyrja
Tómas hvort Mingus sé fyrir-
myndin.
„Mingus er ekki sá bassaleikari
sem hefur haft mest áhrif á mig,
en sjálfsagt má finna skyldleika
með okkur. Við höfum báðir
reynt að ná hinum djúpa og fal-
lega bassatónn sem er að komast
aftur í tísku hjá bassaleikurum
eftir tíu til fimmtán ára fingra-
hlaup upp og niður hálsinn. Óld
gítarleikaranna og fiðluleika-
ranna á kontrabassann er sem
betur fer liðin. Bassaleikararnir
eru aftur farnir að leika á kontra-
bassa.
Þótt Mingus hafi ekki haft
mikil áhrif á mig sem bassa-
leikara þá hef ég skoðað hann
talsvert sem tónskáld. Hann var
aldrei hræddur við að styggja
fólk. Hann var skapmaður en gat
skrifað mjög falleg lög. Samt
beitti hann aldrei ódýrum
brögðum við tónsmíðar sínar.
Þar réð frumleg hugsun.“
Gömlu dansarnir
á harmonikku
Einhvernveginn hefur maður
það á tilfinningunni að íslenski
jassinn og Tómas hafi alltaf átt
samleið, en s vo er ekki. Jassáhugi
Tómasar er ekki nema rúmlega
áratugar gamall.
„Ég spilaði gömlu dansana á
harmonikku. Ég hreifst reyndar
af blús sem unglingur og hlustaði
mikið á hann, en ég var mjög
lengi að komast inn í jasstónlist-
ina. Ég man að vorið 1977 var ég
á jasstónleikum í París þar sem
Oscar Peterson, Count Basie og
Ella Fitzgerald komu fram. Það
eina sem hreif mig á þeim tón-
leikum var þegar Ella söng „1
ain‘t got nothing but the blues“.
Ég held að ég hafí ekki þekkt
Oscar og Basie í sundur. Reyndar
grunaði mig að Basie væri með
stærri hljómsveit.
Seinna heillaðist ég svo af Stan
Getz og bossanovamússíkinni og
eftir það hef ég ekki hætt að
hlusta á jass.
Það var svo árið 1979 að ég
eignaðist kontrabassa. Fyrst ætl-
aði ég að fá mér saxófón en kunn-
ingi minn sem ég bjó með í Osló
hafði eignast saxófón og það
gekk ekki upp að við spiluðum
báðir á sama hljóðfærið ef við
ætluðum að leika saman. Kontra-
bassinn varð því fyrir valinu. Það
má eiginlega segja að þetta hafi
verið tilviljanakennt.
Jassinn heltekur
Þegar ég flutti aftur til íslands
var Jassvakning á fullu hér og ég
(Eftir miklar flækjur finnur Jóhann
réttu vörnina með því að ná upp-
skiptum á riddurunum kemst hann út
í jafnteflislegt hróksendatafl. Kaspar-
ov var aðvonum óánægður með gang
mála.því staða eftir u.þ.b. 30 leiki gaf
ekki ástæðu til að halda annað en að
enn einn sigur hans væri í sjónmáli.)
50. Rxg6 Kxg6
51. He7 Hxh3
52. Hxa7 h5
53. Ha6 Kg7
54. a4 h4!
(Óvenjulega bíræfinn leikur. Jó-
hann fórnar peðinu á b6, 54. Hxb6
Ha3 55. a5 h3 og hvítur verður að
taka þráskák.)
55. Kfl Ha3
56. Kg2 Kf7
57. b5 Ke7
58. f4 Kd7
59. f5 Kc7
60. Ha8 Hg3+
61. Hh2
a b c d e f g h
- Hér fór skákin í bið. Hún verður
til lykta leidd á sunnudaginn. Jóhann
ætti að halda jafntefli án mikilla erfið-
leika.
Rætt viðTómas R. Einarsson bassaleikara um j ass og aftur j ass
í tilefni nýrrar hljómplötu sem eingöngu inniheldur frumsamda
tónlist eftir Tómas R.
ÞaðerekkinemarúmuráratugursíðanTómasR. Einarsson eignaðist kontrabassa. Mynd Jim Smart.
verður til við stefnumót ólíkra sá að ég skrifaði allar laglínur, hafi sett skorðaðan ramma sem geta þess að allir sem unnu að
hljófæraleikara. hljómasetningu, raddanir og hljóðfæraleikararnir hafa svo hljómplötunni með mér komu
Minn hlutur í tónsmíðunum er anda laganna. Það má segja að ég frelsi til þess að fylla út í. Þá vil ég með ágætar ábendingar.“
Póst- og símamálastofnunin
AUCLYSINGARISIMASKRANNI1990
Undirbúningur vegna prentunar á næstu
Símaskrá stendur yfir.
Gögn varðandi pantanir á auglýsingum
hafa verið send flestum fyrirtækjum
landsins. Þau fást einnig á póst- og
símstöðvunum.
Vinsamlega athugið að allar pantanir,
endurpantanir eða afpantanir, eiga að vera
skriflegar og hafa borist í síðasta lagi
um mánaðamótin nóvember -
desember.
■
SÍMASKRÁIN - AUGLÝSINGAR
PÓSTHÓLF 311-121 REYKJAVÍK
SÍMI 91-29140 - FAX 91-611221
Engin leið út úr jassinum
Dáðadrengnum Kasparov
halda engin bönd