Þjóðviljinn - 22.12.1989, Page 8
Helgarblað
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans
Framkvæmdastjóri: Hallur Páll Jónsson
Ritstjórar: Árni Bergmann, Ólafur H. Torfason
Umsjónarmaður Helgarblaðs: Ólafur Gíslason
Fréttastjóri: SigurðurÁ. Friðþjófsson
Útlit: Þröstur Haraldsson
Auglýsingastjóri: Olga Clausen
Afgreiðsla:® 68 13 33
Auglýsingadeild:@68 13 10-68 13 31
Símfax:68 19 35
Verð: í lausasölu 140 krónur
Setning og umbrot: Prentsmiðja Þjóðviljans hf.
Prentun: Blaðaprent hf.
Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis og verkalýðshreyfingar
Siðumúla 6, 108 Reykjavík
Vopn látin
tala í Panama
Aöalfyrirsögnin á forsíöu Morgunblaösins í gær var
meir en undarleg. Þar stóö stærsta letri: „Stjórnarbylting í
Panama. - Noriega kemst í felur“. Enn og aftur veröum
viö vitni aö furðulegri viökvæmni þessa stóra blaðs fyrir
oröstí Bandaríkjanna í heiminum. Fyrirsögnin er einskon-
ar fréttaskýring blaösins sem í rauninni stangast á viö allt
sem í sjálfri fréttinni segir. En þar kemur þaö vitanlega
fram, aö ekki er um neina „stjórnarbyltingu" aö ræöa í
Panama heldur blátt áfram þaö, aö Bush Bandaríkjafor-
seti hefur ákveöiö aö nota bandarískan her, meir en
tuttugu þúsundir manna, til aö koma frá völdum manni
sem honum er þyrnir í augum. Atburöir allir bera sterkan
keim af gamaldags fallbyssubátapólitík heimsveldis: þaö
er látið í veðri vaka aö Noriega (sem hefur alls sextán
þúsund manns undir vopnum) hafi „áformaö árás á
Bandaríkjamenn í Panama", hvernig sem hann heföi átt
aö fara aö því.
Bandaríkjamenn áttu á sínum tíma verulegan þátt í
uppgangi Noriega hershöföingja, sem var á mála hjá
leyniþjónustu þeirra CIA. En herstjóri þessi hefur ekki
makkað rétt eins og þaö heitir og gerst fyrrum húsbænd-
um sínum óþarfur í ýmsum greinum. Því er hann nú settur
af meö valdi.
Margir munu veröa til þess, eins og sjálsagt er, aö
fordæma þesa vopnuðu íhlutun stórveldis í mál Panama.
Samt munu bandarísk stjórnvöld aö líkindum komast upp
meö þetta stríö sitt án teljandi alþjóðlegra vandræöa,
vegna þess blátt áfram hve illt orð Noriega haföi á sér.
þaö breytir því hinsvegar ekki að nágrannar Bandaríkj-
anna í hinni Rómönsku Ameríku hljóta aö líta á íhlutunina í
Panama sem atburð sem miklum háska er hlaðinn.
Vegna þess vitaskuld, aö Bandaríkjamenn hafa áöur
tekiö sér lögregluvald, ekki síst í þessum hluta heims.
Vegna þess aö Bandaríkin hafa margsinnis misnotað
lögregluvald hersveita sinna til þess aö koma frá völdum
ríkisstjórnum sem voru allt annars eölis en stjórn sú sem
Noriega hefur haldiö uppi, stjórnum sem ekki höfðu ann-
að til saka unnið en að hyggja á einhverjar þær þjóðfé-
lagsumbætursem voru ekki aðskapi valdsmönnum þeim
sem sátu í Washington á hverjum tíma. Vegna þess aö
með hernaðaríhlutun í Panama eru Bandaríkin að ítreka
þá stefnu, aö Rómanska Ameríka sé þeirra sýsla í
heiminum og aö engum ráöamanni, hvorki illum né góö-
um, veröi leyft að fara þar með völd til langframa nema aö
sá hinn sami sýni Stóra Bróöur í noröri þá tillitssemi sem
hann vill fá. Fréttir um viðbrögö í Bandaríkjunum sjálfum
minna og á þaö, hve háskalega sjálfsagt þarlendir áhrifa-
menn telja þaö, aö stjórn þeirra sé aö vasast í málum
annarra ríkja með þeim hætti sem nú varð í Panama.
Bush forseti segist vera aö vernda bandaríska þegna í
Panama, hann kveöst líka ætla aö koma á lýöræöi í því
landi. Fyrri staðhæfingin er fyrirsláttur, hin síðari hljómar
ekki illa ef menn heföu ekki reynslu fyrir því, að valt er aö
trúa ráðamönnum í Washington fyrir því, hver fær að
heita vinur lýðræðisins og hver ekki. Einna dapurlegast er
þó þaö, aö þegarfréttin um aötuttugu þúsund bandarískir
hermenn heföu jafnaö aöalstöövar Panamahers viö
jörðu, þá tóku fréttaskýrendur lýöræöisást Bush forseta
ekki sérstaklega alvarlega. Þeir fóru strax aö túlka máiin á
þann veg, að nú væri Bush aö sýna löndum sínum fram á
aö hann væri enginn veifiskati, hann væri karl í krapinu,
haröur og ákveöinn. Þaö er sannarlega ills viti þegar reynt
er að hafa áhrif á vinsældaskalann heima fyrir með
ráöum eins og þeim sem nú er beitt í Panama.
Bók um íslenskar orkulindir
Fulltrúar þeirra sem standa að útgáfu bókarinnar um íslenskar orkulindir. Ari
Trausti Guðmundsson, ritstjóri, Halldór Jónatansson, forstjóri Landsvirkjunar,
Jakob Björnsson frá Orkustofnun og Páll Ólafsson frá Landsnefnd íslands um
stórar stíflur. Mynd: Jim Smart
Landsvirkjun, Orkustofnun og
Landsnefnd Islands um stórar
stíflur hafa í sameiningu gefið út
bók um íslenskar orkulindir.
Bókin er gefin út á ensku og heitir
Energy resources and dams in
Iceland. Hún er gefin út í tilefni af
57. framkvæmdastjórnarfundi
alþjóðanefndar um stórar stíflur,
ICOLD, sem haldinn var í Kaup-
mannahöfn síðastliðið sumar.
- Þetta er grundvallarrit um
tvær megin orkulindir fslands,
vatnsorku og jarðhita. f henni er
að finna aðgengilegar upplýsing-
ar sem ekki hafa verið til á einum
stað áður, sagði Ari Trausti Guð-
mundsson ritstjóri bókarinnar.
í bókinni eru lýsingar og tölu-
legar upplýsingar um allar helstu
vatnsaflsstöðvar og stíflumann-
virki á íslandi og einnig upplýs-
ingar um um helstu jarðhitavir-
kjanir og hitaveitur í landinu. Til
þess að auka enn á hagnýtt gildi
bókarinnar er í henni sögulegt
yfirlit um orkufrekan iðnað á ís-
Iandi.
Bókin er fyrst og fremst skrifuð
fyrir þá útlendinga sem áhuga
hafa á íslenskum orkumálum.
- Það verður síðan að koma í
Ijós hvort mikil eftirspurn verður
eftir ritinu innanlands. Ef greini-
legur áhugi verður fyrir henni
hérlendis er líklegt að við gefum
hana einnig út á íslensku, sagði
Páll Ólafsson en hann sat í rit-
nefnd ásamt Hauki Tómassyni,
Páli Sigurjónssyni, Andrési
Svanbjörnssyni og Páli Flygen-
ring.
Ný stjórnstöð
Útkoma bókarinnar var kynnt
blaðamönnum í gær í húsnæði
nýju stjórnstöðvar Landsvirkjun-
ar, Bústaðavegi 7, sem formlega
var tekið í notkun fyrr í þessum
mánuði. Nýja stjórnstöðin leysir
af hólmi spennustöðina við
Geitháls og er búin mjög
fullkomnum fjarskipta- og fjar-
gæslubúnaði. Frá stöðinni á
Geithálsi var einungis hægt að
stjórna búnaði Landsvirkjunar á
Suðurlandi, við Sog og á Búrfells-
svæðinu. Með tilkomu nýju
stöðvarinnar er hins vegar hægt
að fjarstýra aflstöðvum og spenn-
istöðvum um allt land og fylgjast
nákvæmlega með ástandi á
landinu öllu.
- Með tilkomu nýju stjórns-
töðvarinnar eykst rekstraröryggi
til mikilla muna frá því sem verið
hefur og bilanir og truflanir verða
sjaldgæfari og viðgerðartími mun
styttri, sagði Halldór Jónatans-
son, forstjóri Landsvirkjunar.
Stofnkostnaður við stjórstöð-
ina er 840 miljónir og skiptist í
stórum dráttum þannig að kerfis-
ráðurinn kostarði um 420 miljón-
ir, byggingin sjálf um 348 miljón-
ir og fjarskiptabúnaðurinn um 72
miljónir króna.
-iþ
Helgarveðrið
Horfur á Þorláksmessu: Framan af degi lítur út fyrir hæga austan- og norðaustanátt með smáéljum við
norður- og austurströndina en annars úrkomulaust veður, en undir kvöld fer að hvessa með snjókomu sunnan-
og vestanlands. Frost víðast 5-10 stig.
Horfur á aöfangadag: Stíf NA-átt með snjókomu um allt norðan- og austanvert landið með éljum sunnan-
lands og vestan. Frostlaust verður við austurströndina en allt aö 10 stiga frost norðvesturlands.
i
I
;
8 SÍÐA — NYTT HELGARBLAÐ . Föstudagur 15. desember 1989