Þjóðviljinn - 27.01.1990, Page 4

Þjóðviljinn - 27.01.1990, Page 4
þJÓÐVILJINN Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis og verkalýðshreyfingar Sannmæli og ónefhi Hvenær seilast menn of langt í samlíkingum eða hnyttni? Opin- ber embættismaður þótti til dæmis um árið lágkúrulegur og smekklaus með tilvísun í fjölmiðlum til þess hvernig unnusti feg- urðardrottningar íslands „notfærði sér“ líkama hennar. Nú kvartar sami maður, borgarstjórinn í Reykjavík, aftur á móti undan lágkúru og smekkleysu þegar vissum atriðum við stjórnun höfuðborgar- innar er líkt við aðferð austur-evrópskra miðstýringarsinna og jafnvel illræmdra." Svanur Kristjánsson prófessor hefur reyndar fyrir löngu sýnt fram á það í verkum sínum, að uppbygging og vinnulag Sjálfstæð- isflokksins líkist með ákveðnum hætti kerfinu innan Kommúnista- flokks Sovétríkjanna. í Reykjavík, þar sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur náð mikilli fótfestu í stjórnun, liggur hann undir stöðugu ámæli andstöðuflokkanna fyrir miðstýringu og fámennisstjórn, líkt og tíðkast hefur í Austur-Evrópu um langt skeið. Þegar þar við bætist, að Sjálfstæðisflokkurinn leggur ríka áherslu á persónu- dýrkun og minnisvarðagerð, en hefur minni áhyggjur af brýnum félagslegum verkefnum, blasir við honum sú hætta, að gripið sé til samlíkinga sem svíður undan. Sumum finnst formaður Alþýðubandalagsins samt hafa skotið yfir markið með því að líkja saman á opinberum fundi stjórnkerfinu, - ekki framkvæmdum, - í Rúmeníu á tímum Ceausescus og aðferðinni í Reykjavík hjá Sjálfstæðisflokknum. Varðandi orðnotk- un má þó minna á, að Ólafur Ragnar Grímsson mæltist sjálfur til þess um áramótin að í íslenskri pólitík töluðu menn gætilega og eftirleiðis einfaldlega um „jafnaðarmenn" og legðu af úreltar skil- greiningar eins og „kommar" og „kratar". Eru þau gæluorð þó öllu meinlausari en samlíkingar við þrælmennið í Búkarest. Hingað til hafa Sjálfstæðismenn verið ófeimnastir að maka þessu rúmenska nafni á andstæðinga sína. Einar K. Guðfinnsson, varaþingmaður Sjálfstæðismanna á Vestfjörðum, segir í forsíðu- frétt í blaði sínu Vesturlandi, að „litlir Ceausescuar vaði uppi í Alþýðubandalaginu" og formaður Sjálfstæðisflokksins, Þorsteinn Pálsson, hélt því fram við fall rúmenska harðstjórans, að nú sætu einir við völd í Evrópu af þessu sauðahúsi ráðherrar Alþýðubanda- lagsins. Allt er þetta tal hvimleitt, hver sem í hlut á. Andstæðingana á að láta njóta sannmælis og etja kappi við þá á réttum forsendum. Morgunblaðið stundaði lengi þá fölsun að nefna Alþýðubanda- lagsfólk aldrei annað en „kommúnista". Sumir greinahöfundar þess og Sjálfstæðismenn halda þessum sið enn. Orðið er af hálfu margra hugsað sem gróft skammaryrði, fordæming. Stjórnmálaumræðan á íslandi verður ekki ýkja gáfuleg við það, því nauðsynlegt er að nefna hlutina réttum nöfnum. Kommúnistar eru til og eiga sér meira að segja flokka enn þá erlendis, en Alþýðu- bandalagið og liðsmenn þess eru á öðrum stað í tilverunni. Á sama hátt og Alþýðubandalagsfólki finnst óréttmætt að vera spyrt við stjórnmálaskoðun eins og kommúnismann, hafa margir Sjálfstæðismenn kvartað undan því að vera uppnefndir „íhalds- menn“. Og á margan hátt má segja að orðið „íhald“ glati nokkru af raunverulegri merkingu sinni, ef því er ætlað að lýsa blönduðum flokki margra skoðana eins og Sjálfstæðisflokknum. íslenskar myndir [ gær minntist Félag kvikmyndagerðarmanna þess með ráð- stefnu að 10 ár eru liðin frá því „kvikmyndavorið" svokallaða kom yfir þetta land, eða frá því samfelld kvikmyndagerð hófst hér. Skuggar af ríflega 30 myndræmum hafa síðan varpast á tjöld og skjái, hljómgóðar stundum, við ágaetar undirtektir, enda leitun á þjóðflokki sem fer jafn ört í bíó og íslendingar. Enn er þó sótt á brattann. Kvikmyndagerðarmenn segja rétti- lega í auglýsingum að listform sitt sé „kálfskinn 20. aldarinnar". Þeim finnst illa búið að þessari atvinnugrein og telja það varða menningarlegt sjálfstæði þjóðarinnar, ef stjórnvöld koma ekki strax myndarlega til skjalanna. Þetta er hvorki óréttmæt kröfugerð né tilætlunarsemi. íslenska ríkið hefur stórlega vanrækt skyldu sína í þessum efnum áratugum saman. Nýjasta sóknarlota íslenskra kvikmyndagerðarmanna skilar vonandi árangri. ÓHT ÞRANDUR SKRIFAR Andfra)- vokur þing- manna Þingmenn eru yfirleitt heldur seinþreyttir til vandræða. Þeir hafa verið svo seinþreyttir til vandræða vegna Þjóðleikhússins að það heldur hvorki vatni né vindi. Árum saman hugkvæmdist þeim ekki að láta gera við húsið og tóku ekki við sér fyrr en skyn- samir menn bentu á að áhorfend- asalurinn væri eins og hvert ann- að útigrill, sem ekki væri búið að kveikja á, og leikhúsgestir í hlut- verki steikarinnar. Þingmennirn- ir hafa verið enn seinþreyttari til vandræða vegna margvíslegra laga sem þeir hafa dundað við að setja á undanförnum árum. Hljótast hvorki stympingar né orðaskak í þinginu vegna þess að til Þjóðarbókhlöðu er ekki varið þeirri tíund sem innheimt eru hjá landsmönnum vegna smíði henn- ar, ekki heldur þótt ríkið skuldi sveitarfélögum ómældar upp- hæðir vegna sameiginlegra verk- efna og þaðan af síður af því að til málefna aldraðra er ekki varið þeim peningum sem lög sömu þingmanna standa til. Hafa þá aðeins fá dæmi verið tekin um hinn eðlislæga kost þingheims, þolinmæðina. En þingmönnum getur sem betur fer blöskrað líkt og öðrum mönnum og vafalaust eiga þeir sínar andvökunætur, langar og strangar. Og hafi einhver haldið að þeir væru menn ábyrgðarleysis er það mikill misskilningur. Þannig varð uppi fótur og fit í þinginu á dögunum þegar þing- menn úr báðum fylkingum fréttu af íslensku skipi, og hálfíslenskri skipshöfn, sem hímir verkefna- laus fyrir vestan Ameríku vegna þess að útgerðin hafði sent skipið til að veiða fisk sem útlendingum er bannað að afla vestur þar. Bar af þessu tilefni mest á þingmanni úr stjórnarliðinu af Vesturlandi og öðrum úr stjórnarandstöðunni úr Reykjavík. Forsaga málsins liggur að sögn í hvalveiðum. Bandaríkjamenn, sem eru öðrum þjóðum gleggri á hið göfuga gildi peninganna, vildu lokka íslenska hvalveiði- menn til að hætta iðju sinni gegn vonarpeningi um veiðar og vinnslu á fiski við Alaska. Upp- lýst er að fyrir liggi samningur sem heimili fslendingum að sækja um leyfi til slíkra athafna og einnig að í tvö ár hafi þeim verið ætlaðar heimildir til að vinna þorsk sem svarar til afla 10 íslenskra skuttogara. Andri BA mætti svo á svæðið f lok síðasta árs og tókst að vinna lítilræði af hinum heimilaða feng. Um ára- mótin vöknuðu menn upp við heldur hraklegan draum. Samn- ingamönnum hinnar íslensku ríkisstjórnar hafði láðst að setja smáræði í samninginn við Banda- ríkjamenn. Þetta lítilræði lýtur ekki að öðru en rétti Bandaríkjamanna til að segja já eða nei við umsókn- um sem þeim kunna að berast frá útlendingum. Er mjög að vonum að þingmönnum á Alþingi ís- lendinga sárni ræfildómurinn í ríkisstjórn sem ekki getur fengið Bandaríkjamenn til að afsala sér rétti til að ráðstafa eigin auð- lindum. Kanarnir komust að þeirri ófrumlegu niðurstöðu að enginn þorskur yrði eftir handa útlendingum þegar heimamenn væru búnir að taka það sem taka mætti. Sem vonlegt var brá hin- um skjótráðu þingmönnum ákaf- lega við þessi válegu tíðindi og töldu ástæðu til að draga svo aumlega ríkisstjórn til ábyrgðar. „íslensk stjórnvöld hljóta að taka ábyrgð á þessu, hvað svo sem þau segja í dag,“ sagði einn. „Þeir að- ilar sem standa fyrir þessari út- gerð verða að fá þær bætur sem greinilegt er að íslenska ríkið verður að greiða vegna þessa máls,“ fullyrti annar. Þeir, sem aldrei geta annars setið á sátts höfði, voru með öðr- um orðum sammála um að hinum íslenska ríkiskassa bæri að bæta útgerðarfélagi Andra BA það tjón sem hlytist af því að gera 600 milljóna króna skip út á bannað- ar fiskveiðar á Kyrrahafi. Þing- mennirnir hafa komist að þeirri niðurstöðu að tiltækið sé ríkis- stjórninni að kenna og má hafa það til marks um hve snarráðir, skjótráðir og glöggir þingmenn- irnir eru, að foringjum útgerðar- félagsins hefur enn ekki hug- kvæmst að orða bætur við hátt- virta ríkisstjórn, en hafa látið að því liggja að þeir kunni sjálfir að bera einhverja ábyrgð á því hvernig til hefur tekist. Það er auðvitað ekki von á góðu í íslenskum sjávarútvegi þegar slíkir menn standa fyrir rekstri, og skiljanlegt að þing- menn verði and(ra)vaka yfir því- líku háttalagi. -Þrándur. Leiðrétting á súluriti Með viðtali við Skúla Alexand- ersson í gær var birt meðfylgjandi súlurit um þróun þorskafla á ís- landsmiðum. Sú tala sem þar var gefin upp fyrir árið 1990 og átti að sýna Ieyfilegt aflamark sjávarút- vegsráðuneytisins var ekki rétt. í reglugerð ráðuneytisins frá 8. nóvember 1989 segir að leyfi- legur þorskafli skuli vera 260 þús- und lestir en „vegna reglna um veiðiheimildir sóknarmarks- skipa, reglna um tilfærslu á milli fisktegunda og flutning milli ára og ákvæða um afla smábáta gæti heildarþorskafli orðið 300 þús- und lestir.“ 500 T 400 - 300 200 Þorskafli á íslandsmiðum 1950-1989 10 ÁRA MEÐALTÖL 393 I 384 I 1950-59 1960-69 1970-79 1980-89 1990-?* Líklegur heildaralli: 300 þús. tonn Reglugerð Sjávar- útvegs- ráöuneytis: 260 þús. tonn Tillaga Hafr'ann- /sóknar- stofnunar: 250 þús. tonn Þess ber að geta að Hafrann- aflinn á 'þessu ári yrði 250.000 sóknastofnun lagði til að þorsk- lestir. Enn um IBM og Orðabókina Ónákvæmni mikil var það í Þjóðviljanum að IBM á íslandi hefði lagt á annað hundrað milj- ónir króna í Orðabók Háskóla ís- lands. Heildarkostnaðir IBM vegna samvinnunnar við Þýðingarmiðstöð OH nemur þessari fjárhæð, kostnaðar við aðstöðu starfsmannahald oþh. [ vegna þýðinga og handbóka- gerðar fyrir tölvur. Að nokkru leyti má því segja að Orðabókin hafi tekið að sér ákveðna verk- þætti fyrir IBM. Erindi Kristjáns Árnasonar hét „Hin þrefaldaeftirlíking-um þýðingarlistina", en ekki „Hin þrefalda þýðing...“ eins og stóð blaðinu. Orðtíðnirannsóknir á íslandi hófust ekki 1984. Ársæll Sigurðs- son skólastjóri hófst handa og birti grein um þær í 13. árg. Menntamála 1940 undir heitinu „Algengustu orðmyndir málsins og stafsetningarkennslan". Bald- ur Jónsson vann fyrstur að orð- tíðnirannsóknum með tölvu á ís- landi á áttunda áratugnum, eins og lesa má í Þjóðviljanum 24. júlí 1977. Orðtíðnirannsóknir Orða- bókar HÍ hófust síðan 1984. Villuleitarforrit Orðabókar- innar var heldur ekki notað við gerð Orðsifjabókarinnar, heldur nýttist þar sú tækni við skiptingu milli lína, sem þróaðist í fram- haldi af því. Fleiri aðilar en IBM og Orða- bókin hafa verið brautryðjendur í að þýða handbækur tölvunot- enda, hugbúnað og notendafor- rit. Orðanefnd Skýrslutæknifél- agsins gaf út fyrsta rit sitt 1974 og Töluvorðasafnið kom út fyrst 1983 og síðan 1986, auk þess sem fleiri aðilar hafa lagt hönd á plóg. Þjóðviljinn biðst velvirðingar á þessum missögnum. ÓHT þJÓÐVILJINN Síðumúla 6 -108 Reykjavík Sími: 681333 Kvöldsími:681348 Símfax: 681935 Útgefandi: Utgáfufélítg Þjóðviljans. Framkvœmdastjóri: Hallur Páll Jónsson. Ritstjórar: Árni Bergmann, Ólafur H. Torfason. Fréttastjóri: SigurðurÁ. Friðþjófsson. Aftrir blaftamenn: Dagur Þorleifsson, Elías Mar (pr.), Guðmundur Rúnar Heiðarsson, Heimir Már Pótursson, Hildur Finnsdóttir (pr), Jim Smart (Ijósm.), Kristinn Ingvarsson (Ijósm.), LiljaGunnarsdóttir, Ólafur Gíslason, Þorfinnur Ómarsson (íþr.), Þröstur Haraldsson. Skrifstofustjóri: Sigrún Gunnarsdóttir. Skrifstofa: Guðrún Geirsdóttir, Kristín Pétursdóttir. Auglýsingastjóri: Olga Clausen. Auglýsingar: Guðmunda Kristinsdóttir, Svanheiöur Ingi- mundardóttir, UnnurÁgústsdóttir. Símavarsla: Sigríður Kristjánsdóttir, ÞorgerðurSigurðardóttir. Bílstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir. Útbreiðslu- og afgreiftslustjóri: Guðrún Gísladóttir. Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Halla Pálsdóttir, Hrefna Magnúsdóttir. Innheimtumaður: Katrín Bárðardóttir. Útkeyrsla, afgreiðsla, ritstjórn: Síftumúla6, Reykjavík, símar: 68 13 33 & 68 16 63. Símfax:68 19 35 Auglýsíngar: Síðumúla 6, símar 681331 og 681310. Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf. Prentun: Blaðaprent hf. Verft í lausasölu: 90 kr. Nýtt Helgarblaft: 140kr. Áskriftarverð á mónuði: 1000 kr. 4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 27. janúar 1990

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.