Þjóðviljinn - 22.12.1989, Page 5
® • ■ J?
Afskipti
Sendiherra brýtur Vínarsáttmála
Hjörleifur Guttormsson: Sendiherra Bandaríkjanna braut bœði lög og Vínarsáttmála með
ummœlum sínum um vara flugvöll og álbræðslu. Forsœtisráðherra sammála,
en Jón Sigurðsson telur þetta allt eðlilegt
Þingmönnum borgaratlokk- herrans, en aðrir flokkar voru á
anna á þingi ásamt Jóni og nokkr- þeirri skoðun að hann hefði verið
um öðrum krötum fannst ekkert að skipta sér af íslenskum innan-
athugavert við ummæli sendi- ríkismálum. -hmp
|| jörleifur Guttormsson þing-
maður Alþýðubandalagsins
hóf utandagskrárumræðu á AI-
þingi í gær þar sem hann sagði
sendiherra Bandaríkjanna,
Charles Cobb, hafa brotið bæði
íslensk lög um stjórnmálasam-
skipti og Vínarsamning um sama
efni um samskipti á milli ríkja,
með ummælum í Morgunblaðinu
um varaflugvöll fyrir herinn á Is-
landi og um álbræðslu á íslandi.
Steingrímur Hermannsson for-
sætisráðherra tók undir þetta
með Hjörleifi og sagði óvið-
eigandi að sendiherra Bandaríkj-
anna væri að blanda sér í mál sem
um væru deilur í landinu.
I umræðunum sagði Hjörleifur
að í viðtalinu kæmu fram gróf af-
skipti af íslenskum innanríkis-
málum. Sendiherrann hefði með-
al annars skýrt frá samtölum sín-
um við forráðamenn bandaríska
álfyrirtækisins Alumax, tveimur
samtölum við Jón Sigurðsson
iðnaðarráðherra og að hann ráð-
gerði að að bjóða forráða-
mönnum Alumax og Jóni og sér-
fræðingum hans til frekari við-
ræðna. Þá segi sendiherrann ör-
uggt að umtalsverð fækkun verði
í liði Bandaríkjamanna á megin-
landi Evrópu, en hvað ísland
varði sjái hann hins vegar annað
hlutskipti. Þar þyrfti að fjölga
hernaðarmannvirkjum.
Steingrímur Hermannsson
sagði ljóst að sendiherrann hefði
farið út fyrir þau mörk sem hefð
setti erlendum sendimönnum og
sömuleiðis þau mörk sem 41.
grein Vínarsáttmálans segði til
um. Steingrímur sagðist vilja
ræða málið við utanríkisráðherra
þegar hann kæmi heim frá út-
löndum, en til greina kæmi að
kalla sendiherrann á fund forsæt-
isráðherra og tjá honum að hann
hefði farið út fyrir sín mörk sem
sendiherra.
Afstaða Jóns Sigurðssonar
vakti undrun margra þingmanna.
Hann vildi meina að umrætt við-
tal væri við Charles Cobb á
Laufásvegi 21, þe. að þetta væri
persónulegt viðtal en ekki viðtal
við sendiherra Bandaríkjanna.
Hann vildi ekkert gera í málinu
og engin ástæða væri til að líta á
ummæli sendiherrans sem af-
skipti af íslenskum innanríkis-
málum.
Þessu mótmælti Ólafur Ragnar
Grímsson fjármálaráðherra og
tók undir sjónarmið forsætisráð-
herra. í ummælum sendiherrans
hefði falist tilraun til að hafa áhrif
á ákvarðanatöku íslenskra
stjórnvalda umfram það sem
eðlilegt væri talið. Hann sagðist
algerlega ósammála því að viðtal-
ið væri persónulegt. Öllum hefði
verið ljóst að þetta væri formlegt
viðtal við nýskipaðan sendiherra
Bandaríkjanna á Islandi. Sendi-
herrann hefði rætt málin sem
sendiherra Bandaríkjanna aftur
og aftur.
Grýla kom í heimsókn í Þjóðminjasafnið í gær ásamt þeim Gluggagægi og ,Bjúgnakræki. Þetta var síðasta heimsókn Grýlu og hennar hyskis í Þjóðminja-
safnið fyrir þessi jól, en heimsóknir þessar hafa notið mikilla vinsælda meðal reykvískra skólabarna. Ljósm. Kristinn.
Dómsmál
Eiga kaupfélögin Sambandið?
Jón Laxdal, bóndi á Nesi í Grýt-
ubakkahreppi, hefur höfðað
mál á hendur Sambandi Islenskra
samvinnufélaga í þeim tilgangi að
fá viðurkennt fyrir dómi, einga-
hlutdeild þrotabús Kaupfélags
Svarlbarðseyrar í Sambandinu.
Hann gerir kröfu um að Kaupfé-
lag Svalbarðseyrar, sem var einn
af stofnendum Sambandsins, fái
dæmdan eignarhlut í hlutfalli við
bókfærða eign í stofnsjóði Sam-
bandsins eins og hún var þegar
Kaupfélagið var lýst gjaldþrota,
og að sú eign verði dregin undir
gjaldþrotaskiptin. Mál þetta
verður þingfest 25. janúar n.k. og
er þeim Guðjóni B. Olafssyni for-
Jón Laxdal: Vil láta reyna á yfirlýsingar sem gefnar eru á tyllidögum
stjóra og Ólafi Sverrissyni, fyrr-
verandi kaupfélagsstjóra stefnt
fyrir hönd Sambandsins.
- Ég er einungis að sækja það
sem kaupfélagið á með réttu inni
í Sambandinu og vil láta á það
reyna hvort staðið verði við yfir-
lýsingar sem gefnar eru á tylli-
dögum um að kaupfélögin eigi
sambandið, sagði Jón Laxdal, en
hann sem félagsmaður í Kaupfé-
lagi Svalbarðseyrar og ábyrgðar-
maður fyrir ýmsum skuldbind-
ingum Kaupfélagsins á verulegra
hagsmuna að gæta í þessu máli.
Forsvarsmenn Sambandsins hafa
til þessa ekki viðurkennt eignar-
rétt kaupfélaga með þessum
hætti og á skiptafundi var tillaga
Jóns um málshöfðun gegn Sam-
bandinu felld. Þess vegna höfðar
Jón sjálfur mál nú.
í stefnu málsins koma fram rök
fyrir málshöfðun þessari og segir
m.a. að þegar Kaupfélag Sval-
barðseyrar varð gjaldþrota hafi
það verið aðili að Sambandinu í
nær 85 ár og með því að leggja
eigið fé í grunninn að stofnun
þess og með fjárframlögum og
viðskiptum stuðlað að uppbygg-
ingu og eignarmyndum Sam-
bandsins. Þá er vísað til 76. gr.
stjórnarskrárinnar um friðhelgi
eignarréttar og lög um samvinn-
ufélög og samvinnusambönd, þar
sem m.a. kemur skýrt fram, að
aðilar og stofnendur samvinnu-
sambanda eiga beinan eignarrétt
í umræddri sameign sinni.
'Þ
Guðrún Helgadóttir
Baðst ekki afsökunar
Guðrún Helgadóttir: Hef bœði gagnrýnt stjórn og stjórnarandstöðu.
Umræðaumummælimínlangtumframtilefniogþungorðféllusem ég erfi ekki við menn
Guðrún Helgadóttir forseti
sameinaðs þings bað Sjálfstæðis
menn ekki afsökunar á ummæl-
um sínum um málþófstilraunir
þeirra, eins og þeir höfðu farið
fram á. Sjálfstæðismenn gerðu
þrátt fyrir þetta ekkert úr hótun-
um sínum um að tefja þingfundi
og var þinghald með eðlilegum
hætti í gær. Margir þingmenn eru
þeirrar skoðunar að þar hafi
ráðið úrslitum að á dagskrá
þingsins í gær var kosning í
bankaráð, sem Sjálfstæðismenn
hefðu ekki viljað útiloka sig frá.
í upphafi þingfundar sagði
Guðrún ma. að það kæmi í hlut
forseta að vera talsmenn þings-
ins. Til þeirra væri leitað þegar
spurst væri fyrir um verkstjórn og
framvindu mála á þinginu. Viðtal
við fréttamann RUV hefði valdið
stærsta stjórnmálaflokki landsins
sárindum, sem ekki hefði verið
ætlun að efna til. Kvöldið fyrir
umrætt viðtal hefði forseti raunar
gagnrýnt ríkisstjórnina fyrir að
leggja mál sín of seint fram, svo
þau mættu verða að lögum fyrir
jólahlé. Því teldi forseti ekki á
neinn hallað.
Þá sagði Guðrún að sú umræða
sem átt hefði sér stað í þingsölum
vegna ummæla hennar, hefði ver-
ið langt umfram tilefni og þung
orð hefðu fallið. Forseti myndi
ekki erfa þau og vonaði að hið
sama gilti um umrætt viðtal.
Sjálfstæðismenn töluðu um að
forseti hefði sýnt „nokkra iðrun“.
En þeir þingmenn sem Þjóðvilj-
inn ræddi við voru sammála um
að Guðrún hefði haldið andlitinu
og ekki beðist afsökunar á neinu.
Hins vegar hefðu Sjálfstæðis-
menn runnið á rassinn í málinu.
-hmp
Föstudagur 15. desember 1989 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 5
Lánskjör
21,6% hækkun
r r ■
a ari
Lánskjaravísitalan í janúar er
1,80% hærri en vísitalan í des-
ember. Þá hækkaði vísitala bygg-
ingarkostnaðar um 1,1% á milli
mánaða.
Hækkun lánskjaravísitölunnar
umreiknuð til árshækkunar sam-
svarar 23,9% síðasta mánuð,
21,4% síðustu 3 mánuði, 19,0%
síðustu 6 mánuði og 21,6% síð-
ustu 12 mánuði.
Byggingarvísitalan umreiknuð
til árshækkunarsamsvarar 13,8%
síðasta mánuð, 16,3% síðustu
þrjá mánuði, 22,3% síðustu sex
mánuði og 27,3% síðustu 12
mánuði.
-Sáf
Blysförin
Blysför Samstarfshóps friðar-
samtaka á Þorláksmessu hefst kl.
18 en ekki kl. 19 einsog misritað-
ist í Þjóðviljanum í gær. Blysförin
hefst á Hlemmi og verður gengið
niður Laugaveg og endar gangan
í Lækjargötu fyrir framan Tor-
funa.