Þjóðviljinn - 16.12.1989, Side 12

Þjóðviljinn - 16.12.1989, Side 12
BÆKUR Af strákum og stelpum Að þessu sinni verður hér fjall- að um tvær nýútkomnar bækur sem eiga ýmislegt sammerkt: þær eiga rætur að rekja til Austur- lands og hvor um sig er höfundi sínum til sóma. Báðar eru þær svo eftir höfunda sem hafa áður sannað ágæti sitt á þessu sviði og auk þess unnið til verðlauna (þótt verðlaun séu ekki endilega gæða- stimpill, eins og ótal dæmi sanna!). Loks kemur Roy nokkur Rogers við sögu í báðum tilvikum sem menningarsögulegur bak- grunnur. Þessar bækur eru Grall- araspóar og gott fólk eftir Guðj ón Sveinsson (Bókaforlagsbók) og Stjörnur og strákapör eftir Kristínu Steinsdóttur (Vaka- Helgafell). Þessar bækur virðast ætlaðar svipuðum aldurshópi les- enda og henta vel fluglæsum börnum á öllum aldri (fram yfir tírætt). Höfundarnir virðast báð- ir vinna úr eigin bernskuárum í bókum sínum ef marka má það tímaskeið sem birtist í sögum þeirra (sbr. ofangreindur. Roy Rogers). Að öðru leyti er um býsna ólíkar bækur að ræða. Grallaraspóar og gott fólk er safn smásagna. Allar gerast þær í Tvær gersemar að austan sveit utan sú síðasta, Bið að heilsa Guðbjörgu, sem gerist í Lysti- garðinum. Sú næstsíðasta, Bænin hans Nonna, virðist raunar gerast í annarri sveit en hinar fyrri, þar sem margar persónur birtast aft- ur og aftur. Fyrsta sagan, Eitt hundrað krónur, er langlengst og segir frá einsemd og umkomu- leysi borgarbarns í framandi sveitarumhverfi. Strákarnir í sveitinni eru á heimavelli en Kiddi er hjá vandalausum og því tregur til að taka þátt í strákapör- ÓLÖF PÉTURSDÓTTIR SKRIFAR um þeirra. Þó vill hann allt til vinna að tryggja sér vináttu þeirra. Þarna" verður Kiddi að þræða tvísýnan meðalveg og svo fer að strákarnir stilla honum upp við vegg. Hann neyðist til að brjóta gegn samvisku sinni. Þeg- ar svo er komið sjá strákarnir að þeir hafa gengið of langt og hætta við áform sitt. Varanlegar sættir verða milli þeirra og Kidda og hafa allir þroskast nokkuð vel þegar sögunni lýkur, eru menn að meiri. Sveitasögurnar eru raunar allar um áfanga í lífi drengja og áberandi hve þeim er mikilvægt að missa ekki andlitið frammi fyrir félögum sínum. Allir bera þeir sig mannalega, eru kot- rosknir og svalir, og kappkosta að sýna fram á mannkosti sína, eða öllu heldur karlmannskosti. Þetta sýnir Guðjón gjarna í spaugilegu ljósi, en að baki býr djúpur skilningur og samúð. Hin- ar sveitasögurnar eru fyrstu per- sónu frásagnar eins drengjanna í hópnum. Ljóslifandi og eftir- minnileg persóna er Guðlaug gamla, fjandvinur drengjanna. Þrátt fyrir alla karlmennsku strákanna fer yfirleitt svo að hún reynist þeim viturri og það finnst þeim sárt, en fá ekki rönd við reist. Önnur eftirminnileg per- sóna er búðarmaðurinn í fyrstu sögunni. Þar er farið á kostum. Annars eru allar persónur sagn- anna mjög sannfærandi, frásögn- in leiftrandi af kímni og kjarnyrt með afbrigðum. Einkum eru samtöl lipurlega samin og á köflum snilldarleg. Fyndnust fannst mér sagan Þegar kappar jólastríðsins voru handteknir, þótt þar búi alvara að baki eins og í hinum sögunum. Það er jafn- framt eina sagan þar sem stelpur koma við sögu strákanna í sveitinni svo nokkru nemi. Nú mætti álykta að þarna væri „drengjabók“ á ferðinni. Hið rétta er að þetta eru sögur um. drengi sem allir ættu að hafa gam- an af. Pétur Behrens hefur skreytt bókina fáum en fínlegum mynd- um og er bókin öll fáguð og yfir- - lætislaus útlits. Stjörnur og strákapör Kristín- ar Steinsdóttur er þriðja bókin um Lillu sem reyndar býr í Reykjavík en rekur ættir sínar til Austurfjarðar, sögusviðs fyrri Frumraunir Hér er ætlunin að skoða tvær nýútkomnar bækur ætlaðar ung- lingum sem eiga það sammerkt að vera frumraunir höfunda sinna. Önnur er um strák, hin um stelpu. Báðar lofa góðu. Báðar eru þær illa prófarkalesnar. Og hér opna ég sviga undir orð í eyra. Þessi slælegi prófarkalestur hlýtur að teljast ábyrgð útgef- enda. .fa, svei! í nafni málræktar og almennrar kurteisi, er ekki hægt að prófarkalesa skammlaust bækur sem ætlaðar eru ungvið- inu? Þetta á nefnilega við um býsna margar barna- og unglinga- bækur þessi jólin. Prentvillur eru víða og greina- merkjasetning mjög á reiki. Hvað veldur? Niðurskurðar- og sparnaðarhyggja? Lesblinda, siðblinda? Hvað sem því líður er þetta óþarfur sóðaskapur og virð- ingarleysi við lesendur og höf- unda. Takið ykkur á og útrýmið þessum ófögnuði, kæru útgef- endur! Nú loka ég sviganum og sný mér aftur að bókunum. Kolbrún Aðalsteinsdóttir gef- ur út hjá Erni og Örlygi bókina Dagbók - í hreinskilni sagt. Eins og nafnið gefur til kynna er sagan sögð í dagbókarformi, að minnsta kosti í byrjun, en þegar líða tekur á söguna líkist hún meira frásögn sem sögð er að' nokkrum tíma liðnum en dagbók sem skrásett er jafnharðan og at- burðirnir eiga sér stað. Kata hef- ur skrifið á ömurlegum sextán ára afmælisdegi ssínum og segir frá kynferðislegu ofbeldi sem hún hefur mátt búa við árum saman. Þetta er viðkvæmt og vandmeð- farið viðfangsefni sem höfundur kemst ágætlega frá. Kata losnar undan ánauð stjúpa síns þennan örlagaríka dag. Hún dvelur á sjúkrahusi meðan hún er að jafna sig og síðan verða miklir fagnað- arfundir með henni og móður hennar. Vondi stjúpinn er kom- inn undir lás og slá og þær mæðg- urnar sleikja sár sín heima hjá ömmu Kötu. Hér er ekki lítið færst í fang, en útkoman verður sú að lesandi er gagntekinn af samúð með Kötu. Sjálfstraust hennar er í molum en hún er stað- ráðin í að sigrast á fortíðinni. Hún fær vinnu í búð og kynnist öðrum unglingum, skríður smám saman út úr skelinni og tekur að blómstra á ný. Inn í þessa lífsreynslusögu fléttast svo reyfarakennd uppljóstrun móð- urinnar á faðerni Kötu, ferð þeirra mæðgna til hins goðum líka föður og ævintýraleg Spánar- ferð. ÓLÖF PÉTURSDÓTTIR SKRIFAR Sú samúð sem Kata vekur les- anda á fyrstu síðum bókarinnar veldur því að hann verður tregur til að skiljast við hana, honum er alls ekki sama um hlutskipti hennar. Þessi fyrsti hluti sögunn- ar er langbest skrifaður og veldur því raunar að bókin er þess virði að vera lesin, svo smekklega er farið með dapurlegan þátt mannlífsins. Manni er annt um Kötu og vill vita hvernig henni reiðir af, þess vegna les maður áfram með áfergju og leyfir höf- undi að skipta heldur betur um gír þegar á líður. Jú, þökk, Kata nær sér furðu vel. Hún er eins og Ijóti andarundinn sem breytist í ofurfagran svan. í bókarlok blas- ir framtíði við henni, full af fyrir- heitum. Lesandinn varpar önd- inni léttar. Feginn, líkt og þung og þykk hurð hafi skollið nærri hælum. Höfundur skrifar ekki tiltakan- lega fagurt, íslenskt mál en fyrir- gefst (næstum) allt vegna þess hve bókin - og Kata - er heill- andi. Furðulegt þykir mér til dæmis hve orðið „hönd“ vefst fyrir fólki, en í þessari bók er það ranglega beygt. Hér verður enn að vísa til ábyrgðar þeirra sem ganga frá texta til prentunar. Enn verður maður að nöldra. Hvaða prófarkalestur er þetta eiginlega? Útgefendur þó! Eins fer upp- hrópunin „vá“ alveg óskaplega í taugarnar á mér þegar ég sé hana á prenti, sömuleiðis „ókei“. Þess- ar bjánalegu slettur eru, líkt og prentvillur, allt of algengar í ung- lingabókum á þessari vertíð. Svona rugl ætti að varða við lög. Að vísu eru þessar málvörtur al- gengar í talmáli en alveg óþarfi að festa þærí ritmáli, enda eru þarna á ferðinni óttalegir hortittir hvað merkingu varðar. Víkur nú sögunni frá kyn- ferðislega notaðri stelpu og strák með sjúklega knattspyrnudellu. Það er undarlegur kvilli. Með fiðring í tánum nefnist bók Þor- gríms Þráinssonar, útgefin af Frjálsu framtaki. Þorgrímur er líkt og Kolbrún nýgræðingur á sviði unglingabókmennta. Hann segir frá nýfermdum strák, Kidda, sem stendur á ákveðnum tímamótum í lífi sínu. Líkt og helgur maður gengur í klaustur helgar Kiddi sig knattspyrnunni. Sköpum skiptir að hann þarf að fara í sveitina til afa og ömmu. í rútunni kynnist hann glæsistúlk- unni Sóleyju og segir nokkuð af samskiptum þeirra þetta sumar- ið. Þetta er ekki eins forvitnileg bók og sú sem fjallað er um hér að framan, en þó eru þarna góðir sprettir hér og var. Frásögnin er svolítið stórkarlaleg á köflum en það getur varla talist til lýta, fremur er það í samræmi við allan stíl þessarar bókar. Og enn trufl- ar ófullnægjandi prófarkalestur! Kiddi er á þessum síðum að uppgötva sjálfan sig og skilgreina sig í henni veröld. í upphafi bókar er hann að stelast til að sofa í fótboltaskóm í barnalegum hégóma sínum en í bókarlok er hann orðinn karl í krapinu sem nýtur aðdáunar draumadísarinn- ar Sóleyjar. Vonandi halda þessir höfundar áfram að skrifa fyrir börn og ung- linga. Vonandi rennur upp gull- öld hins vandaða prófarkalest- KRISTIN STBNSDOmR bókanna um hana. Lilla vex með hverri bók og verður lesendum sínum æ hjartfólgnari eftir því sem þeir kynnast henni betur. Að þessu sinni eru það afi og amma sem taka sig upp og heimsækja Lillu í höfuðborginni. Hún sér þau í nýju ljósi í þessu umhverfi, þar sem Roy Rogers og Rokka Billi eiga hug og hjörtu barna. Einkum er afi framandlegur og ólíkursjálfum sér. Hannkannilla við sig í Reykjávík og hefur allt á hornum sér. Amman er á hinn bóginn hin brattasta og unir sér vel. Höfundur lýsir skoplegum hliðum mannlífsins einkar vel og notar einmitt kímnina til að fylla út í persónulýsingar. Þetta tekst afar vel og gerir bókina heillandi, líkt og fyrri bækurnar. Hér er þó kannski komin besta bókin um Lillu til þessa. Hún stendur á tímamótum í lífi sínu, barnið er að verða að unglingi. Þessum tímamótum er lýst með atvikum í lífi Lillu og nýjum viðhorfum hennar sjálfrar til ýmissa hluta. Henni er sjálfri ekki fyllilega ljóst hvað veldur umskiptunum, en fyllist gremju yfir þeirri breytingu sem verður á Kötu vinkonu að austan. Þó fer svo að Lilla sættir sig við lífið og tilveruna undir merkjum fjögralaufasmárans. Hún varðveitir barnið í sjálfri sér, þrátt fyrir allt. Með þessari bók verða einkar ánægjulegir og inni- legir endurfundir lesenda og ástsælla sögupersóna. Ekki má gleyma að geta þess að Reykjavík og tíðarandinn leikur stórt og eftirminnilegt hlutverk í bókinni, að ekki sé minnst á Leif heppna. Svo er bara að vona að frekari tíðindi berist af Lillu. Ég hlakka til! Brian Pilkinton myndskreytir þessa bók sem hinar fyrri um Lillu og bregst ekki bogalistin. Kiljuformið hentar vel fyrir bækur af þessu tagi og mættu fleiri útgáfufyrirtæki taka það upp, Það er algjör ofrausn að gefa allt mögulegt út í rándýru bandi. . Kiljan er bæði hagsmunamál lesenda og útgef- enda. Að lokum: það er alveg svaka- lega gaman að lesa góðar barna- bækur og ætti enginn að vaxa upp j úr því. Allra síst foreldrar og upp- alendur. Enginn heilvita maður mundi gefa barni sínu mat sem hann gæti ekki hugsað sér að borða sjálfur. Sama ætti að gilda um andlegt fóður ungviðisins. Það má ekki vera salmónellu- mengað ruslfæði. Mörg litrík og aðlaðandi bókarkápan hefur að geyma slíkan óþverra. Bækurnar sem hér var um fjallað láta lítið yfir sér við fyrstu sýn, en hér er á ferðinni sannkallaður sælkera- matur sem engum verður illt af. Ég þakka fyrir mig. Anders Hansen -jk j ovaðastaðahrossijN uppmni og saga Grundvallarrit um íslenska hrossarækt ANDERS HANSEN rekur ættir og sögu þessa frábæra hrossakyns. Margir af kunnustu stóðhestum landsins fá sérstaka umfjöllun. Ómissandi rit í bókasafn hestamannsins. Arviers Rm*n SVADASIAU iippnmt ÍSAFOLD

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.