Þjóðviljinn - 22.03.1990, Blaðsíða 1
Fimmtudagur 22. mars 1990. 56. tölublað 55. órgangur
ABR
Borgaimálaráð í upplausn
Meirihluti borgarmálaráðs: Fullt traust til KristínarÁ. Sigurjón: Ráðiðflosnar upp. Össur: Mœti ekki á
fundieftirleiðis. Guðrún: Treystiá siðferðisstyrkfólks. Stjórn ABR: Atkvœðagreiðslan ólögleg
Meirihluti borgarmálaráðs Al-
þýðubandalagsins í Reykja-
vík lýsti í gær yfir fullu trausti á
Kristínu A. Ólafsdóttur borgar-
fulltrúa. Fundurinn vísaði hins
vegar frá tillögu Sigurjóns Pét-
urssonar um að þeir sem lýst hafa
yfir stuðningi við önnur framboð
en G-lista hætti að sækja fundi
ráðsins. Frávísunartillagan kom
frá Össuri Skarphéðinssyni og
var samþykkt með sex atkvæðum
gegn fímm.Stjórn ABR sendi frá
sér yfirlýsingu seint í gærkvöldi
þar sem hún lýsir atkvæðagreiðs-
luna í borgarmálaráði ólöglega.
Stjórnin telur að tveir fulltrúar
ÆFR, sem sátu fundinn og tóku
þátt í atkvæðagreiðslu, hafi ekki
haft atkvæðisrétt samkvæmt 7.
grein félagslaga.
„Úr því stuðningsmenn ann-
arra framboða en G-listans sjá
ekki sóma sinn í að víkja af vett-
vangi borgarmálaráðs, býst ég
við að ráðið muni flosna upp að
mestu leyti. Við verðum að end-
urskoða afstöðu okkar til setu í
ráðinu og það getur komið til
greina að boða til funda í borg-
armálaráði aðeins fyrir þá sem
styðja G-listann,“ sagði Sigurjón
Pétursson, borgarfulltrúi og for-
maður ráðsins, í samtali við Þjóð-
viljann eftir fundinn í gær.
Össur Skarphéðinsson sagði
við Þjóðviljann að hann hefði
ekki hug á að mæta á fundi borg-
armálaráðs eftirleiðis.
„Það verður hver og einn að
gera það upp við sig hvort hann
mætir á fundi borgarmálaráðs.
Það er fráleitt að ráðið fari að
taka ákvarðanir um hverjir mæti
á fundi og hverjir ekki,“ sagði
Össur.
Stuðningsyfirlýsingin við
Kristínu er samhljóða samþykkt
sem gerð var í stjórn Æskulýðs-
fylkingar Alþýðubandalagsins í
Reykjavík í fyrrakvöld.
„Kristín er réttilega kjörinn
fulltrúi reykvísks Alþýðubanda-
lagsfólks í stofnanir flokksins sem
og á vettvangi borgarinnar. Borg-
armálaráði hlýtur sem fyrr að
vera styrkur af setu hennar þar,“
segir í yfirlýsingunni.
Guðrún Ágústsdóttir borgar-
fulltrúi lagði fram bókun eftir at-
kvæðagreiðsluna í ráðinu og segir
þar meðal annars að hlutverk
borgarmálaráðs sé að móta
stefnu í borgarmálum og ræða
hluti sem ekki eru ræddir við full-
trúa annarra flokka. Guðrún seg-
ist ekki hafa trú á því að þeir sem
ekki styðja G-listann muni starfa
áfram í borgarmálaráði og segist
treysta á siðferðisstyrk fólks í því.
Guðrún sagði jafnframt í
bókun sinni að hún teldi óþarft að
mælast til þess að aðrir en stuðn-
ingsmenn G-listans hætti að
mæta á fundi ráðsins og telur
samþykkt tillögu um traust á
Kristínu fráleita.
Ekki náðist í Kristínu Á. Ólafs-
dóttur í gærkvöldi.
Stjórn ÆFR fjallaði um fram-
boðsmálin á fundi í fyrrakvöld og
skoraði þar á ABR að endur-
skoða ákvörðun sína um sérstakt
framboð G-listans til borgar-
stjórnar í vor. ÆFR vill að minni-
hlutaflokkarnir gangi til liðs við
Nýjan vettvang og minnir á að
ÆFR er ekki bundin af ákvörðun
ABR um G-lista í Reykjavík.
-gg
Sex fulltrúar í borgarmálaráði samþykktu traustsyfirlýsingu við Kristfnu Á. Ólafsdóttur borgarfulltrúa, en fimm voru á móti.
Stjórn ABR telur að tveir fulltrúar ÆFR sem sátu fundinn hafi ekki haft atkvæðisrétt og því hafi atkvæðagreiðslan verið
ólögleg. Stjómin hefur beint því til Sigurjóns Péturssonar, formanns ráðsins, „að framvegis verði þess gætt við formlegar
atkvæðagreiðslur í borgarmálaráði aö fyigt sé ákvæðum félagslaga". Mynd: Jim Smart.
Lífeyrissjóðir
Fimmtíu prósent til sjóðsfélaga
Lánveitingartilsjóðsfélaga innan Sambands almennra lífeyrissjóða voru að meðaltali um 643
þúsund krónur á síðasta ári miðað við 481 þúsund krónur á árinu 1988. Hœkkun nemur34%
en að raungildi aðeins 13 %
Fjölgun
laga i
veittra lána til sjóðsfé-
laga innan Sambands al-
mennra lífeyrissjóða nam um
30% á árunum 1988 og 1989 mið-
að við aðeins 2,5% fjölgun milli
áranna 1987 og 1988. A því ári
voru veitt 3.266 sjóðsfélagalán að
fjárhæð 1.551 mifjónir króna en á
síðasta ári voru veitt 4.199 lán til
sjóðsfélaga að fjárhæð 2.701
miljónir króna.
Á síöasta ári námu lán til
sjóðsfélaga að meðaltali um 643
þúsundum króna miðað við 481
þúsund krónur á árinu 1988. i
Hækkunin nam því um 34%, en i
að raungildi, miðað við hækkun
lánskjaravísitölunnar, var í reynd
aðeins um 13% hækkun að ræða.
Þessar upplýsingar komu fram
í lánakönnun Sambands al-
mennra lífeyrissjóða sem náði til
alls 74 lífeyrissjóða og þar á með-
al voru allir stærstu sjóðir lands-
Sovétríkin
Litháar afvopnaðir
Gorbatsjov Sovétlciðtogi gaf í
gær fyrirskipun um að Lithá-
ar skyldu láta af hendi ÖU vopn
sem þeir kynnu að hafa undir
höndum. Jafnframt lét hann tak-
marka reglur um vegabréfsárit-
anir og herða landamæraeftirlit.
Innanríkisráði Sovétrikjanna
hefur verið skipað að gera upp-
tæk vopn í eigu almennings í Lit-
háen láti fólk þau ekki af hendi af
frjálsum vilja.
Fyrirskipun Gorbatsjovs kem-
ur tveimur dögum eftir að frestur
Litháa til að afturkalla sjálf-
stæðisyfirlýsingu sína rann út.
Æðsta ráð Sovétríkjanna hóf í
gær umræður um lög sem kveða á
um hvernig ríki geti sagt sig úr
Sovétsambandinu. Litháar segja
að lögin gildi ekki um þá þar sem
sig
þeir hati nú þegar sagt
lögum við Sovétríkin.
Sovéska fréttastofan APN
hafði hins vegar eftir Vitautas
Landsberg forsætisráðherra Lit-
háens í gær að Litháar væru sam-
mála sovéskum stjórnvöldum um
að ekki skyldi skorið á tengsl fyr-
irtækja í Litháen við samstarfsað-
ila þeirra í öðrum lýðveldum
Sovétríkjanna. Reuter/rb
ins. Af þeim sökum fyllyrðir
stjórn SAL að þessar niðurstöður
séu marktækar. Þrátt fyrir þessa
fjölgun lána til sjóðsfélaga virðist
sem flest lán hafi verið veitt árið
1986 en þá nam fjöldi þeirra alls
4.882.
Heildarlánsfjárhæð til sjóðsfé-
laga hækkaði í krónutölu um
74% milli áranna 1988 og 1989.
Miðað við hækkun lánskjaravísi-
tölunnar milli ára var um að ræða
47% raunhækkun á útlánum. Ef
hins vegar er borið saman við árið
1986 er raunhækkunin aðeins um
2%. Sé borið saman hlutfall líf-
eyrissjóðslána miðað við ráðstöf-
unarfé sjóðanna á árunum 1983 -
1989, þá lánuðu sjóðirnar um
62% af ráðstöfunarfé sínu beint
til sjóðsfélaga árið 1984. Þetta
hlutfall er áætlað hafa numið um
15% á síðasta ári. Hafa ber þó í
huga að ráðstöfunarfé lífeyris-
sjóðanna hefur aukist verulega á
undanförnum árum og mun
meira en hækkun lánskjaravísit-
ölunnar á samsvarandi tímabil-
um. -grh
Járnblendið
Græddi á tá
ogfingri
100 miljónir greiddar í arð
Afkoma íslenska járnblendifé-
lagsins á síðasta ári var mjög góð
og nam hagnaður fyrirtækisins
um 323 mifjónum króna.
Þetta kom fram á aðalfundi fé-
lagsins sem haldinn var í gær. Þar
var ákveðið að úthlutun arðs til
hluthafa, 5% af nafnvirði hluta-
fjár eins og það var í árslok. Þeir
fá því samtals í arðgreiðslu um
100 miljónir króna.
Þrátt fyrir þennan hagnað á ár-
inu 1989 var hann þó minni en á
metárinu 1988. Ástæðan er að
verðlag á kísiljárni hrapaði á
síðari mánuðum ársins og sölu-
magn varð óvenjulítið. Fram-
leiðslan í fyrra var sem svarar 72
þúsund tonnum af 75% kísiljámi
en það er 3% meira en á árinu þar
á undan. Útflutningur var hins
vegar einungis rúm 58 þúsund
tonn, sem er verulegur samdrátt-
ur frá fyrri áram, en stafar að
hluta til af seinkun skips í flutn-
ingum fyrri áramótin.
Á fundinum kom fram að af-
koma fyrirtækisins stendur í jám-
um á fyrstu mánuðum þessa árs.
Hins vegar er talið að verðfall
ársins 1989 hafi þegar náð botni
og því sé nokkur von um ein-
hvem bata í verðlagi á næstunni.
-grh