Þjóðviljinn - 16.12.1989, Síða 1
Laugardagur 16. desember T989 217. tólublað 54. árgangur.
Jólahreingerningin hafin. Mynd - Kristinn.
Hún Melkorka, 3ja ára, sendi
okkur þessa stórfínu mynd af
Hurðaskelli. (dag kemur reyndar
Pottaskefill til byggða en þar sem
ekkert blað kemur út á mánudag,
þegar Hurðaskellir heimsækir
börnin, birtum við þessa fínu
teikningu núna. Það er svo Aska-
sleikir sem mætir á sunnudag. Á
þriðjudaginn birtist svo mynd af
áttunda sveininum.
8
dagar til jóla
Sá fímmti
Pottaskefíll
Herinn
Rússamir koma í boði Nató
UtanríkisráÖherrarNató leggja til gagnkvœmt eftirlit hernaðarbandalaganna með vígbúnaði. Rússarmunu
koma fjórum sinnum á ári tiljslands að skoða hernaðarmannvirki. Jón Baldvin Hannibalsson: Afyopnunartillögur um
risavaxinn niðurskurð hefðbundinna vopna samþykktar
Utanríkisráðherrar Atlants-
hafsbandalagsins samþykktu
á fundi sínum í Brussel áætiun um
gagnkvæmt eftirlit og rétt ríkja
Atlantshafsbandalagsins og ríkja
Warsjárbandalagsins til þess að
senda eftirlitsmenn og til þess að
stunda yfirflug til könnunar á
varnarvígbúnaði hjá hinu banda-
laginu.
„Þetta mál varðar okkur ís-
lendinga beint því réttur War-
sjárbandalagsins til yfirflugs og
skoðunar á Keflavflcurflugvelli
og öðrum varnarmannvirkjum á
íslandi er tryggður fjórum sinn-
um á ári,“ sagði Jón Baldvin
Hannibalsson utanríkisráðherra
við Þjóðviljann í gær.
Jón Baldvin sagði að þessar til-
lögur væru að frumkvæði Atl-
antshafsbandalagsins en Kanada-
menn hefðu einkum beitt sér fyrir
þeim. í framhaldi af því hefur
utanríkisráðherra Kanada boðað
til sérstakrar ráðstefnu ráðherra
beggja bandalaganna í febrúar á
næsta ári í Ottawa til þess að
freista þess að ná samkomulagi
um þessa tillögu.
„Stærsta mál þessa fundar var
þó að á fundinum var endanlega
gengið frá samþykkt á afvopnun-
artillögum Atlantshafsbanda-
lagsríkjanna varðandi hefðbund-
in vopn, en sú stefna var mótuð í
fyrra. Síðan hafa Vínarviðræð-
umar farið fram á þessu ári en nú
er komið að þeim tímapunkti að
leggja fram það sem við getum
kallað, innan sviga, endanlegar
tillögur.
Þessar tillögur em mjög rót-
tækar og fela í sér risavaxinn
niðurskurð á hefðbundnum
vopnum og herjum. Nái þær fram
að ganga er herafli hvors aðila
fyrir sig, frá Atlantshafi að Úral-
fjöllum, um 275 þúsund manns.
Tillögurnar fela í sér eyðilegg-
ingu á þúsundum og aftur þús-
undum af skriðdrekum, stór-
skotaliðsvopnabúnaði og flugvél-
um. Þetta er risavaxinn niður-
skurður,“ sagði Jón Baldvin.
Hann sagði það mat manna og
að það hefði komið fram í við-
ræðum á fundinum, að menn
gerðu sér raunsæjar vonir um að
það tækist að ljúka þessum samn-
ingum á næsta ári.
„Jafnframt eru menn mjög
bjartsýnir á, eftir langa mæðu, að
það náist samningar um helm-
ingsniðurskurð á langdrægum
kjarnavopnum og að þeir samn-
ingar verði tilbúnir áður en næsti
leiðtogafundur þeirra Bush og
Gorbatsjof verður haldinn í júní
á næsta ári, einsog áformað er.“
Jón Baldvin sagði að afvopnun
á höfunum hefði ekki verið á dag-
skrá fundarins, en hann hefði
rætt þau mál á lokuðum fundi
ráðherranna þar sem þróun al-
þjóðastjórnmála voru rædd, en
þær umræður væru trúnaðarmál.
„Það er þó ekkert launungarmál
að þama var rædd þróunin í Evr-
ópu og mér gafst tækifæri til þess
að greina frá viðræðum Eftaríkj-
anna við EB og það gladdi mig að
okkar stefna fékk mikinn stuðn-
ing. Meginmálið var að leggja
mat á þróun mála í Austur- og
Mið-Evrópu. Það er ljóst að það
er allsherjarsamstaða í hópi utan-
ríkisráðherra Atlantshafsbanda-
lagsríkjanna um meginstefnu í
þessu máli, þ.e.a.s. að það sé
sameiginleg stefna að gera allt
sem í okkar valdi stendur til þess
að koma til stuðnings við um-
bótaöfl, en forðast gersamlega
nokkra íhlutun í þau mál.“
-Sáf
Chile
Herforíngjaeinræði lokið
Aylwin kjörinnforseti. Heitirhernum sakaruppgjöf ogfátœkum kjarabótum
Patricio Aylwin, 71 árs
stjórnmálamaður og lögfræð-
ingur og frambjóðandi 17 flokka
bandalags andstæðinga Pinochets
einræðisherra, vann mikinn sigur
í forsetakosningunum í Chile í
fyrradag. Samkvæmt bráða-
birgðaniðurstöðum var líklegt að
Aylwin, sem er leiðtogi flokks
kristilegra demókrata, fengi rúm-
lega 55 af hundraði atkvæða og
hefur enginn frambjóðandi kom-
ist hærra í forsetakosningum þar-
lendis á þessari öld.
Þar sem Aylwin fær að öllum
líkindum yfir helming greiddra
atkvæða þarf ekki að kjósa aftur
og tekur hann við forsetaembætti
11. mars n.k. Lætur Pinochet
harðstjóri þá af því embætti og á
þar með svo að heita að öll
Suður-Ameríkuríki hafi tekið
upp lýðræði, þótt það sé í skötu-
líki þar víðast. Þetta voru fyrstu
frjálsu kosningamar í Chile síðan
1970 er sósíalistinn Salvador Al-
lende var kosinn forseti.
Aylwin var ákaft fagnað af
miklum mannfjölda á aðaltorg-
inu í Santiago er kosningatölur
fóm að berast. Hann hét á lands-
menn til sátta og samstöðu, en
óvíst er hvernig fer með það, því
að mörg sár em ógróin eftir
hryðjuverk einræðisstjórnarinn-
ar og ekki sleppir herinn völdun-
um með góðu. Til að mýkja her-
inn hefur Aylwin lofað að sleppa
liðsmönnum hans og lögreglu-
stofnana við málsókn út af morð-
um, pyndingum og öðmm
mannréttindabrotum, en hætt er
jvið að inargir stuðningsmanna
Aylwins séu ekki reiðubúnir að
sætta sig við það. Efna-
hagsmálum lofar Aylwin að
halda áfram að stjóma sam-
kvæmt lögmálum hins frjálsa
markaðar, eins og verið hefur, en
auka útgjöld til félagsmála þeim
fátækustu til góða, en þeir hafa
orðið mjög útundan á stjórnartíð
Pinochets.
Reuter/-dþ.