Þjóðviljinn - 22.03.1990, Síða 7
FRETTIR
Abyrgðardeild fiskeldis
Enn þrengt að ráðhena
Breytingartillaga Jóns Sæmundar Sigurjónssonar um setufulltrúa viðskipta- og landbúnaðarráðuneytis ístjórn
ábyrgðardeildar fiskeldislána samþykkt í neðri deild Alþingis
Enn er þrengt að Ólafi Ragnari
Grímssyni fjármálaráðherra
varðandi stjórnarfrumvarp um
ábyrgðardeild fiskeldislána, því í
gær bar Alþýðuflokksþingmað-
urinn Jón Sæmundur Sigurjóns-
son fram breytingartillögu á
skipan stjórnar deildarinnar og
var tillagan samþykkt í lok-
aumræðu um frumvarpið í neðri
deild og málinu vísað til efri
deildar.
Breytingartillaga Jóns Sæ-
mundar gerir ráð fyrir að fjár-
málaráðherra skipi fimm manna
stjórnamefnd yfir ábyrgðar-
deildinni, einn tilnefndan af við-
skiptaráðherra, einn af landbún-
aðarráðherra og þrjá án tilnefn-
ingar. En í frumvarpinu er aðeins
gert ráð fyrir þriggja manna
stjórn sem öll verði skipuð af fjár-
málaráðherra.
Ólafur Ragnar er ósáttur við
breytingartillöguna og tóku
nokkrir þingmenn Sjálfstæðis-
flokksins í sama streng í þing-
sölum í gær. Fjármálaráðherra
sagði þá skipan sem Jón Sæ-
mundur leggur til geta skapað
hættulegt fordæmi varðandi ríkis-
ábyrgðir, ef fulltrúar einstakra
atvinnugreina eða annarra ráðu-
neyta en fjármálaráðuneytisins
teldu að þeir ættu að gæta ein-
hverra annarra hagsmuna en
hagsmuna almennings sem væru
hagsmunir ríkissjóðs. Hann sagð-
ist þó ekki vilja gera þetta mál eitt
og sér að einhverju stórmáli.
Það gæti til dæmis gerst að full-
trúar sjávarútvegs og sjávarút-
vegsfyrirtækja eða iðnaðar og
iðnaðarfyrirtækja teldu að þeir
ættu að meta hvar ætti að veita
ríkisábyrgðir, að sögn Ólafs
Ragnars. Pess vegna hefði þeirri
skipan verið fylgt til þessa að full-
trúar fjármálaráðuneytisins einir
legðu mat á þessa hluti. „Vegna
þess að ríkisábyrgðir eru ekkert
annað en ákvörðun um það að ef
fyrirtæki tapa greiði almennir
skattborgarar tapið,“ sagði
Ólafur Ragnar.
Friðrik Sophusson Sjálfstæðis-
flokki, sem stóð að breytingartil-
lögum á frumvarpinu og sam-
komulag náðist um við fjármála-
ráðherra, sagði eðlilegt að fjár-
málaráðherra einn hefði með
þessi mál að gera og að íhalds-
semi ríkti varðandi ríkisábyrgðir.
Þorsteinn Pálsson flokksbróðir
hans var sama sinnis og sagði ein-
NA TO-drottning
Spurt um
tilgangiim
Þórhildur Þorleifsdóttir
Kvennalista hefur lagt fram fyrir-
spurn til dómsmálaráðherra um
tilgang fyrirhugaðrar ferðar
varðskipsins Týs til Norfolk í apr-
fl nk. En varðskipið mun eiga að
flytja íslenska stúlku þangað sem
„drottningu" á NATO-hátíð.
Þingmaðurinn spyr hvað Týr
verði lengi í burtu, siglingarveg-
alengdina til Norfolk og hvaða
ráðstafanir hafi verið gerðar til að
mæta fjarveru Týs af miðunum.
Þá vill Þórhildur fá kostnaðinn
upplýstan sundurliðaðann eftir
olíukostnaði, launum og öðru,
samanborið við rekstrarkostnað
skipsins ef það hefði verið heima.
Þingmaðurinn vill einnig fá upp-
lýst hve margir skipverjar og
farþegar verði í ferðinni, hve
margir eru alla jafna um borð
þegar skipið er við gæslustörf og
hver greiði kostnaðinn af ferðinni
til Norfolk. -hmp
staka fagráðherra kunna að hafa
hag af því að þrýsta á um aðra
niðurstöðu en þá sem samræmd-
ist hagsmunum ríkissjóðs. Vegna
samspils bankakerfis og ábyrgð-
ardeildar samkvæmt frumvarp-
inu væri enn mikilvægara að
fjármálaráðuneytið færi eitt með
þessi mál.
Þórhildur Þorleifsdóttir
Kvennalista sagði breytingartil-
löguna ekki draga úr valdi fjár-
málaráðherra þar sem hans full-
trúar yrðu í meirihluta í nefnd-
inni. Nauðsynlegt væri að rök
fyrir ríkisábyrgðum hvfldu á
traustum grunni og því ekki
óeðlilegt að sá ráðherra sem færi
með fiskeldismál og ráðherra
bankamála ættu fulltrúa í nefnd-
inni. Jón Sigurðsson viðskipta-
ráðherra hélt fram svipaðri
skoðun og sagðist hlynntur til-
lögunni. Hver og einn ráðherra
ætti fyrst og fremst að gæta al-
mennings hagsmuna en ekki vera
í hagsmunagæslu fyrir einstaka
aðila í þjóðfélaginu. -hmp
VSk.f?
Endurgreiðsla
viróisaukaskatts
til íbúóarbyggjenda
'inna manna á byggingarstað var undan-
þegin söluskatti en er nú virðisaukaskattsskyld. Virðis-
aukaskattur af vinnu manna sem unnin er á byggingarstað
íbúðarhúsnæðis verður endurgreiddur skv. reqluqerð nr.
641/1989.
Endurgreiðslan nærtil:
• Vinnu manna við nýbyggingar íbúðarhúsnæðis.
• Hluta söluverðs verksmiðjuframleiddra íbúðarhúsa.
• Vinnu manna við endurbætur á íbúðarhúsnæði ef heild-
arkostnaður er a.m.k. 7% af fasteignamati íbúðarhús-
næðis.
Athygli skal vakin á því að umsækjandi verður að
geta lagt fram umbeðin gögn, t.d. sölureikninga þar sem
skýrt kemur fram hver vinnuþátturinn er og að vinnan sé
unnin á byggingarstað.
a
L ndurgreiðslu fá þeir sem byggja á eigin
kostnað íbúðarhúsnæði sem ætlað er til sölu eða eigin
nota á eigin lóð eða leigulóð.
_ *ppgjörstímabil vegna nýbyggingar og
verksmiðjuframleiddra íbúðarhúsa er tveir mánuðir, janúar
og febrúar, mars og apríl o.s.frv. Umsókn skal berast skatt-
stjóra fyrir 15. dag næsta mánaðar eftir að uppgjörstímabili
lýkur.
Athygli skal vakin á því að skilafrestur vegna janúar
og febrúar 1990 framlengist til 30. mars.
Uppgjörstímabil vegna endurbóta er aldrei styttra
en almanaksár. Umsókn skal berast skattstjóra 15. janúar
árið eftir að endurbætur voru gerðar.
Nánari upplýsingar veita RSK og skattstjórar um
land allt.
L^ækja skal um endurgreiðslu á sérstökum
eyðublöðum til skattstjóra í því umdæmi sem lögheimili
umsækjandans er.
Eyðublöðineru:
• RSK 10.17: Bygging íbúðarhúsnæðis til sölu eða leigu.
• RSK10.18: Bygging íbúðarhúsnæðis til eigin nota.
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7