Þjóðviljinn - 22.12.1989, Síða 27
1 , ÚRRÍKI
NATTÚRUNNAR
ARI TRAUSTI
GUÐMUNDSSON
SKRIFAR
SKJALFTAMIÐJA
YFIRBORÐ
JARÐAR
BROTALÍNA
JARÐLAGA-
STAFLI
PYERT
A OT-
BEIOSLU-
STEFNU
p s yr l/r
Skj álftalínurit
PÉTTING / ÞYNNING YFIRBORÐSBYLGJUR
Býlgjustefnur
H vað er jarðskjátfti?
í gömtu riti er sagt frá því er
jörðin „pipraði og skalf af ótta“ á
meðan einn af svonefndum
Suðurlandsskjálftum reið yfir.
Mjög margir íslendingar hafa
fundið jarðskjálfta og það er al-
kunna að þeir stafa oftast af því
að jarðlög láta undan spennu sem
hleðst upp í þeim á atllöngum
tíma.
En hvers vegna hleðst þessi
spenna upp og hvað gerist þegar
jarðlögin brotna?
Nú orðið er ljóst að jarð-
skorpan skiptist upp í stóra fleka
(plötur) sem hreyfast innbyrðis.
Það er einkum á jöðrum þeirra
sem mikil spenna hleðst upp í
Ný þáttaröð
Ari Trausti Guðmundsson
jarðeðlisfræðingur hefur tekið að
sér að skrifa reglulega pistla um
náttúruvísindi fyrir Nýtt helgar-
blað. Bera þeir heitið „Úr ríki
náttúrunnar“. Fjallar Ari um
breitt svið raunvísinda, m.a. um
sólina, lofthjúp jarðar, norður-
ljós, frostveðrun, hafstrauma,
stjarnvísindi, hugtök í eðlisfræði
og fjölda marga aðra þætti. Nýtt
helgarblað telur mikinn feng að
þessu efni og býður Ara Trausta
velkominn til samvinnu.
jarðlögum; t.d. víða um miðbik
íslands og í miðju Atlantshafsins
eru mörk platna sem skiljast að.
Ef hreyfingin þar væri jöfn og
jarðlögin létu greiðlega undan
fjarlægðust plöturnar hvor aðra
um 2 cm á ári. En jarðlögin hafa
allmikið brotþol og þess vegna
verður til í þeim spenna. Þegar
hún yfirgnæfir brotþolið á til-
teknum stað bresta jarðlögin og
til verða sprungur í jarðlagastafl-
anum. Landið beggja vegna
slíkra sprungna hreyfist um leið
til tveggja átta eftir því hvernig
upphaflega átakið var á jarðlaga-
staflann.
Upptök
Þegar berg brestur undan
spennu, vérður upphaf þess ferlis
á fleti (oft gamalli sprungu) ofan í
jörðu; síðan rifnar jörðin frá
þeim punkti uns hreyfing sést á
yfirborðinu (þar sem sprungan er
eða verður sýnileg). Punkturinn
er UPPTÖK skjálftans (algengt
dýpi að upptökum er 5 -10 km á
íslandi). Beint fyrir ofan hann (á
yfirborðinu) er skjálftamiðjan.
Þegar bresturinn verður (á ör-
skotsstund) losnar orka sem safn-
aðist fyrir í berginu við vaxandi
spennu og nýtist bæði við að ryk-
kja jarðlagastöflunum til, mynda
hita og „hrista" bergið - eða
m.ö.o. það leggur eins konar
Jólatrésskemmtun
Læknafélags Reykjavíkur og Lyfjafræöingafé-
lags Islands verður í Domus Medica miðviku-
daginn 27. desember frá kl. 15-18.
Jólasveinarnir
Bili bíllinn
getur rétt staðsettur
VIÐVÖRUNAR
ÞRÍHYRNINGUR
skipt öllu máli
UUMFERÐAR
RÁÐ
höggbylgja af stað út frá miðj-
unni og breiðist út í þrivíðu rúmi í
þessu föstu efni jarðlagastaflans -
reynandi er að hugsa sér bylgju-
skafl sem stækkandi kúlu með
miðju í upptökunum.
Þegar í stað verður bylgju-
hreyfingin tvíþætt. LANG-
BYLGJUR (hljóðbylgjur) - sem
þjappa einingum bergsins saman
eða toga þær í sundur (á víxl) í
sömu stefnu og bylgjurnar berast
- þær fara 1,7 sinnum hraðar yfir
en ÞVERBYLGJUR. Þær síðar-
nefndu þjappa efni og toga í það
þvert á eigin útbreiðslustefnu.
Auk þess hafa báðar bylgjuteg-
undimar mismunandi hraða
(mældan í kílómetrum á sek.)
eftir þéttleika bergsins.
Þegar bylgjuskaflinn (kúlan
stækkandi!) nær yfirborði jarðar
fer það að dúa og sú hreyfing
framkallar yfirborðsbylgju líkt og
sést þegar steini er kastað í vatn .
Maður sem er einhvers staðar til
hliðar við jarðskjálftamiðjuna
finnur (ef allt er nú samandregið)
högg þegar langbylgjuna ber að,
beint frá upptökunum (P-bylgja á
skjáftamáli), annað skömmu
seinna þegar þverbylgjan dynur
yfir sömu leið (S-bylgjan) og loks
finnst honum jörðin ganga í
bylgjum þegar yfirborðsbyl-
gjurnar era að deyja út (L og R-
bylgjur). Allt tekur þetta ein-
hverjar sekúndur eða tugi sek-
úndna og oftast valda yfirborðs-
bylgjurnar mestu tjóni.
Stærð
Unnt er að ákvarða STÆRÐ
skjálfta út frá þekktri fjarlægð til
mælis og stærð útslagsins á mæl-
inum (skrifnál sem hreyfist fram
og aftur). Stærðin er reiknuð og
er eins konar mælikvarði á ork-
una sem leystist úr læðingi, en
segir ekkert um áhrifin því þar
kemur fjarlægðin og dýpið til sög-
unnar. Stærðarskalinn er nefndur
Richter-kvarði, talan er einingar-
laus á bilinu 0 - 9 og munar 30-falt
á hverri heilli tölu. Annar
skjálftakvarði er til kenndur við
Mercalli og Rossi. M/R-talan er
fundin með mati á áhrifum eftir
að skjálfti hefur riðið yfir og er
staðbundin.
Notaðar eru tölurnar 1-12 (eða
I - XII) til að lýsa áhrifunum en
hverri tölu fylgir ákveðin lýsing á
því sem fólk finnur eða sér.
RAFMAGNIÐ
UM JÓLIN
FRÁ RAFMAGNSVEITU
REYKJAVÍKUR
Rafmagnsveitunni er þaö kappsmál, aö sem fæstir
veröi fyrir óþægindum vegna straumleysis nú um
jólin sem endranær. Tii þess að tryggja öruggt
rafmagn um hátíðirnar, vill Rafmagnsveitan benda
notendum á eftirfarandi:
1
2
3
4
5
6
Reynið að dreifa elduninni, þ.e. jafna henni
yfir daginn eins og kosturer, einkum áaðfanga-
dag og gamlársdag. Forðist, ef unnt er, að nota
mörg straumfrek tæki samtímis, t.d. rafmagns-
ofna, hraðsuðukatla, þvottavélar og upþþvotta-
vélar - einkum meðan á eldun stendur.
Farið varlega með öll raftæki til að forðast
bruna- og snertihættu. Illa meðfarnar lausar
taugar og jólaljósasamstæður eru hættulegar.
Útiljósasamstæður þurfa að vera vatnsþéttar og
af gerð, sem viðurkennd er af Rafmagnseftirliti
ríkisins.
í flestum nýrri húsum eru sjálfvör „útsláttar-
rofar“ en í eldri húsum eru vartappar „öryggi".
Eigið ávallt til nægar birgðir af vartöppum.
Helstu stærðir eru;
10 amper Ijós
20-25 amper eldavél
35 amper aðalvör fyrir íbúð.
Ef straumlaust verður, skuluð þér gera eftir-
farandi ráðstafanir:
- Takið straumfrek tæki úr sambandi.
- Ef straumleysið tekur aðeins til hluta úr íbúö,
(t.d, eldavélar eða Ijósa) getið þér sjálf skipt
um vör í töflu íbúðarinnar. Ef öll íbúðin er
straumlaus, getið þér einnig sjálf skipt um vör
fyrir íbúðina í aðaltöflu hússins.
Hafi lekastraumsrofi í töflu leyst út er rétt aö
taka töll tæki úr sambandi og reyna aö setja
lekastraumsrofann inn aftur. Leysi rofinn enn út
er nauösynlegt að kalla til rafvirkja.
* *
Tekið er á móti tilkynningum um bilanir ísíma
686230 hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur allan
sólarhringinn. Á aðfangadag og gamlársdag er
einnig tekið á mpti bilanatil)<ynningum til kl. 19 í
síma 686222. - '
Við flytjum yður bestu óskir um gleðileg jól
og farsæld á kómandi ári, með þökk fyrir
samstarfið á hinu liðna. <
*
RAFMAGNSVEITA
REYKJAVÍKUR
(Geymiö auglýsinguna)
Góóar veislar
enda vel!
Eftir einn -ei aki neinn
NÝTT HELGARBLAÐ - SÍOA 27
ll
UMFEROAR
RÁÐ