Þjóðviljinn - 22.03.1990, Síða 6
ERLENDAR FRETTIR
Austur-Þýskaland
Njósnarar á þingi
Austur-þýsk stjórnvöld hafa
ákveðið að láta fara fram
rannsókn á meintum tengslum
margra nýkjörinna þingmanna
við austur-þýsku leyniþjónustuna
Stasi.
Gottfried Forck, sem á aðild
að þriggja manna eftirlitsnefnd
með því að leyniþjónustan verði
lögð niður, skýrði fréttamönnum
frá þessu í gær. Hann segir að
rannsóknin verði hafin áður en
Maaður ungmenna sem sovéski herinn drap í Tiflis fyrir ári taka þátt í baráttunni fyrir sjálfstæði Georgíu.
Sovétríkin
Kosningafrestur í Georgíu
Stjórnvöld í Georgíu eru sögð
hafa frestað kosningum til fylkis-
þings rikisins þar til í haust til að
gefa stjórnarandstæðingum tæki-
færi til að skipuleggja sig í nýja
stjórnmálaflokka.
Zurab Kodalashvili fréttamað-
ur hjá georgískri fréttastofu segir
að þing Georgíu hafi ákveðið á
fundi sínum á þriðjudag að fella
niður stjórnarskrárákvæði um
forræði kommúnistaflokksins og
fresta þingkosningum sem halda
átti um næstu helgi.
Kodalashvili segir að þing-
fundurinn, þar sem þetta var
ákveðið, hafi aðeins tekið tíu
mínútur. Stjórnarandstæðingar
geta nú skráð samtök sín opin-
berlega og hafið undirbúning
undir fjölflokkakosningar.
Ákvörðun georgíska þingsins
kemur í kjölfar kröfu Alþýðu-
fylkingar Georgíu frá því á sunn-
udag um að kosningum yrði frest-
að til þess að stjórnarandstæðing-
ar gætu skráð flokka sína og boð-
ið fram.
Hingað til hafa rótttækir
stjórnarandstæðingar í Georgíu
neitað að taka þátt í opinberum
kosningum. Þeir halda því fram
að þingið og aðrar stjórnarstofn-
anir séu ólöglegar og viðurkenna
ekki vald þeirra.
Róttækustu samtökin halda
enn fast við að hunsa kosningarn-
ar í von um að kosningaþátttaka
Nunnur
Ur klaustri í kastala
Átta belgískar nunnur seldu
nýlega klaustrið sitt og keyptu í
staðinn kastala í Suður-
Frakklandi nálægt Lourdes.
Belgíska lögreglan skýrði frá
því í gær að hún væra að rannsaka
mál nunnanna sem flúðu fyrr i
þessum mánuði úr klaustrinu í
kastalann í nýjum Mercedes-bíl
sem þær höfðu keypt. Elstu
nunninni, sem er 93 ára, var ekið
í sjúkrabíl.
Nunnurnar skildu meðal ann-
ars eftir veðhlaupahesta sem þær
höfðu líka keypt samkvæmt
ráðleggingum fjárhaldara síns.
Hann hefur verið handtekinn
sakaður um fölsun, pretti og
trúnaðarbrot.
Biskupinn í Bruges, þar sem
klaustrið er, hefur reynt að fá það
keypt aftur en árangurslaust.
Nunnurnar eru ekki grunaðar um
sviksamlegt athæfi. Þær fylgdu
ráðleggingum fjárhaldsmanns
síns blint eftir og féllust meðal
annars á rök hans um að þær yrðu
að búa nálægt Lourdes sem ka-
þólikkar hafa mikla helgi á.
Reuter/rb
nái ekki þeim fimmtíu prósentum
sem til þarf samkvæmt kosninga-
reglum. En Alþýðufylkingin,
sem hefur um 50 þúsund félaga í
Georgíu, þar sem heildaríbúa-
fjöldinn er um 5,2 miljónir, hefur
breytt afstöðu sinni að undan-
förnu.
Nodar Notadze leiðtogi AI-
þýðufylkingarinnar segir að sam-
tökin telji enn sem fyrr þing Ge-
orgíu og Georgíska Sovétlýð-
veldið ólöglegt. Þrátt fyrir það sé
þingið raunverulegt, það hafi
ákveðnu hlutverki að gegna að
hægt sé að nota það sem tæki í
baráttunni.
Georgískir þjóðernissinnar,
sem berjast fyrir sjálfstæði Ge-
orgíu og sambandsslitum við Sov-
étríkin, segja það gera baráttu
sína að sumu leyti erfiðari en
sjálfstæðisbaráttu Eystrasalts-
ríkjanna vegna þess að vestræn
ríki hafa viðurkennt yfirráð Sov-
étmanna í Georgíu. Mörg helstu
stórveldi á Vesturlöndum viður-
kenndu hins vegar aldrei innlim-
un Eystrasaltsríkjanna í Sovét-
ríkin.
Leiðtogar georgískra þjóðern-
issinna útiloka að þeir geti knúið
fram sjálfstæði með vopnavaldi.
Þeir hafi enga vöm gegn þung-
vopnuðu herliði Sovétmanna.
Minningartöflu hefur verið
komið fyrir í miðbæ höfuðborg-
arinnar Tiflis þar sem sovéskar
hersveitir réðust á friðsamar mót-
mælaaðgerðir í apríl í fyrra og
drápu tuttugu manns.
Reuter/rb
Blóðpeningar
Kínverska hemum launað
þingið kemur saman vegna
sterkra vísbendinga um að sumir
þingmenn hafi starfað fyrir Stasi.
Rainer Eppelmann leiðtogi
Lýðræðisvakningar, sem er einn
þriggja flokka í kosningabanda-
lagi Kristilegra demókrata, segir í
viðtali við vestur-þýska blaðið
Bild, sem birtist í gær, að í skýrsl-
um Stasi hafi verið minnst á 40 af
56 þingfulltrúum sem náðu kosn-
ingu í Erfurt-kjördæmi.
Eppelmann tók við forystu
Lýðræðisvakningar eftir að upp
komst að Schnur fyrrverandi
leiðtogi samtakanna hafði árum
saman starfað fyrir Stasi. Lýð-
ræðisvakningin fékk ekki nema
tæplega eins prósents fylgi í kosn-
ingunum j afnvel þótt bandamenn
hennar í Kristilega demókratafl-
okknum hafi sópað til sín at-
kvæðum. Alls fékk bandalagið
48,14 prósent atkvæða.
Eppelmann vill að skýrslur
Stasi um þingmenn verði birtar
opinberlega. Hann segir að
margir úr þingmannahópi kristi-
legra demókrata, sem voru ára-
tugum saman handbendi komm-
únista, séu á lista yfir útsendara
leyniþjónustunnar.
Wemer Fischer, sem hefur for-
ystu fyrir eftirlitsnefndinni með
endalokum Stasi, segir að sumir
þingmenn, sem áður störfuðu
fyrir Stasi, séu nú farnir að senda
upplýsingar til vestur-þýsku
ley niþ j ónustunnar.
Reuter/rb
Umferðarhávaði
Kairóbúar
á svefnlyfjum
Yfir helmingur þeirra tólf mUj-
óna sem búa í Kairó taka róandi
töflur og svefnlyf til að losna
undan ærandi hávaða stórborg-
arinnar samkvæmt upplýsingum
egypska dagblaðsins Al-Ahram.
Blaðið segir að opinber könn-
un á lyfjanotkun hafi leitt í ljós að
62 prósent af íbúum borgarinnar
taki svefntöflur til að geta sofnað
fyrir hávaðanum í umferðinni og
bænalestri.
Um þriðjungur borgarbúa er
með of háan blóðþrýsting vegna
hávaðamengunarinnar.
Ökumenn í Kairó liggja einatt
á flautunni til að ryðja sér braut
um götur borgarinnar. Fólk er
kallað til islamskra bæna í mosk-
um fimm sinnum á dag með öfl-
ugum hátölurum. Hávær tónlist
frá giftingarveislum og öðrum
hátíðarhöldum víðsvegar um
borgina blandast saman við.
Al-Ahram segir að hávaða-
mengunin við borgartorgið í
hjarta borgarinnar sé tífalt meiri
en hávaðamörk samkvæmt al-
þjóðlegum heilbrigðisreglum.
Reuter/rb
Eþíópía
Sovéskri
herráðgjöf hætt
Sovétmenn hafa kallað hernað-
arráðgjafa sína burt frá bardaga-
svæðunum í Eþíópíu að sögn Val-
erí Soukhfne sendiherra Sovétr-
fkjanna í Súdan.
Sendiherrann skýrði frá þessu í
viðtali í gær. Hann segir að mörg
hundruð sovéskir hernaðarráð-
gjafar hafi snúið heim til Sovét-
ríkjanna en nokkrir séu enn eftir í
höfuðborginni Addis Ababa til
að aðstoða við varnir landsins.
Vestrænir sendifulltrúar áætla
að um eitt þúsund sovéskir ráð-
gjafar hafi aðstoðað stjórnarher-
inn í Eþíópíu í stríðinu gegn upp-
reisnarmönnum í Tigray og Eritr-
eu.
Sovétmenn hafa látið Eþíópíu-
mönnum í té hernaðaraðstoð
fyrir andvirði um tíu miljarða
dollara frá því að marxistar kom-
ust til valda með stjórnarbyltingu
1974. Reuter/rb
Auðsöfnun
Japanskt
spamaðamiet
Japanskur almenningur setti
nýtt sparnaðarmet á seinasta ári.
Heildarsparnaður einstaklinga
jókst um 11,2 prósent í 700,8 þús-
und miljarða jena í árslok sem er
jafnvirði um 280 þúsund miljarða
króna.
Þetta kemur fram í upplýsing-
um japanska seðlabankans sem
voru birtar nú í mars. Japanir eru
rúmlega 120 miljónir talsins svo
að meðaltalspamaður hvers
þeirra er rúmlega 2,3 miljónir
króna á mann. Meðaltalsspam-
aður fjögurra manna fjölskyldu
er samkvæmt þessu rúmar níu
miljónir króna.
Þetta er mesta sparnaðar-
aukning í Japan á einu ári frá því
1981. Aukningin er talin stafa af
aukinni samkeppni innlánsstofn-
ana samfara uppgangi í japönsku
efnahagslífi á síðasta ári sem varð
til þess að fyrirtæki greiddu al-
mennt óvenju háan bónus ofan á
föst laun.
Almannatryggingar, eftirlaun
og ellilaun em mjög af skornum
skammti í Japan sem ýtir undir
sparsemi almennings.
Japanski seðlabankinn segir að
hlutabréfaeign einstaklinga hafi
aukist um 26 prósent á síðasta ári
upp í 125,4 þúsund miljarða jena
(50 þúsund miljarðar króna).
Reuter/rb
Samkvæmt fjárlögum kín-
verska ríkisins verða framlög
til hersins aukin um 15,2 prósent
á þessu ári. Þetta er mesta
aukning Kinverja á útgjöldum til
hermála í langan tíma.
Aukpingin er talin endurgjald
fyrir dyggan stuðning kínverska
hersins viðNsriómvö!d sem fyrir-
skipuðu hernum að beita vopna-
valdi til að bæíá. niður lýðræð-
ishreyfingu stúdenri^ í júní síð-
astliðið sumar.
Mikil óánægja er sö^ð innan
hersins vegna þess að hetnum
skyldi sigað á óbreytta borgátg.
Búist var við að útgjöld til her\
mála yrðu aukin um jafnvel enn
hærri upphæð eða allt að 25 prós-
entum í raungildi til að draga úr
óánægju innan hans.
Fjárlögin, sem voru kynnt í gær
á árlegum fundi kínverska al-
þýðuþingsins, einkenndust ann-
ars af áframhaldandi aðhaldi í
efnahagsmálum.
Skömmu eftir að fjárlögin
höfðu verið kynnt, var tilkynnt
að Deng Xiaoping hefði sagt af
sér sem formaður hermála-
nefndar ríkisins. Það er síðasta
opinbera embættið sem Deng
hafði með höndum.
Deng, sem er 85 ára gamall,
kemur samt áfram til með að ráð-
leggja kínverskum leiðtogum
hvemig þeir skuli stjórna
landinu. Kínverskir embættis-
menn segja engan vafa leika á því
að hann verði eftir sem áður vold-
ugasti maður Kína.
Stór hluti kínverskra forystu-
manna er persónulega skuld-
bundinn Deng og hann hefur sýnt
að hann getur hæglega látið víkja
þeim úr embætti ef þeir ganga
geen vilia hans.
Reuter/rb
Sikiley
Mafíunni
vel borgað
Um níu af hverjum tíu verslun-
um og fyrirtækjum í Cataníu
næststærstu borg Sikileyjar
greiða fé til mafiunnar. Þetta
kemur fram í niðurstöðum
könnunar ítalska þingsins sem
birtist í gær.
Rannsóknarfulltrúar þingsins
telja að útsendarar mafíunnar
beri ábyrgð á miklum eldsvoða
sem varð í stóm vörahúsi þegar
þingnefndin heimsótti Cataníu í
janúar.
Fyrirtækin greiða mafi'unni til
að komast hjá áföllum eins og
eldsvoða eða skemmdarverkum
sem þau geta búist við ef þau
neita að borga “pizzo“ sem er ít-
alska nafnið fyrir kúgunarféð.
Morðum í tengslum við mafí-
una fjölgaði úr 85 árið 1988 í 113 á
síðasta ári í Cataníu samkvæmt
upplýsingum þingnefndarinnar.
Reuter/rb
Pólland
Atvinnu-
leysingjum
snarfjölgar
Skráðum atvinnuleysingjum
fjölgaði í Póllandi úr rúmlega 152
þúsund í febrúar í 216.557 um
miðjan mars samkvæmt upplýs-
ingum pólska vinnumálaráðun-
eytisins.
Þegar aðhaldsaðgerðir pólsku
stjórnarinnar hófust 1. janúar
vora aðeins tæplega tíu þúsund
manns á atvinnuleysisskrá.
Hlutfall atvinnuleysingja er nú
um 1,2 prósent af vinnufærum
mönnum. Búist er við að atvinnu-
leysið eigi enn eftir að aukast
stórlega á næstu mánuðum.
Iðnaðarframleiðsla Pólverja
dróst saman um 23,5 prósent
fyrstu tvo mánuði ársins saman-
borið við sama tíma í fyrra.
Reuter/rb
6 SlÐA - ÞJÖÐVILJINN Fimmtudagur 22. mars 1990