Þjóðviljinn - 14.07.1990, Blaðsíða 4
Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis og verkalýðshreyfingar
ÍÞRÓTTIR
Eftir er enn
yðar hlutur
Við fréttaneytendur erum orðnir svo vanir því seinni
misserin, að sögð séu góð tíðindi af afvopnun, niðurskurði
vígbúnaðar, fækkun eldflauga búinna kjamoddum, að okk-
ur hættir til að gleyma því, hve takmarkaðir þeir sigrar eru
sem hafa unnist á þessu sviði.
Bandaríska vikuritið Time tekur það að sér í þeirri viku
sera nú er að líða, að minna okkur rækilega á það hve löng
leið er enn ófarin þar til heimurinn verður sæmilega friðvæn-
legur. Og þá er ekki aðeins átt við oft ræddan háska af víg-
búnaðarkapphlaupi í þriðja heiminum, heldur blátt áfram við
risaveldin tvö og það sem Time kallar „dómsdagsmaskínu
Bandaríkjanna”.
Við íslendingar höfum að sönnu fengið af því smjörþef-
inn (vegna tillagna íslenskra stjómvalda um niðurskurð her-
skipaflota) hve erfitt þeir sem ráða ferðinni í vígbúnaðarmál-
um í Bandaríkjunum hafa átt með að breyta stórbreyttum á-
stæðum í heiminum í raunhæfa afvopnun. Það ersama hve
margir traustvekjandi matsmenn komast að þeirri niður-
stöðu að sovéska hættan hafi lengst af verið stórýkt og sé
nú svo smá orðin, að ekki einu sinni íhaldssöm herforingja-
stjóm í Moskvu gæti byrjað aftur á vígbúnaðarkapphlaupi
og endurreist Varsjárbandalagið. Það er enn furðu mikið eft-
ir af þeirri bandarísku stefnu sem heldur til streitu vígbúnað-
arstigi sem er í hróplegri andstöðu við stórbreyttar aðstæð-
ur í stjómmálum heimsins.
Tlme vitnar í ýmsa áhrifamenn, ekki síst úr flokki
Demókrata, sem bera nú fram kröfur um að tekin sé til end-
urskoðunar sú stefna í kjamorkuvígbúnaði sem byggir á
„overkill” - á því að margdrepa andstæðinginn.
Time segir að þótt aðeins þriðjungur þeirra 12000 kjam-
orkuskeyta sem Bandaríkin ráða yfir kæmust í gegnum sov-
éskar vamir, þá mundi það naegja að breyta í duft og ösku
hverri einustu borg í Sovétríkjunum sem hefði fleiri en 25
þúsundir íbúa (og vitanlega margar smærri að auki). Samt
sem áður hafa bandarískir samningamenn í afvopnunarvið-
ræðum haldið áfram að taka fýrst og fremst mið af þeirri
„dómsdagsbók” hermálaráðuneytisins, sem skráir öll hugs-
anleg skotmörk í Sovétrikjunum, og vísa því frá sovéskum
tillögum um róttækan niðurskurð á kjamorkuvopnabirgðum
beggja aðila.
Dómsdagsbókin svonefnda er skrá yfir 15000 skotmörk
í Sovétríkjunum og hvemig á að ná til þeirra með eldflaug-
um og flugvélum: hér er um að ræða geymslustaði fyrir
kjamorkuvopn, önnur hemaðarmannvirki, en einnig um 100
þúsund sovéska áhrifamenn í stjómmálum, her og atvinnu-
lífi sem tortíma skal, og svo allskonar verksmiðjur sem tald-
ar eru geta komið hemum að haldi. Gagnrýnendur, sem
Time vitnar í, segja að stefna sú sem birtist í Dómsdagsbók-
inni sé bæði feiknadýr og hættuleg. Hinn gífuriegi fjöldi skot-
marka í Dómdagsbókinni (bandaríska opinbera skammstöf-
unin er SIOP) þvingar Bandaríkin í þá stöðu, þegar það
verður næstum því nauðsynlegt til að ná tilætluðum árangri,
að Bandaríkin bregðist við tvísýnu ástandi með því að verða
fyrst til að beita kjamorkuvopnum - hvað sem líður opinber-
um yfiriýsingum um að Bandaríkin muni aðeins svara fyrir
sig með kjamorkuvopnum EFTIR sovéska árás. (Time vitn-
ar um þetta til Bruce Blairs við Brookings-stofnunina). Gam-
alreyndur samningamaður um afvopnun, Paul Nitze, sem
aldrei hefur verið kenndur við einhliða afvopnun, hann telur
að 3000 kjamorkuvopn mundu nægja til að viöhalda þeirri
„fælingu” sem hefur verið lykilhugtak í vígbúnaði um langt
skeið. Harold Brown fyrrum vamarmálaráðherra telur að
1000 stykki nægi. En til að svo stór stökk verði tekin frá ríkj-
andi ástandi, þá þarf að rífa niður SIOP, Dómsdagsáætlun-
ina, sem enn stýrir öllu: útgjöldum til hemaðar, eftirliti með
vígbúnaði - og miklum háska.
Mú þegar íslandsmótið í
knattspyrnu, Hörpudeildin
er hálfnuð, eru Valsmenn í
fyrsta sæti með 19 stig eftir 9
leiki en á hæia þeim koma KR-
ingar með 18 stig. Frammistaða
þeirra hefur verið óvenjugóð
það sem af er og svo góð að rót-
grónir Vesturbæingar eru þeg-
ar farnir að gæla við þann
draum, sem þeir hafa alið með
sér á þriðja áratug, að íslands-
meistaratitillinn verði þeirra í
haust. Tveimur stigum á eftir
þeim kemur lið Fram með 16
stig sem vann góðan sigur á
efsta liði deildarinnar á þriðju-
dag eftir að hafa tapað illilega
fyrir nýliðum Stjörnunnar í 8.
umferð með þremur mörkum
gegn einu á Laugardalsvellin-
um.
I fótboltanum
skiptast á skin og
skúrir, en þegar
sigur vinnst leynir
fögnuöurinn sér
ekki meðal stuön-
ingsmannanna.
Mynd: Ari.
heitt þegar seinni umferðin hefst.
Þá sækja þeir iið Víkings heim í
Fossvoginn og verður sá leikur á
sunnudag.
Framliðið byrjaði mótið af
miklum krafti og eftir fimm leiki
hafði liðið ekki fengið á sig mark
en skorað þrettán og leiddi deild-
ina með þrettán stig. Eftir það
dalaði liðið verulega og tapaði
þrem næstu leikjum en náði að
rífa sig upp í níundu umferð þeg-
Hörpudeildin
leiki en þeir hafa unnið þijá, gert
fjögur jafntefli og tapað aðeins
tvisvar sinnum. Þeir hafa skorað
tíu mörk og fengið á sig niu.
Markahæstir í liðinu er þeir Gor-
an Micic með fjögur mörk og Atli
Einarsson með þijú.
FH hefur trúlega valdið
stuðningsmönnum sínum tölu-
verðum vonbrigðum í sumar mið-
að við árangur þeirra í fyrra en þá
urðu þeir í öðru sæti deildarinnar
Lokaspretturinn að hefjast
Valur leiðir í hálfleik en fast á hæla þeirra kemur lið KR
Hlíðarendastrákamar
sigurstranglegir
Valur er eina liðið sem leikur
nú í Hörpudeildinni sem ekki hef-
ur fallið niður í aðra deild og seg-
ir það meira en mörg orð um þann
stöðugleika sem virðist einkenna
liðið. Það sem af er íslandsmótinu
hafa margir lykilmenn Valsmanna
verið tíðir gestir á sjúkralistanum
en þó virðist það ekki hafa háð
liðinu að neinu marki og komið
andstæðingum þess að litlu gagni.
I þessum níu leikjum hafa
Valsmenn unnið sex, tapað
tveimur og gert eitt jafntefli. Þeir
hafa skorað fimmtán mörk og
fengið á sig átta. Markahæstur í
liðinu er Siguijón Kristjánsson
sem hefúr skorað fimm mörk en
hann hefur ekki verið með i síð-
ustu leikjum liðsins vegna
meiðsla. Þá hefúr Anthony Karl
Gregory skorað þijú mörk.
Miðað við reynslu undanfar-
inna ára má telja Valsmenn ansi
sigurstranglega í lok mótsins í
þessari stöðu. Þeir hafa oflast nær
byijað mótið slælega en sótt i sig
veðrið þegar liðið hefur á keppn-
ina. Hvort sú verður reyndin í ár
verður að koma í ljós, en óneitan-
lega eru likumar þeim í vil. Fyrsti
leikur þeirra í seinni umferðinni
verður á móti Skagamönnum
uppi á Skaga í dag, laugardag.
Hvað gera Fram og KR?
Eins og staðan er í dag eru
aðal keppinautar Valsmanna um
íslandsmeistaratitilinn KR og
Fram. Þeir svarthvítu hafa byijað
mótið mjög vel og eru nú í öðru
sæti með 18 stig. Þeir hafa skorað
fjórtán mörk og fengið á sig níu.
Unnið sex leiki, tapað þremur og
ekkert jafntefli gert. Markahæstir
í liðinu eru þeir Pétur Pétursson
og Ragnar Margeirsson sem hafa
skorað þrjú mörk hver.
Mikil pressa er á leikmönnum
liðsins að þeir klári dæmið að
þessu sinni og vinni mótið og hef-
ur ekkert verið til sparað að ná því
takmarki i ár. Nýir leikmenn hafa
komið til liðs við KR og má þar
nefna þá Ragnar Margeirsson og
Atla Eðvaldsson. Hvort það næg-
ir til að ná settu marki skal ósagt
látið en óneitanlega er liðið ansi
ar langþráður sigur náðist gegn
Val á Hlíðarenda. Markahæstur
liðsmanna Fram er sem fyrr Guð-
mundur Steinsson með 6 mörk og
er markahæstur í deildinni ásamt
Herði Magnússyni úr FH. Þá hef-
ur Rikharður Daðason skorað
þijú mörk fyrir Fram.
Ef þeir bláklæddu úr Safa-
mýrinni leika eins vel og þeir
gerðu i byijun mótsins stenst ekk-
ert lið þeim snúning og þá eru
þeir til alls líklegir. Hinsvegar
virðist þá skorta stöðugleika sem
er nauðsynlegur ef þeir ætla sér
titilinn í haust. Framarar fá Eyja-
menn í heimsókn í Laugardalinn
á mánudaginn í sínum fyrsta leik í
seinni umferð.
Nýliðarnir koma á óvart
Það sem hefur komið mest á
óvart í Hörpudeildinni er árangur
nýliða Eyjamanna sem eru í
fjórða sæti með 15 stig og áttu
fæstir von á þeim svo sterkum i
fyrri umferðinni. Þeir hafa unnið
fjóra leiki, gert þrjú jafntefli og
aðeins tapað tveimur leikjum.
Þeir hafa skorað tólf mörk en
fengið á sig fjórtán. Markahæstur
þeirra er Hlynur Stefánsson sem
hefur skorað fjögur mörk.
Stjaman úr Garðabæ sem
vann aðra deild í fyrra er í sjö-
unda sæti deildarinnar með ellefú
stig. Þeir hafa einnig komið á ó-
vart með frammistöðu sinni en
liðið er blanda af ungum leik-
mönnum og gömlum refúm sem
virðist gefa góða raun. Stjaman
hefúr unnið þijá leiki og þar á
meðal bæði Val og Fram, tapað
fjómm og gert tvö jafntefli. Liðið
hefur skorað ellefú mörk en feng-
ið á sig fimmtán. Markahæstir em
þeir Ami Sveinsson og Láms
Guðmundsson sem hafa gert þijú
mörk hvor. Stjaman mætir Þór frá
Akureyri í Garðabæ á mánudag.
VíkingurogFH
ummiðjadeild
Hæðargarðspiltamir hafa
einnig komið á óvart í sumar og
sjaldan verið sterkari ef undan-
skilin em gullaldarár þeirra í upp-
hafi síðasta áratugar, en þá vom
þeir með yfirburðalið í deildinni.
Víkingar hafa þrettán stig eftir níu
eftir hörkukeppni við KA sem
hafði sigur á endasprettinum.
Hafnfirðingamir hafa tólf stig,
skorað fjórtán mörk en fengið á
sig þrettán. Markahæstur þeirra er
markakóngur síðasta árs Hörður
Magnússon með 6 mörk og þá
hefúr Pálmi Jónsson skorað þijú.
FH hefur unnið fjóra leiki, tapað
fimm og ekkert jafntefli gert.
Næsti leikur þeirra verður á Akur-
eyri á mánudag þegar þeir sækja
KA heim.
Fallbaráttan
Eftir fyrri umferð íslands-
mótsins heyja þrjú lið harða fall-
baráttu en það em Skagamenn og
norðanliðin tvö, KA og Þór.
Skagamenn hafa aðeins átta stig,
hafa unnið tvisvar, tapað fimm
sinnum og gert tvö jafntefli. Þeir
hafa skorað tíu mörk en fengið á
sig sextán. Markahæstur þeirra er
Bjarki Pétursson með þijú mörk.
Skagamenn eiga því ekki að venj-
ast að þurfa að beijast fyrir vem
sinni í deildinni og því má búast
við hörkuleik á Skaganum á laug-
ardag þegar þeir fá Valsmenn í
heimsókn.
I næstneðsta sæti deildarinnar
er Þór frá Akureyri með 8 stig.
Þeir hafa skorað sex mörk en
fengið á sig tólf, unnið tvo leiki,
tapað fímm og gert tvisvar jafn-
tefli. Markahæstur þeirra er
Bjami Sveinbjömsson sem hefúr
gert þijú mörk. Of snemmt er að
afskrifa Þórsara þar sem þeir hafa
löngum orðið að beijast við fall á
liðnum sumrum en bjargað sér á
síðustu stundu. Hvort sú verður
reyndin í ár skal ósagt látið en
róðurinn verður þungur.
Núverandi Islandsmeistarar
KA reka síðan lestina í Hörpu-
deildinni en þeir hafa aðeins feng-
ið sjö stig úr níu leikjum. Þeir
hafa unnið tvo leiki, tapað sex og
gert eitt jafntefli. Liðið hefúr
skorað átta mörk en fengið á sig
fjórtán. Markahæstur þeirra er
Ormarr Örlygsson sem hefúr gert
þijú mörk. Trúlega er það eins-
dæmi í íslenskri knattspymusögu
að Islandsmeistarar fyrra árs
vermi neðsta sæti deildarinnar að
ári, eins og KA gerir þegar leikn-
ar hafa verið níu umferðir af
átján. —grh
þJÓÐVILJINN
Síðumúla 37 —108 Reykjavík
Sími: 681333
Símfax: 681935
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans.
Framkvæmdastjóri: Hallur Páll Jónsson.
Ritstjórar: Ámi Bergmann, Ólafur H. Torfason.
Fréttastjóri: SigurðurÁ Friðþjófeson.
Aðrir blaðamenn: Bergdís Blertsdóttir, Dagur
Þorieifsson, Elías Mar (pr.), Garðar Guðjónsson,
Guömundur Rúnar Heiðarsson, Heimir Már Pétursson,
Hildur Finnsdóttir (pr.), Jim Smart (Ijósm.), Kristinn
Ingvarsson (Ijósm.), Vilborg Davíðsdóttir, Þröstur
Haraldsson.
Skrifstofustjóri: Sigrún Gunnarsdóttir.
Skrifstofa: Guðrún Geirsdóttir, Kristfn Pétursdóttir.
Auglýsingastjóri: Steinar Harðarson.
Auglýsingar: Guðmunda Kristinsdóttir, Svanheiður
Ingimundardóttir.
Útbreiðslu- og afgreiðslustjóri: Guðrún Gisladóttir.
Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Halla Pálsdóttir, Hrefna
Magnúsdóttir, Þorgerður Sigurðardóttir.
Bílstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir.
Skrífstofa, afgreiðsla, ritstjóm, auglýsingan
Siðumúla 37, Rvik.
Sími: 681333.
Símfax: 681935.
Auglýsingan 681310, 681331.
Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf.
Prentun: Oddi hf.
Verö f lausasölu: 100 kr. Nýtt Helgarblað: 150 kr.
Askriftarverð á mánuði: 1100 kr.
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 14. júlí 1990