Þjóðviljinn - 22.03.1990, Síða 2
FRETTIR
Leiguhúsnœði
Osamþykkt og ófullnægjandi
Þegar fólk er á götunni er ýmis-
legt verjandi. Nokkrir skjól-
stæðingar okkar eru enn í ósam-
þykktu húsnæði við Suður-
iandsbraut, en við eigum að geta
boðið þeim upp á boðlegt hús-
Keflavík
Johann efstur
Jóhann Geirdal deiidarstjóri
verður efstur á G-listanum í
Keflavík í bæjarstjórnar-
kosningunum í vor. Listi Alþýðu-
bandalagsins í Keflavík var sam-
þykktur á féiagsfundi í fyrra-
kvöld.
Alþýðubandalagið hefur ekki
átt bæjarfulltrúa í Keflavík síðan
1986, en þá var Jóhann bæjar-
fulltrúi flokksins þar.
í níu efstu sætum listans eru
auk Jóhanns þau Bjargey Einars-
dóttir, Ægir Sigurðsson, Ey-
steinn Eyjólfsson, Unnur Þor-
steinsdóttir, Sævar Jóhannsson,
Sigurður Hólm, Inga Stefáns-
dóttir og Brynjar Harðarson.
-gg
Hafnarfjörður
Magnús Jón
efstur á G-lista
Alþýðubandalagið í Hafnar-
firði hefur gengið frá framboðs-
lista sínum fyrir bæjarstjórnar-
kosningarnar í vor. Magnús Jón
Árnason forseti bæjarráðs og eini
bæjarfulltrúi G-listans er áfram í
efsta sæti listans en í öðru sæti er
Ingibjörg Jónsdóttir félagsfræð-
ingur.
I þriðja sæti er Lúðvík Geirs-
son blaðamaður, 4. Guðrún Árn-
adóttir forstöðumaður, 5. Hólm-
fríður Árnadóttir talkennari, 6.
Svavar Geirsson trésmiður, 7.
Þórelfur Jónsdóttir dagvistar-
fulltrúi, 8. Sólveig Brynja Grét-
arsdóttir bankamaður, 9. Berg-
þór Halldórsson yfirverkfræðing-
ur -ÞjH
næði alveg á næstunni. Alla vega
á þessu ári,“ sagði Birgir Ottós-
son, húsnæðisfulltrúi Félags-
málastofnunar Reykjavíkur, við
Þjóðviljann í gær.
í bréfi sem lagt var fram í borg-
arráði í vikunni er fjallað um ó-
samþykkt og ófullnægjandi leigu-
húsnæði við Brautarholt 22,
Grensásveg 14, Skipholt 7 og'
Suðurlandsbraut 12.
Fulltrúar byggingarfulltrúans í
Reykjavík, starfsmenn eldvarna-
eftirlitsins og heilbrigðiseftirlits-
ins hafa skoðað þetta húsnæði og
komast að þeirri niðurstöðu að
húsin uppfylli ekki skilyrði um
eldvarnir og heilbrigði. Áuk þess
hefur húsnæðið ekki verið sam-
þykkt sem íbúðarhúsnæði.
Félagsmálastofnun hefur verið
með húsnæðið við Suðurlands-
braut á leigu fyrir skjólstæðinga
sína, en er í þann veg að losa það
að fullu, að sögn Birgis.
Þjóðviljinn talaði við einn íbú-
anna við Brautarholt 22 í gær.
Hann er skjólstæðingur Félags-
málastofnunar og býr í sæmilega
rúmgóðu herbergi.
Þar er gamall svefnbekkur,
borð, skápur og hægindastóll, en
auk þess alls kyns drasl og
óhreinindi.
Hann segist hafa búið þarna í
eitt ár, en síðasta mánuðinn hefur
hann ekki átt kost á að baða sig.
-gg
Eitt af herbergjunum við Brautarholt 22. Hér hefur skjólstæðingur Fólagsmálastofnunar búið í eitt ár, en síðasta
mánuðinn hefur hann ekki átt þess kost að baða sig. Húsnæðið uppfyllir ekki skilyrði um eldvarnir og heilbrigði og er auk
þess ósamþykkt sem íbúðarhúsnæði. Mynd Jim Smart.
r Flutningar
íhuga stofnun hagsmunasamtaka
Þessi hugmynd að stofna flutn-
ingaverkamannasamband er
búin að blunda í okkur hjá Sjó-
mannafélagi Reykjavíkur frá því
við gerðumst aðilar að Norræna
flutningaverkamannasamband-
inu fyrir fimm árum, sagði Guð-
mundur Hallvarðsson formaður
félagsins.
Markmiðið með stofnun sér-
staks flutningaverkamannasam-
bands hér á landi er sú að það
verði hagsmunasamtök allra
þeirra sem vinna við flutninga á
sjó, landi og í lofti. Ef af verður
munu væntanlega allt að 1.500
manns verða aðilar að samband-
inu úr fjölmörgum stéttarfé-
lögum ss. Dagsbrún, Verslunar-
mannafélagi Reykjavíkur,
Farmanna- og fiskimannasam-
bandinu og séttarfélögum flug-
freyja, flugmanna og þjóna svo
einhver séu nefnd. Af einstökum
hópum hafa hafnarverkamenn
þegar lýst yfir áhuga sínum á
stofnun þessara samtaka.
Að sögn Guðmundar er alls
ekki verið að lýsa yfir neinu van-
trausti á þau stéttarfélög sem
fyrir eru með stofnun þessara
samtaka heldur er fyrst og fremst
verið að leita nýrra leiða til að
efla og vernda atvinnuöryggi og
kjaramál þeirra stétta sem eiga
sameiginlegra hagsmuna að gæta
við flutningastarfsemi ýmis kon-
ar. „Ég er bjartsýnn á að samtök-
in komist á koppinn og næstu
daga munum við senda út til við-
komandi stéttarfélaga kynningu
á hugmyndinni og hvað fyrir okk-
ur vakir með henni,“ sagði Guð-
mundur Hallvarðsson.
-grh
Fellaskóli
Yfirlýsing
Almennur fundur nemenda í 9.
bekk Fellaskóla mótmælir mann-
orðsskemmandi og röngum um-
mælum sem birtust í DV þann 20.
mars 1990 þar sem Fellaskóli var
nafngreindur.
Fundurinn átelur vinnubrögð
blaðamannsins, að birta órök-
studdar dylgjur hafðar eftir
ónafngreindum heimildarmanni,
án þess að kanna sannleiksgildi
viðkomandi yfirlýsinga.
Tónleikar
Hamrahlíðarkórs
Hamrahlíðarkórinn heldur tón-
leika í kvöld, fimmtudag, og hefj-
ast þeir kl. 20.30 í hátíðarsal
Menntaskólans við Hamrahlíð.
Aðgangur er opinn öllum og að-
gangseyrir er aðeins 200 krónur.
SPR0N vann
stjórnunarkeppni
Nýlega lauk úrslitakeppni Sam-
norrænu stjórnunarkeppninnar á
íslandi en átta lið höfðu áunnið
sér keppnisrétt. Lið SPRON varð
efst, lið Ríkisspítalanna í öðru
sæti og lið Rönning í þriðja sæti.
Keppnin fólst í að taka við fyrir-
tæki í ákveðinni stöðu og reka
það með sem mestum hagnaði í
sex ár. Náði SPRON-liðið að
skila 194.472 króna hagnaði með
skynsamlegum ákvörðunum en
lið Ríkisspítalanna halaði inn
127.498 krónur. Þessi tvö lið
unnu sér þar með rétt til að taka
þátt í Norðurlandakeppni sem
haldin verður í lok apríl í vor.
Verður hún þá haldin í fyrsta sinn
hér á landi.
Námskeið fyrir
barnfóstrur
Þegar líður að vori fara
Sýningarsalur Gallerís 8 í Austurstræti. Mynd: Kristinn.
Gallerí 8 í Austurstræti
Búið er að opna nýtt gallerí í gamla ísafoldarhúsinu Austurstræti 8 og
hlaut það nafnið Gallerí 8. Húsið er eitt hið elsta í Reykjavík og var
byggt árið 1886 fyrir Björn Jónsson ritstjóra og síðar ráðherra. Það
hýsti lengi prentsmiðju og ritstjórnarskrifstofur Morgunblaðsins en
síðast var þar bókaverslun. Eigandi Gallerís 8 er Sigríður Hanna
Sigurbjömsdóttir sem starfaði til skamms tíma hjá Gallerí Borg en var
um nokkurra ára skeið auglýsingastjóri þessa blaðs. Hún ætlar að hafa
til sýnis og sölu hvers kyns myndlistarverk og einnig listaverkabækur
um íslenska myndlist. Reynt verður að sýna þverskurð af því sem er að
gerast í íslenskri list á hverjum tíma, ma. með því að kynna verk ungra
og upprennandi listamanna.
barnfóstrur landsins að huga að
sumarvinnunni. Fyrir nokkmm
ámm bryddaði Rauði krossinn í
Reykjavík upp á því að efna til
námskeiða fyrir verðandi
barnfóstrur því þetta starf þarf að
læra eins og önnur. Námskeiðin
mæltust vel fyrir og eru nú árviss
viðburður, ekki bara í Reykjavík
því nú efna 25 deildir Rauða
krossins um allt land til slíkra
námskeiða. Námskeiðin eru sex-
tán klukkustunda löng og skipt-
ast á fjögur kvöld. Fóstra kennir
helming námskeiðsins á móti
hjúkrunarfræðingi og er farið í
þroska barna og leikfangaval,
bleiuskipti og böðun, mat og
matarvenjur, tannvernd, almenn
einkenni sjúkdóma, gæslu veikra
barna, slysagildrur í heimahúsum
og meginatriði skyndihjálpar. í
lok námskeiðsins fá nemendur
sérstakt barnfóstmskírteini.
Námskeiðin í Reykjavík verða
haldin í Gerðubergi, Múlabæ og
Hótel Lind og hefst það fyrsta 28.
mars nk. Nemendur þurfa að
hafa náð 11 ára aldri og nám-
skeiðin kosta 2.500 krónur.
Landsbankinn
fflytur innanhúss
Á mánudaginn var Vesturbæjar-
útibú Landsbankans opnað á nýj-
um stað. Raunar er það í sama
húsi og áður, Háskólabíói, en er
nú komið í austurhluta nýbygg-
ingar við bíóið en þar em auk
bankans nýir sýningar- og fyrir-
lestrasalir. í nýja húsnæðinu er
hægt að bjóða upp á meiri þjón-
ustu og þar verður ma. hraðbanki
og svonefndur einkaþjónn sem er
tæki þar sem viðskiptamenn geta
fengið útskrift á reikningum sín-
um. Alls eru um 10 þúsund reikn-
ingar í útibúinu en starfsmenn
eru 18 talsins og hefur þeim farið
fækkandi vegna tækni- og tölvu-
væðingar síðustu ára.
ísland aðili
að FERA
Á aðalfundi Evrópusambands
kvikmyndaleikstjóra sem hald-
inn var í Frakklandi dagana 9.-
11. mars sl. var ísland samþykkt
sem fullgildur félagi í samtökun-
um. Alls telia samtökin nú 24 að-
ildarlönd. Á fundinum lét ítalski
leikstjórinn Ettore Scola af störf-
um sem forseti samtakanna en
við tók Pólverjinn Krzysztof
Zanussi. Fundinn sátu um 160
leikstjórar frá báðum hlutum
Evrópu en samhliða honum var
haldið þing þar sem rætt var um
samskipti Áustur- og Vestur-
Evrópu á sviði kvikmyndafram-
leiðslu og dreifingar. Þrír leik-
stjórar sátu fundinn fyrir íslands
hönd, þau Hrafn Gunnlaugsson,
Kristín Jóhannesdóttir og Þor-
steinn Jónsson.
2 SÍÐA - ÞJÖÐVILJINN Fimmtudagur 22. mars 1990