Þjóðviljinn - 14.07.1990, Blaðsíða 3
Einkarekin dagheimili
Borgin nísk á framlag
Borgarráð samþykkti aðeins 15 % framlag til stofnkostnaðar einka-
rekinna dagheimila. Ríkið greiddi áður 50%
eÖ þessari ákvörðun leggur
borgin stein í götu þeirra sem
ætla sér að koma á stofn einka-
reknum dagheimilum, segir með-
al annars í bókun Guðrúnar Ág-
ústsdóttur sem hún lagði fram í
borgarráði í gær, en þá sam-
þykkti borgarráð að framlag
Reykjavfkurborgar tii
stofnkostnaðar einkarekinna da-
gvistarheimila skyldi vera 15%
kostnaðarins.
Eftir að lög um verkaskiptingu
ríkis og sveitarfélaga tóku gildi
um áramót hafði það m.a. í för
með sér að uppbygging dagvistar-
stofnana heyrir nú alfarið undir
sveitarfélögin. Áður greiddi ríkið
50% stofnkostnaðar við einka-
rekin dagvistarheimili.
Samþykkt borgarráðs frá því í
gær byggir á samþykkt sem gerð
var í stjóm dagvistar bama en þar
var samþykkt að Reykjavíkur-
borg greiddi aðeins stofnkostnað
við lóðagerð, en hann er talinn
vera um 15% af stofnkostnaði
dagvistarheimila.
Kristin Á. Ólafsdóttir lagði til í
sinni bókun á borgaráðsfundi í
gær að borgarráðið hafnaði þess-
ari samþykkt stjómar dagvistar
bama og samþykkti að greiða
50% af stofnkostnaði eins og rík-
ið hefur gert. Tillaga stjómar
dagvistar var samþykkt með
öllum atkvæðum sjálfstæðis-
manna gegn einu atkvæði minni-
hlutans.
-sg
Suður-Afríkusamtökin
Höldum barátbmni
áfram!
Suður-Afrfkusamtökin gegn
Apartheid efna nk. fimmtu-
dag tU baráttufundar, sem ber
vfirskriftina „Höldum baráttunni
áfram!!“. Tilgangurinn er að
vekja almenning meira til vitund-
ar um vandamál svartra íbúa
Suður-Afríku, hvað í rauninni er
að gerast þar og hvernig íslend-
ingar geta stutt baráttuna gegn
Apartheid.
Að sögn Judy Hall stjórnar-
meðlims S.A.G.A. er möguleiki
á því að Nelson Mandela formað-
ur ANC komi til íslands í haust,
og þess vegna er mjög brýnt að
vera sem best undirbúin og að
sem flestir séu virkir í samtöku-
num. í Suður-
Afríkusamtökunum eru að sögn
Judy, ekki nógu margir virkir fé-
lagar. „Það eru mjög margir á
skrá hjá okkur, en það vantar
fleiri sem eru virkir og taka þátt í
starfinu. Sérstaklega núna þegar
möguleiki er á að Nelson Mand-
ela komi til íslands. Á fundinum
ætlum við að tala um hvers vegna
það er nauðsynlegt að halda bar-
áttunni áfram, hvað og hverjir
eru ANC, hvað Nelson Mandela
segir og síðast en ekki síst ætlum
við að ræða um hvemig íslend-
ingar geti stutt baráttuna gegn
Apartheid,“ sagði Judy.
Sem kunnugt er hafa verið sett
lög um innflutningsbann á vörur
frá Suður-Afríku. Judy sagði að
svo virtist sem ekki væri alveg far-
ið eftir þeim lögum. „Ef þú ferð í
stórmarkað sérðu t.d. Del Monte
ávexti sem era frá Suður-Afríku.
Síðast þegar við vöktum máls á
þessu, hurfu ávextimir úr hillun-
um, en komu strax aftur þegar
umræðan var búin. Við viljum að
fólk hugsi um þetta. Við höfum
talað við aðila hjá ASÍ og fleiri,
en almenningur þarf að vera með
í umræðunni og vera meðvitaður
um ástandið. Það er mjög áhrifa-
mikið ef íslendingar mótmæla
stefnu stjórnvalda í Suður-
Afríku, til dæmis með því að
skrifa bréf, eða halda innflutn-
ingsbanninu áfram. Hvíta minni-
hlutanum þykir það mjög óþægi-
legt þegar þeir sjá að það er allur
heimurinn sem fylgist með hvað
er að gerast. Að jafnvel íslend-
ingar vita um þetta hræðilega
ástand sem þarna ríkir,“ sagði
Judy.
Judy Hall stjórnarmeðlimur S.A,
haldi baráttunni gegn Apartheid
Sem fyrr segir verður fundur-
inn haldinn næstkomandi
fímmtudag, og verður hann í
húsakynnum Iðnnemasambands-
ins að Skólavörustíg 19 kl. 20.00.
Allir eru velkomnir og verða um-
ræður þýddar, bæði af ensku yfir
á íslensku og öfugt.
G.A.: „Nauðsynlegt að (slendingar
áfram. Mynd: Kristinn.
Hafskip
Páii
í stað
Jónatans
Fjórði ríkissaksókn-
arinn
,JÉg hef nú lítið um þessa
skipan að segja að svo stöddu
annað en það að hún kom mér
ekki á óvart, miðað við það sem á
undan er gengið. Nei, ég er ekki
hjátrúarfullur og skiptir mig
engu þó að þetta beri uppá þann
þrettánda og það á föstudegi,“
sagði Páll A. Pálsson hæstarét-
tarlögmaður.
í gær skipaði Óli Þ. Guðbjarts-
son dómsmálaráðherra Pál til að
gegna störfum ríkissaksóknara í
málum er tengjast gjaldþroti
Hafskips hf. Jafnframt hefur
Jónatan Þórmundsson, prófess-
or, að eigin ósk, verið leystur frá
störfum sem ríkissaksóknari í
► málinu. Páll A. Pálsson er fjórði
ríkssaksóknarinn sem tekur að
sér málefni Hafskips en á undan
honum hafa unnið að því ríkis-
saksóknaramir Þórður Björns-
son, Hallvarður Einvarðsson og
nú síðast Jónatan Þórmundsson.
Páll A. sagði að hann hefði þrjá
mánuði til að taka ákvörðun um
það hvort dómsniðurstöðu Saka-
dóms yrði áfrýjað til Hæstaréttar.
Páll starfaði með Jónatan að mál-
inu frá því seinnipartinn í nóvem-
ber 1988.
-grh
Skútustaðahreppur
Siðlaus vinnubrögð
Meirihlutinn rœður oddvita sinn sem sveitarstjóra þráttfyrir að hann
hafi ekki verið einn umsœkjenda um starfið
HELGARRUNTURINN
GÚRKUTÍÐ í fréttum, en ekki í listum. Þótt komið sé hásumar eru
myndlistarmenn þjóðarinnar ekki af baki dottnir. í dag opnar Nýlista-
safniö við Vatnsstíg á ný eftir árs lokun. Þrjár sýningar veröa í gangi
næstu vikurnar: (forsal og gryfju sýnir Frakkinn Bauduin, á miðhæð-
inni verður Níels Hafstein með einkasýningu, og í gamla SÚM-
salnum verður safnsýning á verkum Ástu Olafsdóttur, ívars Val-
garðssonar, Rúnu Á. Þorkelsdóttur og Þórs Vigfússonar. ( FÍM-
salnum opnar enn ein ung myndlistarkona i dag. Að þessu sinni sýnir
Inga Þórey Jóhannsdóttir málverk við Garðastræti. Konurnar eru
áberandi þessa dagana því að á Kjarvalsstöðum opnar Nína Gauta-
dóttir sýningu á táknverkum sínum, og aldursforseti listakvennanna
María Ásmundsdóttir sýnir í Félags- og þjónustumiðstöð aldraðra að
Bólstaðarhlíð 43. Kjarvalsstaðir hafa einnig sett upp hina árlegu
sumarsýningu á verkum meistara Kjarvals, að þessu sinni undir
yfirskriftinni Land og fólk. Einnig má minna á að á sunnudag lýkur
sýningu Listasafns Islands á verkum Frakkans Andrés Massons.
Eg tel þessi vinnubrögð ófor-
svaranleg og siðlaus, sagði
Kári Þorgrímsson fulltrúi H-
listans í sveitarstjórn Skútustaða-
hrepps, en meirihluti sveitar-
stjórnar ákvað á fundi að ráða
Sigurð Rúnar Ragnarsson,
oddvita meirihlutans, sveitar-
stjóra, þrátt fyrir að starfið hefði
verið auglýst og Sigurður Rúnar
hefði ekki verið meðal umsækj-
enda.
Kári sagði að á fyrsta fundi ný-
rrar sveitarstjómar hefði verið
samþykkt samhljóða tilllaga frá
meirihlutanum um að auglýsa
starf sveitarstjóra og hefðu sjö
manns sótt um. Fyrir síðasta fund
hreppsstjómar, sem haldinn var í
byrjun júlí voru fulltrúum minni-
hlutans sendar þessar umsóknir
og töldu þeir að fjallað yrði um
umsóknimar á fundinum.
„Umsóknirnar voru hinsvegar
aldrei teknar til umfjöllunar
heldur kom meirihlutinn með til-
lögu um að Sigurður Rúnar, sem
ekki var á meðal umsækjenda,
yrði ráðinn sveitarstjóri. Sam-
kvæmt fundarboði töldum við að
það ætti að fjalla um umsækjend-
ur og þar sem engin samþykkt
sveitarstjómar um að hætt yrði
við að ráða eftir umsóknum var
fyrir hendi, auk þess sem við
höfðum ekki fengið tækifæri til
þess að kynna okkur tillöguna um
Sigurð Rúnar sem sveitarstjóra,
kröfðumst við þess að tillögunni
yrði frestað. Meirihlutinn felldi
þá tillögu og samþykkti síðan sína
tillögu um að ráða oddvita sinn
sem sveitarstjóra. Þá gengum við
af fundi.“
Kári sagði að fulltrúar minni-
hlutans myndu kanna hvaða
leiðir þeir hefðu til þess að fá mál-
ið tekið upp að nýju á fundi
sveitarstjórnar með löglegum
hætti.
-Sáf
Kvikmyndasjóður
Norrænt kvikmyndasamstarf
KvikmyndastofnanirNorðurlandanna œtla aðfjár-
magna sameiginlega fimm kvikmyndir
Aætlun um samstarf kvik-
myndastofnana Norðurland-
anna um kvikmyndasamstarf var
gerð nýiega. Ætlunin er að fjár-
magna fímm myndir, eina frá
hverju landi, og tryggja sýningu
myndanna í öllum löndunum.
Kvikmyndasjóður íslands hef-
ur ákveðið að taka þátt í verkefn-
inu, ef fjárveiting fæst til þess, en
þetta eina verkefni myndi tæma
sjóðinn í ár ef aukafjárveiting sú
sem hann hefur sótt um fæst ekki.
Heildarkostnaður verkefnsins
verður væntanlega um 800 milj-
ónir.
Danir, Svíar og Norðmenn
hafa þegar valið verkefni, en
Finnar og íslendingar munu til-
nefna sín verkefni síðar. Þetta
mun vera í fyrsta skipti sem svo
mörg lönd taka sameiginlega þátt
í að fjármagna kvikmyndaverk-
efni hvers annars. Gert er ráð
fyrir að halda opna samkeppni
um þátttöku í verkefninu hér-
lendis. gE
LANDSBYGGÐARMENN og ferðalangar hafa einnig úr nokkrum
sýningum að velja. MENSA kallast nýstofnuð menningarsamtök
Sunnlendinga, í tengslum við stofnunina var opnuð sýning á verkum
Gunnars Arnar Gunnarssonar í húsakynnum Skálholtsskóla ný-
lega. Þeir sem leið eiga um Suðurland geta einnig séð sýningu Óiafs
Th. Ólafssonar á Hótel Selfossi. (Reykholti stendur enn yfir stórsýn-
ing nítján myndlistarmanna sem tengjast sveitinni á einn eða annan
hátt. ísafjörður er kannski ekki í alfaraleið, en slæðist menn vestur á
firði eiga þeir þess kost að sjá sýningu Frakkans Bauduin í Slunkaríki.
SUM ARTÓNLEIKAR f Skálholtskirkju hefjast í dag og standa næstu
fimm helgar. Að þessu sinni verða tónleikarnir með sérstöku hátíð-
arsniði því að þetta er fimmtánda árið í röð sem þeir eru haldnir.
Hátíðardagskráin í dag og á morgun er tileinkuð miðaldaverkinu Þor-
lákstíðum, sem frumflutt var (Skálholtskirkju. Tónleikarnir hefjast með
söng Hamrahlíðarkórsins, eftir ávarp og erindi flytja félagar úr ís-
ieifsreglu og prestar latnesku andstefin úr aftansöng Þorlákstíða.
Seinna um daginn verða frumflutt verk eftir Þorkel Sigurbjörnsson
og Mist Þorkelsdóttur o.fl. Á morgun verða tónverk byggð á stefjum
úr Þorlákstíðum flutt og messað. Aðgangur er öllum opinn og ókeypis.
HÚSDÝRAGARÐURINN í Laugardal er opin frá kl. 10 á sunnu-
dagsmorguninn, selunum er gefið skömmu seinna og síðan verða
hreindýr og hestar teymd um svæðið. Krakkarnir geta einnig kynnst
því hvaðan mjólkin kemur rétt fyrir lokun kl. 18. Árbæjarsafn stendur
fyrir fjölskylduhátíð þessa helgi, og ungir sem aldnir fá tækifæri tii að
sjá og kynnast starfsháttum og handverki fyrri tíma.
DAGSFERÐ út í náttúruna er góður máti til að gleyma striti og streitu
um stund. Ferðafélagið býður ferðir á morgun í Þórsmörk, og göngu
um Klambragil og Reykjadal. Útivist stendur fyrir þremur ferðum á
morgun, í Bása, fjallgöngu í Hrafnabjörg og létta göngu á Núpafjall.
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3