Þjóðviljinn - 13.12.1989, Side 11
I DAG
Teikning: Halldór Pétursson
LESANDI VIKUNNAR
Et aldrei
ham-
GRÝLA Landsmóðir
Hvað ertu að gera núna Grýla?
Nú, nema það sem ég hef verið
að gera undanfarin ellefu hundr-
uð ár, senda syni mína út í óviss-
una. Ef þeir koma ekki verða
krakkaræksnin alveg ær. Stekkj-
arstaur er kominn á leiðarenda
og Giljagaur vonandi líka nema
hann hafi eitthvað verið að slóra.
Hvað gerirðu helst í frístund-
um?
• Reyni að ná mannasiðunum úr
piltunum eftir þessar heimsóknir.
Segðu mér frá bókinni sem þú
L*rt að lesa núna.
Orðsifjabókina langþráðu, ég
er orðin svo gleymin að mér veitir
ekkert af upprifjun.
Hvað lestu helst í rúminu á
kvöldin?
Lýsnar úr bóndanum.
Hver er uppáhaldsbarnabók-
þín?
Sagan um Gilitrutt. Ég er alltaf
dálítið veik fyrir sögum með sorg-
legum endi.
Hvers minnistu helst úr Bibl-
íunni?
Biblíu hvað?
Segðu mér af ferðum þínum í
leik- og kvikmyndahús í vetur.
Við brugðum okkur hjónin til
að sjá Pella sigursvera. Myndin
var afskaplega góð, en Leppa
mínum leist ekki á aðfarirnar
þarna um nóttina þegar frúin á
bænumvarorðin þreyttá kvenna-
fari bóndans. Mig skal ekki
undra að hún hafi verið búin að fá
nóg af, svo honum var nær karl-
kvölinni. Leikhús förum við
aldrei í síðan Davíð hætti að
senda okkur boðsmiða.
Fylgistu með einhverjum á-
kveðnum dagskrárliðum í út-
varpi og sjónvarpi?
Eg vil ekki fyrir nokkurn mun
missa af Þjóðarsálinni svoköll-
uðu, hún er afbragð. Þær eru líka
góðar þessar litlu útvarpsstöðvar,
en loksins þegar ég er komin upp
á lagið með að finna þær þarna á
bylgjulengdum og breiddum þá
fara þær á hausinn.
Hefurðu alltaf kosið sama
stjórnmálaflokkinn?
Já.
Ertu ánægð með frammistöðu
þess flokks sem þú kaust I síðustu
kosningum?
Mikil ósköp. Matarskatturinn
er að verða öruggur í sessi og þó
fyrr hefði verið. Þeir eru svo inni-
lega sammála alltaf stjórnmála-
mennirnir. Að vísu líður stund-
um eitt og eitt kjörtímabil áður
en þeir gera sér grein fyrir að þeir
eru sammála en þetta kemur allt.
Var ekki stjórnin að leggja fram
eitt af gömlu frumvörpunum
hans Þorsteins, mér skilst það.
Eru til hugrakkir stjórnmála-
menn og konur?
Nú, það eru þessir sextíu og
eitthvað fyrir sunnan. Svo er
þarna einn í viðbót sem ekki var
kosinn reyndar,en mér sýnist að
hann fái samt alveg að vera með.
Er landið okkar varið land eða
hernumið?
Nei,heyrðu mig nú. Ertþúein-
hver laundóttir Leppalúða, þú
spyrð eins og hver annar jóla-
sveinn. Hernumið er landið væna
mín, og eru þeir ekki að færa út
kvíarnar bæði hér og þar?
Klaufaskapur að vera að missa
niður olíu og ráðast að eymingja
flugvirkjunum, en fólk gleymir
því fljótt, sannaðu til.
Hvaða eiginleika þinn viltu
helst vera laus við?
Þennan snefil af hjartahlýju
sem hrjáir mig stundum. Það er
þó mesta furða hvað mér hefur
tekist að halda þessu leyndu.
Hvaða eiginleika þinn finnst
þér skrítnast að aðrir kunni ekki
að meta?
Vöndinn minn. Ég nota hann
alltof sjaldan nú orðið.
Hvað borðarðu aldrei?
Ég ét aldrei hamborgara og
drekk ekki kók.
Hvar myndirðu vilja búa ann-
ars staðar en á íslandi?
Mér leist nú ekkert á lands-
lagið þarna í Pella-myndinni.
Þetta var allt saman flatt eins og
nýútkomnu jólaplöturnar. Okk-
ur hefur nú alltaf iiðið bærilega
hérna uppi á íslandi og verðum
hér líklega eitthvað áfram. Mér
skilst að það hafi farið eitthvað af
jólasveinum til Svíþjóðar í
sumar, aðallega vegna þess að
kjarasamningar jólasveina eru
víst svo góðir þarna hinum megin
við hafið. En þetta eru auðvitað
viðvaningar í iðninni hérna
heima, og þú veist nú hvernig
þetta er, enginn verður biskup í
sínu heimalandi.
Hvernig fínnst þér þægilegast
að mjólka kýrnar?
Þeir buðu okkur mjaltavélar á
raðgreiðslum um daginn en við
Vísuðum þeim á dyr. Notum
alltaf Júgró.
Hvert langar þig helst til að
ferðast?
Ég er að láta mig dreyma um að
komast í vikufrí í Öífusborgir.
Þar er víst húsmæðravika vor og
haust.
Hvaða bresti landans áttu erf-
iðast með að þola?
Hvað þeir eiga erfitt með að
sætta sig við það sem þeir kjósa
sjálfir yfir sig á fjögurra ára fresti.
En hvaða kosti Islendinga
metur þú mest?
Að þeir skuli vera svona
gleymnir. Þeir kjósa alltaf sama
næst.
Hvernig líst þér á framtíð ís-
lands og þróun mála?
Ef við verðum aftur sjálfstæð
og herlaus þjóð (með loðnu), þá
verður hægt að fara að gera sér
vonir um bjarta framtíð.
Er Þjóðviljinn gott blað?
Já nú síðustu misserin hefur
hann verið það, þeir birta jóla-
sveinamyndir svo að segja dag-
lega nú orðið.
Hef ég gleymt einhverri spurn-
ingu Grýla?
Já. Spurðu mig um virðis-
aukaskattinn.
Hvernig líst þér á virðisauka-
skattinn?
Viðrinisaukaskatturinn, hann
fer auðvitað allur í VASKinn.
Guðrún
þJÓOVILJINN
FYRIR 50 ÁRUM
Símastaurstolið. ígærvarlög-
reglunni tilkynnt að símastaur
hefði verið stolið vestur á Fram-
nesvegi. Lá staurinn þar og átti
að setja hann upp. Ekki er vitað
hver valdur er að þjófnaði þess-
um.
13. desember
miðvikudagur. 347. dagurársins.
Lúcíumessa. Magnúsmessahin
síðari. Sólarupprás í Reykjavík kl.
11.13-sólarlagkl. 15.31.
Viðburðir
Jón Þorláksson á Bægisáfædd-
urárið 1744.
APÓTEK
Reykjavík. Helgar- og kvöldvarsla lyfj-
abúöavikuna
8.-14. des. er í Ingólfs Apóteki og Lyfj-
abergi.
Fyrrnef nda apótekiö er opið um helgar
og annast næturvörslu alla daga 22-9 (til
10 frídaga). Síöarnef nda apótekiö er
( opið á kvöldin 18-22 virka daga og á
laugardögum 9-22 samhliöa hinu fyrr-
nefnda.
LÖGGAN
' Reykjavik sími 1 11 66
Kópavogur..........sími 4 12 00
Seltj.nes..........sími 1 84 55
Hafnarfj...........sími 5 11 66
Garöabær...........sími 5 11 66
Siökkvilið og sjukrabilar:
Reykjavík..........simi 1 11 00
Kópavogur..........sími 1 11 00
Seltj.nes..........sími 1 11 00
Hafnarfj...........simi 5 11 00
Garðabær...........simi 5 11 00
LÆKNAR
Lækna vakt fyrir Reykja vík, Sel-
tjarnarnes og Kópavog er í Heilsu-
verndarstöð Reykjavíkur alla virka daga
frá kl. 17 til 08, á laugardögum og helgi-
dögum allan sólarhringinn. Vitj-
anabeiönir, símaráðleggingar og tíma-
pantanir í síma 21230. Upplýsingar um
lækna og lyfjaþjónustu eru gefnar í sím-
svara 18888.
Borgarspítalinn: Vakt virka daga kl. 8-
17 og fyrir þá sem ekki hafa heimilis-
lækni eöa ná ekki til hans. Landspft-
alinn: Göngudeildin eropin 20-21.
Slysadeild Borgarspítalans: opin allan
sólahringinn sími 696600.
Hafnarfjöröur: Dagvakt, Heilsugaeslan
sími 53722. Næturvakt lækna sími
51100.
Garðabær: Heilsugæslan Garðaflöt s.
656066, upplýsingar um vaktlækna s.
51100.
Akureyri: Dagvakt 8-17 á Læknamið-
stööinni s. 23222, hjá slökkviliðinu s.
22222, hjá Akureyrarapóteki s. 22445.
Farsími vaktlæknis 985-23221.
Keflavík: Dagvakt. Upplýsingar s. 3360.
Vestmannaeyjar: Neyöarvakt lækna s.
1966.
SJÚKRAHÚS
Heimsóknartímar: Landspítalinn: alla
daga 15-16,19-20. Borgarspítalinn:
virkadaga 18.30-19.30, helgar 15-18,
og eftir samkomulagi. Fæðingardeild
Landspítalans: 15-16. Feðratimi 19.30-
20.30. Öidrunarlæknlngadeild Land-
spítalans Hátúni 10 B. Alla daga 14-20
og eftir samkomulagi. Grensásdeild
Borgarspítala: virka daga 16-19, helgar
14-19.30. Heilsuverndarstöðin viö
Barónsstíg opin alla daga 15-16 og
18.30-19.30. Landakotsspítall: alla
daga 15-16 og 18.30-19. Barnadeild:
heimsóknir annarra en foreldra kl. 16-17
DAGBÓK
daglega. St. Jósefsspítali Hafnarfiröi:
alla daga 15-16 og 19-19.30. Kiepps-
spftalinn: alladaga 15-16 og 18.30-19.
Vestmannaeyjum: alla virka daga 15-
16og 19-19.30. Sjúkrahús Akraness:
alla daga 15.30-16 og 19-19.30. Sjúkra-
húsið Húsavfk: alla daga 15-16 og
19.30-20.
ÝMISLEGT
Hjálparstöð RKÍ. Neyðarathvarf fyrir ung-
lingaTjarnargötu 35. Sími: 622266, opiö
allan sólarhringinn.
Sálfræðistöðin. Ráögjöf í sálfræöilegum
efnum. Sími 687075.
MS-félaglð Álandi 13. Opið virka daga frá
kl. 8-17. Síminner 688620. *
Kvennaráðgjötin Hlaðvarpanum Vestur-
götu 3. Opið þriðjudaga kl .20-22,
fimmtudaga 13.30-15.30 og kl. 20-22, •
simi 21500, simsvari.
Sjálfshjálparhópar þeirrasem orðið hafa
fyrir sifjaspellum, s. 21500, símsvari.
Upplýsingar um eyðni. Sími 622280,
beint samband við lækni/hjúkrunarfræðing
ámiðvikudögumkl. 18-19, annarssím-
svari.
Samtök um kvennaathvarf, sími 21205.
Húsaskjól og aðstoð fyrir konur sem beittar
hafa verið ofbeldi eða orðið fyrir nauðgun.
Samtökln ’78. Svarað er í upplýsinga- og
ráðgjafarsima félags lesbia og homma á
mánudags- og fimmtudagskvöldum kl. 21-
23. Sfmsvari á öðrum tímum. Síminn er
91-28539.
Bllanavakt rafmagns- og hitaveitu: s.
27311. Raf magnsveita bilanavakt s.
686230.
Vinnuhópur um sifjaspellamál. Simi
21260 alla virka daga kl. 1 -5.
Lögfræðiaðstoð Orators, félags laga-
nema, er veitt í síma 11012 milli kl. 19.30
og 22.00 áfimmtudagskvöldum.
„Opið hús“ krabbameinssjúklinga
Skógarhlíð 8 er „Opið hús" fyrir alla krabb-
ameinssjúklinga og aðstandendur þeirra á
fimmtudögum kl. 17.00-19.00.
Samtök áhugaf ólks um alnæmisvand-
ann sem vilja styðja við smitaða og sjúka
og aðstandendur þeirra. Hringið í síma 91 -
22400 alla virka daga.
GENGIÐ
12. des. 1989
kl. 9.15.
Sala
Bandaríkjadollar.............. 62.34000
Sterlingspund................. 99.60400
Kanadadollar.................. 53.59100
Dönskkróna..................... 9.14080
Norskkróna..................... 9.24650
Sænsk króna.................... 9.86550
Finnsktmark................... 15.03620
Franskurfranki................ 10.37140
Belgískur franki............ 1.68850
Svissneskurfranki............. 39.21250
Hollensktgyllini.............. 31.41580
Vesturþýskt mark.............. 35.46380
(tölsklíra..................... 0.04799
Austurrískursch................ 5.03860
Portúg. Escudo................. 0.40590
Spánskur peseti................ 0.54840
Japansktyen.................... 0.43170
(rsktpund..................... 93.60400
KROSSGÁTA
Lárátt: 1 þjark 4 stafn 6
Spil7svara9tjón12
drang 14stúlka 15vot
16 rödd 19 fjöll 20
nudda21 nabbinn
Lóðrótt: 2 sjór 3 hnupl-
aði4fæddi5önug7
vorkennir8 hrækja 10
döpurll karimanns-
nafn 13gutu 17hræðist
18eira
Lausn á síðustu
krossgátu
Lárétt: 1 geil4erta6
enn7vask9doka12
kamar 14 góa 15 kám
16kokka 19sekk20
óðan21 tafði
Lóðrótt: 2 eða 3 leka 4
enda 5 tik 7 vægast 8
skakkt10orkaði11
■ arminn 13mók17oka
18kóð
Miðvlkudagur 13. desember 1989 -ÞJÓÐVIUINN - SÍÐA 11