Þjóðviljinn - 02.12.1989, Side 6
MINNING
Ásgrímur Sigurðsson
F. 10. ágúst 1919 - D. 24. nóv. 1989
Ásgrímur Sigurðsson var fædd-
ur 10. ágúst 1919 á Brekku í Hró-
arstungu. Hann var sonur hjón-
anna Sigurðar Guðmundssonar
bónda á Brekku (1912-1925) og
Þóru Þórarinsdóttur d. 1976.
Hann var annar í systkinaröðinni
en elstur var Guðmundur f. 1916
d. 1980, síðan Ásgrímur f. 1919,
Gunnþór f. 1920 d. 1933, Sigurð-
ur f. 1924 d. 1962, Páll f. 1931
bóndi á Lindarhóli, Þorbjörg f.
1933 býr á Kleppjárnsstöðum.
Baðstofan á Brekku var talin
stór eftir því sem gerðist í þá
daga. Hún var í þremur hlutum;
ysta herbergið var fremur lítið en
miðhlutinn var stór og rúmgóður
og framendinn sömuleiðis. Það
var því mannmargt þar á bæ á
uppvaxtarárum Ásgríms; 10-12
manns oft og tíðum.
Sigurður faðir Ásgríms veiktist
á árinu 1924 og lá rúmfastur uns
hann lést snemma árs 1925. Þá
var Ásgrímur á sjötta ári. Á þeim
tíma hafði verið þar til heimilis
Áslaug Björnsdóttir en hún flutti
ásamt dóttur sinni Önnu Gríms-
dóttur í Brekku árið 1917. Áslaug
var kona Gríms Guðmundssonar
bróður Sigurðar en Grímur lést
1916. Ásgrímur, sem eins og áður
segir, fæddist 1919, var skírður í
höfuð Áslaugar, Ás- og eftir
Grími, þ.e. Ásgrímur. Hann var
sérstakur augasteinn Áslaugar og
annaðist hún hann.
Hún var á Galtastöðum ytri að
minnsta kosti um tíma á meðan á
veikindum Sigurðar stóð og tók
hún þá Ásgrím til sín. Oft heyrði
ég hann minnast á Áslaugu sem
fóstru sína. Áslaug flutti síðar til
dóttur sinnar Önnu upp á Jöku-
ldal en kom oft og dvaldi á
Brekku. Þegar Sigurður dó
snemma árs 1925, var yngsti
bróðirinn nokkurra mánaða.
Hann var skírður við útför föður
síns, við kistuna, og nefndur Sig-
urður. Þá um vorið var Gunnþór
tekinn í fóstur hjá Guðrúnu
frænku sinni á Vífilsstöðum og
Ásmundi móðurbróður þeirra
bræðra sem þá var fluttur þang-
að. Þóra bjó áfram á jarðarparti á
Brekku með nokkrar skepnur.
Jón Friðrik bróðir Sigurðar
kom á sumrin og sá um heyskap
þar til Þórir Elísson d. 1988 kom í
Brekku og hóf búskap með Þóru
1930. Þórir var einstaklega góður
maður og átti gott með að um-
gangast þá bræður og áttu þeir
Ásgrímur og Þórir gott skap sam-
an.
Eins og allir vita var lífsbarátt-
an hörð á þessum árum. Ásgrím-
ur mótaðist af því á sínum upp-
vaxtarárum en enginn leið þó
skort. Skólaganga var eins og al-
mennt gerðist þá. Farkennsla og
krakkar í skólanum 3 mánuði á
ári, annanhvern mánuð frá 10 ára
aldri að fermingu. Nám sitt
stundaði Ásgrímur af samvisku-
semi eins og allt sem hann tók sér
fyrir hendur enda prýðis vel gef-
inn. Snemma hneigðist hugur
hans að smíðum. Fyrst voru tálg-
aðir allir kubbar og spýtur sem til
náðist og síðan sagað, neglt og
smíðað. Hugurinn stóð að sjálf-
sögðu til smíðanáms en efnin
hlutu að ráða. Hann var því
heima við á unglingsárum og
fram til 1950. Margir leituðu til
hans með smíðar á þeim árum.
Ásgrímur var manna greiðvikn-
astur og smíðaði marga hluti,
rúm, borð, stór og smá og skápa
stóra og litla, ferðatöskur og
margt fleira. Það er sem mig
minni að hann hafi haft aðstöðu
sína við smíðar í litla herberginu
sem var yst í baðstofunni. Stærri
hlutir, svo sem skápa og eldhús-
innréttingar, voru smíðaðir á
heimilum eða í geymslu sem
byggð var milli gamla Brekkubæ-
jarins og nýja hússins sem Sigur-
jón reisti.
Mér eru afskaplega minnis-
stæðir skápar sem hann smíðaði
og notaðir voru við rúm. Skáp-
arnir voru góðar hirslur með stór-
ri hurð, hillum og tveimur
skúffum. í þá tíð þóttu svona
skápar hin glæsilegustu húsgögn
og áttu að ég held öll systkinin
slíka gripi. Glæsilegastur fannst
mér þó skápur Ásgríms, höldurn-
ar á skúffunum voru svo fallegar.
Árið 1950 keypti Ásgrímur
hluta úr jörðinni Brekku af Sig-
urjóni móðurbróður sínum.
Reisti hann þar nýbýli með
myndarlegu húsi er hann nefndi
Lindarhól. Teikningar voru unn-
ar heima og sendar „suður“ til
samþykktar. Hóf hann bygginga-
framkvæmdir fljótlega og miðaði
smíð vel. Ekki var hann alls óvan-
ur því hann var yfirsmiður áVíf-
ilsstöðum, þegar Þórarinn Ás-
mundsson byggði sitt hús 1945.
Þar unnu þeir saman Ásgrímur
og Gunnar Jónsson og vannst vel.
Þórarinn sagði þá hina bestu
verkmenn og skemmtilegustu
menn sem hann hefði haft í
vinnu.
Þegar síðan var byggt á Galta-
stöðum ytri var Ásgrímur fenginn
þar til en það hús er nánast alveg
eins og Lindarhólshúsið.
Ásgrímur hóf nú búskap á
Lindarhóli og sinnti honum af
alúð eins og öllu s^m hann tók sér
fyrir hendur. Nú var komið að því
að Ásgrímur festi ráð sitt. Hann
kvæntist 1955 Steinvöru Þórar-
insdóttur frá Hallfreðarstaðahjá-
leigu. Þau voru einhver allra sam-
rýndustu hjón sem ég hef þekkt.
Steinvör gekk til allra verka með
manni sínum og var heimili þeirra
afskaplega notalegt, snoturt og
gestrisið. En það átti ekki fyrir
þeim hjónum að liggja að stunda
búskapinn til langframa. Hey-
mæði sótti á Ásgrím og þar kom
að þau brugðu búi 1964 og hófu
að stunda vinnu niðri á fjörðum.
Var unnið á Reyðarfirði og
Seyðisfirði í síldinni, en þó hygg
ég að Ásmundur hafi aðallega
stundað smíðavinnu.
Þar kom að Ásgrímur og
Steinvör settust að á Egilsstöðum
og hugðu þar að byggingu. Eftir
nokkurn tíma var kominn skriður
á málin og hafin bygging á fjöl-
býlishúsi. Þar sem þeir er að
framkvæmdum stóðu voru fyrr-
verandi bændur var byggingin
nefnd „Bændahöllin" og var ekki
við öðru að búast, þar sem Egils-
staðabúar eru snillingar í „ör-
nefnum“. Vinna við trésmíðar
var starf hans þar um slóðir. Fyrst
við byggingu Búnaðarbanka, síð-
an hjá Húsaiðjunni. Síðustu
starfsárin voru hjá Baldri og
Óskari eða þar til heilsan brast
1987. Þá upphófst mikið og erfitt
stríð við erfiðan sjúkdóm og var
sannarlega oft tvísýnt hvor hefði
betur.
Dvölin á Landspítalanum var
Magnús G. Jónsson
Af ást sinni á frönsku og fran-
skri menningu hlaut Magnús
viðurnefnið „franski" og það var
hans sæmdarheiti. Engum duldist
ást hans á tungu Frakka og það
var köllun hans að sá frönskum
fræjum í fremur grýttan mennta-
skólasvörð. í þvískyni hafði hann
samið kennslubók sem ótalin
þúsund íslenskra námsmanna
hafa haft á milli handa og von-
andi lesið sér til gagns.
Magnús er mér minnisstæður
þar sem hann er að skrifa ein-
hverja málfræði á græna töflu,
kannski donne - donnes - donne
- donnons - donnez - donnent-
og gerir þá hlé, snýr sér að bekkn-
um og segir stundarhátt: „Ég er
að gera það sem mér finnst
skemmtilegast - get ég verið þek-
ktur fyrir að taka fyrir það laun?“
Maður hrökk hálfpartinn við,
það er svo sjaldgæft að heyra fólk
játa hlutskipti sínu ást sína.
Þetta var veturinn 67-68 og þá
eins og nú gerðist sagan svo hratt
að dagblöðin voru eins og „öldin
okkar". Forvitni Magnúsar um
atburðarásina var mikil og sjálfur
hafði hann tekið sér það bessa-
leyfi að leggja niður þéringar við
nemendur. Honum þótti líka full
yfirlætisleg staða kennarans á
upphækkuðum palli fyrir enda
bekkjarins þar sem hann gnæfði
yfir nemendum og vildi breyta
allri uppröðun í stofunni og láta
borðin mynda hring þar sem allir
væru jafnir og sameinaðir í ást á
frönsku. Þetta skapaði töluvert
brambolt í upphafi tíma og enda -
en þetta var maí ’68 a la Magnús
Jónsson. Annað sem sýndi hug
Magnúsar: honum þótti full
barnalegt að hálffullorðið fólk
þyrfti að biðja kennara leyfis til
að víkja úr skólastofu í vissum
erindagjörðum. Vildi hann að
nemendur færu frjálsir til þessara
ferða. Fyrir kom að nemendur
misnotuðu þetta traust og létu
jafnvel ekki sjá sig það sem eftir
lifði tímans. „Hann hefur fengið
leyfi hjá Bessa,“ sagði Magnús þá
vorkunnlátur.
Kennsla Magnúsar var fjár-
sjóður þeim sem vildu nota. En
hugur unglinga er ófús til lær-
dóms á bók og varla fyrr en fólk
er orðið öldungar að skilyrði
skapast til að læra.
Eins og nærri má geta hafði
Magnús mikla ást á frönskum
bókmenntum og eftirminnilegar
umræður þegar talið barst að
skáldum. Ég hygg að franska
ljóðskáldið Paul Valéry hafi ver-
ið kjörskáld Magnúsar og einu-
sinni þegar einhver sagði: „Ekki
finn ég púðrið í þessum Valéry“ -
svaraði Magnús af sinni alkunnu
hógværð: „Það er ekki Valéry að
kenna.“
Að menntaskóla loknum
sleppti Magnús ekki hendinni af
lærisveinum sínum og hvar og
hvenær sem fundum bar saman
voru fagnaðarfundir og vakandi
forvitni Magnúsar og umhyggja
auðfundin. Mér var hann
hollvinur þegar ég var að búa mig
til námsdvalar í Frakklandi og
hann snaraði öllum mínum papp-
írum yfir á löggilda frönsku.
Minnisstæð er mér heimsókn til
skjalaþýðandans. Magnús kom
hlaupandi niður stigann með
plöggin og áttum við langt samtal
um tíðina aftur og fram. En þegar
ég tók upp veskið og hugðist
borga, þaut Magnús eins og byss-
ubrenndur upp stigann aftur:
„Nei, nei, nei - þú borgar þegar
þú ert búinn að ljúka prófum!“
Og nú þegar upp er staðið
munu margir eiga þessum öðlingi
skuld að gjalda.
Pétur Gunnarsson
Tjarnargata 40 var á árunum
uppúr 1970 næstum daglegur
samkomustaður nokkurra vaskra
sveina úr Menntaskólanum í
Reykjavík. Við vorum allir vinir
Jóns Ingólfs, núverandi stærð-
fræðidoktors við Háskólann, sem
átti heima í rauða húsinu á horni
Skothúsvegar og Tjarnargötu.
Þar bjó Jón ásamt foreldrum sín-
um frú Jónu Kristínu og Magnúsi
G. Jónssyni, frönskukennara við
MR og dósent við Háskólann,
auk eldri bróður síns, Mgnúsar,
sem þá var frægur poppari. Þar
var yfirleitt fyrst drepið niður fæti
eftir að skólanum lauk, og teknar
syrpur á stöðu heimsmálanna,
sem þá einsog nú var firna slæm.
Sómakonan frú Jóna Kristín,
móðir Jóns, tók okkur ævinlega
eins og hún ætti ekki bara Jón
heldur okkur líka, endalausar
kaffiuppáhellingar urðu hlut-
skipti þessarar ágætu konu sem
auk heldur þurfti sí og æ að hlusta
á þrasið í okkur drengjunum.
Yfir þessu mikla og góða kaffi
leystum við heimsmálin, alvar-
legir í framan og skyggnir af
mannviti. En svo hefur það orðið
í minningunni, að yfir öllum þess-
um rökræðum og þrasi svífur andi
Magnúsar G. Jónssonar, þessa
smávaxna, kvika manns, sem bjó
yfir mesta mannviti sem ég hafði
þá komist í tæri við.
Magnús G. Jónsson var fyrsti
menntamaðurinn sem ég
kynntist. Hann hafði til að bera
fordómaleysi, sem ég hafði aldrei
áður þekkt, og það einkenndi allt
sem hann hafði til málanna að
leggja. Hann kom ævinlega auga
á málsbætur, þegar einhver
stjórnmálamaðurinn eða rithöf-
undurinn varð harkalega úti í um-
ræðunni hjá okkur ungæðingun-
um, sem Jón Ingólfur dró inná
heimilið. Heimili þeirra var hið
fyrsta sem ég kom reglulega á,
þar sem Þjóðviljinn var keyptur.
Á Tjarnargötunni fór ég fyrst að
lesa það merka blað og varð ekki
samur maður. En það var kann-
ski dæmigert fyrir bæði fordóma-
leysið og fróðleiksþörf Magnúsar
G. Jónssonar, að hann keypti
ekki bara Þjóðviljann, heldur öll
hin blöðin líka.
Og ef til vill segir það okkur
ofurlítið um Magnús, að í eldhús-
inu hjá honum sátu reglulega, en
með nokkurra ára millibili, fjórir
menn, sem allir urðu síðar rit-
stjórar Þjóðviljans. „Erekki allt í
lagi milli ykkar Svavars?" spurði
hann mig einu sinni eftir ein-
hverja hríðina. „Ja, mér þætti
annað verra,“ bætti hann svo við
og talaði um að kanski væri rétt
að hella upp á einsog eina könnu
á Tjarnargötunni.
Eldhúsgestirnir úr MR veltu
því stundum fyrir sér, hvaða
stjórnmálaskoðanir Magnús að-
hylltist. Ýmsar athugasemdir frá
honum gáfu til kynna að hann
væri að okkar dómi réttu megin í
tilverunni. Enginn var þó viss.
Löngu seinna tengdist ég Magn-
úsi enn frekar með þeim hætti að
ég og eldri sonur hans, Magnús
Sigurður, giftumst glæsilegum
systrum og urðum svilar. Uppúr
því bar svo til, að við Magnús
eldri dvöldum saman um vikut-
íma í Kaupmannahöfn, í íbúð
sonar hans og mágkonu minnar,
Ágústu. Þar gafst mér gott færi á
að ræða löngum stundum við
Magnús G. Jónsson um hin hin-
stu rök. Og þá loksins rann það
upp fyrir mér, að það sem við
drengirnir vorum að pæla í eld-
húsinu hjá frú Jónu Kristínu
árum fyrr um skoðanir Magnús-
ar, var í rauninni án tilgangs.
Magnús G. Jónsson var ekki hægt
að draga í pólitíska dilka, sú jafn-
aðarstefna sem við þóttumst
stundum greina í tilsvörum hans
var ekki byggð á pólitík, heldur
endurspeglaði það sem þessi hlýi
menntamaður var fyrst og fremst
- sannur húmanisti.
Magnúsi G. Jónssyni þótti
vænt um Svavar Gestsson og
sagði mér söguna af kynnum
þeirra. Svavar hafði verið uppi-
vöðslusamur í skóla, vinstri sinn-
aður og blankur. í tengslum við
ASÍ þing fékk svo Svavar vinnu í
nokkra daga, og mætti ekki í
skólann fyrir vikið. Fulltrúar
borgarastéttarinnar á kennara-
stofunni í MR notuðu náttúrlega
tækifærið og ákváðu að víkja pilti
úr skóla. „Ég var því ekki alveg
sammálarV sagði Magnús mér,
„ekki alveg." Svo hann bar fram
tillögu um að þessum dreng, sem
hann þekkti þá varla nokkuð,
yrði veitt enn eitt tækifæri. „Ég
vissi að hann var fátækur," sagði
Magnús mér, og bætti því við að
það væri afar þreytandi að stunda
nám ef menn fengju ekki að
borða. „Svo ég bar fram tillögu
um að hann fengi að vera áfram í
skóla, ég skyldi gefa honum eina
máltíð á dag ef einhver annar
kennari vildi gefa honum hina,“
sagði Magnús. „Það var svo ein-
kennilegt," bætti Magnús við,
„að það vildi enginn gefa honum
hina máltíðina." Uppúr þessu
varð Svavar Gestsson heima- •
gangur í þessu góða húsi við
Tjarnargötuna.
Sjálfur átti ég í bölvuðu basli á
þessum menntaskólaárum, í ei-
lífum útistöðum við harðpólitísk-
an hægri sinnaðan föður, sem
endaði með því að ég flutti mitt
hafurtask úr móðurhúsum í kytru
uppi á hanabjálka í Eskihlíð 16.
Þar bjó ég innanum merkan geira
mannlífsins í Reykjavík og leið
einsog söguhetju í bók eftir Max-
im Gorki. Þá var gott að eiga at-
hvarf í eldhúsi frú Jónu Kristínar
og læra að tefla undir handleiðslu
Magnúsar G. Jónssonar. Fyrir
það verð ég ævinlega þakklátur.
Össur Skarphéðinsson
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 2. desember 1989