Þjóðviljinn - 14.07.1990, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 14.07.1990, Blaðsíða 2
Arbœjarsafn Lifandi fortíð Afjölskylduhátíð á Arbæjar- safni um heigina verður fort- íðin gædd lífi með sýningu á starfsháttum og handverki fyrri tíma. Tún verður slegið með orfí og Ijá, og smíðað verður úr járni í smiðjunni, tóvinna verður sýnd, netagerð og útskurður aska. Grautarlummur verða bakaðar og boðið upp á spenvolga mjólk, og margt fleira. Gestir geta barið augum elsta bO landsins, og séð prentara og bókbindara að störf- um í aldamótaprentsmiðjunni. í Dillonshúsi býðst mönnum að hressa sig á molasopa eða öðrum veitingum, og hlýða á harmon- íkutónlist á meðan. Krambúðin verður opin fyrir þá sem girnast kandísstangir og þurrkaða ávex- ti. Helgi Sigurðsson safnvörður sagði í viðtali við Þjóðviljann í gær að sýningar og dagar eins og nú um helgina hefðu hafist fyrir alvöru á síðasta ári. Helgi segir slíkar uppákomur lífga mikið upp á safnið, og er stefnt að því að auka hlut þeirra í starfsseminni á næstunni. Að sögn Helga koma íslendingar frekar þegar eitthvað sérstakt er að gerast. Yfir árið eru um tveir þriðju hlutar gestanna íslendingar, en hlutur innlendra og erlendra gesta er svipaður á sumrin. „...og svo kom blessað stríðið" er ein sýninganna sem standa yfir í safninu nú. Að sögn Helga voru stríðsárin tímabil mikillar óvissu og alls konar rasks, en um leið lauk kreppunni og góðæristímar gengu í garð í atvinnumálum landsins. Á sýningunni er reynt að koma til skila anda þessara ára, einu herbergi hefur verið breytt í bragga, þar sem sýnt er hvernig þeir voru notaðir sem bústaðir eftir stíðið. Einnig er á sýning- unni kaffistofa, en þær spruttu upp eins og gorkúlur á stríðsárun- um, segir Helgi, og voru oft ekki annað en eitt herbergi. Á sama tíma spruttu líka upp þvottahús víða. Húsmæður bæjarins reyndu að drýgja tekjur sínar með því að þvo af hermönnunum. Velmeg- unarfjallið svonefnda hefur einn- ig vakið athygli gesta, en hér verður ekki ljóstrað upp hvað það er. Að lokum vildi Helgi Sigurðs- son safnvörður koma því á fram- færi að safnið væri ekki síður skemmtilegt í rigningu, enda í næg hús að venda skelli skúrin á. Fjölskylduhátíðin verður síðan endurtekin að mánuði liðnum. Árbæjarsafn er opið alla daga nema mánudaga frá kl. 10-18. BE ísafjörður ÁaHið þnklofið Uppábúnar upphlutsstúlkur eins og þessi taka á móti gestum á fjöl- skylduhátíðinni í Arbæjarsafni um helgina. Myndina tók Kristinn fyrir utan Krambúðina einn sólfagran dag fyrir skömmu. Hvolsvöllur Til höfuðs atvinnuleysinu Héraðsnefnd Rangæinga skorar á ríkisstjórnina að kaupa húseign Sláturfélags Suðurlands við Laugarnes etta er innanhússmál og ég vil ekkert tjá mig um það, sagði Hans Georg Bæringsson annar maður á lista Sjálfstæðisflokksins á ísafirði þegar hann var spurður hvort hann væri hættur að vinna með meirihlutanum þar í bæ. í gær var haldinn fundur í full- trúaráð sjálfstæðismanna á ísa- firði þar sem Hans Georg gerði grein fyrir þeim ágreingi sem kominn er upp og tilkynnt hann að hann myndi ekki lengur starfa með bæjarmálaflokki sjálfstæðis- manna. Hans Georg sagði hins vegar á fundinum að hann væri ekki hættur að styðja meirihlut- ann að svo stöddu. Hans Georg skrifað Ólafi Helga Kjartanssyni forseta bæjarstjórnar og oddvita sjálfs- tæðismanna bréf þar sem hann krefst skýringa á ýmsu sem hann hefur verið óánægður með í bæjarstjómarmálum á ísafirði að undanfömu. Upp úr sauð þegar Sigrún Halldórsdóttir var kjörin formaður skólanefndar, en sjálf- stæðismenn höfðu gert ráð fyrir að Helga Sigmundsdóttir hlyti það embætti. Sigrún var kjörin með atkvæðum hennar sjálfrar og minnihlutaflokkanna. Krefst Hans Georg skýringar á þessu og einnig að gerður verði ákveðinn ráðningarsamningur við Harald Haraldsson sem ráð- inn hefur verið bæjarstjóri. Eins og kunnugt er leiddi hann í- listann sem var klofningsframboð úr Sjálfstæðisflokknum. Sjálf- stæðismenn á ísafirði sem Þjóð- viljinn ræddi við gær voru sam- mála um að ástæðna þessa ág- reinings sem nú er upp kominn sé að leita til klofningsins sem varð í vor. -sg Isóifur Gylfi Pálmason sveitar- stjóri á Hvolsvelli segir að ein af forsendunum fyrir því að Slát- urfélag Suðurlands geti flutt kjöt- vinnslu sína til Rangárvallasýslu sé að ríkið eða einhver annar kaupi húseign SS við Laugarnes. „Við lítum svo á, með nokkr- um sanni, að ef ríkið kaupir þessa húseign undir menningarstarf- semi, eins og rætt hefur verið um, þá séu þau kaup ígildi byggða- stefnu í reynd gagnvart íbúunum hér “ sagði ísleifur Gylfi. Á fyrsta fundi Héraðsnefndar Rangæinga á þessu kjörtímabili lýsti nefndin yfir ánægju sinni með fyrirhugaðan flutning kjö- tvinnslu Sláturfélags Suðurlands til Rangárvallasýslu. Ennfremur skorar Héraðsnefndin á ríkis- stjómina að kaupa eign Sláturfél- agsins við Laugarnes í Reykjavík til þess að flýta fyrir flutningi Sláturfélagsins. Sveitarstjórinn segir að öll að- staða sé fyrir hendi á Hvolsvelli til að taka á móti kjötvinnslu Slát- urfélagsins í fullkomnu sláturhúsi þorpsins. Að vísu þurfi að kosta einhverju til við breytingar á því fyrir kjötvinnsluna en það sé ekki óyfirstíganleg hindrun. „Það er áætlað að með tilkomu kjöt- vinnslunnar hingað á Hvolsvöll muni bætast allt að 110-130 ár- sverk við það sem fyrir er. Þar með væri hægt að útrýma öllu því atvinnuleysi sem hér er“, sagði ísleifur Gylfi. Rangæingar muna tímanna tvenna í atvinnumálum og að undanförnu hefur ástandið í þeim efnum verið slæmt og þá sérstak- lega hjá konum. í síðasta mánuði voru 50 manns á atvinnuleysiskrá á Hellu og Hvolsvelli þar af 40 konur. í maí var tala atvinnu- lausra mun meiri eða alls 71 á Fornleifarannsóknir Fomleifar annað en ritleifar þessum stöðum og þar af 50 kon- ur. -grh BorRarráð Gunnlaugur Haraldsson, form. Þjóðminjaráðs: Mikilvœgt er að ís- lendingar hafi sjálfir forrœði yfir fornleifarannsóknum hér á landi Astæða þess að við synjuðum Thomas McGovern um leyfi til að grafa upp húsdýrabein á Ströndum í sumar er sú, að við teljum að það eitt og sér réttlæti ekki fornleifauppgröft. McGo- vern getur fengið næg bein að láni hér á landi tU að rannsaka, sagði Gunnlaugur Haraldsson, for- maður Þjóðminjaráðs er hann var inntur eftir ákvörðun ráðsins um að synja McGovern um leyfi tU fornleifauppgraftrar hér á landi í sumar. Fomleifanefnd hafði áður veitt McGovem rannsóknarleyfi með þremur atkvæðum nefndar- manna gegn tveimur. Minnihluti Fornleifanefndar vísaði þá mál- inu til Þjóðminjaráðs sem er lögum samkvæmt æðsti aðili í þessum efnum. Gunnlaugur sagði að með þessari ákvörðun Þjóðminjaráðs væri ekki með neinu móti verið að kasta rýrð á störf og hæfni McGovems. Heldur gmndvall- aði ráðið þessa ákvörðun sína á tvennu: Annars vegar því að þar sem fomleifar væm um margt mjög einstæðar minjar, væri ekki réttlætanlegt að fomleifaupp- gröftur færi fram nema um mjög altæka rannsókn væri að ræða. - Þegar fomleifauppgröftur hefur einu sinni farið fram verður hann ekki endurtekinn. Það er því mikill miskilningur sem kem- ur fram í samþykkt stjómar Fé- lags íslenskra fræða um þetta mál þar sem fomminjar og handrit og skjöl em lögð að jöfnu. Skjöl og handrit er hægt að rannsaka aftur og aftur. Öðm máli gegnir með fomleifar. Þegar einu sinni er búið að hrófla við þeim, er ekki unnt að rannsaka þær aftur frá granni. Þess vegna skiptir miklu að fomleifauppgreftir taki til sem flestra þátta sem máli skipta, en ekki eins afmarkaðs þáttar eins og í þessu tilfelli McGoverns, sagði Gunnlaugur og bætti við að þar skipti engu þjóðemi manns- ins. Það sama gilti um íslenskar rannsóknir. í annan stað sagði Gunnlaugur að það væri orðið löngu tímabært að íslendingar hefðu sjálfir forr- æði yfir fomleifarannsóknum hér á landi. - Aðeins í undantekning- artilfellum er réttlætanlegt að fela erlendum mönnum forræði yfir slíkum rannsóknum. í nágrannalöndum okkar em skýrar reglur um þetta tvennt. Því miður hefur viljað brenna við að erlendir fornleifafræðingar hafi litið á ísland eins og nokkurs- konar nýlendu í þessum efnum. Hér gætu menn komið og grafið í hverjum haug og hól eins og þeim helst lysti í krafti þess að við vær- um öllu þar sem fjármunir til fomleifarannsókna væm mjög takmarkaðir, sagði Gunnlaugur. Gunnlaugur benti á að McGo- vem hefði verið neitað um leyfi til fomleifauppgraftrar á Græn- landi fyrir nokkrum áram á við- líka forsendum og Þjóðminjaráð byggði sína synjun. Þá nefndi Gunnlaugur að hér á landi hefði verið staðið með mjög vafasömum hætti að útlánum fommuna. - McGovern hefur allt frá 1980 fengið að láni mikið af húsdýrabeinum til rannsókna og eftir því sem ég best veit hefur þeim ekki verið skilað aftur. Það skal þó tekið fram að hann er ekki einn um það að hafa fengið gripi til láns og flutt með sér er- lendis til rannsókna. Þjóðminjaráð óskaði eftir greinargerð frá þjóðminjaverði um þá gripi sem em í útláni, þar sem hann hafði yfiramsjón með slíkum útlánum þar til Þjóð- minjaráð var sett á fót. Slíka greinargerð höfum við ekki enn fengið, sagði Gunnlaugur. Þá sagði Gunnlaugur að hann reiknaði með þvi að Þjóðminja- ráð myndi senda stjórn Félags ís- lenskra fræða tilskrif vegna þeirrar yfirlýsingar sem hún sendi frá sér og birtist í Nýju Helgar- blaði Þjóðviljans í gær. - Þar gæt- ir miskilnings sem ekki er hægt að láta ósvarað, sagði Gunnlaugur. -rk Stöð 2 ekki á dagskrá Umsókn stjórnar Stöðvar 2 um að borgin ábyrgist lán til handa stöðinní var ekki á dagskrá borg- arráðs í gær. Að sögn Hjörleifs Kvarans þjá Reykjavíkurborg er inálið í almennri frestun. Þá var einnig frestað umræðum um tillögu minnihlutans um að hluta af andvirði því sem borgin fékk vegna sölu á skemmtistaðnum Glym verði varið til að koma upp unglinga- húsi í miðbænum. Borgarráð samþykkti hins veg- ar tillögu frá minnihlutanum um að ítreka umsókn borgarinnar um framkvæmdalán til bygginga- sjóð ríkisins vegna byggingar leigu- og hlutdeildaríbúða við Lindargötu, en eins og kunnugt er hafnaði stjórn Húsnæðisstofn- unar umsókn borgarinnar fyrir skemmstu. -sg 2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 14. júlí 1990

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.