Þjóðviljinn - 25.11.1989, Side 14
V'M.W'
VIÐ BENDUM Á
Iþróttir
Sjónvarpið laugardagur kl. 14.00
- 18.00
Að venju fá fþróttir gott rúm
eftir hádegi á laugardag og bolta-
leikir eru þar efstir á blaði. Kl. 15
er bein útsending úr þýsku
knattspymunni. Þar eigast við
FC Nurnberg og Bayern Munc-
hen. Kl. 17 er svo bein útsending
frá íslandsmótinu í handbolta. Þá
verður bmgðið á skjáinn 50 mín-
útna útsendingu frá snókermí
sem kennt er við Rottmans auk
nokkurra svipmynda frá leikjum í
Evrópumeistaramótinu í fót-
knattleik. Á sunnudag er svo
bein útsending frá bikarkeppni
Sundsambands íslands og hefst
hún kl. 14.00.
Pá er Stöð 2 með íþróttaþátt frá
kl. 17.00 á laugardag fram að
19.19 þar sem farið verður yfir
úrslit helgarinnar í ýmsum grein-
um íþrótta.
Truffaut
Stöð 2 sunnudag kl. 16.40
Kvikmyndaáhugamenn ættu
ekki að missa af þessum þýska
þætti um einn af frumkvöðlum
nýju frönsku kvikmyndabylgj-
unnar, Francois Truffaut. Hann
fæddist árið 1932 og ólst upp við
þröngan kost. Hann fékk
snemma áhuga á kvikmyndum og
sat lon og don í bíó og horfði á
framleiðslu draumasmiðjunnar
einsog aðrir franskir jafnaldrar,
þeirra á meðal Goddard. Þessir
tveir og nokkrir til ruddust svo
fram á sjónarsviði á sjötta ára-
tugnum með kvikmyndir sem
þóttu lausar við alla tilgerð og
eftiröpun. Reyndar hafa þeir sagt
að amrískar B-myndir hafi verið
fyrirmyndin. Meðal mynda
Trauffaut má nefna 400 slögin,
Júlíus og Jim og Græna herberg-
ið. Hann lést árið 1984.
Rubinstein
Sjónvarpið sunnudag kl. 16.50
Píanósnillingurinn Arthur Ru-
binstein lést nýlega í hárri elli.
Hann var þó eftirsóttur kons-
ertpíanisti fram undir það síð-
asta. Hann fæddist árið 1886 í
Rússlandi en flúði land eftir bylt-
inguna og settist að í Bandaríkj-
unum. Á tónleikunum sem sýnd-
ir verða í Sjónvarpinu leikur Ru-
binstein Píanókonsert no. 5 op.
73 eftir Beethoven og Larghetto
úr píanókonsert no. 2 í F moll
eftir Chopin. Það er Parísar-
hljómsveitin sem leikur með og
stjómandi er Paul Klecki.
Dagskrá útvarps og sjónvarps fyr-
ir sunnudag og mánudag er í
föstudagsblaðinu, Nýju helgar-
blaði Þjóðviljans.
SJÓNVARPIÐ
14.00 íþróttaþátturinn
15.00 Þýska knattspyrnan - Bein útsend-
ing frá leik FC Nurnberg og Bayern
Munchen.
17.00 fslenski handboltinn - Bein út-
sending frá Islandsmótinu í handknatt-
leik.
18.00 Dvergríkið Spænskur teiknimynda-
flokkur í 26 þáttum. Leikraddir Sigrún
Edda Björnsdóttir. Þýðandi Sveinbjörg
Sveinbjörnsdóttir.
18.25 Bangsi bestaskinn Breskur teikni-
myndaflokkur.
18.50 Táknmálsfreftir.
19.00 Fréttir og veður.
19.30 Evrópsku kvikmyndaverðlaunin
(EBU Film Price) Bein útsending frá
afhendingu evrópsku kvikmyndaverð-
launanna, sem fram fer í París. Meðal
þeirra kvikmynda sem keppa um verð-
laun er mynd Þráins Bertelssonar,
Magnús. Þulur Arthúr Björgvin Bolla-
son.
22.15 Lottó.
21.20 ’89 á Stöðinni Æsifréttaþáttur í um-
sjá Spaugstofunnar. Leikstjóri Karl Ág-
úst Úlfsson.
21.40 Zappa Dönsk kvikmynd frá 1982
byggð á sögu eftir Bjarne Reuter. Leik-
stjóri Bille August. Aðalhlutverk Adam
Tönsberg, Morten Hof og Peter
Reichardt. Myndin gerist í upphafi sjö-
unda áratugarins og segir frá þremur
unglingum sem mynda með sér klíku. I
byrjun er eingöngu um strákapör að
ræða en síðan leiðast þeir út á hættu-
legrin braut.
23.20 Grái refurinn Kanadísk bíómynd frá
1982. Leikstjóri PhillipBorsos. Aðalleik-
arar Richard Farnsworth, Jackie Burro-
ughs og Wayne Robson. Myndin er
byggð á ævi Bill Miner, póstvagnaræn-
ingja, sem eftir þriggja áratuga fang-
elsisvist snýr sér að lestarránum.
00.50 Útvarpsfréttir í dagskrárlok.
STÖÐ 2
9.00 Með afa
10.30 Júlli og töfraljósið Teiknimynd.
10.45 Denni dæmalausi Lífleg teikni-
mynd með íslensku tali.
11.05 Jói hermaður Spennandi teikni-
mynd.
11.30 Henderson-krakkarnir rLokaþátt-
ur.
12.00 Sokkabönd í stíl Endurtekið frá því
í gær.
12.25 Fréttaágrip vikunnar Fréttum sið-
astliðinnar viku gerð skil. Táknmálsþul-
ur túlkar fyrir heyrnarlausa.
12.45 Stríðshetjur Marlon Brando í upp-
hafi ferils síns, túlkar hér hermann sem
hefur lamast fyrir neðan mitti, hræðslu
hans við að horfast í augu við lifið og
ástina.
14.15 Bflaþáttur Stöðvar 2 Endurtekinn
þáttur frá 13. nóvember s.l.
14.40 í hamingjuleit Leikarinn vinsæli
Steve Martin er hér í hlutverki rithöfund-
ar nokkurs sem nýlega hefur verið
sparkað af kærustunni. Hann vafrar um
göturnar vansæli og ómögulegur og
reynir að finna tilgangs lífsins.
16.10 Falcon Crest Framhaldsmynda-
flokkur.
DAGSKRÁ ÚTVARPS OG SJÓNVARPS
17.00 fþróttir á laugardegl Við lítum yfir
úrslit helgarinnar í íþróttum ásamt öðru
skemmtilegu. Umsjón: Heimir Karlsson
og Birgir Þór Bragason.
19.1919.19 Frétir og fréttatengt efni ásamt
veðurfregnum og iþróttafréttum.
20.00 Evrópa 1992 Hlekkir eða hlunn-
indi? Umsjón: Jón Óttar Ragnarsson.
20.10 Kæri Jón Bandariskur framhalds-
myndaflokkur með gamansömu yfir-
bragði.
20.45 David Lander Breski fréttasnápur-
inn alræmdi er gallharður rannsóknar-
fréttamaður sem hlífir engum.
21.20 Kvikmynd vikunnar - Hinir
vammlausu Stórmynd sem byggð er á
sjónvarpsþáttunum um Eliot Ness og
aðstoðarmann hans, sem háðu harða
baráttu við glæpalýðinn í Chicago á
árum áður. Aðalhlutverk: Robert De
Niro, Sean Connery, Kevin Costner,
Charles Martin Smith og Andy Garcia.
23.20 Magnúm P. I. Vinsæll spennu-
myndaflokkur.
00.10 Adam f júlímánuði árið 1981 urðu
Walsh-foreldramir fyrir þeirri skelfilegu
lífsreynslu að sex ára gömlum syni
þeirra var rænt þegar hann var ásamt
móður sinni í innkaupaferð í stórmark-
aði.
01.50 I Sporðdrekamerkinu Ljósblá
mynd úr hinum danska stjörnumerkja-
hring. - Stranglega bönnuð börnum.
03.20 Maurice Sérstæð og ákaflega vel
gerð kvikmynd. Sagan gerist á púrítan-
ska Játvarðartímabilinu. Ungur maður
uppgötvar samkynhneigð sína og þrátt
fyrir fordæmingu þjóðfélagsins ákveður
hann að standa undir þvi með nýjum
elskhuga sínum.
05.35 Dagskrárlok.
RÁS 1
FM,92,4/93,5
6.45 Veðurfregnir. Bæn, séra Sigurður
Sigurðarson flytur.
7.00 Fréttir.
7.03 „Góðan dag, góðir hlustendur”
Pétur Pótursson sér um þáttinn. Fréttir
sagðar kl. 8.00, þá lesin dagskrá og
veðurfregnir sagðar kl. 8.15. Að þeim
loknum heldur Pétur Pétursson áfram
að kynna morgunlögin.
9.00 Fróttir.
9.03 Litli barnatíminn á laugardegi:
„Midas konunguer er með asnaeyru”
Vilbergur Júlíusson endursagði. Um-
sjón Kristín Helgadóttir.
9.20 Þingmál Umsjón Arnar Páll Hauks-
son.
10.00 Fréttir.
10.03 Hlustendaþjónustan Sigrún
Björnsdóttir svarar fyrirspurnum hlust-
enda um dagskrá Rásar 1, Rásar 2 og
Sjónvarpsins.
10.10 Veðurfregnir.
12.00 Auglýsingar.
12.10 Á dagskrá Litið yfir dagskrá laugar-
dagsins i Útvarpinu.
12.20 Hádegisfréttir
12.45 Veðurfregnir. Auglýsingar.
13.00 Hér og nú Fréttaþáttur í vikulokin.
14.00 Leslampinn.
15.00 Tónelfur Brot úr hringiðu tónlistar-
lifsins í umsjá starfsmanna tónlistar-
deildar og samantekt Bergþóru Jóns-
dóttur og Guðmundar Emilssonar.
16.00 Fréttir.
16.05 íslenskt mál Jón Aðalsteinn Jóns-
son flytur þáttinn. (Einnig útvarpað á
mánudag kl. 9.30)
16.15 Veðurfregnir.
16.30 Dagskrárstjóri f klukkustund Dr.
Jónas Kristjánsson, forstöðumaður
Árnastofnunar.
17.30 Stúdíó 11 Umsjón Sigurður Einars-
son.
18.10 Gagn og gaman Nýjar bækur. Um-
sjón: Sigrún Sigurðardóttir.
18.35 Tónlist. Auglýsingar.
18.45 Veðurfregnir. Auglýsingar.
19.00 Kvöldtréttir.
19.30 Auglýsingar.
19.32 Ábætlr „Rapsódy in Blue" eftir Ge-
orge Greshwin. Katia og Marielle La-
béqu leika á tvö pianó. Stan Getz og
Tríó Oscars Petersons leika tvö lög eftir
Vincent Youmans og Stan Gets.
20.00 Litli barnatíminn: „Midas konung-
ur er með asnaeyru” (Endurtekinn frá
morgni)
20.15 Vfsur og þjóðlög.
21.00 Gestastofan Finnbogi Hermanns-
son tekur á móti gestum á (safirði.
22.00 Fréttir. Orð kvöldsins. Dagskrá
morgundagsins.
22.20 Dansað með harmonikuunnend-
um Saumastofudansleikur í Útvarps-
húsinu. Kynnir Hermann Ragnar Stef-
ánsson.
23.00 Góðvinafundur Endurnýjuð kynni
við gesti á góðvinafundum í fyrravetur.
(Endurtekinn þáttur frá síðasta vetri)
24.00 Fréttir.
00.10 Um lágnættið Erna Guömundsdótt-
ir kynnir.
01.00 Veðurfregnir.
01.10 Næturútvarp á báðum rásum til
morguns.
RÁS 2
FM 90,1
7.03 Á nýjum degi með Margréti
Blöndal. (Frá Akureyri)
10.03 Nú er lag Gunnar Salvarsson leikur
tónlistog kynnirdagskrá Rásar 1, Rásar
2 og Sjónvarpsins.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Tónlist. Auglýsingar.
.13.00 fstoppurinn Óskar Páll Sveinsson
kynnir. (Einnig útvarpað kl. 3.00 næstu
nótt.),
14.00 Iþróttafréttir (þróttafréttamenn
segja frá því helsta sem um er að vera
um helgina og greina frá úrslitum.
14.03 Klukkan tvö á tvö Ragnhildur Arnl-
jótsdóttir og Rósa Ingólfsdóttir.
16.05 Söngur villiandarinnar Einar Kára-
son leikur íslensk dægurlög frá fyrri tíð.
17.00 íþróttir (þróttafréttamenn segja frá
því helsta sem um er að vera um helg-
ina og greina frá úrslitum.
17.03 Fyrirmyndarfólk lítur inn hjá Rand-
veri Þorlákssyni, að þessu sinni Ólafur
Torfason.
19.00 Kvöldfréttir.
19.31 Blágresið biíða Þáttur meö banda-
rískri sveita- og þjóðlagatónlist, einkum
„bluegrass”- og sveitarokk. Umsjón
Halldór Halldórsson. (Einnig útvarpað í
Næturútvarpi aðfaranótt laugardgs).
20.30 Úr smiðjunni Sigurður Hrafn Guð-
mundsson fjallar um saxófónleikarann
Gerry Mulligan. Fyrri þáttur. (Einnig út-
varpað aðfaranótt laugardags kl. 7.03)
21.30 Áfram ísland Dægurlög flutt af ís-
lenskum tónlistarmönnum.
22.07 Bitið aftan hægra Áslaug Dóra
Eyjólfsdóttir.
01.00 Næturútvarp á báðum rásum til
morguns.
Fréttir kl. 7.00, 7.30, 8.00, 8.30, 9.00,
10.00, 11.00, 12.00, 12.20, 14.00,
15.00, 16.00, 17.00, 18.00, 19.00,
22.00 og 24.00.
NÆTURÚTVARPIÐ
02.00 Fréttir.
02.05 fstoppurin Óskar Páll Sveinsson
kynnir. (Endurtekinn frá deginum áður).
03.00 Rokksmiðjan Siguröur Sverrisson.
(Endurtekið úrval frá
fimmtudagskvöldi).
04.00 Fréttir.
04.05 Undir værðarvoð Ljúf lög undir
morgun. Veðurfregnir kl. 4.30.
05.00 Fréttir af veðri, færð og flugsam-
göngum.
05.01 Afram ísland Dægurlög flutt af ís-
lenskum tónlistarmönnum.
06.00 Fréttir af veðri, færð og flugsam-
göngum.
06.01 Af gömlum listum Lög af vinsæld-
alistum 1950-1989. (Veðurfregnir kl.
6.45)
07.00 Tengja Kristján Sigurjónsson tengir
saman lög úr ýmsum áttum. (Frá Akur-
eyri. (Endurl.)
08.05 Söngur villiandarinnar Einar Kára-
son kynnir íslensk dægurlög frá fyrri tíð.
(Endurt.)
BYLGJAN
FM 98,9
07.00-10.00 Páll Þorsteinsson. Alls
kyns upplýsingar fyrir hlustendur sem
vilja fylgjast með, fréttir og veður á sfn-
um stað.
10.00-14.00 Valdís Gunnarsdóttir Sér-
staklega vel valin og þægileg tónlist
sem heldur öllum í góðu skapi.
14.00-18.00 Bjarni Ólafur Guðmunds-
son Leitaðu ekki langt yfir skammt. Allt
á sinum stað, tónlist og afmæliskveðjur.
18.00-19.00 Arnþrúður Karlsdóttir -
Reykjavík sfðdegis. Finnst þér að
eitthvað mætti betur fara f þjóðfólaginu f
dag, þín skoðun kemst til skila. Sfminn
er 61 11 11.
19.00-20.00 Snjólfur Teitsson. Afslapp-
andi tónlist í klukkustund.
20.00-24.00 Haraldur Gíslason. Halli er
meö óskalögin i pokahorninu og ávallt f
sambandi við iþróttadeildina þegar við
á.
24.00-07.00 Næturvakt Bylgjunnar.
Hann heitir „Besta hugdettan”.
Þú segir eitthvað sniðugt sem
þér dettur í hug og ég reyni
að segja eitthvað enn sniðugra.
14 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN‘ Laugardagur 25. nóvember 1989