Þjóðviljinn - 14.07.1990, Blaðsíða 7
ERLENDAR FRETTIR
Albanía
5000fluftftir til Brindisi
Vestur-Þýskaland, Frakkland og Ítalía loka sendiráðum sínum í Tirana
Albanir þeir um 5000 talsins,
sem í rúma viku hafa hafst við
í sendiráðum í Tirana í von um að
komast úr landi, komu til Brindisi
á Suður-ítalfu í gærmorgun eftir
sjóferð um nóttina frá Durres,
helstu hafnarborg Albaníu. Flest-
ir þeirra höfðu leitað hælis í
sendiráðum Vestur-Þýskalands,
Frakklands og Ítalíu og hafa nú
fengið leyfi til landvistar í löndum
þessum.
Albanimir fögnuðu ákaflega,
þegar þeir gengu á land í Brindisi,
hylltu Ítalíu og kváðu við raust
söngva þarlendra knattspyrnu-
Búlgaría
Dimitrov
lýmir
leghöll
Búlgarska sjónvarpið hefur
eftir Andrei Lúkanov, forsætis-
ráðherra landsins, að lfk Georgi
Dimitrov, helsta leiðtoga búlg-
arskra kommúnista á fyrstu ára-
tugum þeirra, verði tekið úr leg-
höll þeirri í miðborg Sofiu, hvítri
og úr steini, sem það hefur hvflt í
frá því að Dimitrov lést 1949.
Verður hann jarðsettur á ný við
hlið móður sinnar í aðalkirkju-
garði höfuðborgarinnar.
í kröfugöngum í Sofíu undan-
farið hefur þess verið krafist að
lík Dimitrovs verði fært úr leg-
höllinni, og skuli sú athöfn
skoðast sem tákn þess að flokks-
alræði hafi verið aflagt.
Á ámnum milli heimsstyrjalda
var Dimitrov einn helstu áhrifa-
manna í Alþjóðasambandi
kommúnista (Komintern). Hann
var staddur í Þýskalandi 1933
(árið sem nasistar komu þar til
valda) er ríkisþinghúsið í Berlín
brann, handtekinn og sakaður
um að hafa átt þátt í að kveikja í
byggingunni. Eftir fræga vörn
fyrir rétti var hann sýknaður.
Eftir heimsstyrjöldina síðari, er
kommúnistar tóku völd í Búlgar-
íu, var hann helstur ráðamaður
þar uns hann lést.
Reuter/-dþ.
unnenda úr heimsmeistarakepp-
ninni. í hópnum var nýfætt bam,
í þennan heim borið í vestur-
þýska sendiráðinu í Tirana.
Nokkrir þurftu á læknishjálp að
halda og sumir kváðust ekki hafa
borðað neitt í þrjá daga, enda
vom þrengsli gífurleg í sendiráð-
unum og albönsk yfirvöld leyfðu
ekki flutning þangað á matvælum
og lyfjum utanlands frá handa
flóttamönnum. Einn ungur mað-
ur var ekki í öðru en stuttbuxum.
Góðhjartaðir hafnarverkamenn
gáfu honum skyrtu, og er tekið
fram í frétt að hún hafi verið blá
og hrein.
Skipin, sem fluttu flóttafólkið
yfir Ádríahaf, lögðu að hafnar-
bakka í Durres að nóttu til, að
sögn vegna þess að albönsk yfir-
völd vildu að flutningamir færu
leynt. Að öðmm kosti mætti bú-
ast við að fleiri þarlandsmenn
reyndu að ryðjast um borð. Ríki
þau vestræn, er taka við fólkinu
úr sendiráðunum, virðast raunar
miðlungi áhugasöm um að fá
fleiri innflytjendur þaðan úr
landi. Vestur-Þýskaland, Frakk-
land og Ítalía hafa lokað sendi-
ráðum sínum í Tirana til bráða-
birgða, að sögn talsmanna
stjóma þessara ríkja vegna
hreingeminga eftir dvöl flótta-
fólksins þar, en í fyrri frétt var
haft eftir vesturþýskum tals-
mönnum að lokað yrði til að
koma í veg fyrir áframhaldandi
streymi Albana í sendiráðin.
Meira en helmingur þeirra Al-
bana, sem yfirgáfu land sitt í
fyrrinótt, hafði leitað hælis í vest-
urþýska sendiráðinu og beðist
leyfis til landvistar í Vest-
ur-Þýskalandi. En ummæli og
blaðaskrif þaðan úr landi, þar
sem mörgum finnst að meira en
Albanir, sem leituðu hælis í sendiráði Tékkóslóvakíu íTirana, nýkomn-
ir til Prag - ekki allsstaðar hjartanlega velkomnir.
nóg sé af útlendingum fyrir,
benda ekki til þess að Albanir
þessir séu hjartanlega velkomnir.
Reuter/-dþ.
Rúmenía
20.000 á kröfufundi
Yfir 20.000 manns söfnuðust
saman á útifund við stjómar-
byggingar í Búkarest i gær og
kröfðust þess m.a. að stúdenta-
leiðtoginn Marian Munteanu yrði
látinn laus og að námumenn, sem
stjórnin kallaði til liðs við sig gegn
mótmælafólki í s.l. mánuði yrðu
leiddir fyrir rétt. Stúdentar höfðu
forustu í kröfuaðgerðunum en
margir aðrir tóku þátt í þeim.
Stúdentar, sem ávörpuðu
mannfjöldann, héldu því fram að
mikið vantaði á að grundvallar-
mannréttindi væru í heiðri höfð í
landinu. Munteanu var einn for-
ustumanna stúdenta í mótmæla-
aðgerðum gegn stjórnvöldum í
s.l. mánuði, en við þær kom til
heiftarlegra átaka með mótmæ-
lafólki og lögreglu. Kvöddu
stjómvöld þá sér til hjálpar
námumenn, sem tvístruðu mót-
mælafólki og gengu fram við það
af miklum hrottaskap. Sex manns
biðu bana í átökum þessum.
Munteanu slasaðist þá alvar-
lega, var handtekinn og er í
sjúkrahússfangelsi nálægt Búka-
rest. Kröfu- og mótmælaaðgerð-
imar í gær vora þær fjölmennustu
þarlendis frá því að Ceausescu
einræðisherra var steypt af stóli í
des. s.l.
Reuter/-dþ.
Lœknavísindi
Voni faraóamir með eyðni?
Tveir Hollendingar, Rutger
Perizonius fomleifafræðingur
við háskólann í Utrecht og Jaap
Goudsmit, sem stundar rann-
sóknir í læknavísindum, hafa nú
til rannsóknar smyriinga af Eg-
yptum, sem létust fyrir um 5000
árum, á þeim forsendum að ekki
sé óhugsandi að þeir hafi þjáðst af
eyðni eða svipuðum sjúkdómum.
Apar og kettir, sem lagðir voru
smurðir I grafir í Egyptalandi
fyrir 2500 árum, eru einnig
rannsakaðir í þessum tilgangi.
Þeir Perizonius og Goudsmit
hafa við rannsóknimar hliðsjón
af þeirri skoðun nokkurra vís-
indamanna, að eyðni sé miklu
eldri sjúkdómur en hingað til hef-
ur almennt verið álitið. Sumir vís-
indamenn telja sjúkdóminn upp-
runninn í Afríku. Almennt er út
frá því gengið að hann hafi fyrst
uppgötvast í byrjun níunda ára-
tugar, en að vísu tilkynntu bresk-
ir læknar fyrr í mánuðinum að
þeir hefðu fundið merki þess að
sjómaður nokkur, sem lést 1959,
hefði verið með eyðni.
Apamir og kettimir era
rannsakaðir vegna þess að þeir
vora af sömu tegundum og enn
era uppi og bera í sér veira líka
þeirri sem veldur eyðni. Smyrl-
ingamir sem era í rannsókn era á
söfnum í Lundúnum og Torino,
þ.á m. British Museum.
Reuter/-dþ.
Pólland
einkavæðist
Neðri deild pólska þingsins
samþykkti í gær með öllum þorra
atkvæða að leysa upp miðstýrða
efnahagskerfið frá valdatíð
kommúnista og vinda bráðan bug
að því að einkavæða efnahagslíf-
ið. 328 þingmenn greiddu tillögu
um þetta atkvæði, tveir vora á
móti og 39 sátu hjá.
Fyrrverandi þingmenn komm-
únista og bandamenn þeirra, sem
hafa drjúgan meirihluta í
deildinni, tóku höndum saman
við þingmenn ríkisstjórnar og
Samstöðu í atkvæðagreiðslunni.
Er gert ráð fyrir að með sam-
þykkt framvarps þessa, sem lagt
var fram af stjóminni, fari í hönd
gagnger umskipti í efnahagslífi
landsins.
Hryðjuverk
í Monróvíu
Barist er enn í úthverfum
Monróvíu, höfuðborgar Líberíu,
og er hermönnum Samuels Doe,
forseta, farið að veita betur.
Charles Taylor, leiðtogi upp-
reisnarmanna, sagði fyrir
skömmu að borgin myndi öll á
þeirra valdi í lok vikunnar. Stjórn
Doe sakaði uppreisnarmenn í
gær um að hafa gengið hús úr húsi
í úthverfum, sem era á valdi
þeirra, og drepið karla, konur og
böm af þjóðunum Krahn og
Mandingó, sem hlynntar era
Doe.
NÁMSMENN ATHUGIÐ !
Frestur til að skila umsókn um námslán
fyrir næsta skólaár er að renna út.
Síðasti skiladagur er
1. ágúst n.k