Þjóðviljinn - 14.07.1990, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 14.07.1990, Blaðsíða 12
—SPURNINGIN— Finnst þér rigningin góð? IMÓÐVIUINN Laugardagur 14. júlí 1990. 129. tölublað 55. örgangur. SÍMI 681333 SÍMFAX 681935 Gunnar Jónsson vagnstjóri: Stundum. Þegar hennar er þörf þá er hún góð, til dæmis eftir mikla þurrka eins og núna. Lilja B. Kjartansdóttir 10 ára: Já, stundum. Þegar það er búin að vera mikil sól og gróðurinn er þurr. Karlpeningurinn er iðinn við að spá í bolla og blöð á kaffihúsum borgarinnar. Bœjarlífið Hugleiðing um kaffi, kaffihus í bœnum, kúnna og kaffibrauð Kaffihúsin í bænum eru sívinsæl, og þykir mönnum gott að bregða sér inn úr rigningunni (eða sólinni) í erli dagsins og fá sér kaffilús og vindling. Myndir: Jim Smart. Eggert Helgason, farmaður: Finnst mér rigningin góð?! Nei, langt í frá. Ég vil hafa sól. Arnar Bergþórsson, nemi: Að vissu marki. Hún er góð þegar maður er að vinna eða læra undir próf. Mér þykir gott að setjast niður og fá mér sopa, en ekkert skólp, takk, sagði karl á einu kafTihúsanna í bænum við Þjóð- viijann. Hugmyndir manna um kaffi- hús eru oft rómantískar. Margir tengja þau París, þar sem hittast andans menn og kúnstnerar og spjalla um listir og líðandi stund. A kaffihúsum hafa nýjar heims- myndir fæðst og byltingar verið skipulagðar. En fara menn enn á kaffihús? Til þess að kanna það fór Þjóðviljinn á stúfana, rölti um bæinn og stakk nefinu inn í gætt- ina á nokkrum þeirra. Til eru margs konar kaffihús, ný og gömul. Sum eru úti í iðnað- arhverfunum, og þangað fara menn til að fá sér bita og kíkja í blöðin. Önnur kaffihús eru í mið- bænum, og þangað fer fólk til að sýna sig og sjá aðra, og auðvitað til að fá sér kaffilús líka. íslend- ingar eru miklir kaffisvelgir, og drekka allra þjóða mest af þess- um svarta baunadrykk. Kaffikarlar Leiðin liggur fyrst niður á höfn í Grandakaffi, sem áður hét Hafnarböð. Ásdís skenkir kaff- inu í bollana þar, og hún segir sína kúnna aðallega vera vinn- andi fólk, og þeir sömu fái sér tíu hjá henni allt að því fjórum sinn- um á dag. Sjómenn, netagerðar- menn, trillukarlar og leigubíl- stjórar eru meðal fastagesta Grandakaffis, og þykir mönnun að sögn Ásdísar best á fá sér kökur með kaffinu. Á Grandak- affi er heimilislegur andi, og kaff- idömurnar þekkja kúnnana með nafni, og spyrja þá hvernig hafi fiskast þegar þeir renna á ilminn eftir að þeir koma í land. Skammt frá er annar staður, Kaffivagninn, þar var mikil ös og hamagangur í öskjunni þegar blaðamaður kom þangað í hádeg- inu. Þar stóðu menn í biðröð við pottana, og skammturinn var ekki skorinn við nögl. í reykmett- uðu loftinu sátu mest karlar í bláum vinnusamfestingum, þó slæddist inn fjölskyldufólk með, molasopinn var svo sötraður eftir matinn. Á veggnum við inn- ganginn var vísa um staðinn, þar var tæpt á fjölskrúðugum við- skiptavinum Kaffivagnsins, og samkvæmt vísunni eru þeir m.a. bátamenn og bílstjórar, bændur, smiðir, málarar, trillumenn og togarakarlar, vitleysingar, vitr- ingar, vinstrimenn og burgeisar. Undir vísuna er skrifað J.S. Prikið nefnist lítt áberandi staður á horni í Bankastræti, flestir ganga hjá, en þetta er án efa eitt fallegasta kaffihúsið í bænum. Ávalt barborðið er eins og í „dænerum" í henni Ameríku, og þar sitja karlar í röðum og lepja kaffi og borða helst rúnn- stykki með, segir hún Margrét, sem hellir í bollana á Prikinu. Hún segir langflesta viðskiptavini staðarins vera karlmenn, sem venji flestir komur sínar þangað reglulega. Einnig slæðist inn túr- isti stöku sinnum. Þá liggur leiðin á Mokka, sem er með þekktari kaffihúsum í bænum, og kemst næst því að vera eins og í útlöndum, eða þannig. Þar standa þær Kristín og Anna bak við borðið, og segja að nokkrir kúnnanna hafi sótt stað- inn í allt að því þrjátíu ár. Þeir sem sækja staðinn sjá einatt sömu andlitin. Dagur Sigurðarson er einn þeirra sem þar er oft að finna, Sigfús Daðason, Þorvaldur í KRON og Stefán frá Möðrudal eru þar einnig fastagestir, Þor- steinn frá Hamri var einnig vanur að sitja þar, og gerir vafalaust enn. Á Mokka er notaleg stemmning, og alls konar fólk á öllum aldri situr í makindum, eða ræðist við af kappi á meðan það drekkur heimsborgarkaffið úr mokkabollunum. Súkkulaðið og vöfflurnar eru vinsælastar hjá okkur segja þær stöllur Anna og Kristín. Kaffikerling er niðrandi orð um konur sem spjalla og slúðra yfir kaffibollunum, en Þjóðvilj- inn gat ekki betur séð en karlar væru mun iðnari við kaffidrykkj- una og spjallið á kaffihúsum borgarinnar en kerlingarnar, og mætti því allt eins tala um kaffi- karla. Kaffihúsin eru greinilega sívin- sæl, og voru allir viðmælendur Þjóðviljans sammála um það að notalegt væri að stinga sér inn í hlýjuna og ilminn og taka sér ör- stutt hlé frá erli dagsins og há- vaða götunnar og hressa sig með einum svörtum. BE Ása Áskelsdóttir, húsmóöir: Nei, mér finnst það nú ekki. [Við Svíar erum fremstir allra í félagsmálum. Hjá okkur er kerfið fullkomnað. Við berum mesta virðingu tyrir mannréttindum, dýra vernd og öllu því sem þarf að vernda... ...og við erum bara með kjarnorkuver af illri nauðsyn. Auðvitað hötumst við út í þetta kjarnorku ullabjakk og...

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.