Þjóðviljinn - 22.12.1989, Side 16
Það eru
mikil
vísindi
að vera
manneskja
Ræða Thors Vilhj álmssonar
á hátíðarsamkomu stúdenta
1. desember s.l.
16 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 22. desember 1989
íslenzkir menntamenn. ís-
lenzkir menntamenn fyrr og nú.
Ég ætla ekki að tala um
Sæmund fróða sem fór til Parísar,
og dugði ekki minni lærimeistari
en sjálfur andskotinn í Svarta-
skóla. Sumir segja að það sé sem
nú heitir Sorbonne, aðrir tala um
Chartres, og þaðan sé nafnið á
íslenzku. Sæmundur komst
lengra en sjálfur Faust, hann
lærði allt sem andskotinn kunni
og hafði hann svo til snúninga
fyrir sig. Það fer vel á því að helzti
minnisvarði og aðaltákn Háskóla
íslands sé þessi stúdent sem lærði
að snúa á andskotann í hverri
hrinu. Sæmundur á selnum eftir
Ásmund Sveinsson stendur hér
fyrir framan Háskólann, hann
siglir heim, hann blasir við hverj-
um þeim sem kemur í þessa miklu
stofnun og minnir á eftir hverju
sé vert að sækjast: beizla and-
skotann. Þrátt fyrir sífur og bar-
lóm og þus um að öllu fari aftur,
hnigna taki heimsmakt, vona ég
að menntun íslenskra stúdenta
hafi ekki hrakað svo að þeir viti
það ekki lengur sem mestu varð-
ar svo sem það hvernig Sæmund-
ur stúdent komst heim úr París-
arsollinum í skjóli andskotans,
þeir viti að hann samdi við skóla-
meistarann í Svartaskóla um að
sá flytti hann heim til íslands án
þess hann vöknaði. Þeim gamla
var lagið að bregða sér í allra
kvikinda líki, og í selshamnum
var hann kominn með Sæmund
upp í landsteina og hélt hann
hefði eignazt sáliria. En Sæmund-
ur keyrði bókina sína Saltarann
einsog myndin sýnir í hausinn á
andskotanum sem fór í bólakaf
við hina helgu skrift, og Sæmund-
ur óð blautur á land. Beinist ekki
öll þekkingarleit að því að ná
tökum á andskotanum, hneppa
hann niður í sjálfum sér, og ann-
arsstaðar, beizla hin myrku öfl.
Mehr licht, sagði Goethe og dó.
Ég ætla ekki heldur að tala um
okkar eina heilaga mann Þorlák
hinn helga sem nam í Lincoln á
Englandi og tengdist þeirri
heimspeki og trúarvakningu með
dulhyggju sem átti aðalbækistöð í
Marteinsklaustrinu í París. Þor-
lákur mætti andskotanum á reiki
að leita sálna á íslandi, sá var æði
svekktur eftir viðskiptin við
Sæmund og hélt að sér myndi
famast betur að eiga við hina
heilögu einfeldni sem hann hélt í
bráðlæti sínu að færi þar í
Grímsnesinu sem þeir mættust
rétt hjá Ragnari í Smára; Þorlák-
ur tengdist Oddaverjum Iíka.
Hann hóf upp hendur sínar sem
forgylltust í lágsólarskini í kjarr-
móanum einsog hendurnar á
Kristi blessandi lýðinn eftir fjall-
ræðuna í salíbunu sinni á rassin-
um niður kollótt olíufjallið á
myndinni eftir Jón í Möðrudal
þegar kúltúrmaðurinn frá Akur-
eyri hafði farið að ragast í honum
og látið hann breyta fjallinu úr
Herðubreið. Við þennan gull-
handagang steyptist andskotinn
niður í jörðina svo sá í iljar hon-
um alla leið niður til helvítis.
Ég ætla heldur ekki að tala um
þá hámenntuðu listamenn og
skáld sem skrifuðu fornbók-
menntir okkar af sínum mikla
lærdómi og höfðu lesið allar til-
skildar bækur sinnar tíðar til að
vera gjaldgengir í tali lærðra
manna hvar sem þeir fóru um
hinn siðmenntaða heim. Mennt
er máttur. Og þessir menn utan
seilingar Rannsóknarréttarins
skrifuðu bókmenntir fyrir allan
heiminn á íslenzku. Það fannst
blað í Árnasafni með bókalista úr
Skálholti á þrettándu öld, ég veit
um einn samtímamann okkar
sem hefur lesið þær bækur sem
þar eru taldar til þess að vita á
hverju þessir snillingar byggðu,
séra Kolbein Þorleifsson sem
ekki er fastráðinn háskólakenn-
ari.
Enn reikar hugur minn til
þeirra menntamanna sem hafa
orðið þarfastir okkar þjóð. Ég
beiti mig hörku á þessum hátíð-
lega stað og stilli mig um að tala
um Fjölnismenn eða Jón Sigurðs-
son. Ég fer ekkert að gramsa í
þeim heimildum sem við höfum
fyrir því og sönnunum þess hve
heitt lsland var elskað meðal út-
laga á erlendri grund, íslenzkra
menntamanna í Kaupmanna-
höfn. Ég fer ekki að rekja það
mikla ferðalag sem Tómas
Sæmundsson lagði á sig að fara
um álfuna og draga þaðan þau
ágætustu dæmi úr menningu
framandi þjóða sem hæst risu og
íslendingar mættu helzt menntast
af og mannast. Ég dvel ekki einu
sinni við Jónas Hallgrímsson á
þessum palli. Ég þokast til þess
að líta nær mér sjálfum þótt seint
fari.
• • •
Þá kem ég að því sem kann að
sýnast æði gömul saga ykkur ungt
fólk sem sjáið mig standa í dag
hrímgaðan fyrsta desember 1989.
Ég var í hópi þeirra sem voru út-
skrifaðir stúdentar á þeim degi
sem draumar áðurnefndra beztu
sona íslands áttu allir að rætast:
Þegar lýðveldi var stofnað 17.
júní 1944. Heimsstyrjöldinni var
ennþá ekki lokið þótt séð væri
fyrir endann á henni. Við vorum
fyrstu stúdentar hins íslenzka lýð-
veldis. Vorum við ekki einmitt
þessi gullna æska skuldug kyn-
slóðunum sem fóru á undan að
láta nú loksins rætast það sem
hinir sáu í hillingum og draumi.
Við vorum útskrifuð þegar han-
inn gól í fyrsta sinn, við fyrsta
hanagal, settumst upp í rútu þeg-
ar haninn gól í annað sinn, og
snigluðumst í þeirri bflalest sem
náði langleiðina milli Reykjavík-
ur og Valhallar, í einskonar þj óð-
arkaravan sem hugmóður batt
órjúfandi festum. Allan þann dag
rigndi á hamingjusama og þakk-
láta þjóð sem var full af andakt,
uppstreymandi gleði og lotningu,
og heitstrengingum. Þetta var
sameinuð þjóð sem hugði ein-
beitt á fagurt mannlíf í þeim nýja
heimi sem hvarvetna myndi rísa
um eldsviðin löndin, á rústunum.
Þessi þjóð var ekki eldi sviðin
einsog hinar. Við sáum fram á
það að herinn færi þegar stríði
lyki, og við yrðum alfrjáls með
þau tækifæri sem aldrei höfðu
fyrr hlotnast. Við sem höfðum
notið þeirra forréttinda að vera
hernumin af þeim sem hugur
okkar fylgdi í stríðinu við and-
styggilegustu ófreskju sögunnar,
nasistana. Þó guldu íslendingar
afhroð í stríðinu, margir íslenzkir
sjómenn týndu lífinu í skipalest-
unum sem kafbátar nasista sátu
um, og komu upp úr djúpinu
hverja nótt að tína niður skipin
eitt eftir annað með tundurskeyt-
um sínum, og allar nætur loguðu
af eldi vítis, kringum íslenzka sjó-
menn. Og þau sem sigldu ein og
óvopnuð sættu líka fólsku nasist-
anna, sem var kórrétt samkvæmt
kenningu þeirra og hugsjón, að
níðast á þeim sem ekki má verja
sig. Auðvitað var fólska á báða
bóga einsog alltaf í stríði; en í
nasismanum er fólskan dáð og
sveipuð Ijóma múgheimsku,
samkvæmt forskriftinni úr Mein
Kampf.
Hitt er önnur saga hvernig
tókst til með heitstrengingarnar,
að standa við þær og góðu áform-
in. Fyrr en varði var skollið á
kalda stríðið með öllu sálarleysi
sínu og formyrkvun. McCarthy-
ismi. Og þjóðin var klofin. Það
var ljótur tími sem ég ætla ekki að
fjölyrða um; þegar talhlýðni og
hræðslugæði voru vænlegust til
frama, og óskaleiði undirmáls-
mönnum. Og andstæðurnar ólu
hvor aðra einsog fyrri daginn.
Og þó, þegar ég hugsa um
heitstrengingarnar þá kemur í
hugann að þegar við urðum stúd-
entar við lýðveldisstofnunina, þá
var hér ekki sinfóníuhljómsveit,
ekki listasafn ríkisins, ekki búið
að opna Þjóðleikhúsið, hvað þá
farið að láta sér detta í hug veg-
legt borgarleikhús. Við kynnt-
umst klassískri tónlist í útvarp-
inu, og svöluðum þorsta okkar
með því að hlusta á plötur, út-
lendri málaralist af bókum. Allt
þetta sem ég nefndi kostaði sína
baráttu við þursa síns tíma og úr-
tölumenn.
• • •
En núna? Hvað er nú? Þá
vandast málið. Þessadagana æðir
allt á mikilli ferð og hraðbreytist
allt. Við vitum ekki hvað er nú
fyrr en það bara var og er ekki
lengur. I gær var annað. Kannski
á morgun annað en þessa stund-
ina sem nú er að líða. Nú segja
menn: ný heimsmynd, ný verald-
arsýn, - hvað sem það þýðir.
Kenningakerfin hrynja, hvað
tekur við? Ný kenningakerfi, ný
sýn? Ætli við verðum ekki að
flýta okkur hægt í ályktunum
þegar allt gerist svona hratt, doka
aðeins meðan jóreykurinn hnfg-
ur, og við getum farið að sjá til
vegar.
Öll kenning er grá, sagði Goet-
he. Grá, - já ef lífsandann
skortir, ef síspurul sál mannsins
nærir hana ekki kvikandi lífi, svo
hún megi vaxa og vaka til þurftar
manneskjunum. Hvernig á að sjá
við þeim voða sem fylgir öllu
valdi, því sem spillir mönnunum,
fyllir þá hroka, gerir þá einsýna
og kalda. Við sjáum þá rísa og
eflast uns þeir sitja hrumir kulvís-
ir og blindir og heyra bara í-
smeygilegt smjaður, hafa hrund-
ið frá sér þeim sem sögðu sinn
hug, þeim sem spurðu, drepið þá
og fangelsað sem efuðust, þá sem
færðu vondar fréttir. Var ekki
Shakespeare aftur og aftur að
sýna okkur það sama: hinn glæsti
prins hefst gegn svikum og spill-
ingu, vekur vonir og tiltrú og
hrindir harðstjóranum. Skyldi þá
byrja ný blómatíð? Nei, valdið
einangrar hann, tortryggnin, ótt-
inn myrkvar sál hans og afskræm-
ir, og illskan hefur völdin sem
fyrr. Þetta sýnir Eisenstein svo
snilldarlega í kvikmynd sinni um
Ivan grimma, eða var hann kann-
ski að fjalla um Stalín? Hann
fékk Stalínverðlaun fyrir fyrri-
hlutann, Stalin lét. banna seinni-
hlutann.
Það er einhver sorglegasta
goðsögn aldarinnar, það eru þeir
sem hugsuðu hreinast og stærst
um fegurra mannlíf, réttlæti
þessa heims. Byltiagarmaðurinn
sem ætlaði að iskaþa guðsríki
handa mönnunumá jörðinni, svo
þyrfti engan guð, firelsi jafnrétti
og bræðralag. HVarurðu þeir úti,
þessir sem vildu svo vel og fórn-
uðu öllu fyrir hugsjón sína? Hvar
varð hugsjónin útl? Svo spyr
margur. Það átti aðíverða réttlátt
og gott samfélag manna. Ekki
guðsríki nema að því leyti sem
guðinn byggi í öllum mönnum, og
mætti rætast þar,: að marki í
hverjum manni, í öllu sem lifði.
Andi, sál, guð, eitthvað heilagt í
manninum sem ber að virða,
hverju nafni sem það nefnist.
Voru þá byltingamar ekki til
góðs? Jú þær vom til góðs. Þeim
fylgdi mikið blóð og böl, og
illska; og snerust iðulega í and-
hverfu sína, nýja kúgun. Þarf þá
ekki nýjar byltingar? Er það ekki
einmitt það sem :er að gerast
núna? En hverjar em nýju hug-
sjónirnar? Hvar?
Árið 1968 riðuðuþjóðfélögin á
Vesturlöndum líka, borgarstræt-
in voru krökk af hlaupandi múg
með menntamennina fremsta,
sem öllu hugðust bylta, börðust
við lögreglu, og hrópuðu í eld-
móði á eitthvað nýtt: niður með
ellina, niður með lygarnar. Lifi
sannleikurinn. Byltingin brauzt
út á harðahlaupum án nokkurrar
stefnuskrár eða skipulags með
miklu fjöri brambolti og ræðu-
höldum; einsog skarinn lifði í
voninni um að prógrammið fædd-
ist á þessum hlaupum, þeim á-
skotnaðist stefnuskrá í látunum.
fyrr en varði voru flestir orðnir
móðir, ófáir með harðsperrur
eftir lætin, og hverri tign af velli
velt sem veröldina á, einsog Þor-
steinn Erlingsson orti. Þá fór allt í
sama farveginn aftur nema marg-
ur í þessum æskublóma hætti að
eiga hugsjónir, og fór að lesa
undir próf til að verða skjalaðir
embættismenn og tækir fið-
skiptafræðingar og koma sér vel
fyrir, og byltingamennirnir
gömlu breyttust í smásmugulega
borgara og hlýddu öllum reglum
kerfisins endurreista; nema
sumir settu ekki á sig bindi þótt
þeir kæmu fram í sjónvarpi til að
svara spurningum með endur-
stöðluðu orðafari.
Æ þetta er gömul saga, æskan
með óþreyjuna og hugsjónirnar
og eldmóðinn; þar kemur að hún
hættir að vera ung, og verður
leiðinleg og smámunasöm og
skammsýn af útmetinni ábyrgð
og áhyggjum og öllu þessu sem
menn taka á sig, fyrír sig og sína,
ef ekki samfélagið; og þeir sem
voru ungir í gær þeir eru búnir að
gleyma því í dag, og óttast það
mest sem er ungt og virðist nýtt.
Nátttröllin í þjóðfélaginu, þetta
voru eitt sinn ungir menn í upp-
reisn og óþreyju, og þeir verða
gamlir og einangraðir og forpok-
aðir með ódaun í iðrum og fnyk í
sálinni, og þvagsýru í limum og
eiga kannski erfitt með að pissa
þótt þeir hafi öll völd og kjósi
þjóðum örlög. Þeim berst ekki
almannarómur þar til hann er
orðinn að öskri sem fyllir strætin
með feiknasúg, og byltir þeim úr
sessi þegar allt virtist sem trygg-
ast í höllinni þeirra, á hefðartind-
inum kalda.
Árið 1968 var vorið í Prag.
Búdapest 1956. Sósíalismi með
mannlegri ásýnd. Allt var það
barið niður af þeim böðlum sem
komu í staðinn fyrir Iausnara
fólksins. Nú faðmast þeir á svöl-
unum frammi fyrir hálfri milljón
manna Dúbsjek sem var kastað á
hjarnið og skáldið Vaclav Havel
sem löngum gisti svartholin.
Hvert stefnir hér? Hvar standa
menntamennirnir sem ættu að
vera vaxtarbroddur? Næmastir á
það sem er að gerast, hið nýja
sem bærir á sér, vorvindana.
Undanfarin ár hefur maður á
hinn bóginn verið að heyra þrá-
látt tal um hvernig farpest frjáls-
hyggjunnar svonefndu stakk sér
niður í skólum landsins. Nú blasa
við í þjóðlífi okkar afleiðingar
þessarar meinsemdar, sviðin
jörð, atvinnuleysi orðið stað-
reynd, en það var áður okkar
mesta stolt að segja öðrum frá því
að á íslandi hefðu allir atvinnu
um leið og við raupuðum af því
að vera bókmenntaþjóð. Því
gleðilegra er að frjálshyggjan
virðist vera að veslast upp, og
virðisaukaskatturinn var felldur
niður af bókum, verður ekki sem
horfði hæstur í heimi, heldur er
hann felldur niður.
an sagði mér í sumar ljótar sögur
af því hversu fjölgaði í þeim
hjörðum í Bandaríkjunum sem
hann kallaði unemployable, sem
ekki væri hægt að hafa í neinni
vinnu sökum fáfræði. Það er
varla hægt að hugsa sér kostnað-
arsamari sparnað en að skera
gráðugt niður útgjöld til skóla og
menntunar.
Skólar verða ansi dýrir ef fólk
lærir þar ekkert. Hvernig var
þetta áður? Hvernig er það nú? í
eina tíð þótti stúdentspróf nokk-
urs verður áfangi, og átti að heita
trygging fyrir lágmarksmenntun.
Margur lagði þá hart að sér til að
komast í skóla, og þegar þangað
var komið kostaði sitt að vinna
fyrir áframhaldinu. Nú er á
hverju strái fólk með stúdents-
próf sem er hvorki talandi né skrif-
fandi á móðurmáli sínu. Láng-
skólagengnir menn geta varla
komið orðum að einföldustu
hlutum á íslenzku. Ýmsir sér-
fræðingar láta svo lítið að ganga
fram fyrir þjóðina og eru þá orðn-
ir óskiljanlegir náttúrugreindu
fólki sem talar íslenzku. Þeir tala
eitthvert starfsklíkumál, hugsun-
in á öðru máli ef ekki í útlendum
fenjaþokum. Nú er verið að tala
um að gera málræktarátak ráðu-
neytislega stjórnað. í eina tíð var
ætlazt til þess að allir kennarar
væru móðurmálskennarar. Bezti
íslenskukennarinn sem ég hafði í
menntaskóla var Pálmi Hannes-
son sem kenndi mér einn vetur
náttúrufræði.
Orðið menntun er samstofna
við að mannast, öðlast
manndóm. Að forðast hið
ómennska, verða ekki mann-
leysa. Og menning hlýtur að eiga
leið með menntun. En það er
hægt að menntast og mannast án
þess að fara í skóla. í Háskólans
forsal standa þessi orð gullnu
letri: Vísindin efla alla dáð. Þetta
gæti líka dugað sem svar við
spurningu dagsins.
Það eru mikil vísindi að vera
manneskja, sagði Jóhannes Kjar-
val við mig einu sinni, og snar-
stansaði í ösinni í Austurstræti.
Gífurlegt átak hefur verið gert í bflastæðamálum
borgarinnar. í miðborg Reykjavíkur hafa á tiltölu-
lega skömmum tíma verið byggð og tekin í notkun
svokölluð bflastæðahús og einnig hefur almennum
bflastæðum verið fjölgað verulega. Ökumenn eru
hvattir til að kynna sér þessi mál.
Á kortinu hér að neðan má sjá greinilega merkta
punkta, sem sýna hvar í miðbænum er helst að
finna aðgengileg og örugg bflastæði.
Laugardagana í desember er ókeypis í alla stöðu-
mæla, bílastæði og bflastæðahús á vegum Reykja-
víkurborgar. í bflastæðið í Kolaporti (C), gildir það
þó eingöngu um laugardaginn 23. desember (Þor-
láksmessu).
Á tímabilinu 16.-23. desember verður bflaumferð
takmörkuð um Laugaveginn, ef þörf krefur. Gera
má ráð fyrir tímabundinni lokun laugardaginn 16.
desember og á Þorláksmessu.
Starfsfólk í miðborginni er eindregið hvatt til að
leggja bflum sínum fjær, þannig að viðskiptavinir
komist með hægara móti sem næst þeirri þjónustu
sem þeir þurfa að sækja.
Sérstaklega er bent á í þessu sambandi stæði merkt
E, F og G.
Lögreglan aðstoðar og greiðir fyrir umferð í borg-
inni og hefur eftirlit með farartækjum sem skapa
hættu og hindra eðlilega umferð.
J LMU ild UlldSUCUmiUSl.
Akið af stæði að útaksturshliði, setjið
miðann í miðaraufina, hliðið opnast.
Bíllinn sóttur:
Gengið að miðaaflesara. Setjið miðann
í miðaraufina, uppsett gjald greitt, þú
færð miðann aftur.
1 Komið að bílastæðahúsi: 2.
Ýtið á hnapp við innkeyrsluhliðið,
takið við miða og geymið!
Já hvað kostar menntun?
Hvernig í ósköpunum á að reikna
það dæmi? Er hægt að meta
menntun til fjár? Á þessum há-
tíðisdegi er spurt: Er menntun of
dýr? Hvað kostar hitt, að draga
úr menntun? Hvað kostar fá-
fræði? Þeir hafa verið að reikna
og reikna á Englandi og komizt
að þeirri niðurstöðu að þjóðfé-
lagið hafi ekki ráð á fáfræðinni
sem þar ríkir, og vex óðum sam-
kvæmt fagnaðarboðskap Thatc-
hers í anda kramarasálarinnar
Miltons Friedmans. Kostnaður af
fáfræðinni sé svo hrikalegur orð-
inn að þjóðfélagið rísi varla undir
því. Spamaður járnfrúarinnar
sem frjálshyggjuarfanum þykir
sæmdarheiti, sparnaður hennar á
menntunarsviði og í menning-
armálum yfirleitt er að koma
Bretum á vonarvöl. Hún hefur
lamað menntakerfið með ráðsíu-
drýldni sinni þar sem hún hendir
kjarnanum og heldur hratinu.
Svæsinn niðurskurður gjalda til
menntastofnana, það er aftur
kallað styrkir, veldur að ólæsið er
orðið svo mikill fjárhagslegur
baggi, allt þetta fólk sem skortir
upplýsingar og fræðslu til að lifa í
nútímaþjóðfélagi, og getur ekki
gert svo vel og drepizt samkvæmt
prógrammi frjálshyggjunnar.
Sömu sögu er að segja frá Banda-
ríkjunum. Merkur prófessor það-
NÝTT HELGARBLAÐ — SÍÐA 17
Klippið út auglysinguna
og hafið meðferöis í bilnum
A Bílastæðahús - Vesturgata 7-100 stæði
B Bflastæðahús - Bergstaðir - 50 stæði
C Bílastæðahús - Kolaport - 90 stæði/180 stæði á Þorláksmessu
D Opin bílastæði - Bakkastæði - 350 stæði
E Opin bflastæði - milli Sætúns og Skúlagötu - 150 stæði
F Opin bílastæði - Vitatorg - 150 stæði
G Opin bílastæði - milli Vatnsstígs og Frakkastígs
Bílastæðasjóður Reykjavíkur
Lögreglan í Reykjavík
Umferðarnefnd Revkjavíkur