Þjóðviljinn - 14.07.1990, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 14.07.1990, Blaðsíða 11
í DAG VIKULOK Hin hefðbundna Þjóðhátíð verður haldin nú sem fyrr í Herjólfsdal í Vestmannaeyjum. Það er íþróttafélag- ið Þór sem heldur hátíðina að þessu sinni, en Knattspyrnufélagið Týr hélt hana í fyrra. Félögin skiptast því á að halda þessa merku uppákomu Eyja- manna. Hátíðin hefst föstudaginn 3. á- gúst og stendur til sunnudagsins 5. á- gúst, en það hefur þó viljað gerast að landkrabbar neiti að fara upp á land aftur á sunnudeginum, vilja helst vera sem lengst og fara ekki fyrr en á mánu- degi. Þjóðhátíðin hefur verið haldin allt frá árinu 1874, en þá héldu landsmenn upp á 1000 ára búsetu á landinu. Eyjamenn komust hins vegar ekki upp á land og héldu sína eigin Þjóðhátíð. Þannig hefur það verið með örfáum undantekningum og það má því segja að hátíðin sé nú hald- in í 116. sinn. Þótt Þjóðhátíð hafi form- lega fallið niður i einhver skipti, segja Eyjamenn að hún falli í raun aldrei niður. Það sé alltaf eitthvað að gerast þessa daga. Undirbúningur fyrir Þjóðhátíð 1990 er nú kominn á lokastig, og allt að verða klárt í Dalnum. Verið er að reisa þjóðhá- tíðarmannvirkin, danspalla, sölubúðir, brúna frægu og fleira. Einnig heíúr Brennuliðið verið iðið við að safha i hina Þióðhátíð í Eyiurn 1990 Straumurinn verður til Eyja Þjóðhátíð Eyjamanna verður haldin í 116. sinn í ár. Undirbúningur á lokastigi og allt að verða klárt miklu brennu sem kveikt er í á föstudagskvöldinu. Mörgum þykir Brennuliðið vera heldur djarftækt í söfnuninni, og einstaka trillukarl kann að sakna báts síns einn morguninn. Eyjamenn eru þekktir fyrir skemmtileg tilsvör og eitt sinn þegar Brennu- kóngurinn var spurður fyrir Þjóðhátíð hvað brenn- an yrði stór, svaraði hann að bragði: „Nú auðvitað upp í topp.” Sem fyrr er valinn skemmtikraftur í hveiju rúmi á hátíðinni. Meðal þeirra sem skemmta lands- mönnum og Eyjamönnum verða Stjómin ásamt Sigríði Beinteinsdóttur og Grétari Örvars, Bongó Karls Örvarssonar, Gömlu brýnin, Stertimenn, Mömmustrákar, Bubbi Morthens, og Bjartmar Guðlaugsson. Þá kemur Jóhannes Kristjánsson efl- irherma, Sveinbjöm Guðmundsson grínisti, sem betur er þekktur undir nafninu „Léttasti lundinn”, Hjörtur Benediktsson eftirhcrma verður á svæðinu og ekki má gleyma Brúðubílnum sem skemmtir smáfólkinu. Sérstakt leiksvæði verður fyrir bömin og Tívolí verður starfrækt. Sprang, „þjóðarsport” Eyjamanna verður sýnt á hátíðinni og eru pollamir löngu famir að æfa sig. Þeir em byrjaðir að spranga 5-6 ára gamlir og em hreint ótrúlega leiknir. Bjargsig verður líka sýnt, haldin messa, flugeldasýning og varðeldurinn ómissandi. Hið árvissa Þjóðhátíðarlag hefur verið valið og að þessu sinni er það eftir þá Olaf M. Aðalsteins- son og Guðjón Weige. Lagið heitir „Næturfjör”, sem er mjög vel við hæfi. Aðgangseyrir er 6000 krónur, sem er sama verð og í fyrra. Það telst ekki mikið miðað við öll þau skemmtiatriði sem upp á er boðið. Að sjálfsögðu verða Flugleiðir með loft- brú til Eyja Þjóðhátíðardagana, en í flugflotann hafa fleiri flugfélög bæst við. Þá verður Herjólfur í stöðugum siglingum milli lands og Eyja alla dag- ana. Að sögn þeirra sem starfa í Þjóðhátíðamefhd Þórs, er búist við um 6000 gestum í ár. Mest hefur komið 12.000 manns árið 1986, en í fýrra heim- sóttu Eyjar um 6000 manns. Gífurleg vinna liggur að baki hverri Þjóðhátíð, og er hún öll unnin í sjállboðavinnu. Félagsmenn Þórs hafa unnið baki brotnu í langan tíma og því er það mikilvægt að hún heppnist sem best. Þess vegna hafa þeir Þórsarar pantað gott veður, og hafa rætt vel við Þór sem lofar öllu fögm. Enda er hann ekki þekktur fyrir annað en ljúflyndi og skemmtir sér yfirleitt goða best á Þjóðhátíðum. Þeir sem ætla sér til Eyja á Þjóðhátíð ættu að fara að athuga sinn gang og panta ferðir, því þegar em famar að streyma inn pantanir og fyrirspumir til Flugleiða og Heijólfs. Sérstaklega með það í huga að straumurinn mun að öllum líkindum verða á Þjóðhátíð í Eyjum. ns. Hjá hinu opinbera, góðan dag Það er skelfilegt að vera blaðamaður á sumrin. Ekki nóg með að það sé yfirþyrmandi gúrka og ná- kvæmlega ekkert að gerast, heldur ef svo ólíklega vill til að eitthvað gerist, er enginn við í opinbera kerfinu til að tala við um málið. Ég hef oft furðað mig á því hvar allur þessi fjöldi opinberra starfs- manna heldur sig á hefðbundnum vinnutíma. Auð- vitað em margir hverjir í sumarfríum núna, en fyrr má nú vera. Ef maður þarf að ná i einhvem i kerfinu og hringir, fær maður ótrúlega oft að heyra þessi svör: Nei, hann/hún er rétt ókominn í hús. Nei, hanndiún er rétt nýfarinn í mat. Nei, hann/hún er rétt ókom- inn úr mat. Nei, hann/hún er nýfarinn á fund. Nei, hann/hún er rétt ókominn af fundi. Nei, hann/hún er nýfarinn og kemur ekki meira í dag. Nei, hann/hún er erlendis. Nei, hann/hún tekur ekki síma. Nei, hann/hún er með símatima klukkan þetta og þetta. Og svo náttúrlega, Nei, hann/hún er í sumarfrí. Þetta gildir um nær alla opinbera starfsmenn, og þá em ráðherrar þessa lands ótaldir. Það er hreint enginn hægðarleikur að ná í þá þessa dag- ana. Ef maður er svo heppinn að ná í ritara ein- hvers ráðherra og fær ekki íyrrgreind svör, fær maður bara einhver önnur. Nei, það em menn inni hjá honum/henni, ég skal taka skilaboð og koma þeim til hans/hennar þegar losnar um hann/hana! Og ef maður skilur eftir skilaboð þarf að skilgreina erindið og það fer svo eftir því hvemig skapi við- komandi ráðherra er í, hvort hann nennir eða vill ræða málið og hefur fyrir því að hafa samband til baka. Það er ekki algengt, en kemur auðvitað íyrir. Ef það gerist að hægt er að ná í einhvem í kerf- inu í húsi, er ekki þar með sagt að upplýsingar fá- ist um viðkomandi mál. Nei, það er eins og það sem gerist í þjóðfélaginu sé einkamál og leyndar- mál stjómvalda og komi hinum almenna þegni alls ekkert við. Hann hafí bara ekkert með það að gera að vita um atburði líðandi stundar. Óg þar sem blaða- og fréttamenn eiga að vera einhvers konar tengiliðir stjómvalda við almenning, fínnst manni það nokkuð hart að þurfa að draga upplýsingamola úr kerfinu með töngum, rétt eins og tannlæknir berst við skemmdan og fastan jaxl. Mikil lifandi skelfing held ég að blaða- og fréttamenn verði fegnir, þegar fmmvarpið um upp- lýsingaskyldu stjómvakla kemst í gegnum þingið. Skrýtið að það skuli ekki hafa verið komið löngu fyrr. Kannski vegna þess að stjómvöld hafa ekki viljað gefa neinar upplýsingar? Nei, maður má ekíd vera svona illkvittinn, eða hvað? Þótt þessi harmasaga blaðamanns sé sönn að einhveiju leyti, er þetta kannski óþarflega neikvætt. Þetta er kannski ekki alveg svona slæmt, en það er samt slæmt. Og svona í lokin er ekki úr vegi að segja söguna af því hvemig það gengur fyrir sig að ná í ríkisskattstjórann. Fyrst hringir maður í skiptiborð- ið og talar þar við símastúlku, sem gefur manni samband áfram við fulltrúa. Hann gefur samband við ritara, sem svo ákveður hvort maður náðarsam- legast fær samband við rikisskattstjórann. Það er að segja ef hann er ekki í mat, nýfarinn á fúnd... o.s.frv. Var einhver að tala um að erfitt væri að ná í Keisarann í Kína? ns. ÞJÓÐVILJINN FYRIR 50 ÁRUM Hildarleikurinn færist nær: Þýzk flugvél sökkvir brezkum togara fyrir Austljörðum. Allir menn bjargast nema skipstjór- inn og komust til Stöðvarfjarð- ar. Bessastaðir seldir. Er það Sigurður Jónasson ffam- kvæmdastjóri sem kaupir jörð- ina af Björgúlfi Ólafssyni lækni. Hvenær lækka tómatamir? 14. júlí laugardagur. 195. dagurárs- ins. Sólarupprás í Reykjavík kl. 3.37 - sólariag kl. 23.28. Viðburðir Þjóðhátíðardagur Frakklands og Iraks. Byltingin í Frakklandi hefst með árás á Bastilluna árið1789. DAGBÓK APÓTEK Reykjavik: Helgar- og kvöldvarsla lyfja- búða vikuna 13. til 19. júli er i Borgar Apóteki og Reykjavikur Apóteki. Fyrmefnda apótekið er opið um helgar og annast næturvörslu alla daga kl. 22 til 9 (til 10 á fn'dögum). Siðamefnda apó- tekið er opið á kvöldin kl. 18 til 22 virka daga og á laugardögum kl. 9 til 22 sarn- hliða hinu fynnefnda. LÖGGAN Reykjavík.... Kópavogur..... Seitjamames. Hafnarfjörður. Garðabær..... Akureyri..... .* 1 11 66 "4 12 00 ." 1 84 55 ." 5 11 66 .« 5 11 66 2 32 22 SlökkvHið og sjúkrabílar Reykjavik....................." 1 11 00 Kópavogur.................." 1 11 00 Seltjamames................« 1 11 00 Hafnarfjörður.............." 5 11 00 Garðabær......................« 5 11 00 Akureyri......................." 2 22 22 bCKNAR Læknavakt fyrtr Reykjavik, Seltjamar- nes og Kópavog er í Heilsuvemdarstöð Reykjavikur alla virka daga frá kl. 17 til 8, á laugardögum og helgidögum allan sól- arhringinn. Vitjanabeiðnir, símaráðlegg- ingar og tímapantanir í" 21230. Upplýs- ingar um lækrra- og lyfjaþjónustu eru gefhar i simsvara 18888. Borgarspítal- inn: Vakt virka daga frá kl. 8 til 17 og fyrir þá sem ekki hafa heimilislækni eða ná ekki til hans. Landspitalinn: Göngudeild- in er opin frá kl. 20 til 21. Slysadeild Borgarspitalans er opin allan sólarhring- inn," 696600. Hafnarfjörður Dagvakt, Heilsugæslan, " 53722. Næturvakt lækna,« 51100. Garðabær Heilsugæslan Garðaflöt, n 656066, upplýsingar um vaktlækna, "51100. Akureyrí: Dagvakt frá kl 8 til 17 á Lækna- miðstöðinni," 22311, hjá Akureyrar Apóteki, " 22445. Nætur- og helgidaga- vakt læknis frá kl 17 til 8 985-23221 (farsími). Kefiavik: Dagvakt, upplýsingar í " 14000. Vestmannaeyjar Neyðarvakt lækna, "11966. SJÚKRAHÚS Heimsóknartlmar. Landspitalinn: Alla daga kl. 15 til 16 og 19 til 20. Borgar- spítalinn: Virka daga kl. 18:30 til 19:30, um helgar kl. 15 til 18 og eftir samkomu- lagi. Fæðingardeild Landspítalans: Alla daga kl. 15 til 16, feöratimi kl. 19:30 til 20:30. Fæðingarheimili Reykjavikur v/Eiriksgötu: Almennur tlmi kl. 15-16 alla daga, feðra- og systkinatími kl. 20-21 alla daga. Öldrunaríækningadeild Land- spítalarrs, Hátúni 10B: Alla daga Id. 14 til 20 og eflir samkomulagi. Grensásdeild Borgarspítato: Vtrka daga kl. 16 til 19, um helgar kl. 14 8119:30. milsuvemdar- stöðin við Barónsstig: Alta daga Id. 15 til 16og 18:30 tö 19:30. Landakotsspitali: Alla daga kl. 15 il 16 og 18:30 til 19. Bamadeild: Heimsóknir annarra en for- eldra kl. 16 til 17 alla daga. SL Jósefs- spitali Hafnarflrði: Alla daga kl. 15 til 16 og 19 tjl 19:30. Kleppsspitalinn: Alla daga kl 15 til 16 og 18:30 til 19. Sjúkra- hús Vestmannaeyja: Alla daga kl. 15 til 16 og 19 til 19:30. Sjúkrahús Akraness: Alla daga kl. 15:30 til 16 og 19 til 19:30. Sjúkrahúsið Húsavík: Alla daga kl. 15 til 16 og 19:30 til 20. ÝMISLEGT Hjálparstöð RKl: Neyðarathvarf fyrir unglinga, Tjamargötu 35," 91-622266, opið allan sólarhringinn. Samtökin 78: Svarað er i upplýsinga- og ráögjafarsima félags lesbía og homma á mánudags- og fimmtudagskvöldum M. 21 til 23. Símsvari á öðrum timum. " 91-28539. Sálfræðistöðin: Ráögjöf f sálfræöilegum efnum," 91-687075. Lögfræðiaðstoð Orators, félags laganema, er veitt í síma 91-11012 milli kl. 19:30 og 22 á fimmtudagskvöldum. MS-félagið, Álandi 13: Opíð virka daga frákl. 8 til 17, "91-688620. „Opið hús” fyrír krabbameinssjúklinga og aðstandendur þeirra i Skógathlfð 8 á fimmtudögum kl. 17 til 19. Samtök áhugafólks um atnamtsvand- ann sem vilja styðja smitaða og sjúka og aðstandendur þeirra í" 91-22400 og þar er svarað alla virka daga. Upplýsingar um eyðni:" 91-622280, beint samband við lækni/hjúkrunarfræð- ing á miðvikudögum kl. 18 til 19, annars símsvari. Samtök um kvennaathvarf:" 91- 21205, húsaskjól og aðstoð við konur sem beittar hafa verið ofbeldi eða orðið fýrir nauðgun. Kvennaráðgjöfin Hlaðvarpanum, Vestur- götu 3: Opið þriðjudaga H. 20 til 22, fimmtudaga W. 13:30 til 15:30 og kl. 20 til 22," 91-21500, símsvari. Sjálfshjálparhópar þeirra sem orðið hafa fyrir siflaspellum:" 91-21500, símsvari. Vinnuhópur um sifjaspellsmál: " 91-21260 alla virka daga kl. 13 til 17. Stigamót, miðstöð fýrir konur og böm sem oröiö hafa fyrir kynferðislegu ofbeldi. Ráðgjöf, fræðsla, upplýsingar, Vestungötu 3," 91-626868 og 91-626878 allan sólarhringinn. Bilanavakt rafmagns- og hitaveitu: " 27311. Rafmagnsveita: Bilanavakt i " 686230. Rafveita Hafnarfjarðar BilanavakL " 652936. GENGIÐ 13. júlí 1990 Sala Bandaríkjadollar.............58,81000 Stertingspund...............106,04300 Kanadadollar.................50,84500 Dönsk króna...................9,39080 Norsk króna...................9,31130 Sænsk króna...................9,85920 Finnskt mark.................15,28720 Franskur franki..............10,64480 Belgískur franki..............1,73480 Svissneskur ftanki...........42,14860 Hoilenskt gyllini............31,70950 Vesturþýskt mark.............35,74100 Itölsk lira...................0,04879 Austumskur sch.............. 5,07920 Portúgalskur escudo................. 0,40770 Spánskur peseti...............0,58310 Japanskt jen..........:.......0,39778 Irskt pund...................95,87500 KROSSOÁTA Lárótt: 1 skafrenningur 4 vandræði 6 orka 7 hár 9 órólega 12 bátaskýli 14hrædd 15 hlýju 16 mildar 19 spjót 20 grannur21 muldra Lóðrétt: 2 stækkaði 3 þvo4púar5hryggð7 fausk 8 dá 10 vatna- fiskur 11 dvergsheiti13 hræðslu17heiður18 umdæmi Lausnásíðustu krossgátu Lárétt: 1 ofan4skop6 Ósk7þúst9ótta12 taska 14 mey 15 lög 16 reika 19líki20eðja21 smári Lóðrétt: 2 frú 3 nóta 4 skók5oft7þumall8 styrks 10talaði 11 angrar 13 sói 17 eim 18 ker Laugardagur 14. júlí 1990 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA11

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.