Þjóðviljinn - 22.12.1989, Blaðsíða 25

Þjóðviljinn - 22.12.1989, Blaðsíða 25
Síðan skein sól sendi frá sér ágætis byrjunarverk í fyrra, hressa plötu þar sem rokkað var af töluverðri lífsgleði. Þegar fregnir fóru síðan að berast af nýrri plötu frá sveitinni gat mað- ur svo sem búist við hverju sem var en í mínum huga voru nokkur Betra seint en aldrei Hún ber þess merki „nýja“ platan hans Eiríks Haukssonar, Skot i myrkri, að hafa verið lengi í vinnslu. Upptökur hófust í fyrr- asumar, og meðgöngutíminn þar á undan mun hafa verið nokkur, kannske allar götur síðan Start- platan kom út upp úr 1980? .. .eigi hef ég nú svo sem hugmynd um það, en þessi plata Eiríks minnir dulítið á hana, enda tveir félaga Eiríks úr þeirri sveit með honum á þessari fyrstu sólóplötu hans, rokkgítarleikararnir góðu og gegnu Kristján Edelstein og Sig- urgeir Sigmundsson. Og þeir eru ekkert verri sem sjá um baktakt- inn: Ásgeir Óskarsson trommar og Tómas Tómasson spilar á bassa og hljómborð, auk þess sem hann útsetti lögin með Eiríki. í ofanálag er Karl Sig- hvatsson við orgelið í þrem lögum, og má kannske segja að ekki hefði verið verra að hafa hann dulítið framar í hljóðblönd- un þar sem hann kemur við sögu, því að Kalli er virkileg skrautfjöður. Þetta er sem sagt þrusulið á Skoti í myrkri og er enda spila- mennskan öll á plötunni með miklum ágætum. En yfirbragðið er gamaldags, eins og upp- hafsmálsgrein þessarar umsagnar gefur til kynna. Þar með skyldi þó enginn dæma hana úr leik, því að Skot í myrkri er afskaplega við- felldin, í sínum létta og meló- díska þungarokksstíl, í anda frumherja þeirrar stefnu frá átt- unda áratugnum. Eiríkur er hinn besti söngvari hér - spilar reyndar líka á gítar ágætlega, en læturfélögum sínum eftir sólóin. Auk þess finnst mér hann vera góður lagasmiður, síðri sem textasmiður, en á ágæta spretti eins og í titillaginu og Hlekkjaður. Hins vegar er allt í lagi með textana í munni Eiríks, þeir eru bara sumir ekki sérlega góðir til aflestrar, eins og til dæm- is Truntu-búgí, sem er hinn besti rokkari og ber sig því vel á plöt- unni. Af 10 lögum plötunnar eru 7 eftir Eirík. Tvö eru erlend, Súp- erhetja Pauls Williams og Sexí, skandinavískur ágætur rokkari, og eru íslenskir textar við þau bæði, eftir Eirík. En það lag sem mest hefur heyrst í útvarpi af þessari plötu er hið ljómandi lag Gunnars Þórðarsonar Er hann birtist, reglulega vel flutt, og sannast hér hið fornkveðna, að aldrei er góð vísa of oft kveðin. Sem sagt, þótt engin stórtíð- indi sé að finna á Skoti í myrkri, er það plata sem ég hlusta á með ánægju - enda gefin fyrir gamlan merg. A vond ský á lofti, þar sem Sólin hafði kvalið mig í gegnum út- varpsviðtæki í allt sumar með fullkomlega óþolandi lagi sem heitir að ég held „Dísa“. Sem bet- ur fer er þetta lag ekki á nýju plötunni, „Ég stend á skýi“. Á þessari nýju plötu hefur Síð- an skein sól mikið til horfið frá rokkinu til rólegri raulara þar sem órafmögnuð hljóðfæri ráða mikið ferðinni. Og svo ég hafi ekki um það allt of mörg orð, þá finnst mér þessi hlið hljóm- sveitarinnar klæða hana illa, sér- staklega söngvarann Helga Björnsson. Það er ekkert út á gæði undirspilsins að setja, þeir Jakob, Eyjólfur og Ingólfur skila sínu verki yfirleitt mjög vel. En þessi raularahlið hljómsveitar- innar hljómar einfaldlega eins og skátasöngvar í frekar leiðinlegri útilegu þar sem pylsurnar hafa allar brunnið við á grillinu. Manni bregður óneitanlega frá fyrri plötu þegar hlustað er á fyrstu fimm lög plötunnar. Þar er ekkert fjör, enginn neisti, þessi lög bara eru þarna og líða átaka- laust áfram. Fyrsta lagið af þess- um fimm, Syngjum óð“, er skást Súrsæt Þá hefur Bless sent frá sér sína fyrstu plötu og kallar hana „Melt- ingu“. Nafnið var víst valið vegna þess að „Melting" hefur merk- ingu í fleiri tungumálum en ís- lensku en þrátt fyrir það held ég að merking orðsins á íslensku skýri innihald plötunnar best. Töluverð melting virðist eiga sér stað hjá Bless. Það er óhjákvæmilegt að bera þessa fyrstu plötu Bless saman við það besta sem Svarthvítur draumur gerði. En að mínum dómi stendur „Goð“ upp úr verk- um Gunnars og hljómsveita hans. Það verður að segjast eins og er að „Melting" stenst ekki fullkomlega samanburð við „Goð“. Þróunarlega séð felst engin viðbót í „Meltingu“. Per- sónulega hefði ég viljað fá frá Bless betur unna plötu og betur útfærða, að aðeins meira hefði verið pælt í hlutunum. Menn verða að fara áfram veginn því Langi Seli, Bubbi og Lamamir Nú þegar fólk á vinnumarkaði bætist í jólafríið með skólafólk- inu er boðið upp á tónleika til að stilla sig inn á jólin. Langi Seli og Skuggarnir koma saman í Tungl- inu í kvöld, hressir og kátir eftir fjögurra mánaða tónleikahlé á klakanum. Þeir Kommi, Seli, Jón og Grímsi hituðu þó nýlega upp fyrir Sykurmolana í Town and Contry Club í London. Samkvæmt tilkynningu frá Langa Sela og Skuggunum not- uðu þeir tækifærið og keyptu jól- þótt textinn, fimm línur, sé í stysta lagi. Aftur á móti hefur lagið „Kartöflur" alla burði til að verða jafn óþolandi og „Dísa“ og hjálpast þar allt að. Það er nú svo einfalt að Helgi Björnsson, sem óneitanlega er mest áberandi persóna hljóm- sveitarinnar, nýtur sín best sem söngvari í rokkaðri lögum, þar sem ærslin eru ekki langt undan ásamt töffaraímynd rokkarans. Honum hefur líka frekar farið aftur sem textasmiði en Helgi hefur annars samið marga af skemmtilegustu textum rokksins seinni árin. Það er aðeins eitt lag, á „Ég stend á skýi“, sem svarar einhverjum þeirra væntinga sem maður hafði til Sólarinnar og það er lagið „Ég verð að fá að skjóta þig“. En þetta er sjöunda lag plötunnar og fyrst þar finnst mér platan loksins byrja, eftir slappan inngang. Textalega, taktlega og stemmningarlega kannast maður fyrst við Helga í þessu lagi. Síðan skein sól hefði átt að láta nægja að flippa með Þórsmerkurstílinn á ferðum sínum um landið í sumar en fara síðan í hljóðver og taka upp almennilega rokkplötu, í anda „Ég verð að fá að skjóta þig“ og „Skrýtið", sem af óskiljanlegum ástæðum er borað mjög aftarlega á plötuna. Yfir- leitt er illskiljanlegt hvers vegna öllum hressari lögum plötunnar er skipað í öftustu sæti á plötunni. Tólfta lagið, „Sannleikann", hefði til að mynda mátt setja í eitt af fyrstu sætunum og sömuleiðis gamla Sólarslagarann „Bannað“, sem sennilega er aukalag á dis- knum eins og „Leyndarmál“. Þótt það kunni að virka vel fyrir sal af fólki að fara með órafmagn- aða raulara gegnir öðru máli þeg- ar plata er annars vegar. Fyrsta plata Sólarinnar var í heildina miklu betri plata en „Ég stend á skýi“. Þar voru vaxtar- broddar sem sannarlega hefði mátt rækta upp í fallegar jurtir. Þrátt fyrir nokkur ágæt lög veldur „Ég stend á skýi“ mér vonbrigð- um. Sólardrengir. Betur má ef duga skal! -hmp kveðja annars er hætt við að þeir verði eftir einir á sinni stoppistöð, sama hvað hún kann síðan að hafa til síns ágætis. Annars má margt gott segja um „Meltingu“, á henni má finna nokkur hin fínustu lög, þrátt fyrir allt og allt. „Aleinn í bíó“ eða „Alone At The Movies“ er til að mynda hið skemmtilegasta lag við réttar aðstæður. Gamalkunn- ugt stef frá Gunnari Hjálm- arssyni, „Nothing Ever Happens In My Head“ hljómar vel í þeirri útsetningu sem Bless hefur kosið því og er eitt best útfærða lagið á plötunni. Einhverra hluta vegna er ég hrifnari af síðu tvö en síðu eitt. En á síðu tvö eru einmitt tvö af þeim þremur lögum plötunnar sem tekin voru upp á vormánuð- um en afgangurinn var tekinn upp í september í haust í öðru hljóðveri og með öðrum hljóð- manni en téð þrjú lög. Hvort Hljómsveitin Bless. Mynd: Þóm. munurinn liggur í hljóðverum og hljóðmanni skal ósagt látið en „Buski“, fyrsta lagið á síðu tvö, er besta lagið á plötunni að mínu viti. Takturinn í því er með róleg- asta móti miðað við Bless, enda er þar sungið um mann sem vill fá frið til að blunda og dreyma fyrir einhverjum ónefndum. „Akker- ið mitt“ fylgir í kjölfar „Buska“ og er einnig ágætt lag. „Melting“ er undir getu hljóm- sveitarinnar þegar á heildina er litið. Ég ætlast til meira af þessum mönnum vegna þess að þeir hafa allar forsendur til þess. Þeir eiga líka vonandi eftir að gera mér til geðs. „Melting“ er ágætur lyf- seðill á þá tegund útrásar sem felst í því að finna fyrir hrópinu úr iðrum sálarinnar en meira að segja hrópið má fínstilla. En það verður að hafa í huga að allt hefur sinn tíma, líka meltingin. -hmp agjafirnar handa mæðrum sínum í London. Þeir lofa því að spila vinsælustu lögin sín ásamt þeim lögum sem enn hafa ekki náð Langi Seli og Skuggarnir. Mynd: Jim Smart. DÆGURMA hylli almennings. Tónleikarnir hefjast klukkan 23 og þeim lýkur klukkan 01. Bubbi Morthens verður síðan á ferðinni með hljómsveit sinni Lömunum á Hótel Borg á Þor- láksmessukvöld. Tónleikar Bubba þennan dag, á þessum stað, eru orðnir ófáir og raúnar ómissandi í tilveru margra. Þeir sem vilja koma sér þægilega fyrir ættu því að mæta snemma. Hljómsveit Bubba, Lamarnir, hefur einnig fengið góðar undir- tektir þeirra sem heyrt hafa á þeim tvennu tónleikum þar sem hún hefur komið fram. Og þar sem Bubbi er óútreiknanlegur er eins gott fyrir þá sem enn hafa ekki heyrt í honum með Lömun- um, að grípa tækifærið á Þorláks- messu. HEIMIR MÁR PÉTURSSON Föstudagur 22. desember 1989 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 25

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.