Þjóðviljinn - 31.03.1990, Blaðsíða 5
SKÁK
Tíu skákmenn urðu efstir á
Búnaðarbankaskákmótinu
Hvorki fleiri né færri en tíu
skákmenn deildu með sér efsta
sætinu á Búnaðarbankaskákmót-
inu sem hafði undirtitilinn 14.
Reykjavíkurskákmótið. Menn
voru ansi friðsamir í síðustu um-
ferð og því fannst ekki hreinn sig-
urvegari.
Jafntefli varð í öllum skákum á
efstu borðum og svo nýtti danski
meistarinn Erling Mortensen sér
tækifæri sem honum bauðst og
komst upp í hóp efstu manna.
Lokaniðurstaðan varð þessi: 1,-
10. Lev Polugajevskí, Helgi Ól-
afsson, Jón L. Árnason, Yasser
Seirawan, Sergei Dolmatov, Raf-
ael Vaganian, Nick DeFirmian,
Thomas Emst, Y. Rasúvaév og
Erling Mortensen. í 11.-15. sæti
urðu Andrei Sokmolov, Joel
Benjamin, Sergei Makaritsjev,
Vladimir Tukmakov og Zurab
Azmaparashvili.
Nöfn þessara efstu manna sýna
hversu mótið var vel skipað og
neðar á töflunni komu margir
þekktir skákmeistarar. Hinir
fjölmörgu ungu og efnilegu skák-
menn lslands hlutu þarna dýr-
mæta reynslu, strákar eins og
Rúnar Sigurpálsson, Héðinn
Steingrímsson og Helgi Áss Grét-
arsson. Héðinn stóð sig reyndar
frábærlega vel og hlaut 6 vinninga
af 11 mögulegum. Þá vakti
frammistaða Bolvíkingsins Hall-
dórs G. Einarssonar athygli en
hann vann áfanga að alþjóð-
legum meistaratitli og var heilum
vinningum yfir markmiðinu.
Tómas Björnsson vann einnig
áfanga og Snorri Bergsson stóð
sig vel. Kristján Guðmundsson
sem lítið hefur teflt hin síðari ár
vann nokkra góða sigra þ.á m.
yfir Dananum Carsten Hoi.
Sem verðlaun fyrir fallegustu
skák mótsins veitti Fróði bikar en
þegar þetta er ritað er ekki vitað
hver hreppir hann. Jón L. Árna-
son komst í efsta sætið m.a. með
sigrum yfir hinum öflugu sovésku
stórmeisturum Dreev og Azmap-
arashvili. Sigur hans yfir Dreev
hlýtur að skoðast sem innlegg
hans í baráttuna um Fróða bika-
rinn.
Jón L. Arnason -
Alexander Dreev
Frönsk vörn
1. e4 e6
2. d4 d5
3. Rd2
(Leikur Tarrasch, sem er var-
færnari en 3. Rc3, gafst Jóni einn-
ig vel gegn Rafael Vaganian í 1.'
umferð. Vaganian lék hér 3. ..
c5)
3. .. a6
4. Rgf3 c5
5. dxc5 Bxc5
5. Bd3 Rf6
7. 0-0 Dc7
8. a3 Be7
9. Hel 0-0?
(Að skákinni lokinni vildi Jón
meina að þetta væri ónákvæmur
leikur og að nú ætti svartur við
óyfirstíganleg vandamál að
stríða. Betra væri því 9. .. dxe4
10. Rxe4 Rbd7 o.s.frv.)
10. e5 Rfd7
11. Rb3 Rc6
12. Bf4 Rb6
13. c3 Rc4
14. De2
(Hvítur hefur fylkt liði sínu til
varnar e5-peðinu en rennir jafn-
framt löngunaraugum að við-
kvæmri kóngsstöðu svarts.)
14. .. b5
15. Rbd4 Bd7
16. Rxc6 Bxc6
17. Rg5 Bxg5
(Svarta staðan er afar erfið.
Eftir 17. .. h6 á hvítur leikinn 18.
Rh7! ásamt - Dg4 eða - Dh5 eftir
atvikum.)
18. Bxg5 Hae8
(Svartur gerir tilraun til að
andæfa með 19. .. f5 o.s.frv. en
hann er einum of seinn.)
19. Bxh7+! Kxh7
20. Dh5+ Kg8
fimmtu og sjöttu skák en náði
jafntefli eftir ónákvæmni Karp-
ovs.
Karpov átti í mestu brösum
með landa sinn Artur Jusupov í
London sl. haust en virðist hafa
dregið sinn lærdóm af þeirri
viðureign. Hann var geysilega vel
undirbúinn og fullur sjálfstrausts
enda lýsti hann því yfir fyrir ein-
vígið að Timman ætti enga mögu-
leika.
Einvígið um heimsmeistaratit-
ilinn milli Kasparovs og Karpovs
mun hefjast 9. október í New
York en þar fer fram fyrri helm-
ingurinn, alls 12 skákir. Þeir
Ijúka svo baráttunni í Lyon í
Frakklandi. Þetta verður þeirra
(í sjöundu skákinni lék Karpov
12. .. Dd7. Hann gerði yfirleitt
einhverjar smábreytingar á tafl-
mennsku sinni.)
13. Bc2 exd4
14. cxd4 Rb4
15. Bbl c5
(í fyrstu og fimmtu skák Iék
Karpov 15. .. bxa4 16. Hxa4 a5
17. Ha3 Ha6 en hér velur hann
leið sem kom við sögu í einu af
einvígjunum við Kasparov.l
16. d5 Rd7
17. Ha3 f5!?
(Djarfur leikur og athyglis-
verður. Karpov hefur oftsinnis
leikið 17. .. c4 með það fyrir
augum að koma riddara fyrir á
c5. Hér ræðst hann til atlöguvið
nóg fyrir skiptamuninn vegna
hótunarinnar - Rd3 og - Bc5.)
35. .. Rd3
36. Rxh6+ gxh6
37. Bxd3+ Kh8
38. Bg6 Hed8
Bandaríski stórmeistarinn Yasser Seirawan sigraði á opna
hraðskákmótinu sem haldið var í húsakynnum Taflfélags
Reykjavíkur í Faxafeni í gær. Seirawan hlaut 15 v. úr 18
skákum, en Jóhann Hjartarson varð annar með 141/2 v. Hann
varð því „Hraðskákmeistari Islands 1990“. Mikill fjöldi þátttak-
enda setti svip á mótið. Hér sést Jón L. Árnason tefla við
Bolvíkinginn Unnstein Sigurjónsson. Ljósm. Kristinn.
21. Bf6!
(Nú er hótunin 22. Dg5 g6 23.
Dh6 og mátar svo, svar Dreev er
þvingað.)
21. .. gxf6
22. Dg4+ Kh7
23. exf6 Kh6
(Kannski byggði Dreev varnir
sínar á þessum leik. Það er ekki
að sjá rakinn vinning í framhald-
inu 24. Dg7+ Kh5. En Jón hafði
hugsað dæmið til enda.)
24. f4!
- Nú er hótunin 25. Dg5+ og
26. Dg7 mát. Framhaldið gæti
orðið 24... Hg8 25. Dh4+ Kg6
26. Dg5+ Kh7 27. Dh5 mát.
Snotur skák og þetta var jafn-
framt þriðji sovéski stórmeistar-
inn með yfir 2600 stig sem Jón
lagði að velli í mótinu.
Yfirburðasigur Karpovs
í Kuala Lumpur
Niðurstaða einvígis þeirra An-
atoly Karpvos og Jan Timmans í
Kuala Lumpur í Malasíu kemur
fáum á óvart en engu að síður
vonuðust menn eftir kröftugri
mótspyrnu Hollendingsins sem
gat með sigri komist upp á milli
þessara „ósnertanlegu" riddara
manntaflsins: Kasparovs og
Karpovs. Stórsigur Karpovs
6/2:2/2 lýsir vel gangi mála. Tim-
man var í nauðvörn í flestum
skákunum og átti tapað tafl í
fimmta einvígi og má nærri geta
að sumum finnst nóg komið af
svo góðu. Karpov er þó eini mað-
urinn sem á möguleika á að velta
Kasparov úr sessi og víst verða
vopnaviðskiptin fjörleg, einvígin
fjögur sem þeir hafa þegar teflt
geyma margar af perlum skáklist-
arinnar.
Svo ég snúi mér að skákunum í
Malasíu þá er rétt að birta hér
síðustu skák einvígisins og senni-
lega þá bestu. Þetta var geysilega
flókin viðureign og Timman
gerði þama örvæntingarfulla til-
raun til að minnka forskot and-
stæðingsins. En allt kom fyrir
ekki, Karpov tefldi af miklu ör-
yggi og knúði fram sigur í afar
athyglisverðu endatafli. Spænski
leikurinn stóðst allar atlögur rétt
eins og í Seattle í öðru einvígi.
Jan Timman -
Anatoly Karpov
Spænskur leikur
1. e4 e5
2. Rf3 Rc6
3. Bb5 a6
4. Ba4 Rf6
5. 0-0 Be7
6. Hel b5
7. Bb3 d6
8. c3 0-0
9. h3 Bb7
10. d4 He8
11. Rbd2 Bf8
12. a4 h6
HELGI
ÓLAFSSON
SKRIFAR
peðamiðborð hvíts. Hann hyggst
svara 18. exf5 með 18... Rf6
o.s.frv.)
18. Hae3 f4
19. H3e2 Re5
20. Rfl Rxf3+
21. gxf3 Dh4
(Hvítur hefur ekki tekið nægi-
lega kröftuglega á móti hvassri
byrjun svarts og svartur má vel
við stöðu sína una. Hann gat
einnig leikið 21. .. Df6.)
22. Rh2 He5
23. Dd2 Dxh3
24. Dxf4 bxa4!
(Karpov notar tímann til að
næla sér í eitt vesælt peð á drott-
ningarvæng. Það á eftir að koma
við sögu síðar í skákinni.)
25. Dg4 Dxg4+
26. Rxg4 Hee8
27. f4 a5
(Baráttan er æsispennandi.
Hvítur á viss færi á kóngsvæng en
svartur hefur góð tök á málum
drottningarmegin. Keppendur
vom báðir að komast í tíma-
hrak.)
28. f3 Ba6
29. Hg2 Kf7
30. Hdl Bc4
31. Re3 Bb3
32. Hel c4
33. e5 dxe5
34. Bg6+ Kg8
35. Rg4!
(Mun sterkara en 35. Bxe8
Hxe8 og svartur hefur meira en
39. Bd2?
(Úrslitamistök Timmans. Eftir
39. fxe5 er staðan afar tvísýn.)
39. .. Bb4
40. Bc3 Bxc3
41. bxc3 a3
(Þessi frelsingi á eftir að
reynast Timman erfiður.)
42. fxe5 Hxd5
43. e6 Hdl
44. Hxdl Bxdl
45. e7 Ba4
46. Bf7
(Hér var nauðsynlegt að leika
46. Ha2 þó svartur eigi vinnings-
möguleika eftir 46. .. Kg7 47.
Bh5 Be8 48. Bxe8 Hxe8 49. Hxa3
Hxe7 50. Hxa5 He3 o.s.frv.)
46. .. Hb8!
47. He2 Hbl+
48. Kf2 Hb2!
(Þvingar fram drottningarkaup
og tryggir sigurinn. Vitaskuld
gengur ekki að leika 49. e8(D)+
vegna 49. .. Bxe8 50. Bxe8
Hxe2+ ásamt 51... a2 og svartur
vinnur.)
49. Bxc4 Kg7
50. Kel Hxe2+
51. Kxe2 h5
52. Bb3 Bd7
53. Ke3 Kf6
54. Kf4 Bc6
55. c4 Kxe7
56. c5 Be8
- og Timman gafst upp. Hann
á enga vörn við hótuninni 57. ..
Bf7.
Laugardagur 31. mars 1990 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA :5