Þjóðviljinn - 14.07.1990, Qupperneq 1

Þjóðviljinn - 14.07.1990, Qupperneq 1
Laugardagur 14. júlí 1990. 129. tölublað 55. árgangur. Haldið í land. Kerlingarnar í Eyjum hlæja eflaust ekki siður en þær á Skaganumþegarkarlarnirkomaheimádrekkhlöðnumbátunum. Vart sásttil sólarfyrirbrælunni, og peninga lyktin fyllti vitin þegar Þjóðviljinn var á dögunum úti í Vestmannaeyjum. Mynd: Jim Smart. Geislamengun Svíar með vonda samvisku Júlíus Sólnes: Margir telja sig hafafullvissujyrirþvíað Svíar komi geislavirkum úrgangifyrir íEystrasali. Ekkifœst uppgefið hvaðFinnar gera við sinn úrgang. Ráðherraferað skoða endurvinnslustöðina í Dounreay Júlíus Sólnes umhverfismála- ráSherra segir Svfa vera með vonda samvisku f umhverfismál- um. „Staðreyndin er sú að Svíar, að þvf sagt er en án þess að maður hafi sannanir fyrir því, eru sjálfir að lauma kjarnorkuúrgangi frá kjarnorkuverum sfnum út í Eystrasalt,“ sagði Júlíus þegar hann var spurður hvers vegna ekki vœri samstaða með norrænu umhverfismálaráðherrunum um að mótmæla endurvinnslustöð- inni f Dounreay sameiginlega. Ráðherra sagði að margir þætt- ust hafa fullvLssu fyrir því að Sví- ar hefðu útbúið neðanjarðarhella undir sjávarbotni undan strönd- um Svíþjóðar í Eystrasalti og pumpuðu þar niður geislavirkum úrgangi. „Það veit sfðan enginn hvað Finnar gera við sinn úrgang og ekkert fæst upplýst um það,“ sagði umhverfismálaráðherra. I samtali við Þjóðviljann sagði Júlíus, endurvinnslustöðina í Do- unreay vera fastan lið á sameigin- legum fundum Norrænu um- hverfismálaráðherranna. En það yrði að viðurkennast að hópurinn væri ekki sammála. Júlíus sagðist hafa lagt fram tillögu á síðasta fundi um að ráðherrarnir mót- mæltu Dounreay stöðinni sam- eiginlega og þau mótmæli yrðu síðan tekin upp á fundi með um- hverfismálaráðherra Bretlands. Þessu hefðu Svíar og Finnar neit- að. Þegar þessi mál ber á góma á fundum umhverfismálaráðher- ranna, sagði Júlíus Finna alltaf tala um að það ætti að fara öðru- vísi í þessi mál. Það ætti að gera kröfu um að nota bestu fáanlegu tækni varðandi endurvinnsluna. Júlíus sagðist alltaf svara þessum skoðunum með því að segja bestu fáanlegu tækni ekki nægja. Áhætta upp á brot úr prósenti væri jafnvel of mikil. Dönsku og norsku umhverf- ismálaráðherramir eru sammála sjónarmiðum íslendinga, að sögn Júlíusar. Danski ráðherrann, sem er formaður ráðherrahóps- ins, hefði til að mynda hvatt til þess að ráðherramir mótmæltu hver fyrir sig, þegar ekki tókst samstaða um að mótmæla Do- unreay sameiginlega. Eftir það hefðu norsku og dönsku ráðherr- amir sent Bretum sín mótmæli. Færeyingar hafa tekið sömu af- stöðu í þessu máli og íslendingar. Júlíus sagðist einnig hafa sett sig í samband við Jónatan Mosfeldt til að fá Grænledinga til liðs við ís- lendinga og Færeyinga. Jónatan kæmi hingað til lands í lok mán- aðarins og þá yrðu þessi mál rædd. „Það er verið að reyna safna saman liði þeirra þjóða sem em í því umhverfi sem stafar hætta af Dounreay,“ sagði Júlíus. Umhverfismálaráðherra fer til Skotlands þann 30. júlí til að skoða af eigin framkvæði endur- vinnslustöðina í Dounreay. Ráðherrann hefur skrifað bresk- um stjómvöldum og mótmælt til- vist stöðvarinnar og einnig mót- mælt því við þýsk, hollensk og spönsk stjómvöld að þau skuli senda geislavirkan úrgang til endurvinnslu í Dounreay. Þá hef- ur verið lögð fram fyrirspurn í hollenska þinginu um viðskipti Hollendinga við endurvinnslu- stöðina og verður henni svarað í næstu viku. Bandaríkjamenn hafa bannað innflutning á geislavirkum úr- gangi vegna mengunarhættu. Jú- Uus sagði Þjóðviljanum að hlut- imir væra að snúast við frá árinu 1970, þegar Bretar lokuðu á innf- lutning á geislavirkum úrgangi, en þá hefði hann verið fluttur til Bandaríkjanna í staðinn. Nú tækju Bretar við þessu, sem væri ekkert gamanmál. Júlíus sagðist bíða eftir frekari viðbrögðum við mótmælum sínum og sagði mót- mæli streyma til breskra stjómvalda úr öllum áttum. Reynt væri að byggja upp. víð- tækan og stöðugan þrýsting í þeirri von að Bretar létu loks undan honum. -hmp Sovétríkjn Borgarstjórar úr kommún istaflokknum Popov og Sobtsjak, borgarstjórar íMoskvu ogLeníngrad, segjast œtla að stuðla að myndun fjölflokkakeifis Tilkynnt var á fréttamanna- fimdl í gær að borgarstjórar Moskvu og Leníngrad, tveggja mestu borga f Sovétríkjunum, hefðu ákveðið að ganga úr Kommúnistaflokki Sovétríkj- anna og stuðla framvegis að því að koma á fjölflokkakerfi. Ekki var þó beinlínis tekið fram í til- kynningunni að þeir hefðu í hyg- gju að beita sér fyrir stofnun nýs stjóramálaflokks. Stofnun nýrra stjórnmála- flokka er lögum samkvæmt heimil í Sovétríkjunum síðan fyrr á árinu, er kommúnistaflokkur- inn afsalaði sér formlega einka- rétti á völdum. Borgarstjóramir, Gavríl Pop- ov í Moskvu og Anatolíj Sobtsjak í Leníngrad, tilgreindu sem ást- æðu til úrsagnanna að 28. þingi kommúnistaflokksins hefði ger- samlega mistekist að bjóða upp á nýja stefnuskrá með það fyrir augum að breyta Sovétríkjunum í nýtt samfélag. Popov er hagfræðingur og fyrram prófessor við Moskvuhá- skóla. Sobtsjak hefur getið sér orðstírs sem snjall lögfræðingur og prófessor við Leníngradhá- skóla. Hann hefur verið borgar- stjóri síðan í júní, Popov síðan í mars. Báðir eru þeir hliðhollir róttæka armi flokksins, en Popov hefur þó verið talinn standa ná- lægt miðjumönnunum kringum Gorbatsjov. Þetta vekur bollaleggingar um hvort fjöldaúrsagnir róttækra og frjálslyndra í flokknum séu fram- undan. Borís Jeltsín, forseti Rússlands, hafði áður sagt sig úr flokknum og sumir liðsmanna hins róttæka Lýðræðisvettvangs slíkt hið sama. Lýðræðisvett- vangurinn er þó klofinn um þetta, því sumir þingfulltrúa hans neituðu að segja sig úr flokknum eftir að Jegor Lígatsjov, leiðtogi íhaldsmanna, hafði fallið í kosn- ingu tU hins nýstofnaða og valda- mikla embættis aðstoðaraðalrit- ara flokksins. Rcuter/-dþ.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.