Þjóðviljinn - 16.01.1990, Qupperneq 12
SPURNINGIN
Ertu búin(n) að taka nið-
urjólatréð?
Þórunn Guðnadóttir
sjónþjálfi
Já, ég geröi það daginn eftir
þrettándann. Það erföst regla hjá
mér.
Sjöf n T raustadóttir
verslunarmaður
Auðvitað. Ég geri það alltaf dag-
inneftirþrettándann.
Sesseija Jónsdóttir
verslunarmaður
Já. Ég gerði það 6. janúar. Ég
geri það alltaf á sama tíma.
Hólmsteinn Hallgrímsson
verkstjóri
Já. Ég gerði það daginn eftir
þrettándann, þaðerföstregla.
Hjörleifur Helgason
sundlaugarvörður
Já. Ég gerði það 7. janúar.
þiófnnuiNN
briAii iH/im ir 1 A innnnr 1 OOH lfi tr»li iKln A W órnnnm ir
Þrlðjudagur 16. janúar 1990. 10. tölublað 55. örgangur.
BSRB
SÍMI 681333
Á KVÖLDIN
681348
SÍMFAX
681935
Er skjávinna heilsuspillandi?
Námsstefna um áhrifskjávinnu á heilsufar. Engar óyggjancLi sannanir fyrirþvíað skjáirnirgeti
verið hœttulegir. Óþœgindi notendum sjálfum að kenna
Bandalag starfsmanna ríkis og
bæja gekkst í gær fyrir náms-
stefnu um skjávinnu; áhrif vinnu
við tölvuskjái á mannslíkamann.
Námsstefnan var haldin í kjölfar
útgáfu fræðslubæklings, sem
byggir á könnun meðal skjá-
vinnufólks í prentiðnaði. Mark-
mið könnunarinnar var að fá inn-
sýn í helstu vandamál sem við
væri að etja í heilsufari, aðbún-
aði, vinnutíma o.fl. meðal skjá-
vinnufólks með það fyrir augum
að nýta niðurstöðurnar til endur-
bóta og framfara.
Að útgáfu bæklingsins stóðu
Öryggisnefnd prentiðnaðarins og
Vinnueftirlit ríkisins, en könnun-
ina vann Sigríður Stefánsdóttir,
réttarfélagsfræðingur hjá vinnu-
eftirliti ríkisins. Sigríður vann
efni bæklingsins ásamt Huldu Ól-
afsdóttur sjúkraþjálfara hjá
Vinnueftirlitinu og leggja þær
megináherslu á mikilvægi góðs
vinnuumhverfis og benda á þá
þætti, sem gætu komið í veg fyrir
sjúkdóma og vanlíðan af skjá-
vinnu.
Þær Sigríður og Hulda voru
meðal frummælenda á náms-
stefnunni og ræddu um Tölvur -
vinnuna og fólkið. Vilhjálmur
Rafnsson yfirlæknir frá Vinnueft-
irlitinu hélt erindi um spurning-
una hvort tölvur hefðu áhrif á
meðgöngu og frjósemi, Sigurður
Magnússon forstjóri, Geisla-
vörnum ríkisins, ræddi um skað-
semi útgeislunar frá tölvuskjám
og Gunnar Gunnarsson fram-
kvæmdastjóri, Starfsmannafélagi
ríkisstofna, um ákvæði í kjara-
samningum varðandi skjávinnu.
Um sjötíu fulltrúar frá aðildar-
félögum BSRB sátu námsstefn-
una og ræddu þeir að framsögu-
erindum loknum um hvernig
æskilegt vinnuumhverfi væri þar
sem unnin væri skjávinna og hver
ábyrgð starfsmannsins væri í því
sambandi, auk þess sem rætt var
um hvaða ákvæði væri nauðsyn-
legt að setja í kjarasamninga op-
inberra starfsmanna vegna fólks í
skjávinnu.
Engin ákvæði eru til í lögum
um hvfldartíma eða hvernig að-
stæður beri að vera á vinnustað
þar sem unnið er við tölvuskjái.
Einstaka stéttarfélög, svo sem
Félag bókagerðamanna og Félag
íslenskra bankamanna hafa feng-
ið ákvæði um tíu mínútna hvíld á
klukkustund frá skjánum inn í
kjarasamninga, en þau réttindi
hafa áunnist fyrir frumkvæði við-
komandi stéttarfélaga. í því sam-
bandi kom fram að starfs-
mannafélag BSRB í Hafnarfirði
fór árið 1987 fram á að fimm mín-
útna hvíld frá skjánum yrði sett
inn í kjarasamninga, en þeirri
kröfu var hafnað, að því er starfs-
menn töldu vegna þess að krafan
hafi ekki verið nógu vel rök-
studd.
Rangar vinnustellingar eru aðalorsök líkamlegra óþæginda af skjávinnu. Mynd - Kristinn
f framsöguerindum og svörum
frummælenda við fyrirspurnum
kom fram að enn hafa ekki komið
fram óyggjandi sannanir fyrir því
að skjáirnir séu beinlínis hættu-
legir, geti valdið fósturláti, fóst-
ursköðum, exemi, augnsköðum
og öðrum líkamlegum óþægind-
um. Var helst að heyra að slík
óþægindi væru notendum sjálfum
að kenna; röngum vinnustell-
ingum og skorti á upplýsingum
um hvernig best væri að vinna við
skjáina. Notendur kynnu ekki að
sitja í réttum stellingum, taka sér
reglubunanar hvíldir, gera lík-
amsæfingar og hvfla augun, en
rangar vinnustellingar væru aðal-
orsök óþæginda við skjávinnu.
Hvað varðar kenningar um að
tölvuskjáir valdi fóstursköðum
eða fósturlátum sagði Vilhjálmur
Rafnsson enn fremur að væru ó-
léttar konur eitthvað óskaplega
hræddar um að fóstrið skaðaðist
vegna vinnu þeirra við skjáinn
væru þær í sömu stöðu og lög-
reglumaður, sem vildi helst ekki
sýna sig í miðbæ Reykjavíkur um
helgar af ótta við líkamsárásir.
Fyrir báða aðila væri einfaldast
að fá sig flutta til í vinnu.
Það kom fram að Vinnueftir-
litið leggur áherslu á að bregðast
skjótt við séu fulltrúar þess beðn-
ir um að koma og líta á aðstæður á
vinnustöðum. Reyni fulltrúar
þess að koma á staðinn helst dag-
inn eftir að slík beiðni hafi Dorist
og helst ekki eftir lengri tíma en
eina viku. Engin skýring fékkst
hins vegar á því að slíkri beiðni
frá 03, (upplýsingum um síma-
númer innanlands), sem borin
var fram 1987 og ítrekuð ári
seinna, hefur enn ekki verið
sinnt.
LG